Morgunblaðið - 13.02.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.02.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRUAR 1974 31 skip með afla þrátt fyrir lönd- unarerfiðleika ENN ER nokkur loðnuveiði þrátt fyrir gífurlega lönd- unarerfiðleika. Skipin þurfa nú oft að bíða í 2—3 sólar- hringa eftir löndun, og ástandið versnar með hverjum deginum sem líður. Frá því ki. 20. í fyrra- kvöld til kl. 19.00 í gærkvöldi tilkynnti 31 skip um afla til loðnunefndar, samtals 5500 lestir. Flest fóru skipin á Austfjarða- hafnir, en mörg ætluðu að reyna að koma loðnunni í frystingu á Ekið á kyrr- stæða bifreið AÐFARARNÖTT sunnudagsins 9. febr. sl., frá kl. 01 til kl. 09 um morguninn, var ekið á bláa Ford Escort-bifreið, R-33563, við Grett- isgötu 20 og vinstra afturbretti hennar dældað og rifið. Þeir, sem kynnu að geta gefið upplýsingar um ákeyrsluna, eru beðnir að láta lögregluna vita. Suðvesturlandshöfnum, en það gekk misjafnlega af ástæðum, sem frá er greint annars staðar f blaðinu. Eftirtalin skip tilkynntu um afla: Skagaröst KE með 55 lestir, Hilmir KE 130, Fífill GK 350, Sigurbergur GK 180, Tungufell BA 240, Bergur VE 90, Guðrún GK 100, Arsæll GK 140, Kópur RE 100, Haraldur AK 90, Sæunn GK 120, Halkion VE 280, Steinunn Sf 75, Þorbjörn 2. GK 70, Albert GK 120, Sigurvon 65, Gullberg VE 105, Pétur Jónsson KÓ 350, Heim- ir SU 420, Kap, 2. VE 45, Ásborg RE 70, Höfrungur 2. AK 60, Haf- rún ÍS 60, Skinney SG 210, Bjarnarey VE 50, Álftafell SU 250, Sæberg SU 250„Grímseying- urGK 100, Baldur RE 50, Oddgeir ÞH 140, Ljósfari ÞH 230, Hrönn VE 50, Ottó Wathne NS 80, Dag- fari ÞH 200, Ölafur Magnússon EA 160, Járngerður GK 160, Von- in KE 60, Ársæll Sigurðsson GK 90, Kap 2. VE 20, ísleífur 4. VE 80 og Venus GK 20 lestir. Myndin er af kapalskipinu, sem unnið hefur að viðgerð vatnsleiðslunnar. Myndin er tekin, er það fór til þe ss að kanna aðstæður fyrir nokkrum dögum. — Ljósm.: Sigurgeir. Víðari vatnsleiðslan til Vest- mannaeyja aftur í lag í dag? Vestri sökk úti af Akranesi: r Aburðarfarmur á dekki kastaðist til FLUTNINGASKIPIÐ Vestri sökk f gærmorgun um 4 sjómílur und- an Skipaskaga. Skipverjar 8 að tölu björguðust um borð í gúm- björgunarbát og síðan var þeim bjargað um borð f Harald frá Akranesi. Bezta veður var þegar Vestri sökk, en skipið var að flytja áburð frá Gufunesi til Borgarness, og mun áburður, sem var á dekki skipsins hafa kastast þannig að skipið lagðist á hliðina. Skipverjar af Vestra komu til Reykjavíkur kl. 14.15 f gær með Akraborg frá Akranesi og vildu þeir ekkert við fréttamenn ræða. Voru sumir þeirra blautir og Heiðurs- flokkurinn óbreyttur hraktir og klæðlitlir. Hins vegar náði Júlíus Þórðarson, fréttarit- ari Morgunblaðsins á Akranesi, tali af leiðsögumanninum í þess- ari ferð, þegar skipbrotsmenn komu með Haraldi til Akraness, en það var Þórður Guðmundsson, fyrrum skipstjóri á Akraborg. „Við vorum á leið til Borgar- ness með hátt f 500 lestir af áburði," sagði Þórður, „og um 100 lestir stóðu ofanþilja á vöru- pöllum á leigum skipsins. Þeg- ar Vestri var staddur úti af Róðrabaujunni, sem er rétt fyrir utan Akranes var stefnan sett á Borgarnes. Þeg- ar skipið breytti um stefnu hallað- ist það, sem svarar 10 gráðum og við það rann áburðurinn, sem var á pöllunum á framlúgu skipsins út af þeim og yfir í bakborðshlið- ina. Skipið lagðist nú enn meira og áburðurinn, sem var á aftur- iúgunni rann nú líka af stað og Framhald á bls. 18 * KAPALSKIPIÐ, sem beðið hefur veðurs f Vestmannaeyjum, svo að unnt yrði að tengja vatnsleiðsl- una, sem fór sundur í gosinu, gat framkvæmt verkið í gær. Fýrir hádegi var lokið við að tengja nýja viðbótarspottann við leiðsl- una fyrir utan hraunið, en sfð- degis f gær var leiðslan svo tengd fyrir innan hraun. Að sögn Páls Zophanfassonar bæjartækni- fræðings stóðu vonir til að unnt TRÚNAÐARMANNARÁÐ Hins íslenzka prentarafélags felldi á fundi sínum fyrir helgi með 13 atkvæðum gegn 7 að boða til vinnustöðvunar hinn 19. febrúar, svo sem önnur launþegafélög hafa gert. Með þessu segir HlP sig úr þeirri samstöðu, sem verið hefur innan Alþýðusambands Is- lands um vinnustöðvun. Þórólfur Danfelsson, formaður HÍP, hefur nú sagt af sér störfum formanns félagsins, þar sem hann lítur svo á, að afstaða trúnaðarmannaráðs- ins sé f andstöðu við fyrri vilja þess, m.a. er það sendi hann sem fulltrúa sinn á kjaramálaráð- stefnu ASt á sfðastliðnu hausti. r yrði að hleypa vatninu á í dag. Páll sagði, að aðalatriðið hefði verið að koma leiðslunni inn fyrir Klettsnef, og hefði það tekizt í gær. Leiðsla þessi er sú er síðar komst f gagnið, og er hún all- nokkru víðari en sú fyrri. Með loðnuvertíðinni hefur vatnsnotk- un stóraukizt í Eyjum og stóð mjög tæpt að ekki yrði vatnsskort- ur, þar sem aðeins önnur leiðslan erhvergi nærri nóg. Morgunblaðið ræddi 1 gær við Þórólf og spurði hann um þetta mál. Hann sagði að allt frá því að HÍP fól formanni sfnum að vera fulltrúi sinn á kjaramálaráð- stefnu ASÍ hafi það verið skoðun trúnaðarmannaráðsins, að prent- arar ættu að eiga samstöðu með öðrum iðnaðarmönnum í kjara- baráttunni. Síðan sagði hann, að á annarri kjaramálaráðstefnunni hefðu fulltrúa prentaranna verið falin nefndarstörf, sem fulltrúa iðnaðarmanna og þar sagðist Þór- ólfur hafa barist fyrir þeim hug- myndum, sem talin voru hags- munamál allra iðnaðarmanna. Sagði Þórólfur, að meirihluti Viðgerð á vatnsleiðslunni er aðeins til bráðabirgða, þar sem eftir er að leggja hana á þann stað, sem hún er á að liggja á f framtiðinni. En með því að koma vatninu á nú er leystur sá vandi, sem skapast fyrir fiskiðnaðinn vegna vatnsskorts. Síðar verður gengið frá leiðslunni til frambúð- ar, og hún lögð á þá staði, sem hún á að liggja á. trúnaðarmannaráðsins hefði ávallt verið þeirrar skoðunar, að Prentarafélagið ætti að berjast með heildarsamtökunum og að það samrýmist stefnu þess á öllum tímum. Þörólfur sagði ennfremur, að öllum hefði verið ljóst, að sami tími hentaði ekki prenturum allt- af til kjarabaráttu og öðrum stétt- um. Flestir hefðu verið þeirrar skoðunar, að haustið væri hinn heppilegasti tfmi, en Ijóst hefði verið undanfarin tvö ár, að ekki yrði sérlega skemmtiíegt fyrir þann formann prentarafélagsins, sem yrði við stjórnvöl í félaginu 1973, þegar samningarnir frá 1971 rynnu út, því að þá yrðu Framhald á bls. 18 Deilt um verkfall innan HIP Þórólfur Daníelsson segir af sér formennsku SAMEINAÐ Alþingi samþykkti í gær þingsályktunartillögu um, hverjir hljóta skyldu heiðurslaun listamanna skv. fjáriögum fyrir árið 1974. Er þar um að ræða hina 12 sömu listamenn og heiðurs- launin hlutu sl. ár. Þeir eru: Ásmundur Sveinsson, Brynjólfur Jóhannesson, Finnur Jónsson, Guðmundur Böðvarsson, Guðmundur G. Hagalín, Gunnar Gunnarsson, Halldór Laxness, Kristmann Guðmundsson, Páll Isólfsson, Ríkarður Jónsson, Tómas Guðmundsson og Þór- bergur Þórðarson. Samtals var nú úthlutað 3 milljónum króna, og hlaut hver framangreindra listamanna 250.000.00 kr. í sinn hlut. Hannibal Valdimarsson mælti fyrir þingsályktunartillögunni og sagði hana flutta af menntamála- nefndum beggja þingdeilda í sameiníngu. Væri tillagan flutt í samræmi við ákvæði í fjárlögun- um, sem segði, að 3 milljónum kr. skyldi verja í heiðurslaunin, skv. ákvörðun Alþingis. í fyrra hefðu 12 listamenn hlotið heiðurslaun og hefðu þá komið kr. 175.000,00 í hlut hvers þeirra. Nú hækkaði þessi upphæð í kr. 250.000,00, en ekki væru lagðar tíl breytingar á skipan heiðursflokksíns. Var tillagan síðan samþykkt með samhljóða atkvæðum. 0VEÐRH) A NORÐURLANDI Rafmagnslaust á Dalvík DALVÍK var rafmagnslaus í allan gærdag og til þess að unnt væri að dæla heita vatninu upp úr borhol- um Dalvíkinga, varð hitaveitan að tengja disilrafstöð við dælurnar. Mikið óveður var á Dalvík í gær og kubbuðust sundur sjónvarps- loftnet. Sáu Dalvíkingar því ekki sjónvarp í gærkvöldi. Tugir háspennu- staura brotnir Siglufirði, 12. febrúar. EINS OG annars staðar á Norður- landi hefur verið hér rysjótt veð- ur með snjókomu og hvassviðri. Línan frá Skeiðfossvirkjun er óvirk og er ekki nákvæmlega vitað, hve miklar skemmdir eru á línunni, en sennilega skipta staurar, sem brotnað hafa tugum. Víða hafa llnur slitnað innan- bæjar. Þó má þakka það atorku og dugnaði rafveitustarfsmnna, að ekki slitnuðu fleiri, því að starfs- menn voru við alla síðastliðna nótt að berja ísingu af loftlínum. Þó eru Siglfirðingar ekki rafmagnslausir, þar sem vararaf- stöð Rafveitu Siglufjarðar er I gangi. Þó þarf fólk að spara raf- orku um háálagstoppana til þess að komast hjá skömmtun. Jafnframt þessu er verið að undirbúa gangsetningu annarrar dísilrafstöðvar Síldarverksmiðja ríkisins, en hún hefur ekki verið notuð eða gangsett síðustu 5 árin. Von er til að þau 270 kW, sem hún framleiðir, komi I gagnið bráð- lega, því að fyrirsjáanlegt er, að langan tíma tekur að lagfæra Skeiðfosslínuna. í morgun, þegar fólk var að fara til vinnu sinnar, kom I ljós, að einn vélbátur var að slitna frá bryggju, svo og togskipið Dagný, sem ekki var I hættu, þar sem akker var úti. Einn 8 til 10 lesta bátur sökk i höfninni. Mikil ófærð er I bænum og póstbáturinn Drangur, sem lagði af stað frá Akureyri til Siglufjarðar, sneri við. Veður virðist I svipinn vera að ganga niður. — Steingrímur. Hættu bræðslu vegna hættu á sn jóflóðum Seyðisfirði 12. febrúar LOÐNUBRÆÐSLU var hætt I síldarverksmiðju Hafsíldar á Seyðisfirði I dag vegna hættu á snjóflóðum. Mörg snjóflóð féllu í morgun úr norðurhlíðum Seyðis- fjarðar, en ekkert þeirra hefur enn valdið tjóni. Bræðslu hjá Hafsfld var eingöngu hætt.örygg- isins vegna og hefst hræðsla á ný, um leið og sýnt þykir að snjó- flóðahættan hafi minnkað. Fréttaritari Morgunblaðsins fór í dag út með Seyðisfirði að norð- anverðu og er þar hver snjóskrið- an við aðra, sem komið hefur úr fjallinu Bjólfi, en engin þeirra er mjög stór. Mjög snjóþungt er . nú á Seyðisfirði og þök á tveimur húsum eru fallin undan snjó- þunganum. Eru það hús, sem Seyðisfjarðarkaupstaður hefur á leigu og notar sem véla- og tækja- hús, en er I eigu Borga h.f. og salthús, sem er i eigu Haföldunn- ar h.f. Bræðslu hjá Hafsíld var hætt kl. 15, og var eingöngu verið að hugsa um öryggi þeirra manna, sem vinna þar. Keyrt var útaf vélum verksmiðjunnar, en ekki var slökkt á kötlum hennar og ætlaði verksmiðjustjórinn, Krist- inn Sigurjónsson, að vera i verk- smiðjunni I nótt og halda heitu undir kötlunum. Hafsíld er búin að bræða um 5000 lestir af loðnu og I birgða- tönkum verksmiðjunnar eru tæp- ar 5000 lestir. I verksmiöjunni vinna 22 menn á tvískiptum vökt- um. Sveinn. Atvinnulíf á Akur- eyri lamað vegna rafmagnsskorts Akureyri, 12. febrúar — RAFMAGN hefur verið skammt- að naumt á Akureyri sfðan klukkan 6,30 I morgun, þegar allur rafstraumur fór skyndilega af bænum. Lengi vel vissi enginn hvað olli rafmagnsleysinu, en þegar kom fram á morguninn var Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.