Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 29.05.1974, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. MAl 1974 13 Nýstárlegur brúðu- leikur um Sœmund, Jón helga og Kölska Megum við kynna fyrir ykkur leikbrúðurnar Jón helga, Kölska og Sæmund fróða. Með þeim á myndinni eru stjórnendur þeirra og lengst til hægri höfundur þeirra Guðrún Svava Svavarsdóttir. Ljósm. Ól. K. Mag. KVÖLDSTUND i Iðnó, sem efnt verður til á listahátíð, er eitt af nýstárlegustu atriðunum á hátíðinni. Þar eru á ferðinni atriði úr nýju islenzku leikriti um Sæmund Fróða, flutt sem brúðuleikur. Upphaflega var ætlunin að flytja allt leikritið, sem er í 12 atriðum en hinn mikli undirbúningur og æfingartíminn, sem reynist enn lengri og viðameiri en þegar um lifandi leikara er að ræða, gera það að verkum, að nú verða aðeins flutt fjögur atriðu úr leiknum, en fyllt inn í með sögum um Sæmund fróða, sr. Jón og vinnumanninn í Odda, hann Kölska, og með söngvum. Höfundar brúðuleiksins eru Vígdís F'innbogadóttir leikhús- stjóri og Böðvar Guðmundsson, sem stjórna leiknum. Það var verið að útbúa brúðurnar á saumastofu Leik- félagsins undir stjórn Guðrún- ar Svövu Svavarsdóttur, þegar við litum þar inn um daginn. Brúðurnar eru ákaflega skemmtilegar, á stærð við 5 ára börn. Þar má sjá Sæmund bæði sem dreng og fullorðinn, foreldra hans, Sigfús og Þóreyju, Jón helga og Köslka. Brúðurnar eru uppstoppaðar og listilega gerðar. Á sýningum stjórna þeim fjórar stúlkur, sem hafa þær á stöngum, og er það ákaflega mikið nákvæmnis- verk, t.d. þegar Sigfús snússar sig og Þórey prjónar í ákafa, en á sýningunni sjást stjórnendur brúðanna ekki. Leikurinn er á nútímamáli, og getur því verið fyrir fólk á öllum aldri. Sagnirnar um Sæ- mund fróða og viðureign hans við Kölska eru skemmtileg arf- leifð. Þau Vigdís og Böðvar hafa tínt til allt, sem þau hafa getað fundið um persónurnar I leiknum. Vigdís sagði, að sér fyndist greinileg I sögnunum sú kenning, að mennt væri máttur, þekkingin færði sigur. — Sagan er Faust minni, segir hún. Viðskipti Sæmundar við Kölska eru þau sömu og við- skipti dr. Fausts við óvininn. Þessi saga er víða til í heimin- um. Munurinn á islenzku sög- unni er samt sá, að Sæmundur sigrar ekki alltaf á guðsorði og þvi, hve góður hann er, heldur á menntun sinni og vizku. Sæmundur snýr á Kölska. Þetta kemur greinilega fram í ís- lenzku sögunni. Leikritið hefst á hlaðinu heima hjá Sæmundi, þar sem hann er lítill drengur, síforvit- inn og spyrjandi. Brúðurnar hreyfa sig á sviðinu, en talið hefur verið lesið inn á band af leikurum Leikféiagsins. Sem fyrr segir reyndist ekki timi til að æfa allt leikritið fyrir listahátíð og verða sýndir úr þvi 4 þættir í Iðnó fimmtudag- inn 13. júni, föstudaginn 14. júni og þriðjudaginn 18. júni. En í haust er ætlunin að taka upp sýningar á leikritinu öllu. Milli þátta verður nú farið með sögur og sagnir og sungnir is- lenzkir söngvar og gera það Böðvar Guðmundsson, Kjartan Ragnarsson, Guðmundur Páls- son, Kristin Ólafsdóttir og Sverrir Hólmarsson. Æfingar á brúðuieiknum eru i fullum gangi i Iðnó og gaman að sjá þessa nýstárlegu túlkunartækni. — E. Pá. FRÉTTA- BRÉF FRÁ MÆLIFELLI Þorvaldur Guðmundsson, form. bankaráðs Verzlunarbankans afhendir sigurvegaranum Berglindi Garðarsdóttur fyrstu verðlaun fyrir ,,qulan karl". Sjö ára stúlka vann í sparibauka- keppni Verzlunarbanka Islands Félags- og skemmtanalíf hefur verið svo fjölskrúðugt hér um sveitir i febrúar- og marzmánuði, að naumast hefur fundizt smuga til kirkjukórsæfinga, enda þótt guðsþjónustur í Mælifells- og Glaumbæjarprestakalli hafi hald- ið sinni röð frá einum helgidegi til annars og verið ýmist mjög vel, eða all vel sóttar. Síra Gunnar Gíslason alþingismaður í Glaum- bæ hefur haft leyfi frá prests- störfum nú um nokkurt skeið, en hann hefur verið undir læknis- hendi syðra. Hann hefur þjónað Glaumbæ frá vori 1943 og aldrei fengið orlof, svo að heitið geti, öll þessi ár. Þingmaður hefur hann verið jafnframt frá 1959. Hinn 16. febrúar var efnt til veglegs þorrablóts í Miðgarði í Varmahlíð. Munu hafa verið þar nálægt 400 manns úr ofanverðu héraðinu auk gesta víða að. Skömmu síðar hélt kvenfélagiö í Blönduhlíð boð inni í Héðins- minni fyrir nágrannana í Seylu- hreppi, en hið árlega hjónaball, sem svo er nefnt, var þá afstaðið í Akrahreppi. Karlakórinn Heimir hélt árshátið sína 9. marz við góð- an söng og fagnað, en stjórnandi kórsins er Árni Ingimundarson á Akureyri. Viku síðar var svo fjöl- mennt vetrarmót hestamanna- félaganna Stíganda og Léttfeta. Kvenfélag Seyluhrepps sá um veitingar, sem vant er á slíkum samkomum, af tiltakanlegri rausn. Edda Skagfield á Páfastöð- um, Steinbjörn Jónsson á Haf- steinsstöðum og Stefán Haralds- son í Vfðidal sungu við undirleik Árna Ingimundarsonar og mikið hrós áheyrenda, Hilmir Jóhannes- son fór með gleðimál o.fl. var til gamans gert. Hljómsveit Geir- harðs Valtýssonar lék sem endra- nær á samkomum í Miðgarði. Þá má geta þess, að konurnar í sveitunum hafa víða með sér handavinnu- og rabbfundi, hálfs- mánaðarlega um vetur. Sauma- námskeið var hér í sveit nýlega, haldið á Hvíteyrum, en Jórunn Guðmundsdóttir í Steintúni veitti því forstöðu. Á vorjafndægrum var fræðslu- fundur bænda í Varmahlíð. Fluttu þar erindi Matthias Eggertsson kennari á Hólum og gestir að sunnan. Þókti fundurinn hinn gagnlegasti og var vel sókt- ur. Hinn 20. marz var aðalfundur Búnaðarfélags Lýtingsstaða- hrepps. Form. þess er Sigurjón Sigurbergsson i Hamrahlíð. Félagar 74. Jóhannes Sigvaldason flutti erindi um ræktun í hreppn- um og lýsti jarðvegsrannsóknum. Á fundinum kom fram, að tölu- vert margt fé sleppur af Eyvind- arstaðaheiði vestur yfir Blöndu. Er þvl lógað, og þykir mönnum tjón að, enda gjarna yngsta og sprækasta féð, sem ókyrrt er í högum. Rætt var um möguleika á girðingu upp með ánni allt að varnargirðingunni milli Lang- jökuls og Hofsjökuls. Er leiðin gífurlega löng frá því, er gljúfr- um sleppir, en erfitt að finna aðra lausn þessa vanda. Samþykkt var tillaga frá Valgeiri Guðjónssyni á Daufá um athugun á girðingu, og hún send Svínvetningum, enda álitið trúlegt, að þeir vilji verjast ágangi hrossa af Eyvindarstaða- heiði, en hann hlýtur aó aukast, þegar afréttargirðingin frá Blöndu nær hingað austur, en hún er nú komin yfir Háutungur og að mörkum Haukagilsheiðar. Á búnaðarfélagsfundinum var kosin nefnd til að sjá um fram- gang Þjóðhátfðarfegrunar í hreppnum. Sem víða annars stað- ar er vakinn áhugi fyrir utanhúss prýði, tiltekt fyrst og fremst, og svo málningu. Er sérstakt baráttumál, að fjarlægt verði ónýtt bila- og vélarusl, sem gjarna liggur heima við bæi og vegi. Öllu slíku, sem eigendurnir framast heimila, skal safnað á stað, sem heitir Víti, ekki langt frá hinni nafnkenndu Veiðivatnaá. Um Lýtingsstaðahrepp er aukin um- f°rð vegna öræfaferða, en frá Giljum í Vesturdal, fremsta byggðu bóli í sveitinni, eru 53 km suður að Laugafelli og er farið um Þorljótsstaðafjall. I Laugafelli er einkar skemmtilegur skáli í eigu F. F. A. Þaðan skammt á Sprengi- sandsleið. Enda þótt þessi vegur, sem telst vel greiðfær, er þurrt er orðið á fjöllum síðsumars, yki ekki á umferð ókunnugra um Lýtingsstaðahrepp, væri fyllsta ástæða til að vinna að bættri utan- hússumgengni. Skal þó tekið fram, að hér er alls ekki verra ástand í því efni en almennt er í landinu og þeir bæir til, sem þola samanburð við Geitaskarð í Langadal, sem lengi var til jafnað um snyrtimennsku og myndar- skap. Nokkuð hefur verið unnið að útihúsabyggingum og endurbót- um undanfarin misseri. Nýtt íbúðarhús er í smíðum í Hátúni á Langholti, þar sem áður hét Mikligarður, og hús eru byggð í Varmahlíðarhverfinu. Þar er og komið nokkuð áleiðis skólabygg- ingu. Hjá Steinsstaðaskóla verður félagsheimili senn tekið í notkun. Er það að hluta skólahúsnæði. 1 vor verður skipulögð lóðin þar umhverfis og vonazt er til, að a.m.k. 3 íbúðarhús rísi þar á næsta ári, þ.á m. skólastjóraíbúð. I Varmahlið og i landi Steinsstaða er gnægð af heitu vatni. Beinist athygli manna æ meir að slíkum stöðum. Eitt þarfasta mál byggða- stefnunnar er að vinna að mynd- un sveitaþorpa, þéttbýliskjarna, sem stemma stigu við fólksfækk- un, tekjurýrð og þægindaleysi hinna einstöku, fámennu sveita. 500 manna kauptún i Varmahlið og 200 manna hverfi á Steinsstöð- um gerbreytti allri aðstöðu i ofan- verðu héraðinu. Heilsuhæli við annan hvorn þessara staða kæmi og vel til greina vegna jarðvarm- ans, þótt ekki sé samkeppnifærir við Mývatnssveit. En oliukynnt lækningalind i Skjaldarvik við Eyjafjörð er undarlegt ætlunar- verk. Sfra Ágúst. FYRIR skömmu lauk verðlaunasam- keppni þeirri, sem Verzlunarbanki Is- lands efndi til um hugmynd að nýj- um sparibaukum. Þátttaka varmikil, og sendu 829 aðilar inn tillögur. Forráðamenn bankans skýrðu frá úr- slitum á dögunum. Fyrstu verðlaun hlaut Berglind Garðarsdóttir, sjö ára gömul Reykja- vikurstúlka, fyrir gulan karl. Önnur verðlaun fékk Reynir Sævarsson úr Biskupstungum fyrir bauk íformi 3ja netakúlna. Auk þess var ákveðið að veita viður- kenningar og hlutu þær eftirfarandi aðilar: Jenny R Jóhannsdóttir og Leó Jó- hannsson, Reykjavik, Lára Stefánsdóttir, Reykjavík, Guðrún Bjarnadóttir og fjölskylda, Reykjavik, Margrét og Ásdís Jóelsdætur, Reykja- vík, og Hanna Maj Sigurðardóttir. Reykjavík. Dómriefnd skipuðu Þorvaldur Guð- mundsson form Bankaráðs Verzlunar- bankans, Elísabet Magnúsdóttir handa- vinnukennari, Fjóla Rögnvaldsdóttir teiknikennari og Kristín Þorkelsdóttir teiknari. Trúnaðarmaður dómnefndar var Tryggvi Árnason aðalbókari. í tilkynningu frá aðstandendum keppninnar segir, að tilgangur hennar hafi fyrst og fremst verið að fá sem flest börn til að gera sparibauk, sem orki hvetjandi til sparnaðar á þau og félaga þeirra Hafi þetta tekizL og áhugi og fjöldi þátttakenda farið langt fram úr vonum Þá er tekið fram, að ekki hafi þótt hæfa að veita verðlaun fyrir eftirlíkingar þekktra fyrirbæra s s per- sóna úr sjónvarpsefni barnatímanna eða úr algengu lesefni fyrir börn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.