Morgunblaðið - 06.09.1974, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.09.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1974 15 Ernst Neizvestny myndhöggvari með brjóstmyndina af Nikita Krúsjef, skömmu iður en henni var komið fyrir á. leiði flokks- leiðtogans fyrrverandi. Brjóstmyndinsómir sér vel á leiði Krúsjefs ANNAN september sl. var komið fyrir minnismerki af Nikita Krúsjef, fyrrverandi flokksleiðtoga sovézka kommúnistaflokksins, á leiði hans f Novodevichykirkjugarð- inum f Moskvu. Var frá þessu sagt f Mbl. á dögunum. Nú hefur borizt mynd af mynd- höggvaranum Ernst Neizvestny og verki hans, sem tekin var skömmu áður en minnismerk- inu var komið fyrir. Það voru Nina, ekkja Krú- sjefs, og Sergei sonur hans sem beittu sér fyrir að minnismerk- inu yrði komið fyrir og hafa staðið f stappi við ráðamenn til að fá leyfið. Sergei af- hjúpaði merkið og á er letrað „Nikita Krúsjef 1894—1971“. Viðstaddir voru aðeins nánustu ættingjar, en hins vegar hefur almenningur sýnt mikinn áhuga á brjóstmyndinni og hefur orðið að hafa lögreglu- vörð við garðinn til að fylgjast með áhugasömum borgurum sem hafa viljað skoða Krúsjef. Listamaðurinn Ernst Neiz- vestny er talinn f röð fremstu myndhöggvara f Sovétrfkj- unum og hafði Krúsjef á honum mikið dálæti. t odda skarst milli þeirra, en sættir tókust áður en Krúsjef lézt. Hins vegar var það fyrir tilstilli fjölskyldunnar, að Neizvestny var valinn til að gera brjðst- myndina. Henni er komið fyrir á marmarasúlum á leiði Krú- sjefs. Nú eru liðin tfu ár, sfðan Krúsjef var látinn vfkja úr embætti. Þegar hann lézt fóru ættingjar hans fram á að hann hlyti legstað á Rauða torginu. Fram til þessa hefur aðeins verið Iftil Ijósmynd af Krúsjef á leiði hans. Sergei Krúsjef lét í Ijós ánægju með hversu vel hefði til tekizt með brjóstmyndina af föður hans og sagði hana sóma sér mjög vel á leiðinu. Sykurhamstur í Danmörku TELEMARK Arbeiderblad f Noregi skýrir frá þvf f dag, að áhugi Norðmanna á Danmerkur. Hestfugl á flugi yfir London London 5. sept. Reuter LÖGREGLAN f vesturborg Lundúna leitar nú að dular- fullu illfygli, sem er svo Iýst, að það gangi eins og strútur, fljúgi eins og örn, en hafi að öðru leyti útlit, sem minni á hest. Þessi „pegasus" sást á flugi I grennd við Heathrow flugvöil og sfðan hafa borizt fregnir af honum þar f nágrenninu. Hann er sagður um 2 m á hæð með geysistóra vængi, svarta og hvfta á lit. Sá, sem fyrstur varð fugls þessa var, sagðist hafa haldið, að það væri hest- ur, en sfðan hefði dýrið lyft sér til flugs og flogið af hinni mestu fimi. Rfkir nú mikil eftirvænting mcðal fbúa Lundúna að lög- reglan hafi upp á fuglinum, svo að úr fáist skorið, hvað þarna er á ferðinni. reisu sé f algeru hámarkí um þessar mundir. Hafi menn sér- stakan hug á stuttum ferðum til Jótlands með ferjum, sem hafa nokkurra klukkustunda viðdvöl. Aðalerindi gestanna er þó ekki að skoða sig um, að sögn blaðsins, heldur að kaupa sykur og kjötvör- ur, sem eru mun ódýrari í Dan- mörku. í Noregi kostar kíló af sykri u.þ.b. 147 ísl. kr. en í Dan- mörku tæpar fimmtfu krónur. Sömuleiðis eru ýmsar niðursuðu- vörur, ostur nýtt kjöt, hárlakk o.fl. miklu ódýrari í Danmörku. Þess eru dæmi, að kaupmenn hafi keypt sykur í miklu magni f Dan- mörku og þrátt fy'fir tolla og gjöld hafi þeir getað gert reyfarakaup, vegna þess mikla verðmunar, sem er á vörunum. En sykurmál eru einnig i brennidepli í Frakklandi og í fréttum frá París í dag segir, að húsfreyjur hafi keypt svo mikið af sykri i dag, að hann sé nánast til þurrðar genginn í öllum verzl- unum. Talsmenn stjórnarinnar segja, að ástandið i sykurmálum landsins verði mjög fljótlega eðli- legt á ný og áfellast sykurkaup- menn harðlega fyrir að búa til „gerviskort" á sykri, með því að gefa í skyn, að hann verði ekki fáanlegur f landinu. <jj|) KARNABÆR Laugavegi 20 VIÐ HÖLDUM ÚTSÖLU- frá því verði Ennþá eru til mjög góðar vörur Slíku tækifæri sleppir enginn MARKAÐ í einni af verzlunum okkar, Laugavegi 20. Utsölumarkaðurinn Laugavegi 20

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.