Morgunblaðið - 12.11.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.11.1974, Blaðsíða 1
40 SIÐUR MEÐ 8 SIÐNA IÞROTTABLAÐI 223. tbl. 61. árg. ÞRIÐJUDAGUR, 12. NÓVEMBER 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Jerúsalem, Tel Aviv 11. nóvember AP — Reuter í KVÖLD urðu enn harðar mótmælaaðgerðir í mið- borg Tel Aviv gegn hinum nýju sparnaðarráðstöf- unum ríkisstjórnarinnar, verðhækkunum og 43% gengisfellingu. Tugir mót- mælenda ruddust gegnum hindranir lögreglunnar og æddu um miðborgina, brjótandi rúður á sama hátt og i mótmælaaðgerð- Var morðið blóðhefnd? Berlín 11. nóvember —AP LÖGREGLAN í Vestur- Berlín leitaði f dag óaldar- flokks, sem grunaður er um að hafa myrt valdamesta dómara borgarinnar, Giinter von Drenkman, en kvaðst ekki vita nákvæm deili á neinum þeirra sjö manna, sem viðstaddir voru morðið. Lögreglan segir, að menn- irnir hafi hugsanlega ætlað að ræna dómaranum, en skotið hann þegar hann veitti mótspyrnu. Drenk- mann var 64 ára að aldri. Lögreglan hefur ekki viljað tjá sig um það, hvort morðið á dómaranum hafi verið hefnd svokallaðs Baader- Meinhofs óaldarflokksins vegna láts eins liðsmanna hans. Holger Meins, 33ja ára gamall liðsmaður flokksins, lézt í fangelsi á laugardag eftir næstum tveggja mánaða langt hungurverk- fall. Yfirvöld hafa sagt, að Meins hafi verið gefin nær- ing með sprautum, en ekki viljað veita nákvæmar upp- lýsingar um lát hans. unum í fátækrahverfinu í Tel Aviv í gærkvöldi, þar sem lögreglubílar voru einnig grýttir. Lögreglu- menn varðir hjálmum tóku fjölda manna fastan í kvöld. Á meðan þetta gerðist stóðu yfir fjögurra klukkustunda langar um- ræður í þinginu, Knesset, í Jerúsalem um aðgerðir stjórnarinnar. ísraelskir verkalýðsforingjar brugðust við aðgerðunum i dag með því að hóta nýjum mótmæla- aðgerðum verkamanna. Tjáðu þeir Yehoshua Rabinowitz, fjár- málaráðherra, að það yrði erfitt að hafa hemil á verkamönnunum, sem væru æfareiðir vegna verð- hækkananna. Ráðstafanir stjórn- arinnar hafa i för með sér þre- földun sykurverðs, tvöföldun á verði brauðs og ýmissa undir- stöðufæðutegunda, 40% hækkun fargjalda með strætisvögnum og tvöföldun rafmagnsverðs. 32 voru handteknir við mótmælaaðgerð- irnar í gærkvöldi, þ. á m. fyrrver- andi þingmaður, Shalon Cohen. Yitzhak Rabin, forsætisráð- herra, sagði í dag, að hliðarráð- stafanir myndu fylgja i kjölfar þessara aðgerða, sem væru „ekki siðasta skref stjórnarinnar" í bar- áttunni gegn rýrnandi gjaldeyris- birgðum og vaxandi verðbólgu. Þannig litu búðargluggar út í fátækrahverfinu í Tel Aviv í fyrrakvöld eftir mótmælaaðgerðir gegn efnahagsráðstöfunum stjórnarinnar. Aðgerðirnar endurtóku sig í miðborg Tel Aviv í gærkvöldi. (AP-símamynd) Námaverkfall ógnar efnahag U S A Washington 11. nóv. Reuter. KOLANAMUR um öll Bandarík- in lokuðu í dag allmörgum klukkustundum áður en allsherj- arverkfall 120.000 námamanna átti að hefjast. Verkfallið er óum- flýjanlegt, þótt samningaviðræð- ur standi enn yfir, þar eð það tekur allt að hálfan mánuð að ganga frá og fá samþykkt nýtt samkomulag milli námueigenda og námumannasambandsins. Nú- gildandi samkomulag rennur út eina mínútu yfir fimm I nótt, og þá leggja allir námumenn niður vinnu. Langt verkfall kolanámu- manna gæti orðið reiðarslag fyrir efnahag Bandarfkjanna. 54% Miklar öryggisráðstafanir SÞ vegna komu Arafats allrar raforku landsins kemur frá kolakyntum orkuverum. Rafveitur hafa safnað um 80 daga birgðum af kolum, en komið getur til skammtana hjá iðnfyrir- tækjum, heimilum og skólum, og yrðu stáliðjuver, bifreiðaverk- smiðjur og járnbrautir fyrst fyrir barðinu á slíkurn aðgerðum. Ríkisstjórnin gerir ráð fyrir þvi, að 3—4 vikna verkfall leiði til þess, að tæp hálf milljón manna bætist i hóp atvinnuleysingja, sem nú eru um fimm og hálf milljón. Talsmenn deiluaðila voru þó báðir frekar vongóðir urn að samningar væru í nánd. Helzta samningamálið er bætt skilyrði á vinnustað, auk kauphækkana, veikindafrís o.fl. mála. New York, Sameinuðu þjóð- unum, Kairó, Sídon, Tel Aviv 11. nóv. AP—Reuter 0 YIGAL Allon, utanrfkisráð- herra ísraels, sagði í dag, að lsra- elar væru nú að svipast um eftir öðrum hugsanlegum fulltrúum Palestínuaraba en Frelsishreyf- Viktor Korchnoi vann í annað sinn Fischer fær frest til 1. apríl Moskvu, 11. nóvember. AP. VIKTOR Korchnoi sigraði Anatoli Karpov í 21. og stytztu skákinni í einvígi þeirra um rétt- inn til að skora á heimsmeistar- ann. Bilið milli þeirra minnkar því enn þar sem nú hefur Korchnoi tvo vinninga en Karpov þrjá. Skákirnar í einvíginu eru alls 24 og aðeins þrjár eru því eftir. Sextán skákum hefur lyktað með jafntefli. 20. skákinni lauk með jafntefli á laugardaginn eftir 51. leik. Sú | skák hafði farið í bið eftir 44 leiki. Bobby Fischer heimsmeistari á það á hættu að glata heirns- meistaratitli sínum án þess að mæta tilvonandi áskoranda. For- seti Alþjóðaskáksambandsins, dr. Max Euwe, tilkynnti í Amsterdam í gær, að ef deilan vegna skilyrð- anna, sem hann setur fyrir því að næsta heimsmeistaraeinvigi verði haldið, yrði ekki leyst fyrir 1. april yrði sigurvegari áskorenda- einvígisins — Karpov eða Kor- chnoi — úrskurðaður heims- meistari. ingu Palestínu (PLO) undir for- sæti Yasser Arafats, sem hann sagði Israela aldrei mundu hefja samningaviðræður við. Hann var- aði einnig við þvf, að Israelar myndu halda áfram sprengju- árásum á skæruliðabúðir Palestfnumanna. Eina sllka gerðu ísraelar einmitt í dag í Suður- Líbanon, og féllu tveir óbreyttir borgarar og þrír særðust. 0 Þrátt fyrir andstöðu Ísraela virtist þó gata Arafats greið inn á allsherjarþing Sameinuðu þjóð- anna, þar sem gert er ráð fyrir að hann hefji umræður um Palestínumálið á miðvikudag. Skýrt var frá því hjá S.Þ. I dag, að búið væri að gefa út vegabréfs- áritun handa Arafat, og a.m.k. 10 nefndarmönnum PLO til viðbót- ar. t undirbúningi eru mestu öryggisráðstafanir í sögu S.Þ. vegna komu sendinefndar PLO, og vildu samtökin ekki gefa upp hvenær von væri á Arafat, né heldur hvar hann myndi búa. A meðan skýrt var frá þessu á blaða- mannafundi tók lögreglan 30 unga Gyðinga fasta f.vrir utan aðalstöðvar S.Þ. Höfðu þeir brennt brúðu af Arafat. og hand- járnað sig við handrið bygging- arinnar eftir að hafa hellt rauðuni vökva á gangstéttina, sem átti að tákna það blóð, sem PLO hefði úthellt. Hrópaði fólkið: „Arafat dauður! Arafat dauður!" Arafat er sjálfur staddur i Kairó, þar sem talið er að hann beri sarnan bækur sinar við egypzka embættismenn fyrir urn- ræðurnar í New York á miðviku- dag. Mikil taugaspenna hefur gripið Framhald á bls. 39 Kissinger til Peking nóvember Washington AP—Reuter HENRY Kissinger, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, fer i opin- bera heimsókn til Kina 25.—29. nóvember, „til þess að halda við góðum samskiptum" Bandaríkj- anna og Kína. Þetta er fyrsta ferð Kissingers til Kína í eitt ár. Kem- ur utanríkisráðherrann til Peking eftir að hafa fylgt Ford forseta á ferðum hans til Japan Suður- Kóreu og Sovétrikjanna, þar sem forsetinn mun ræða við Leonid Brezhnev, aðalritara sovézka kommúnistaflokksins, i Vladivo- stock 23. og 24. nóvember. Arafat — hans verður vandlega gætt. Tito 1 A-Berlín Austur-Berlín 11. nóv. — Reuter TITO Júgóslavíuforseti kemur á morgun f fyrstu heimsókn sfna til Austur-Þýzkalands í 9 ár til \ið- ra>ðna við Erich Honecker, leið- toga austur-þýzka kommúnista- flokksins. Sambúð AusturÞjóð- verja og Júgóslava hefur verið afar stirð í fjölda ára, en nú virðist vera að rofa til. Efnahagsráðstafanir ísraelsku stjórnarinnar: Óeirðir enn í Tel Aviv

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.