Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. JANUAR 1975 13 Nýfætt folald og framtíð þess ■ n VMSIR kunnir hestamenn hafa lengi talið sig geta ráðið mjög ( framtfð hrossa með' þvl að veita athygli tilburðum þeirra og háttum sem folalda. Af þessum sökum leitaði þátturinn til þriggja ræktunar- og hestamanna og bað þá að segja frá hverju þeir tækju eftir I fari folalda með framtfð þeirra I huga. Að lokum náðum við tali af Skúla Steinssyni, Miðdal I Laugardal. Fleiri kannast ef- laust við Skúla sé hann kennd- ur við Eyrarbakka. Svar Skúla var á þessa leið: „1 fáum orðum sagt tek ég fyrst og fremst eftir björtum og glóandi augum, með fallegu til- liti, skörpum brúnum, eyrum sem stöðugt er á hreyfingu, en þá aldrei samtímis. Eyrun þurfa að vera þunn, oddmjó, lokuð og vel sett á höfuð. Yfir- svipur fagur (slakur), vel ská- settir bógar, sjái ég fallegar ganghreyfingar hjá folaldi, hægar og háar, verða mér þær fastar í huga. Einnig legg ég mjög mikið upp úr framkomu folaldsins, standi ég álengdar frá því og móður, þá.vil ég fá snöggt tillit til min og óþolinmóðar hreyfingar en ákveðnar (sýna kjark).“ Hér höfum við fengið álit þriggja hestamanna á spurning- unni, sem í upphafi var borin fram. En það er svo með svar við henni, að þar hlýtur sam- vera með hrossum og náin kynni að skapa mynd hvers og eins af góðum hesti fólgnum í folaldi. Fyrst varð fyrir svörum Jón Sigurðsson, bóndi í Skollagróf í Hrunamannahreppi, Árnes- sýslu. Svar hans hljóðaði svo: „Það sem ég segi hér á eftir á við folöld 4 til 20 daga gömul, en ekki fyl sem er að brölta upp úr korinu. Fyrst lít ég til þess hvert skeiðtaktur er I sporinu. Það er reynsla mín og skoðun að sé hann ekki fyrir hendi, þá skorti þann einstakling ganghæfileika alla tið. Eins finnst mér góðs viti ef folald stígur vel fram með afturfætur, því slíkt gefur ákveðna bendingu um að það hross geti gengið vel innundir sig að aftan, þegar það er komið undir hnakk. Lögun lendar sést greinilega ef folald er eðlilega holdfyllt, eins sést vel hvort bakmýkt er fyrir hendi eða ekki. Siður vil ég að folöld séu mjög þéttvaxin ung, því ef þau svara sér vel á skrokkinn fyrstu vikurnar reynast þau yfirleitt með of bundna og þunga bygg- ingu, þegar þau komast upp. Liðamót ganglima vil ég að séu gild og traustleg og bógalinan skýr og skásett vel. Úr augnasvip og eyrnalögun má ýmislegt ráða og auðvitað orkar heildarsvipmót folaldsins mikið á mann við fyrstu skoðun og þá ýmist jákvætt eða á hinn lakari veg. Að lokum vil ég taka það fram að það er engin tilviljun að ég byrja á að athuga aftur- byggingu og bak, þvl það er ákveðin skoðun mln, að bak- mýkt og traustleg lend ásamt ganglegri afturfótastöðu er af- gerandi um, hvort hross gefa gott sæti og búa yfir gang- rými.“ Næstur varð fyrir svörum Sveinn Guðmundsson á Sauðár- króki og svar hans við spurn- ingunni var eftirfarandi: Ljósm. Mbl. Friðþjófnr „Þegar folaldið er 5 nátta eða svo, beini ég athygli minni að eftirgreindum atriðum: Augum þess og augnaumgjörð, eyrna- stöðu og hreyfingu þeirra, reis- ing sé hæfileg, framfótalyfting sé góð, afturfótasporið langt,’ afturfætur fremur knappir um konungsnef og svo kemur þar til, sem brjóstvitið er, hin óskýranlega innsýn, les úr svip þess og háttalagi." umsjón: TRYGGVI GUNNARSSON Löggiltir endurskoðendur Ég þakka innilega samstarfsmönnum, vinum og kunningjum fyrir heimsóknir, gjafir og kveðjur á sjötugsafmæli mínu þann 21. des. sl. Lögfræðingur (cand. jur.) óskar eftir starfi á endurskoðunarskrifstofu. Þorsteinn Ö. Stephensen. Svar sendist mbl. fyrir 15. þ.m. merkt „Endur- skoðun'' 7118. Myndlist — Leikræn tjáning. fyrir börn 4 — 1 1 ára. Nýtt námskeið byrjar í næstu viku að Freyjugötu 1 6, sími 17114. Sigríður Björnsdóttir. Hef opnað málflutningsskrifstofu að Kirkjutorgi 6, Reykjavík. Annast hvers kyns lögfræðilega þjónustu. FinnurTorfi Stefánsson, héraðsdómslögmaður. Sími 14965. Vió höfum opnað ánýeftirvel ^ heppnaöar breytingar Bmuðbær Veitingahús við óðinstorg • sími 20490 VERIÐ VELKOMIN!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.