Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.01.1975, Blaðsíða 32
LAUGARDAGUR 11. JANÍJAR 1975 nUGIV5ll1CIIR cg, ^.22480 HUGIVSinGnR ^L*-»22480 Skipverjar á Mánafossi áttu smyglið Angi af enn stærra smyglmáli Starfsmaður tollgæzlunnar kemur plast- brúsunum með spfranum fyrir í geymslu f Toll- stöðinni. Ljðsm. Mbl. Sv. Þorm. „Loðnan er að lyfta sér í breiðfylkingu” Rætt við Jakob fiskifræðing á Arna Friðrikssyni út af Langanesi „HtJN hefur staðið anzi djúpt núna loðnan," sagði Jakob Jakobsson fiskifræðingur á Arna Friðrikssyni um kl. 22.00 f gær- kvöldi þegar við töluðum við hann þar sem Árni var staddur um 60 mílur út af Langanesi i loðnuleitinni. „En þetta eru ágætis torfur hérna,“ hélt hann áfram, „og mikið torfusvæði. Hún virðist ætla að koma í breiðfylk- ingu. Börkur frá Neskaupstað er tilbúinn hérna að kasta, en hann hefur ekki fengið færi ennþá. Torfurnar standa mun dýpra nú en s.l. nætur. Þá kom loðnan upp á 15—20 faðma, en nú stendur hún á 40 föðmum. Börkur ætlar að kasta á hana á 25—30 föðmum, svo maður vonar bara að hún fari að hækka sig. Það er dálítil ferð á henni, en hérna er bliðuveður og bærist ekki hár á höfði. Mér sýnist nú á mælunum hjá okkur núna að hún sé eitthvað að byrja að lyfta sér, þetta er líflegt og margar torfur. Það er mikill hávaði í asdikinu hjá okkur eins og þú heyrir ugglaust, þetta eru voða flennur. Við vorum í gær austur af Langanesinu, en nú Framhald á bls. 18 TOLLVERÐIR í Reykjavík fundu í gær nokkra plastbrúsa fulla af 96% spfra á reki undan Gróttu. Telst tollgæzlunni til, að magnið sé 2—300 lítrar. Skipverjar á Mánafossi hafa viðurkennt, að hafa hent brúsunum útbyrðis nokkru áður en skipið kom til hafnar í fyrradag. Hafa 4 menn verið úrskurðaðir i gæzluvarðhald á meðan rannsókn málsins fer fram. Söluverðmæti þessa magns mun vera rúm milljón. Þetta smyglmál er angi enn stærra máls, sem lögreglan í Keflavík, Keflavíkurflugvelli og rannsóknarlögreglan f Reykjavfk hafa unnið að á undanförnum dögum. Þeir, sem annast rannsókn málsins, vilja á þessu stigi ekkert tjá sig um það, en Morgunblaðið hefur það eftir áreiðanlegum heimildum, að hér sé um vel skipulagðan smyglhring að ræða og nái starfsemi hans eitthvað aftur í tímann. Lögreglan f Keflavfk mun hafa komizt á snoðir um smygl þetta þegar hún vann að Geirfinnsmálinu. Engar ábyggilegar tölur hafa verið útgefnar, en talið er, að aðallega sé um spfra að ræða og skipti magnið jafnvel þúsundum lftra og söluverðmætið skiptir miiljónum. Mánafoss kom til hafnar í Reykjavík klukkan 15,30 á fimmtudaginn og var skipið að koma frá Hamborg og Rotterdam. Strax og skipið hafði lagzt að bryggju voru nokkrir skipverjar Bensín hækkar um 2 kr. BENStN hækkar f dag um tvær krónur lftrinn, eða úr 49 kr. f 51 kr. Þá hækkar gasolfa úr 17 kr. Iftrinn f 19,80 kr. Að sögn verðlagsstjóra, Georgs Ólafssonar, er þessi hækkun vegna verðhækkana erlendis, en hluti af hækkun- inni fer f að borga upp skuldir innkaupajöfnunarsjóðs, sem hefur safnað skuldum að und- anförnu vegna þess að verðið hefur verið of lágt á bensfni og gasolfu. teknir til yfirheyrslu, og viður- kenndu þeir að hafa hent um- ræddu magni af spíra í sjóinn nokkru áður en skipið kom til hafnar. Fóru tollverðir í fyrra- kvöld út f Faxaflóa á hafnsögubát útbúnum Ijóskösturum og leituðu að spiranum, en vegna myrkurs varð leitin þá árangurslaus. 1 birt- ingu í gærmorgun héldu toll- verðir svo að nýju til leitar á tollbátnum Erni. Um kl. 12,30 sáu tollverðirnir torkennilegan hlut á reki skammt fyrir innan svo- nefnda sexbauju, sem er norð- vestur af Gróttu. Reyndust þetta vera nokkrir plastbrúsar reyrðir saman með neti og hafði þeim verið lagt við stjóra. Var mátu- lega mikill spíri í hverjum brúsa þannig að þeir flutu vel. Það kom fram í samtölum, sem Mbl. átti í gær við starfsmenn tollgæzlunnar, að þeir telja brýna þörf á því að fá í sína þjónustu nýjan tollbát. Tollgæzlan hefur aðeins yfir að ráða einum slfkum báti, Erni, er var smfðaður 1938 og því kominn vel til ára sinna og úreltur að mörgu leyti. Telja þeir það mikið atriði að tollgæzlan eignist sem fyrst nýjan og full- komin tollbát, en verkefni slíks báts eru óteljandi mörg. Tollgæzlan fískaði 2—300 lítra af sníra 1 Faxaflóa „Kreppan aðeins á síðum dagblaðanna’ ’ — segja kaupmenn og verzlunarstjórar Mikið hefur verið rætt um yfirvofandi samdrátt f öllu atvinnulffi þjóðarinnar á næstu mánuðum og margir hafa haft orð á þvf að „kreppa" væri að skella á. 1 gær hringdum við f nokkrar verzlanir f Reykjavfk og nágrenni og spurðum hvort farið væri að bera á samdrætti f verzlun. Svörin, sem við fengum, komu okkur nokkuð á óvart, þvf ekki einn einasti verzlunarstjóri hefur orðið var við veru- legan samdrátt, eins og kemur f Ijós hér á eftir. Guðmundur í 2. sæti Hastings, 10. jan. AP. GUÐMUNDUR Sigurjónsson sigr- aði unglingaheimsmeistarann Anthony Miles frá Bretlandi í 12. umferð skákmótsins f Hastings f kvold. Hann er nú með 7Vt vinning og í öðru sæti ásamt Belyavsky en Hort, Planinc og Vaganian eru efstir og jafnir með 8 vinninga. Framhald á bls. 18 Tveggja ára á kvöldgöngu Tveggja ára gömul Reykjavíkur- mær brá undir sig betri fætinum á 10. tímanum í gærkvöldi og stalzt út frá heimili sínu klædd i peysu og náttslopp og í stígvélum var hún berfætt. Sú litla á heima á Ránargöt- unni, en laust fyrir kl. 22 i gær- kvöldi fann leigubílstjóri hana þar sem hún var á labbi á Ægis- Framhald á bls. 18 „ÞAÐ má segja að húsgagnasalan hafi verið óeðlilega mikil allt til loka september, en þá fór hún að minnka og jókst ekkert í kringum jólin eins og oft er,“ sagði Erlingur Hallsson í Híbýlaprýði. Hann sagði einnig, að fyrstu döjg unum í janúar værí vart treyst- andi, en miklar breytingar væru nú framundan í húsgangaverzlun- um með tilkomu Efta- samningsins, en menn yrðu að vona, að salan héldist góð áfram. Jón Þór Hjaltason i Bygginga- vöruverzlun Kópavogs sagði, að hjá þeim hefði verið mikið að gera fyrri part ársins og árið í heild hefði verið gott verzlunarár. Ekki væri hægt að dæma sölu þessa árs á fyrstu dögunum, þar sem fólk væri alltaf lengi að taka við sér eftir áramót. Eflaust ætti sér nú stað einhver samdráttur, en þá verzlun, sem nú væri, mætti kalla „eðlilega verzlun". Svavar Björnsson i Húsinu sagði, að litið væri hægt að segja um sölu ársins svona rétt i byrjun janúar, en tiltölulega mikið hefði verið að gera allt s.l. ár, reyndar með smá sveiflum. Nokkuð væri erfitt að segja hvað salan hefði verið mikil, en fólk þyrfti nú orðið margar krón- ur, þótt hlutirnir væru ekki stór- ir. Þrátt fyrir allt krepputal, fyndu þeir lítið fyrir samdrætti og kreppuna væri helzt að finna í blöðunum. Menn væru að visu misjafnlega svartsýnir, og drægi það úr framkvæmdum. Einar Þorsteinsson i Virkni h.f. sagði að salan hefði farið stig- vaxandi á árinu. Utlitið framund- an væri gott og þeir hjá Virkni væru hvergi smeykir. I matardeild SS í Hafnarstræti varð verzlunarstjórinn Markús Sigurðsson fyrir svörum. Hann sagði, að ekkert hefði borið á því enn, að fólk drægi saman fínni matarkaup og ættu þeir vart von á Framhald á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.