Morgunblaðið - 11.04.1975, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.04.1975, Blaðsíða 20
k. >.**■ ■ ;r f \si'.Jr>A \T»3 > \ v' T A 3»T -'iViWyi>f 20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. APRlL 1975 Saigonherinn hrindir árás Saigon, 10. april. Reuter. AP Suður-vfetnamski stjórnarher- inn afstýrði í dag tilraun Norður- Vfetnama til að taka Xuan Loc, mikilvæga héraðshöfuðborg um 60 km austur af Saigon, eftir að Nguyen Van Thieu forseti hafði gefið hermönnum sfnum skipun um að halda bænum hvað sem það kostaði. Þetta er sögð fyrsta vonarglæta stjórnarhersins f einn mánuð. Hernaðarsérfræðingar telja þó of snemmt að segja hvort ítrekað- ar árásir Norður-Víetnama á Xuan Loc séu undanfari stórsókn- ar til Saigon. Þeir vilja heldur ekkert um það segja hvort vörn borgarinnar sýni að stjórnarher- inn sé að ná sér eftir ófarirnar sem hafa leitt til þess að þrír fjórðu landsins hafa fallið. Margir þeirra telja að áður en stórárás verði gerð á Saigon muni kommúnistar loka öllum að- flutningsleiðum til höfuðborgar- innar. Síðan muni þeir krefjast þess að Thieu segi af sér svo við- ræður geti hafizt. Harðir bardagar geisuðu einnig i dag á Mekongóshólmasvæðinu suður af Saigon. Stórskotaárásir voru gerðar á borgina Tay Ninh, um 85 km norðvestur af höfuð- borginni, og minni bardagar geisuðu við ýmsar varnarstöðvar umhverfis borgina. Norður-Víetnamar beittu bæði eldflaugum og stórskotaliði i árásunum á Xuan Loc, Suður- Vietnamar svöruðu með stór- skotaliðsárásum og suður- víetnamskar herflugvélar og þyrl- ur réðust á gúmmiplantekrur þar sem talið var að liðssafnaður Norður-Vietnama væri. Þar með hafa Norður- Vietnamar tvisvar sótt inn i Xuan Loc og Suður-Víetnamar hafa hrakið þá á flótta i bæði skiptin. Hins vegar virðist hörðum árás- um haldið uppi á stjórnarher- menn norðvestan og suðvestan við Xuan Loc. 65.000 N-VlETNAMAR Norður-Vietnamar hafa nú um 40.000 manna lið umhverfis Saigon og 25.000 menn á Mekongóshólmasvæðinu sam- Rússarviljataka þátt í rannsóknum innan 200 mílna Genf, 10. apríl. Reuter. RtlSSAR lögðu til á hafréttarráð- stefnunni í Genf í dag að strand- ríki fengju rétt til að taka þátt í öllum vfsindalegum haffræði- rannsóknum annarra ríkja innan 200 mílna frá ströndum. Hins veg- ar skyldi þcssi réttur ekki ná til þátttöku f rannsóknum á náttúru- auðlindum innan fyrirhugaðrar 200 mílna efnahagslögsögu. Fulltrúar Kanada og Indlands gagnrýndu strax tillöguna á þeirri forsendu að erfitt yrði að draga mörkin milli rannsókna á auðlindum og annarra rannsókna. Sovézki fulltrúinn sagði að haf- fræðirannsóknir væru nauðsyn- legar, einkum fyrir þróunarrfki sem árlega yrðu að þola náttúru- hörmungar. Hann sagði að land- lukt rfki ættu að fá rétt til upplýs- inga um slfkar rannsóknir grann- rfkja. Borussia vann ÞÝZKU liðin Borussia Mönch- engladbach og FC Köln léku í UEFA-bikarkeppninni i gær- kvöldi. Borussia vann 3:1, eftir að staðan hafði verið 2:0 i hálfleik. Mörk liðsins gerðu Daninn Sim- onsen (2) og Danner. Borussia virðist öruggt i úrslit keppninnar. Atletico Madrid heimsmeistari ATLETICO Madrid sigraði Inde- pendiente frá Argentínu í gær- kvöldi 2:0, í seinni leik liðanna í hinni óopinberu heimsmeistara- keppni í knattspyrnu. Leikurinn fór fram í Madrid og 70 þúsund áhorfendur sáu Irureta og Ayala skora mörk heimaliðsins. Fyrri leikinn unnu Argentínumennirn- ir 1:0 og Atletico er því meistari á samanlagðri markatölu 2:1. Níu milljónir til Isafjarðar 1 GÆR fimmtudaginn 10. aprfl var dregið f 4. flokki Happdrættis Háskóla tslands. Ðregnir voru 9,000 vinningar að fjarhæð 84,375,000 krónur. Hæsti vinningurinn, níu milljón króna vinningar, kom» á númer 42 342. Voru allir miðarnir af þvi númeri seldir í umboðinu á ÍSAFIRÐI. 500,000 krónur komu á númer 10 145. Trompmiðinn var seldur á Akureyri en hinir á Eyrarbakka, Akranesi og tveir í umboðinu Hrísateig 19 i Reykjavík. 200,000 krónur komu á númer 30 060. — Ford Framhald af bls. 1 Um NATO sagði hann, að bandalagsríkin stæðu frammi fyr- ir vandamálum á sviði orkumála, hráefna, umhverfismála og mörg- um flóknum samningaviðræðum og ákvörðunum og þvi væri nauð- synlegt að leiðtogar landanna gerðu úttekt á þessum málum, athuguðu framtiðarstefnuna og itrekuðu samstöðu sina. Hann hét áframhaldandi til- raunum til að koma á friði í Mið- austurlöndum og kvaðst kanna leiðir til þess eftir misheppnaðar sáttatilraunir Kissingers utanrík- isráðherra. Hann ítrekaði að það væri stefná Bandaríkjanna að bæta sambúðina við Rússa og Kín- verja. En hann sagði að Banda- ríkjamenn yrðu að sýna bæði festu og sveigjanleika gagnvart Rússum þvi Bandarikjamenn gætu ekki vænzt þess að Rússar gættu stillingar gagnvart veik- leika eða staðfestuleysi af hálfu Bandarikjamanna. Aóaltilgangur NATO-fundarins er að itreka vestræna einingu og draga úr þeim ugg að Bandaríkja- menn séu orðnir hikandi og á báð um áttum þar sem stefna þeirra i Indókína hefur farið út umþúfur þar sem þingið hefur neitað veita Suður-Vietnam og Kambódíu meiri aðstoð, sagði Ford. Hann viðurkenndi að margir vinir Bandaríkjamanna einkum i Asíu, væru órólegir vegna ástandsins í Indókina og sagði að ráðast yrði fljótt og ákveðið gegn þessum vanda. í þvi sambandi kvaðst hann ætla aó ræða við leiðtoga Singapore og Indónesíu en áður hefur verið tilkynnt að hann ræði við forsætisráðherra Astraliu og Nýja-Sjálands. kvæmt upplýsingum bandariska landvarnaráðuneytisins. Suður- Vietnamar hafa um 100.000 þjálf- aða hermenn og 100.000 minna þjálfaða menn úr vopnuðum borgarasveitum á þessum svæðum. Alls er talið að Norður- Vietnamar hafi 18 fullþjálfuð herfylki í Suður-Vietnam, þ.e. rúmlega 250.000 menn, og 100.000 menn sem eru til aðstoðar megin- hernum. Þar við bætast fjögur varaherfylki í Norður-Víetnam. Jafnframt telur landvarnaráðu- neytið að Norður-Vietnamar hafi sent tvo sovézksmíðaða eldflauga- báta af Komar-gerð suður á bóginn tvo siðustu daga. Þeir geta reynzt hættulegir bandariskum skipum undan ströndinni sem eru við þvi búin að flytja burtu flótta- menn frá Vietnam, en ráðuneytið vill ekki gera mikið úr þeirri hættu. — Innflutn- ingsgjald Framhald af bls. 36 ráðstafanir. Jafnframt teljum við að með þessu hafi leigubifreiðar- stjórar verið viðurkenndir sem jafn mikilvæg stétt og aðrir at- vinnubifreiðarstjórar en fyrir slíkri viðurkenningu höfum við lengi barizt. En ég vil taka fram, aó þrátt fyrir þessa lækkun verð- ur útkoman ekkert of glæsileg vegna stóraukins kostnaðar. Má sem dæmi nefna, að leigubifreið- ar hafa þrefaldazt I verði á rúmu ári og kosta nú allt upp i 3 millj- ónir. Þá hefur eldsneytiskostnað- ur stórhækkað. Við reiknuðum það út að i fyrra hefði reksturs- kostnaður leigubifreiðar hækkað um 700 þúsund krónur að meðal- tali, og af þeirri upphæð er hækk- un launa aðeins 100 þúsund krón- ur. Vió höfðum sótt um 30% hækkun á töxtum, en vegna lækk- unarinnar á innflutningsgjaldinu höfum við getað lækkað þá tölu niður í 26%“. — Skæruliðar Framhald af bls. 1 draga úr vaxandi þrýstingi þeirra. „Þetta er sorgleg siða i sögu Bandaríkjanna,“ sagði bandarisk- ur stjórnarfulltrúi sem fylgdist með hinu ískyggilega ástandi um- hverfis Phnom Penh. Enn eru 50 af 200 manna starfs- liði bandariska sendiráósins í Phnom Penh. Flestir kambódiskir starfsmenn sendiráðsins hafa verið fluttir burtu og sendiráðið hefur skorað á erlenda blaða- menn að koma sér burtu. Sendi- ráðið vill einnig að starfsmönnum annarra sendiráða verði fækkað meðan enn er hægt að koma þeim úr landi. Staðfest var í dag að Long Boret forsætisráðherra hefði rætt við sendinefnd uppreisnarmanna um möguleika á friðarvióræðum i Bangkok. En ráðherra í Kambódiustjórn, Sirik Matak, sagði í dag að hann teldi engar líkur til þess að uppreisnarmenn mundu setjast að samningaborði. Lon Nol forseti fór i dag frá eynni Bali í Indónesiu til Hawaii að leita sér lækninga. Hann fór frá Phnom Penh 1. apríl i von um að brottför sín mundi auðvelda friðarsamninga. — 50 mílna Framhald af bls. 1 leiðtogi eiginkvennanna, frú Margaret Mainprize frá Scar- borough. Eiginmaður hennar, tveir synir þeirra og tengdasonur eru allir skipstjórar á fiskibátum sem þeir eiga sjálfir. „Við viljum einnig viðurkenn- ingu á vandamálum lítilla fiski- báta,“ sagði frú Mainprize. Konurnar sögðust vilja styðja við bakið á eiginmönnum sínum sem lokuðu 45 brezkum höfnum fyrr í þessum mánuði til að mót- mæla löndunum á ódýrum fryst- um fiski skipa frá Noregi, íslandi, Póllandi og fleiri löndum er njóta ríkisstyrks. Fiskimennirnir aflýstu hafn- banninu fyrir fimm dögum þegar ýmis hafnaryfirvöld fengu úr- skurði frá dómstólum um að að- gerðirnar væru óleyfilegar og embættismenn stjórnarinnar lof- uðu að taka vandamál þeirra til athugunar. Sjómennirnir vilja færa út landhelgina úr 12 milum i 50, banna að mestu innflutning á fiski frá löndum utan Efnahags- bandalagsins og bann á öllum fiskinnflutningi yfir vetrar- mánuðina hvort sem hann er frá löndum innan eða utan Efnahags- bandalagsins. Þeir segja að erlend samkeppni stofni lífsaf- komu þeirra i hættu. Talsmaður forsætisráðherra sagði að áskorun eiginkvennanna yrði tekin til athugunar. — Utgerðin Framhald af bls. 36 stóru togararnir eiga nú við mikinn vanda að etja sem út- gerðir þeirra geta ekki einar leyst. Togaraeigendur hafa rætt við rikisstjórnina um vandamál sín og hún hefur viljað koma til móts við óskir þeirra. Þá hefur rikisstjórnin fylgzt náið meó samningavið- ræðum togaraeigenda og sjó- manna og hefur fullan hug á að gera sitt til að leysa þessa deilu og gera þessum mikil- virku atvinnutækjum kleyft að starfa." — Tollvöru- geymsla Framhald af bls. 2 Suðurnesja hf., Jón W. Magnús- son, Krossholti 6, Jón Þorsteins- son, Hringbraut 48, allir i Kefla- vik. Garðar Garðarsson, Aspar- lundi 19, Garðahreppi. Árni R. Árnason, Vatnsnesvegi 22 A. Keflavik. Konráð Axelsson, Ár- múla 1, Rvik. Árni Júlíusson, Hraunsvegi 7, Ytri-Njarðvík. Hákon Kristinsson f.h. Stapafell hf., Keflavík, Árni Samúelsson f.h. Vikurbær, Keflavík. Jósafat Arngrímsson, Holtsgötu 37, Ytri- Njarðvík, Jón E. Jakobsson, Hegranesi 35, Garðah.'eppi. Halldór Marteinsson, Viðjugerði 10, R,vik. Stjórn félagsins skipa: Jón H. Jónsson, Faxabraut 62, for- maður, og meðstjórnendur Gunnar Sveinsson, Brekkubraut 5, Huxley Ólafsson, Tjarnargötu 35, Jakob Árnason, Miðtúni 2, og Ásgeir Einarsson, Þverholti, allir í Keflavik. — Samkomulagið Framhald af bls. 2 verzluninni í. Nægir þar að benda á innborgunarskyldu, fjármagns- rýrnum vegna gengisfellinga og skerðingu álagningarákvæða. Þar sem aðstaðan til að taka við frekari kostnaðarhækkunum er jafn erfið og raun ber vitni, töldu forystumenn verzlunarinnar nauðsynlegt að leita eftir viðræð- um við ríkisstjórnina um stefnu hennar í verðlags- og peningamál- um, með það í huga, að afkoma fyrirtækja og atvinnuöryggi starfsfólks í verzlun yrði tryggt í framtiðinni. Að loknum þeim viðræðum og vegna þess að Kjararáð verzlunar- innar telur þýðingarmikið að vinnufriður sé tryggður meðan unnið er að gerð varanlegri kjara- samninga, hefur það fallizt á að gera bráðabirgðasamkomulag til 1. júní n.k. um greiðslu láglauna- uppbóta. Jafnframt mun Kjararáðið halda áfram baráttu sinni fyrir leiðréttingu á rekstrargrundvelli verzlunarfyrirtækja meó áfram- haldandi viðræðum við ríkis- stjórn og launþegasamtök." — NATO Framhald af bls. 17 málans ef Grikklandi ætti ekki aðild að yfirstjórn NATO. Ef Grikkir hins vegar gera alvöru úr hótun sinni vonast ráðamenn bandalagsins til að hægt verði að komast að sam- komulagi um að Grikklandsher starfi áfram með NATO- herjum, þótt það verði undir grfskri yfirstjórn og utan her- ráðs NATO. Þetta gerðist, er Frakkar drógu sig úr hernaðar- samvinnunni og franski herinn tekur nú oft þátt I heræfingum NATO. — Stórhýsi Framhald af bis. 2 áður var þar verzlun Sláturfélags Suðurlands. A miðhæð eru lækna- stofur og útbúa má slika aðstöðu á efstu hæðinni. Samkvæmt upp- lýsingum fasteignasölunnar mun verð húseignarinnar liggja nálægt 40 milljónum króna. — Friðrik Framhald af bls. 36 Mecking frá Brasilíu er nú efst- ur á mótinu með 3,5 vinninga. Larsen, Ljubojevic, Cardoso og Hort eru i 2.—5. sæti með 2,5 vinninga. Petrosjan, Tal, Tatai, Rodriques, Andersson og Friðrik eru í 6.—11. sæti með 2 vinninga. Visier, Pomar og Bellon eru í 12.—14. sæti með 1,5 vinninga og lestina reka Fernandez og Deb- arnot með engan vinning. — Sikkim Framhald af bls. 17 furstans og stjórnarinnar um völd hans og forréttindi. Indverjar hafa verið tregir til að draga úr völdum furstans siðan landið hlaut sjálfstæði 1947 af ótta við hugsanlega íhlutun Kinverja. Þó hefur hann haft litil sem engin völd siðan Sikkim var gert að riki i tengslum við Indland i fyrra. Indverjar fara nú með stjórn utanrikismála, varnarmála og samgöngumála Sikkims sam- kvæmt lögum sem indverska þingið samþykkti i fyrrasumar. — Wilson Framhald af bls. 1 ina, 31% er á móti en 12% eru óráðin. Aðildin var hins vegar sam þykkt I neðri málstofunni með miklum meirihluta, 396 at- kvæðum gegn 170, vegna míkils stuðnings við hana f þingliði Ihaldsflokksins. Eftir atkvæða- greiðsluna er talið að Ihalds- flokkurinn standi sterkar að vfgi en hann hefur gert lengi. Heffer, sem Wilson rak fyrir að óhlýðnast fy rirmælum til ráð- herra um að leggjast ekki gegn stjórninni f umræðunum, var aðstoðarráðherra f iðnaðar- ráðuneytinu og var kunnur fyr- ir stuðning við lslendinga í sfð- asta þorskastríði. Nú er bolla- lagt hvort hann getur orðið sameiningartákn óánægðra þingmanna Verkamanna- flokksins. Wilson á erfiða daga í vænd- um, segja stjórnmálafréttarit- arar, og mest mun reyna á hann 26. aprfl þegar Verkamanna- flokkurinn heldur sérstaka ráð- stefnu til að móta afstöðu sfna til EBE. Niðurstaðan verður Ifkiega sú, að stjórnin verður hlynnt aðild og flokkurinn and- vfgur henni. — FundurSverris Framhald af bls. 21 7. I byrjun nóvember, þegar vegarkaflinn var tilbúinn undir sementsbundið burðarlag og slit- lag, var ákveðið, vegna frosthættu að láta frekari framkvæmdir bíða vors, og var sú ákvörðun tekin í samráði við Vegagerðina. 8. Ég lagði áherslu á þá skoðun mína, að mikiu meira ætti að gera af þvi að sementsbinda efsta hluta burðarlagsins i íslenzkum vegum. Það yki burðarþol vegarins og hindraði betur ásókn vatns, um leið og þynna mætti sjálft slitlagið og ná þannig fram sparnaði. 9. Sagði ég, að mér væri ekki kunnugt um að heildarkönnun hefði verið gerð á því, hvort eða að hve miklu leyti nota mætti aðferð mina, blöndun á staðnum, við endurbætur á núverandi vega- kerfi. Hins vegar áliti ég, að íslenzkir þjóðvegir væru að miklu leyti þannig gerðir, að með litlum tilkostnaði og lagfæringum mætti binda efsta hluta burðarlagsins og setja þar ofan á þunnt slitlag. Fundurinn stóð talsvert Iengur en ætlað var, og vonast ég til að fundargestir hafi farið af fundi nokkru fróðari um þessi mál. Sverrir Runólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.