Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.09.1975, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1975 13 GIsli Ólafsson, Hafsteinn Guðmundsson og Björn Jóhannsson. Árbókin 1974 komin út Nú er komin út hjá bókaútgáf- unni Þjóðsögu bókin „Árið 1974 — stórviðburðir llðandi stundar I myndum og máli“. Þetta er I tf- unda sinn, sem bókin kemur út. Fyrsta árbókin kom út árið 1965, en frá 1966 hefur fslenzkur sér- kafli fylgt bökinni. Islenzku út- gáfuna annast GIsli Ólafsson, rit- stjóri, umsjón með íslenzka kaflanum hefur Björn Jóhanns- son, fréttastjóri, en umbrotið annast Hafsteinn Guðmundsson, forstjóri Þjóðsögu. Árbókin er gefin út í sextán löndum. Hinn alþjóðlegi útgefandi árbókar- innar er Weltrundschau I Sviss og er Erich Gysling aðalritstjóri. I íslenzka kaflanum eru flestar ljósmyndir eftir blaðaljósmynd- ara dagblaðanna. Island var fyrsta landið, sem tók upp inn- lendan sérkafla í bókinni, en sá siður hefur nú verið tekinn upp f mörgum löndum öðrum. Sala bókarinnar hér á landi hefur frá upphafi verið mjög mikil og er upplagið nú 6 þús. eintök, en 70 af hundraði fara til fastra áskrif- enda. Þrír fyrstu árgangar bókar- innar eru nú uppurnir, en útgáf- an hefur enn nokkur eintök frá 1968, 1969 og 1970. 1 árbókinni eru þúsundir mynda, ásamt fjölda litmynda, en að þessu sinni er bókin um 320 bls. Islenzki sérkaflinn hefur m.a. að geyma margar myndir frá þjóð- hátíðarhaldi, tvennum kosn- ingum og óvenju tíðindasömu ári á stjórnmálasviðinu, heimsókn Noregskonungs og snjóflóðunum í Neskaupstað. Verð bókarinnar er 5.750.- auk söluskatts, en áskrifendur fá bók- ina með afborgunarkjörum. Fjárréttir í Kjós eftir helgina FJÁRRÉTTIR í Kjósarsýslu i næstu viku verða sem hér segir: Hafravatnsrétt mánudaginn 22. september (hefst milli kl. 9—10 árd.). Kjósarrétt og Þingvallarétt þriðjudaginn 23. september. Kollafjarðarrétt miðvikudaginn 24. september. — Meðalskipta- verð Framhald af bls. 24 haldsdag er tekinn þá kemur f ljós að Ingólfur Arnarson er þar hæstur með 15.6 tonn, þá kemur Júní GK með 15.1 tonn og ögri með 14.8 tonn. Það vekur athygli að Akureyrartogararnir raða sér í þrjú efstu sætin þegar meðal- skiptaverð er tekið fyrir. Hæsta meðalskiptaverð pr. kg. hefur Svalbakur EA 302 með kr. 31.66, þá kemur Sléttbakur EA 304 með 31.07 og Kaldbakur EA 301 er með 31.04. Af minni skuttogurunum er Sólberg ÓF 12 með hæst meðal- skiptaverð pr. úthaldsdag kr. 386.366 annar í röðinni er Dagrún ÍS 9 með kr. 382.953 kr. og þvi næst Guðbjartur IS 16 með 379.332 kr. Dagný SI 70 er hins vegar með hæsta meðalskiptaverð pr. kg. eða kr. 35.00, þá kemur Dagrún IS með 34.94 og Sólberg ÓF 12 með 34.20. Baráttan um hæstan meðalafla pr. úthaldsdag er geysihörð meðal minni skuttogaranna. I 1.—2. sæti eru Ljósafell SU 70 og Guðbjörg IS 40 með 11.4 tonn og í 3.—5. sæti eru Sólberg ÓF 12, Guðbjart- ur IS 16 og Bessi IS 410 með 11.3 tonn pr. dag. — Verðhrun Framhald af bls. 1 við allt sitt gull er fram liða stundir. Hugsanlegt er þó að verð- fallið verði til þess að breyta þeirri áætlun, þar sem gullsalan gefur nú miklu minna í aðra hönd en áætlað var. Samfara verðfallinu hefur staða dollars á alþjóðagjaldeyris- mörkuðum styrkst verulega. — Síldarverðið Framhald af bls. 24 gjörlega verið velt yfir á hendur kaupenda. A fundinum i dag ákváðum við að salta í eina viku enn, þar sem fulltrúar Síldarút- vegsnefndar eru nú að fara í samningaferð til Sviþjóðar og Rússlands. Þegar Ijóst verður- hvernig þessi samningaferð gengur tökum við ákvörðun um hvort við höldum áfram móttöku eðaekki." Margeir Jónsson í Keflavík, sagði að það hefði verið forkast- anlegt að ákveða þetta verð. Eng- inn vissi með vissu hvernig þessi mál stæðu nú. Kaupendur þyrftu að borga 46 krónur fyrir hvert kg af stóru síldinni, en kr. 30 fyrir þá smærri. Miðað við það verð, sem nú er í gildi, er hreint óhugsandi að halda áfram söltun, ef miðað er við þær upplýsingar, sem við höf- um, um tilboð í íslenzku síldina. Hvemig Patty Hearst varð byltingarsinni Randolph Hearst, kona hans og frændi Hearst sjást hér glöð í bragði þar sem þau fara fráflugvellinum i San Francisco til Sam Mateo-fangelsins i Redwood City í Kaliforniu til að hitta Patty Hearst. Frú Hearst heldur á blómvendi. Hún kom frá Los Angeles þar sem hún sat fund stjórnar Kaliforníu- háskóla. Hearst kom frá New York þar sem hann var í viðskiptaerindum. FYRIR nftján mánuðum var Patty Hearst frekar venjuleg bandari.sk stúlka sem stundaði háskólanám og ætlaði að giftast kennara 1 heimspeki f Berke- ley, Steven Weed. Aðeins nokkrum vikum eftir að liðs- menn „Symbonesfska freslis- hersins“ (SLA) rændu henni úr fbúð Weeds, 4. febrúar 1974, hafði hún breytzt f eldheitan byltingarsinna. Fyrstu hljóðritanirnar með rödd hennar sem liðsmenn SLA sendu föður hennar, blaðaútgef- andanum Randolph Hearst, sýndu að hún var smeyk. „Mamma og pabbi, það er allt í Iagi með mig. Ég er ekki svelt og ekki barin og er ekki óþarf- lega hrædd. Það er bundið fyrir augun á mér svo ég þekki eng- an.“ Sinnaskipti hennar komu í ljós f sfðari hljóðritunum. Að- eins nokkrum vikum síðar kall- aði hún föður einn „lygara“ og sagði honum: „Ef þú berð hag alþýðunnar svona mikið fyrir brjósi, af hverju segir þú þá ekki fátæku og kúguðu fólki þessa lands hvað ríkið ætlar að gera við það og varar blökku- menn og fátækt fólk við þvi að þau verði myrt til síðasta manns...“ 3. apríl 1974, aðeins tveimur mánuðum eftir að henni var rænt, tók hún sér byltingar- nafnið „Tania“. Þá var hún orð- in staðráðin í því að berjast við hlið liðsmanna SLA. Foreldrar hennar skoruðu á hana í sjón- varpi á gefa sig fram. Þeir héldu því fram að hún hefði verið heilaþvegin og beitt þvingunum. En tónninn í orðsendingunni frá Patty var harðari og breyt- ingin á henni kom betur og betur í Ijós. Hún kallaði föður sinn „svínið Hearst". Hún hvatti hann til að dreifa mat- vælum meðal fátæklinga. Þegar hann gaf matvæli að verðmæti tvær milljónir dollara og þeim dreift í fátækrahverfum San Francisco, fór hún háðulegum orðum um matardreifinguna, kallaði hana „fáeina bita“, og krafðist viðbótar matvæla að verðmæti fjórar milljónir doll- ara. Tveimur vikum eftir að hún tilkynnti að hún hefði gengið í lið með SLA tók hún þátt í bankaráni í San Francisco. Á kvikmynd, sem var tekin með földum myndavélum, sást hún í hópi liðsmanna SLA vopnuð vélbyssu. FBI komst ekki á slóð SLA fyrr en 17. mai i fyrra, þegar flestir félagar Patty Hearst féllu í skotbardaga í fá- tækrahverfi í Los Angeles. Daginn áður rændu William og Emily Harris, fyrrverandi skólakennarar frá Indiana sem urðu félagar Patty Hearst í rúmt ár og voru handtekin rétt á undan henni, fötum úr verzlun í Los Angeles. Patty stóð á verði fyrir utan og skaut úr vélbyssu á framhlið verzlunarinnar. Harris-hjónin komust undan og þau og Patty flúðu frá Los Angeles. Sennilega varð það Patty Hearst til lífs að hún flúði frá Los Angeles með Harris hjón- unum en fór ekki aftur til aðal- Síðast heyrðist í ungfrú Hearst 8. júní í fyr’ra þegar hún og Harris-hjónin sendu útvarps- stöð i Los Angeles hljóðritun þar sem hún lýsti yfir þeim ásetningi sínum að halda áfram að berjast með leifum SLA. Hún sakaði lögregluna um að hafa«myrt félaga sina“. Hún kvaðst hafa fylgzt með atburðunum við aðalstöðvar SLA í sjónvarpi og séð elds- voðann sem hún sagði að hefði orðið unnusta sínum að bana, byltingarmanninum Willie Wolfe, sem hafði tekið sæti Weeds fyrri unnusta hennar. „Ég dó í þessum eldsvoða á 54. stræti, en ég endurfæddist í Patty Hearst (f miðju) og Emily Harris (til vinstri) færðar til yfirheyrslu f San Francisco. Þær hafa verið f haldi f San Mateofang- elsinu 1 Redwood City. stöðva SLA. Lögreglan komst á snoðir um að liðsmenn SLA væru f Los Angeles og um- kringdi aðalstöðvarnar sem voru í húsi í suðausturhluta borgarinnar. Sex liðsmenn SLA féllu í skotbardaga og í eldi sem kom upp í húsinu. FBI sannfærðist um að Patty væri fús þátttakandi í starfsemi SLA og 20. maí var birt ákæra í 20 liðum á hendur henni og Harris-hjónunum'. Þau voru meðal annars ákærð fyrir rán með vopnavaldi, að hafa haft vopn ólöglega í fórum sínum — og fyrir mannrán. Patty og Harris hjónin höfðu haft á brott með sér tvo ökumenn á flóttanum frá verzluninni. Patty hafði verið rænt og nú var hún sjálf ákærð fyrir mann- rán. brunarústunum. Ég afsalaði mérstéttarforréttindum mínum þegar Cin (blökkumaður úr SLA, Donald DeFreeze að nafni) gaf mér nafnið Tania." I rúmt ár leitaði FBI árangurslaust að ungfrú Hearst. Kannaðar voru ábendingar frá þúsundum manna sem töldu sig hafa séð ungfrú Hearst. FBI komst að því að hún hafði búið um tíma á bóndabýli i Pennsylvaniu í fyrrasumar, en hún var á bak og burt þegar starfsmenn FBI komu þangað. Leitað var um öll Bandarikin og í Kanada og í Mið Ameríku. En leitinni lauk nákvæmlega þar sem hún hófst fyrir 19 mánuðum — á götum San Francisco. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.