Morgunblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 11.12.1975, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 1975 33 fclk í fréttum Liuigu mammútsins + Little Richard var farinn að þenja sfn öflugu lungu löngu áður en Elvis Presley var af barnsaldri. Það var hann sem fyrstur söng lagið góða „Tutti Frutti“, og krafturinn var ótrú- legur. Enn svngur þessi 42 ára gamli en sfungi garpur og heldur þrumutónleika. Little Richard hefur margsýnt það, einnig utan hljómleikasala. að hann hefur munninn fyrir neðan nefið. A blaðamanna- fundi sem hann hélt ekki alls fyrir löngu sagði hann t.d.: „Að sjálfsögðu er ég konungur rokksins." Þetta minnir óneitanlega á Múhameð nokkurn Ali, en Little Richard hefur vfst alltaf verið svona hress. Little Richard: Eg er konungur rokksins. Joanne Woodward lék Evu f kvikmyndinni. Eitt andlit + Eflaust muna margir eftir kvikmyndinni „Þrjár ásjónur Evu“, sem sýnd var f Nýjabíói sfðla árs 1959. Myndin fjallaði um unga konu, Evu, sem er kleyfhugi. Annað veifið er hún heimakær og elsk að sinni fjöl- skyldu en breytist þess á milli f ábyrgð arlaust léttúðarkvendi og kallar þá ekki allt ömmu sfna. Þegar Eva hefur um nokk- urt skeið verið f meðferð hjá geðlæknum, breytist hún f þriðju persónuna, gerólíka hin- um tveimur, sem hverfa nú sporlaust. Joanne Woodward lék Evu í kvikmyndinni og fékk hún Öskarsverðlaun fyrir leik sinn f myndinni, en þetta var eitt af hennar fyrstu meiri háttar hlutverkum. Leikstjóri myndarinnar var Nunnally Johnson og var þetta næst- sfðasta mvnd hans. Þetta er rifjað upp hér vegna þess að stutt er sfðan það vitn- aðist, að Eva átti bráðlifandi fyrirmynd, sem kvikmvndin tók mið af. Hún heitir Chris Sizemore, 48 ára gömul hús- móðir og býr f bænum Fairfax fyrir utan Washington. Sjúk- dómurinn var þó á miklu hærra stigi hjá fyrirmyndinni og er stutt síðan hún náði fullri heilsu. Hafði hún þá verið f umsjá geðlækna meira og minna frá unga aldri. A sjúkdómsferli sfnum gekk hún f gegnum þá reynslu að vera margar ólfkar persónur, yfir tuttugu eftir þvf sem sagt er, og Iæknismeðerðin kostaði of fjár. Herma heimildir okkar að hluti af ágóðanum af kvikmyndinni hafi runnið til Chris Sizemore og gert henni kleift að standa straum af öllum sjúkrakostn- aðinum. BO BB& BO iGMÚAJO — Hjarta- knúsari + Anker Jörgensen, forsætis- ráðherra f Danaveldi, þykir sér- lega aðlaðandi persónuleiki. væntanlega skýrir það að nokkru leyti hinar miklu vin- sældir hans meðal almennings f Danmörku. Þrátt fyrir sívaxandi atvinnuleysi og efna- hagsvanda nýtur stjórn hans stuðnings 74% danskra kjós- enda. A myndunum sem hér fylgja sjáum við hvernig hann sjarmerar tvö „atkvæði“ af hinu kyninu. Borðtennissett 2 góðir spaðar, net og 2 kúlur. Verð kr. 2.066.-. §§É m Glæsilegur kvöldklæðnaöur Lauth hf. Vesturgötu 17 Laugavegi 39 Glæsibæ TRAM PS ný sending Teg. 7530 í brúnu leðri loðfóðraðir, og með slitsterkum sól- um. Stærðir: 35—40 Verð kr. 6.480- Stærðir: 41 —46 Verð kr. 6.580- Skóverzlun Þórðar Péturssonar V/AUSTURVOLL, KIRKJUSTRÆTI 8 SÍM 14181

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.