Morgunblaðið - 06.01.1976, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.01.1976, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANUAR 1976 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson, Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22 4 80. Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 40,00 kr. eintakið. Verðbólgan á undanhaldi Einhver mesti böl- valdur í íslenzku efna- hagslífi hin síðari ár hefur verið hin taumlausa óða- verðbólga, sem hér hefur geisað og komst á skrið á tímum vinstri stjórnar. Þessi verðbólga. náði því marki að nema 54% á árinu 1974, má segja að þá hafi Islendingar slegið öll Evrópumet í verðbólgu og leita yrði til alþekktra verðbólguríkja í Suður- Ameríku, eða stríðshrjáðra þjóða í Asíu til að finna þjóðir, sem stæðu okkur jafnfætis í verðbólguvexti. Þegar núverandi ríkis- stjórn tók við völdum, var það eitt höfuðmarkmið hennar að ná tökum á þess- ari verðbólguþróun. Því er ekki að leyna að framan af sýndist svo sem sú viður- eign mundi ganga afar erfiðlega. En nú er komið í ljós, að mjög verulegur árangur hefur náðst í viðureign rfkisstjórnarinn- ar við verðbólguna á árinu 1975, og eru það einhverjar mestu gleðifréttir úr ís- lenzku efnahagslífi, sem fram hafa komið misserum saman. Nú liggur fyrir, að frá ársbyrjun til ársloka 1975 hefur verðbólgan minnkað úr 54% í 40% og er það út af fyrir sig mjög mikill árangur. Ánægju- legra er þó, að þegar tekið er mið af verðbólguvext- inum á síðari hluta ársins, kemur í ljós, að verðbólgan er komin niður í 25—30% á ársgrundvelli og er þar með komin niður fyrir verðbólguvöxtinn á árinu 1973. Þetta eru fyrstu áber- andi merki þess, að stefna ríkisstjórnarinnar í efna- hagsmálum er að bera verulegan árangur. Þetta eru fyrstu alvarlegu merki þess, að ríkisstjórninni er að takast að leggja grund- völl að heilbrigðu efna- hagslífi á ný á Islandi. Þótt ánægja manna hljóti að vera mikil við þessi tíðindi, ber þó að ganga hægt um gleðinnar dyr. Við verðum að gera okkur grein fyrir því, að þótt þessi árangur hafi náðst, hefur það kostað miklar fórnir og áfram- haldandi árangur í viður- eign við verðbólguna bygg- ist á því, að við kunnum fótum okkar forráð í efna- hagsmálum á hinu ný- byrjaða ári. Þar er að sjálf- sögðu margt, sem þarf til að koma. Útlánatakmörk- un bankanna hefur átt mikinn þátt í því, að þessi árangur hefur náðst. Þá hafa verið gerðar sérstakar ráðstafanir til þess að draga úr útlánaaukningu fjárfestingarlánasjóðanna, sem varð um 60% á árinu 1975, en samkvæmt láns- fjáráætlun þeirri, sem ríkisstjórnin lagði fram á Alþingi skömmu fyrir jól, er gert ráð fyrir, að útlána- aukning fjárfestingarlána- sjóðanna nemi aðeins um 13% á næsta ári. Þá hefur Alþingi afgreitt fjárlög, sem fela í sér 24,7% aukn- ingu á útgjöldum ríkissjóðs á hinu nýbyrjaða ári, en til samanburðar má geta þess, að útgjaldaaukning ríkis- sjóðs milli áranna 1974 og 1975 nam um 60% og verður ekki dregið í efa, að þessi nýja fjárlagastefna mun gera sitt til þess að halda verðbólguvextinum í skefjum. Nú standa hins vegar fyrir dyrum almennir kjarasamningar og á næstu vikum verða teknar örlaga- ríkar ákvarðanir um kjör almennings í landinu. Það ríður á miklu, að menn geri sér grein fyrir því, að nú er ekki grundvöllur til almennra kjarabóta. Verði kjarasamningum þessum haldið innan skynsamlegra marka munu þeir og stuðla að því að halda verðbólg- unni í skefjum, og vafa- laust er það mesta hags- munamál launþega nú um þessar mundir, eins og for- ystumenn Alþýðusam- bands íslands hafa ítrekað bent á undanfarnar vikur og mánuði. Afleiðingar þess, að kjarasamningarnir fari úr böndum eru einnig öllum ljósar. Óðaverðbólgan kæmist á skriö á ný og það mikla starf, sem unnið hefur verið á undanförnum mánuðum til þess að ná verðbólgunni niður hefði þá verið unnið fyrir gíg. Það er því ljóst, að mjög mikil ábyrgð hvílir á samn- ingamönnum vinnuveit- enda og verkalýðssamtak- anna svo og á ríkisstjórn- inni, sem mun væntanlega koma mjög við sögu við gejð þessara kjarasamn- inga. Matthías Johannessen: Framtíð í samtímanum Hugleiðingar umTómas og ljóð hans Vart gat hjá því farið að viðkvæmt og nýstárlegt Reykjavíkurljóð eins og Um sundin blá vekti athygli, þegar það birtist í Oðni 1919, og ekki sízt fyrir þá sök að skáldið var aðeins rétt 18 ára gamall mennt- skælingur sem átti sér þann „hugarheim, þar sem fegurðin ein var hvort tveggja í senn, takmarkið og vegurinn að takmark- inu“, eins og Tómas komst að orði löngu síðar. I þessu kvæði sló hann strax á þá strengi sem hann bætti við hörpu íslenzkrar ljóðlistar, þótt hann breytti mörgu, þegar Ijóðið var birt fremst í fyrstu ljóðabók hans, Við sundin blá, 1925: — en nóttin er hljóð eins og ósungin ósk og æskunnar kærasta þrá ... verður t.a.m.: um sofandi varir fer viðkvæmt bros meðan vornóttin gengur hjá. Hér leynir sér ekki mýkt ljóðlínunnar þeg- ar í upphafi. En þversögnin kom síðar. Tómasi hefur síðan tekizt að leggja í leik strengja sinna svo margvísleg tónbrigði að sjaldgæft er: láta mun nærri að bragarhætt- irnir séu jafnmargir og fjölbreytilegir og ljóðin sjálf, og ljóðmálið verður ekki síður nýtt og í samræmi við þá fögru veröld sem blasti við ungu rómantísku fólki á árunum fyrir heimsstyrjöldina fyrri. Þannig urðu fyrirheitin í ljóðum Tómasar ekki minni en heillandi ævintýri og húmanistísk birta þessara ára. Síðar komu „undarlegir tímar og miklir af sjálfum sér“. Fáir hafa átt meiri þátt í endurnýjun íslenzkrar ljóðlistar en Tómas. Þjóð sem átti sér í sömu andrá hann og Einar Bene- diktsson, sem fór fallegum orðum um ljóð þessa unga vinar síns, hefur leyfi til að gera miklar kröfur til skálda sinna. En hún verður þá jafnframt að sætta sig við að fulltrúar svo fullkomins ljóðstíls hafi ósjálf- rátt gert þær kröfur til ungra skálda að þau Ieituðu ljóðum sínum og hugsunum nýrra farvega, enda hefur Tómas fagnað þeirri þróun sem orðið hefur í íslenzkri ljóðlist og sagt að nútímaljóð eigi sér margar og gaml- ar rætur og því óþarfi að vera móðgaður út af þeim eða líta ungu skáldin hornauga. „Þetta er það sem hefur alltaf gerzt og eiginlega ættu menn þá fyrst að vera ugg- andi, ef það hætti að gerast,“ segir hann í Svo kvað Tómas. tslendingar hafa borið gæfu til að velja þjóðskáld sín úr hópi þeirra sem hlotið hafa alþýðuhylli af góðum skáldskap. Þessi heið- urstitill hefur því verið meira en orðin tóm og er það ekki sízt skemmtileg staðreynd nú á tímum auglýsingaskrums og fjölboða sem leggja meiri áherzlu á stundarvinsældir og gróðavon en gæði, svo að nú eru jafnvel bögubósar kallaðir snillingar. En við þurf- um ekki að örvænta um álit íslenzkrar ljóðlistar, meðan listaskáld á borð við Tóm- as ber þjóðskáldstitil. Og ef rétt er sem sagt hefur verið að sérhver þjóð eignist þau skáld sem hún á skilið, má kalla Tómas til vitnis um að íslenzka þjóðin er betur á vegi stödd um andlega velferð sína en sumir vilja vera láta. Þegar því var lýst yfir í margtilvitnuðu ljóði í Stjörnum vorsins, að cand. jur. Tóm- as Guðmundsson væri hættur að praktísera, hlýtur það að hafa vakið nokkrar vonir um að brotið væri blað í menningarsögu okkar; að gera mætti kröfur til þess að ljóðskáld gæti lifað af list sinni. Tómas hefur ávallt verið bjartsýnn maður og óliklegt að nokkr- um öðrum en honum hefði dottið í hug að bera fram svo fráleitar sjálfstæðiskröfur á hendur þjóðfélagi sínu — og það í upphafi sjálfrar kreppunnar. Ágæti verka hans og óvenjulegar vinsældir voru auðvitað sá bak- hjarl sem treysta mátti. Hann hafði jafnvel hlotið í vöggugjöf hæfileika til að breyta vatni kreppuþjóðfélags í vín yndis og unað- ar. Hvert smáorð í ljóðum hans er þaulhugs- að: Við Vatnsmýrina í Fögru veröld gat ekki heitið I Vatnsmýrinni, „það var of þving- andi að mínum smekk“, hefur hann sagt, „að eiga alla Vatnsmýrina eins og á stóð!“ Og þegar hann kom með handritið að Fögru veröld í prentsmiðjuna, ráðlagði prentarinn honum að setja hljómleika eða söngleik í stað konserts, því að hann yrði annars gagnrýndur fyrir útlenzkuslettur. Tómas breytti, en setti svo aftur konsert: En niðri í mýri litla lóan æfir lögin sín undir konsert morgundagsins. Ástæðan var sú, hefur hann sagt mér, að annað orð samrýmdist ekki anda Ijóðsins. I þá daga komu erlendir listamenn og héldu konserta, en ekki hljómleika — það gerðu íslendingar. Lóan kom eins og útlendur gestur „að halda fyrir okkur konserta. Og þeir voru á heimsmælikvarða". Þannig eiga ljóð Tómasar rætur í þeim tíma, sem þau eru sprottin úr: í nótt hefur vorið verið á ferli ..., „þessar línur eru afsökun fyrir að vaka frameftir". Skáldið segir að höfuðatriðið sé að ljóðið segi satt. Þegar hann hefur ort ljóð, fer hann yfir það frá orði til orðs til að ganga úr skugga um, að þar sé ekki að finna eitt orð sem segi ósatt. En það var ekki alltaf auðvelt að vera skáld fyrr á árum frekar en nú: haustið 1970 kom Tómas til mín í Austurstræti og sagðist hafa séð tvær blómarósir sem hefðu minnt sig á að eitt sinn hefði hann sagt f ljóði: Þið ungu lauslátu konur . . ., en hon- um hefði verið ráðlagt að breyta því, svo að hann yrði ekki gagnrýndur fyrir að yrkja ástaróð til lauslætisins. „Það gat einnig verið erfitt að vera ungt skáld fyrir fjörtíu árum,“ sagði hann. Ljóð Tómasar hafa aldrei vérið tízkufyrir- brigði, þó að þau hafi á sínum tíma verið fersk nýjung og mikil og óvenjuvinsæl opinberun. Og kalla má æskuna til vitnis um þá fullyrðingu að Tómas Guðmundsson er kunnur af verkum sínum, en ekki frægur og umtalsverður af frægð sinni einni saman, eins og oft vill verða um klassíska listamenn. Ungt fólk getur notið Ijóða hans á sinn hátt, eignazt nýja reynslu af kynnum við þau, svo að vel mætti segja, að ljóð Tómasar séu nú ein traustasta brúin milli kynslóða á erfiðum og ófyrirsjáanlegum umbrotatímum. í þeim hefur fólk ólíkra tíma eignazt athvarf; kynslóðaskipti þekkjast ekki í ljóðum Tómasar. Hvað skyldi t.a.m. standa ungu fólki nær en sú hugsun sem skáldið hefur sjálfur orðað á þessa leið: „að reyna að koma list sinni og viðleitni sem næst því bezta, sem okkur getur orðið eiginlegt“. Öll reynum við einhvern tíma á ævinni, að — næsta dag, þegar dalurinn rfs á fætur er skógurinn horfinn að heiman, frá sfnum trjám. Átaka- eða sársaukalaust verðum við ekka vitni þeirra óumflýjanlegu örlaga. En þá er gott að eiga traust og hald í þvf bezta sem Tómasi er eiginlegt. Kannski er sú vitneskja að f skáldskapnum séu verðmæti ofar jarðneskum kröfum, ein helzta skýring þess undarlega fyrirbæris, að enn á þessum hávaðasömu tímum þegar allt er lagt að jöfnu, skuli aftur vera leitað af ástríðufullri þörf til ljóðlistar, bæði gamallar og nýrrar. Sum skáldverk og ósjaldan þau sem hafa átt lengst Iff fyrir höndum, hafa verkað á samtfmann eins og „slysalegt lykkjufall f veizlu“, svo að gripið sé til líkingar í verki eftir ungan höfund. En Tómas hefur notið þeirrar sjaldgæfu hamingju að finna Ijóð- um sínum öruggan stað í samtíð sinni: honum hefur tekizt að vera samtiða sjálf- um sér, þó að — hefði ég verið uppi á undan mér, ég eflaust nyti þess betur að komast f kvnni við mig. Einn helzti bókmenntafræðingur lands- ins sagði á prenti, þegar hann fyrir mörgum árum sá Tómas í Kirkjustræti, að hann væri „til prýðis á mannlausri götunni“. Þannig hefur skáldið einnig verið í vit- und þeirra sem hafa lifað með honum og ljóðum hans, og þannig mun hann ávallt standa fámennri þjóð sinni fyrir hugskots- sjónum. Samt skyldi enginn halda að það hafi ávallt verið honum auðvelt hlutverk að yrkja svo að öllum líkaði. Og þegar ljóðin um Reykjavík komu út i Fögru veröld í upphafi heimskreppunnar, malbikið fór jafnvel að anga og sundin urðu loksins blá, þótti sumum nóg um, eins og fyrr er drepið á, enda gat nafn bókarinnar eitt út af fyrir MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JANUAR 1976 23 sig virzt móðgandi fjarstæða í miðri krepp- unni.En fátt lýsir Tómasi betur en einmitt þetta nafn á þessum tíma. Slik lotning fyrir lífinu er fágæt; að kalla jörðina fögru veröld bjartsýni sem á eitthvað skylt við bæn; minnir á orð Hamsuns: að við fengum lífið að láni. Og ég þakka fyrir lánið. „Ég vandist fljótt á að skyggnast fyrir um það sem væri skemmtilegt og fallegt við bæinn,“ hefur Tómas sagt, „og kannski reyndi ég að gera mér meira far um það vegna þess að mér fannst óeðlilegt, hvað margir risu öndverðir gegn umhverfi sfnu.“ Unaður Sogsins kallaði ekki á fordóma, heldur gleði yfir ungri borg sem var að vakna af svefni. Góður vinur Tómasar, embættismaður úti á landi og smekkmaður á bókmenntir, skrif- aði honum bréf skömmu eftir að Fagra veröld kom út og sagðist ekkert skilja í honum — að geta verið að yrkja þessi kvæði um Reykjavik, asfalt- og kolakrana, það er hjákátlegt, sagði hann. En síðar, þegar hann fluttist til bæjarins eftir langan em- bættisferil úti á landi, sagði hann að nú væri svo komið að sér fyndist stórum bæri- legra að flytjast til Reykjavíkur eftir að Tómas hefði ort ljóð sín. En þó að skáldið hafi átt því láni að fagna að sjá ljóð sín vaxa inn í þjóðarsálina, þætti honum sjálfum, ef ég þekki hann rétt, æski- legast að geta kvatt þau eins og ungan vin og fylgzt með því, án allrar íhlutunar, hvernig þeim reiðir af. Undanfarna áratugi hefur hann ónáðað þau eins lítið og unnt hefur verið og ekki séð ástæðu til, frekar en skógurinn sem „stendur ferðbúinn frammi við vatnið" að sá til nýrra skóga. Þð hefur hann á siðustu árum bætt nýjum perlum við íslenzka ljóðlist, m.a. ort nýtt undurfagurt minningarljóð um bezta vin sinn, hundinn Stubb, og birtist það í jólalesbók Morgun- blaðsins. Þegar ég hafði lesið þetta ljóð upphátt í viðurvist skáldsins varð mér að orði að nú væri mér líklega eins innanbrjósts og kyn- slóð Tómasar þegar Stjörnur vorsins og Fagra veröld komu fyrst út. Það var eins og að upplifa fögnuð og gleði þeirrar stundar, þegar þessi tfmamótaverk fóru tilfinninga- eldi um taug og hjarta ungrar og eftirvænt- ingarfullrar kynslóðar. Við gröf síns bezta vinar austur við Sog litur skáldið til baka yfir sína fögru veröld og segir allt sem segja þarf: Æ, hversu sjaldan gefum við því gaum hve gæfu vorrar ævitið er naum. Og flestum aðeins verður hún að vana unz vér f greipar dauðans missum hana. Og máski skilst oss farsæld vor þá fvrst til fulls, er hún er Iffi voru misst. Og hvað fær sárar samvizkuna kvalið en svik við það, sem ábyrgð vorri er falið.? Og svo kveður hann sitt eigið líf eins og hann hafði gert áður í Fljótinu helga (1950), en með öðrum hætti: Hve allt varð hljótt, — f rökkursýn ég sá þar sjálfur mína ævi ganga hjá sem kæmi hún að kveðja f hinzta sinni... I Kvöldljóði um draum í Fljótinu helga segir: Og enn f kvöld ég mæti sjálfum mér. Eg mæti ungum sveini, er bát sinn dregur f lága vík... í nýlegu ljóði er þessi áleitna líking: að jörðin svæfir — sölnuð grösin. leggur blað við blað að liðnu sumri, og raðar hverju hausti vfir annað. Og I þjóðhátíðarljóðinu 1974 segir hann m.a.: A vængjum, sem ei veröld þekkir grennri, þeir báru með sér heila himna af vori... Og ennfremur: En hugann grunar eld f undirdjúpum og hvljir gjánna stara úr stjörfu mvrkri sem augu full af fornum, botnlausum himni... Með svo fagurt ag myndrænt mál að leið- sögn hlýtur að vera þó nokkurt ævintýri að vera ung-manneskja á Islandi í dag. En það er ekki síður áskorun, ægileg og skilyrðis- laus krafa á hendur ungum skáldum um að kasta aldrei höndum til nokkurs orðs. Ljóð eru minning þess sem var. En við eignumst þau ekki frekar en aðra list fyrir fullt og allt fyrr en höfundurinn stendur ekki lengur milli þeirra og okkar. „Það er ekkert nýtt að bækur beri af höfundum sínum,“ sagði Tómas eitt sinn við mig. En það á samt ekki við um hann. Það segir meir um mann- inn Tómas Guðmundsson en löng lofgrein. Ljóð boða okkur mikinn fögnuð og marg- vísleg sannindi, ef við lesum þau opnum huga og hjarta. Þegar þau eignast vini er eins og tilfinning kalli á tilfinningu. Þá myndast trúnaður sem dýpkar reynsluna. En ljóð eru ekki síður hólmganga við tím- ann, þau ségja: Við vorum hér einnig á ferð — og gefa tilverunni, svo hverful og afstæð sem hún er, fasta viðmiðun. Að opna góða ljóðabók er eins og að fara i ferðalag. Við getum kvatt, en þó verið kyr; verið kyr og þó skilið við allt sem engu skiptir. Menn geta dottið án þess að þekkja þyngdarlögmálið, hefur Tómas sagt. En án þess að þekkja ljóð hans og lífsstarf getur enginn skilið til fulls viðleitni þessarar litlu þjóðar til að bera höfuðið hátt, því siður er hægt að leggja rétt mat á íslenzkt samtíma- líf án þess að vera handgenginn verkum hans, svo djúp spor hafa þau markað í þessu landi þar sem: — oft fram á nætur fjöll þess ræddust við sem himintungl, er talast við í öldum. Og það sem meira er: fáir virðast geta staðizt freistingar einræðistízkunnar án þess sama innra þreks sem er aðal og inntak ljóða Tómasar. Af þeim sökum hafa þau ekki sízt átt brýnt erindi við okkar öld. „Til allrar hamingju hefur það aldrei verið neitt leyndarmál," segir hann í Svo kvað Tómas, „hvað heilbrigt fólk getur af fúsu geði lagt mikið í sölurnar fýrir jafn einfaldan hlut og þann — að mega lifa eins og manneskjur." En það sem þó er mest um vert og ráða mun úrslitum um það, hvernig ljóðum hans reiðir af, er sú vitneskja, að þau spegla þá skugga „sem framtfðin kastar inn í nútím- ann eins og hann sjálfur hefur komizt að orði af öðru tilefni. Því má bæta við að list, sem er nógu góð til að lifa af, er í senn fortíð sem vitjar nútímans og lifir f honum '—og nútími sem tengist framtíðinni órjúf- andi böndum. Samtíð okkar á ekki betri fulltrúa í fram- tíðinni en ljóð Tómasar, sem eru oft og einatt svo nálægt daglegu tungutaki að engu er likara en þau lúti ekki neinum bragreglum, en slikt er ekki á færi nema stórskálda. „Sjötta erindið í kvæðinu Konan með hundinn í Stjörnum vorsins," hefur hann sagt við mig, „er eiginlega ekk- ert annað en ein setning í óbundnu máli.“ Og vrði suðrænt sólskin á sumardegi björtum of heitt tveim ungum hjörtum, þá heldur ekki brást það, að nóttin kæmi að austan með fangið fullt af stjörnum handa feimnum jarðarbörnum til að unnast við og dást að. Og á þessari úfnu vargöld eiga ljóð Tóm- asar sér athvarf í fyrirheiti fegurra mann- lífs. En hitt er samt mikilsverðara, að í þeim eigum við einnig skjóls að vænta. Þau eiga sízt af öllu fyrir höndum að hverfa inn í skugga örlaga sinna á þann hátt að — þekkja sig ekki framar fvrir hin sömu tré. Kristján Karlsson: Tómas og Stj örnur vorsins Mér þykir vænst um Stjörnur vorsins af bókum Tómasar Guðmundssonar, en samt ekki fyrir þá sök, að ég sé þess fullviss að þar sé að finna fleiri ágætustu kvæði hans en í Fögru veröld eða í Fljótinu helga. Þessar þrjár bækur eru hver með sínu móti eftir innri fjölbreytni; hins vegar er fyrsta bók Tómasar, Við sundin blá, svo samfelld, að nærri liggur að líta á hana sem eitt kvæði um huglæga, algilda fegurð ástarinnar. En nú, eftir á, má oss vera ljóst, að þar koma fyrir flest þau sannindamerki, sem gera Tómas Guðmundsson einstakan meðal íslenzkra skálda: hin óviðjafnanlega mýkt Ijóðlínunnar; þversögnin, sem siðar verður uppistaða í hugmyndaheimi hans; hið órjúfanlega samband gleði og trega, sem ljómar upp skáldskap hans. Svo fylgir oss eftir á lestaferð ævilangri hið ljúfa vor, þegar alls staðar sást til vega. Því skin á hamingju undir dagana angri og undir fögnuði daganna glitrar á trega. Eftirmáli, Stjörnur vorsins. í annarri bók sinni, Fögru veröld, snýr Tómas frá hinu almenna yrkisefni fyrstu bókar sinnar að samtímanum og Reykjavík. Hann verður fyrstur til að yrkja um hina nýju fegurð, sem fólk hennar, stræti, höfn og garðar húa yfir, og honum tekst með einkennilegum töfrum að gefa mynd henn- ar eins konar sögulega dýpt í ljósi endur- minninga um horfna æsku. í Fljótinu helga, síðustu bók sinni, leitar skáldið upphafs sins, alla leið aftur fyrir fyrstu bók sína. Fljótið í heiti bókarinnar er Sogið, sem fellur um æskustöðvar skáldsins. i mynd þess speglast fyrstu minningar hans, en jafnframt verður fljótið ímynd tímans sjálfs. 1 ljóðagerð Tómasar Guðmundssonar er minningin ekki griðastaður heldur mátt- arvald, sem hann eflir gegn ágengni tímans. Dýpt kvæðanna og jafnvægi er fólgið í því,. að rök hverfulleikans eru ekki sniðgengin; tvísýna kvæðanna er líf þeirra; málstaður skáldsins sá, að hann man. Þvf minningin um morgunlandið bjarta um myrka vegu lýsir þfnu hjarta f veröld þá, sem ósýnileg er, en Aladdín f minni sfnu ber. Þannig kveður skáldið í mjög persónu- legu kvæði, sem er upphafsljóð að Stjörn- um vorsins. Samt er það ekki þáttur minn- ingarinnar, sem gerir mér Stjörnur vorsins hugstæðastar af bókum Tómasar Guðmundssonar, heldur stíll hennar. Öll ljóðagerð Tómasar er vitsmunaleg, líka viðkvæmustu tilfinningaljóðin. Sjálf þversögnin er rökvísi í gervi órökvisi. Svo Iftil eru takmörk þess, sem tfminn leggur á oss. Hann tekur jafnvel sárustu þjáninguna frá oss. Vitsmunir birtast með ýmsu móti í skáld- skap, en fyrst og fremst í fullkomnun stíls. I Stjörnum vorsins nýtur sín til fullnustu málfar skáldsins, eins og það er eiginlegast: í senn viðhafnarlegt og alveg óhátíðlegt. 1 öllum kveðskap hans er þessi stíll hvorki meira né minna en ófrávíkjanleg afstaðatil lífsins, en í Stjörnum vorsins reynir ennþá meira á mýkt stilsins og sveigjanleik en annars staðar, af þvi að hér hefir skáldið máð burt arflæga sundurgreiningu gamans og alvöru í skáldskap. 1 fyrsta lagi eru kvæði, sem alls ekki verða flokkuð sam- kvæmt venjulegum hugmyndum vorum, eins og Nú er veður til að skapa. Og hins vegar gamankvæðin, til dæmis: Þegar ég praktíseraði, sem fjalla um nærtækustu og hversdagslegustu efni, en búa engu að siður stílsins vegna við fullt jafnrétti gagnvart nokkrum af fegurstu ljóðrænum kvæðum tungunnar: í klausturgarðinum, Bæn til dauðans, Þjóðvísu, Ljóði um unga stúlku sem háttar. Hinn djarfi leikur að andstæðum til- finningum, sem einkennir Stjörnur vorsins, heppnast fyrir öryggi stílsins. Sem heimild um skáldskap er þessi bók til þess fallin að minna oss á þann sannleik, að efni og búningur ljóðs verða ekki sundurgreind, og að viðfangsefni kvæðis nær aldrei hærra, né fellúr það lægra en stíllinn ákveður. Með því er auðvitað ekki sagt, að tvö jafngóð kvæði hljóti að hafa jafnmikla þýðingu. Ef mér væri gert að velja eitt kvæði í Stjörnum vorsins, sem mér þætti mest um vert, myndi ég vafalaust kjósa 1 klausturgarðinum. Það er meira kvæði en til dæmis Þjóðvísa, Garðljóð eða VIxil- kvæði, af því að það tekur yfir stærra og flóknara vitundarsvið. En hitt væri mark- laust að kalla það betra kvæði. Stíll skáldsins birtisi jafnskýrt í öllum þessum kvæðum, sem ég nefndi, og þar með afstaða hans, hin ástúðlega virðing fyrir lífinu. (Þessi grein er formáli fyrir nýrri úigáfu AB á Stjörnum vorsins og skrifaður i tilefni af ára afmæli Tómasar Guðmundssönar).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.