Morgunblaðið - 04.03.1976, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 04.03.1976, Blaðsíða 32
M (ÍLYSIN'ÍÍASIMINN KR: 22480 Jfi*r0>inbl«íiiíi lOíp^íittiMít^ííb AK.LYSINí;asíminn ERi 22480 Jtlorfltmbtoíiiö FIMMTUDAGUR 4. MARZ 1976 Inflúensan stingur sér niður hérlendis INFLtlENSA sú sem herjar á fbúa nágrannalanda okkar hefur verið að stinga sér niður hér á landi, að því er Olafur Olafsson landlæknir tjáði Morgunblaðinu í gær. Flensan lýsir sér f háum hita, oft á tfðum slæmum hósta og kvefi. Ölafur sagði, að þessi pest væri af A-stofni, eins og áður hefði kom- ið fram, en ekkert hóluefni hefði enn sem komið væri fundist, er veitti verulega vernd fyrir henni. Ólafur sagði hins vegar, að inflú- ensa þessi færi fremur létt yfir erlendis, en þess yrði vart að gam- alt fólk, einkum ef þaö ætti við sjúkdóma að stríða, þyldi illa hinn háa hita sem ílensunni væri sam- fara, og hefðu nokkur dauösföll orðið af þeim sökum. Landlæknir sagði ennfremur, að hérlendis hefðu til þessa verið bólusett um 8—9 þúsund manns með bóluefni sem til væri gegn inflúensu af þessum sama stofni í von um að það kæmi að einhverju gagni. Væri þetta hlutfallslega mun viðtækari bólusetning en annars staðar gerist. Hafa einkum sjúklingar og gamalt fólk verið bólusett. Ólafur Ólafsson taldi ekki ástæður til að ætla annað er inflú- ensan gengi hér fremur hratt yfir, líkt og i nágrannalöndunum. Gjaldþrot Air Viking: Um 7 millj. kr. kraía frá flugliði félagsins ENGAR kröfur höfðu f gær bætzt við í þrotabú Air Viking að öðru leyti en þvf að fram krafa frá flugvélvirkjum ógreidds orlofs febrúarmánuð, Lnsteinn Beck, í fyrradag kom flugáhöfnum og félagsins vegna og launa fyrir að þvf er fulltrúi borgar- fógeta, tjáði Morgunblaðinu í gær. Auk þess teldu þessir aðilar sig eiga inni greiðslur vegna dag- peninga erlendis og fyrir auka- vinnu ýmiss konar, sem eftir væri að yfirfara, en samtals næmu þessar kröfur um 7 milljónum króna. Hins vegar kvað Unnsteinn enga kröfu hafa bor- izt frá Samvinnubankanum, en f einu blaðanna f gær cr því haldið fram að vænta megi um 100 milljóna króna kröfu frá bankan- um f bú Air Viking. Morgunblaðið sneri sér af þessu tilefni til Kristleifs Jónssonar, bankastjóra Samvinnubankans, og staðfesti hann að Samvinnu- bankinn hefði enn sem komíð væri ekki gert neinar kröfur í búið. Hann minnti á, að skipti bankans við Air Viking hefði fyrst og fremst verið í formi ábyrgðar, sem enn væri ekki failin í gjalddaga, og ekki tíma- bært á þessu stigi að bankinn gerði kröfu í búið. Hins vegar sagði Kristleifur að vafalaust kæmi að því að bankinn legði fram kröfu í búið, en um hana gæti hann aðeins sagt það, að hún yrði töluvert lægri en tala sú sem nefnd var í fyrrgreindri blaða- frétt. Morgunblaðið spurði Unnstein Beck hvort hann teldi að langan tíma myndi taka að gera upp bú Air Viking. Hann kvaðst ekki búast við því, þar eð hann gerði ráð fyrir því að ekki væri um mjög marga kröfuhafa að ræða og Framhald á bls. 31. Ljósm. Mbl. RAX og Guðfinnur A myndunum má sjá hvernig umhorfs var á þeim stað, sem brakið fannst f gær, og hvað björgunarsveitarmenn S.V.F.I. fundu f fjörunni f Sandvfk. Guðmundur Þorsteinsson formaður Þorbjarnar f Grindavfk heldur á árum úr öðrum gúmbát Hafrúnar, og einnig á matarpakka og tveimur álpokum. Geir Guðmundsson. og Þorsteinn Guðmundsson með lóðabelg og tægjur úr gúmbátnum. Stíufjalir og hluti gúm- báts Hafrúnar fundið Leitinni að mönnunum sjö haldið áfram FJÖRUTlU skip, þrjár flugvélar og um 70 menn úr björgunarsveitum Slysavarnafélags tslands leituðu vélbátsins Hafrúnar AR-28 f gær, en án árangurs, A bátnum eru átta manns. Menn úr björgunarsveit S.V.F.l. Þorbirni f Grindavfk og Björg frá Eyrarbakka fundu rekna hluti úr bátnum undan Háleyjarbungu f Sandvfk, rétt austan við Reykjanes eftir hádegi í gær. Eins og Morgunblaðið skýrði frá f gær, fannst Ifk á reki f fyrradag skammt undan Önglanefsbrjóti sem er vestan við Reykjanestána. Kom f Ijós að það var matsveinn Hafrúnar, Ingibjörg Guðlaugsdóttur frá Reykjavfk. Ingibjörg var 41 árs og lætur eftir sig átta börn á aldrinum frá þriggja ára til tvftugs. komust ekki út til leitar, þar sem ófært var út úr höfnunum. Brak finnst Menn úr björgunarsveitinni Þorbirni í Grindavík og Björgu á Eyrarbakka gengu þegar í gær- Þó lítil von sé til þess að Hafrún sé enn ofansjávar, þá verður leit haldið áfram í dag, og áttu björg- unarsveitir að ganga fjörur við birtingu í morgun. Mögulegt er talið aó skipverjar hafi komist um borð í annan gúmbjörgunarbát Hafrúnar en mjög vont leitar- veður var fyrir skip og flugvélar austan við Reykjanes í gær og fá skip á ferli. Bátar sem lágu í Grindavík og Þorlákshöfn Húsnæðismálastjórnarlán hækka um 600 þúsund kr. J'ara úr 1.7 milli. í 2,3 millj. kr. HAMARKSUPPHÆtí níínæ^'smálastjórnarlána hefur verið hækkuu úr 1.7 milljónum króna f 2.3 min'jínir króna eða um 600 búsund krónur. Kemur fram f fréttatilkynningu frá feiabSn,úiaróðuneytinu að þetta hafi verið ákveðið af Gunnari Thoroddsen félagsma.'arúóherra, f samræmi við tillögur húsnæðismálastjórnar. í samtali við Morgunblaðið f gær sagði Gunnar Helgason, forstöðu- maði r Ráðningaskrifstofu Reykja- víkurborgar, sem sæti á i hús- næðismálastjórn, að ákveðnar reglur væru um hámarksupphæð húsnæðismálastjórnarlána og við ákvörðun um hækkun lánanna væru lagðir til grundvallar út- reikningar á hækkun byggingar- visitölu á ákveðnu tímabili. Gunnar sagði ennfremur, að hin hækkaða lánsfjárupphæð kæmi nú þeim tií góða er sæktu um hús- næðismálastjórnarlán á þessu ári og gerðu fokhelt á árinu. Gunnar I kvað ofangreinda lánsfjárupphæð eingöngu véfoS útMutað vegna ný- bygginga. Hins vegar sagði hann að hús- næðismálastjórn veitti einnig lán vegna eldra íbúðarhúsnæðis og var upphafi að því stefnt að upp- hæð þeirra ]ána væri helmingur lánsfjárhæðarinnár vegna nýbygg- inga. Gunnar sagði, að niií.næðis' málastjórn hefði aftur á móti ekki' haft néma um 160 milljónir króna Framhald á bls. 31. Sjómenn á Snæfellsnesi felldu og frestuðu SJÖMENN A Snæfellsnesi felldu sjómannasamningana í atkvæðagreiðslu með 68 atkvæðum gegn 56. Hins vegar var verkfalli frestað þar sem annars staðar, þar sem sjómannasamningarnir hafa verið felldir. Jón Sigurðsson, formaður Sjómannasambands lslands sagði í gær að nauðsynlegt nivndi verða að hefja viðræður að nýju. Hins vegar kvað hann um að ræða gjörbreytta samn- inga frá því sem verið hefði og meiiii Skildu almennt ekki, að við hækkun, sem krafizi er skuli skiptaprósenta lækka. Jón sagðist vera búinn að fá loforð fyrir því hjá útvarpi, að Jón Sigurösson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar, útskýrði kerfisbreytinguna og kvað hann jafnvel koma til greina Framhald á bls. 31. morgun á fjörur, austan og vestan við Grindavík. Síðustu mennirnir komu aftur til Grindavikur um kl. 17, en þeir höfðu þá fundið reka á fjörum. Morgunblaóið náði tali af Guðmundi Þorsteinssyni, for- manni björgunarsveitarinnar í Grindavik, er hann kom þangað. Hann sagði í fyrstu að þeir hefðu ails farið 27 til leitar frá Grinda- vík. Ekkert hefði fundist fyrr en komið var i fjöruna framan við Háleyjarbungu. „Á 1. kílómetra kafla í Krossvík, fundum við lóða- belgi álpoka (varmapoka) matar- pakka, tvær árar eitt neyðarblys og toppinn af öðrum gúmbátnum Toppurinn var allur mjög tættur en í honum hékk hluti af líflín- unni og stiginn sem hangir niður úr bátnum, til þess aó auðveldara sé að komast um borð. Einnig fannst í fjörunni brak af lífbáts- kassa." sagði Guðmundur. Þá sagði hann, að þeir hefðu fundið fjalauppstillingu af dekki bátsins. „En það er ekkert, sem bendir til þess að neinn maður hafi komizt nálægt þessum stað, þar sem enginn fatnaður fannst eða annað sem gæti bent til þess að menn hafi verið í gúmbátn- um." Slæmt veróur um nóttina Síðast er vitað til ferða Haf- rúnar um kl. 01.15 aðfararnótt þriðjudags, er báturinn fór tii loðnuveiða frá Þorlákshöfn. Tók báturinn þá stefnuna vestur með landi í átt að loðnumiðunum undan Reykjanesi. t fyrstu var gott sjóveður en er leið á nóttina Framhald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.