Morgunblaðið - 15.09.1976, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.09.1976, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. SEPTEMBER 1976 s _ Arni Ragnar Magnús- son — Minning Fæddur 17. maf 1914. Dáinn 16. ágúst 1976. Horfinn er nú minn góði og tryggi vinur og kunningi okkar hjóna. Ragnari kynntist ég hér í Reykjavík 1941. Konan mín sá hann fyrst sem svaramann okkar 1943 og eigi gleymist sú tryggð og vinátta enda minntist hann oft þeirra tíma þegar við fórum um landið okkur öllum til ánægju. Ragnar var prentari að iðn. Hann mun hafa byrjað i Stein- dórsprenti og vann hann þar í mörg ár, siðar í Gutenherg og víðar. Mér fannst Ragnar oft vera misskilinn af svo mörgum t.d. ef hann mætti ekki til vinnu, þá átti það alltaf að vera sjálfskaparvíti en hann var svo dulur maður að hann vildi sem sjaldnast bera sig upp við aðra því ég veit að hann bjó við vanheilsu í mörg ár. Oft kom Ragnar við á Laugaveg- inum þar sem við bjuggum og fékk sér kaffisopa. Eitt skipti kom hann og bjöllunni var ekki svarað, það þótti honum skritið og datt víst í hug að athuga það bet- ur og gekk því bakvið hús og ætlaði að sjá inn um eldhúsglugg- ann en þá sér hann hvað gerst hafði. Konan mín hafði reist stiga upp að húsinu og ætlaði inn um eldhúsgluggann sökum þess að hún hafði lokað sig úti enn stig- inn hafði sporðreistst og kona mín lá í hlóði sinu í kjallaratröpp- unum. Hann náði þegar í stað i aðstoð og lækni og hjálpaði mikið til sökum þess að ég var fjarver- andi. Þetta var ekki hið eina góðverk sem Ragnar lét af hendi rakna, hann var ætíð boðinn og búinn til að gjöra kærleiksverk fyrir allt og alla. Fyrir þetta allt þakka ég honum nú á kveðjustund og minningu + Móðir mín MARÍA SKÚLADÓTTIR THORODDSEN, lézt aðfaranótt þriðjudags fyrir hond vandamanna, Jón Thor Haraldsson. t FRIÐRIK EINAR BJÖRGVINSSON, húsgagnabólstrari, lézt 1 3 september Aðstandendur. Faðir okkar t KRISTJÁN ÁSGEIRSSON er látinn Hildur Rebekka Kristjánsdóttir Karla Kristjánsdóttir Kristján Kristjánsson. t Móðir okkar, GUÐRÚN SVEINSDÓTTIR, MinnaNúpi, verður jarðsungin frá Stóru-Núpskirkju, laugardaginn 1 8 sept kl 1 4 Húskveðja verður að heimili hennar kl 1 3, Fyrir hönd vandamanna, Margrét og Guðbjörg Ámundadætur. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, MAGNEA TORFADÓTTIR, Hjallavegi 9, sem lézt 9 sept verður jarðsett frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 16 sept kl 1 3 30 Blóm vmsamlega afþökkuð Geir Róbert Jónsson, Torfhildur I. Jónsdóttir, Aðalsteinn Ólafsson, Kristján Vattnes Jónsson, Lovísa Helgadóttir, og barnabörn. t Hjartkær eigmmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, CAMILLUS BJARNARSON, málaram lézt að Vífilsstaðaspítala 1 2. sept Þuríður T. Bjarnarson, Þórir Bjarnarson, Guðfríður Hermannsdóttir, Jarðþrúður Bjarnarson, Óli Georgs, Rafn Bjarnarson, Magnfríður Gústafsdóttir, Benedikt Bjarnarson, Matta Friðriksdóttir, og barnaböm. t Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, ÞORSTEINSKR. MAGNÚSSONAR. Magnús Þorsteinsson, Gunnar Þorsteínsson, Steinar Þorsteinsson, Ragnhildur Þ. Guida, Sighvatur Þorsteinsson. Sigriður Þorsteinsdóttir, tengdabórn, barnabörn og barnabarnabörn. Svavar Júlíusson verkstjóri — Kveðja Fæddur 15. okt. 1920. Svavar var af heilum hug unn- andi þess fagra og frjósama í nátt- úru lands síns og fór oft á vit þeirra dásemda þegar heilsa og annir leyföu, þangað út sem lækir renna, grös gróa og vatn gjálfrar i grjóti, og einmitt þar var hann staddur þegar kallið kom. Svavari þökkum við hin góðu kynni af heilum hug og semdum hans hugljúfu konu, Hönnu Pét- ursdóttur, og börnunum innilegar samúðarkveðjur. Fjölskyldurnar Otrateig 44—54. — Sextugur Framhald af bls. 25 var upp tekinn. Mæddu þá umsvif og annir mjög á húsfreyju ekki síður en bónda hennar. Það reynir á þolinmæðina að sjá fyrir þörfum margra aðkominna ung- linga auk eigin barna. Börn þeirra hjóna eru sjö, synir fimm og tvær dætur, dugnaðar- fólk, sem ber heimili sínu og for- eldrum fagurt vitni. Það er mikið hlutskipti að koma svo mörgum börnum vel til manns. En tekst, þegar tveir vilja, og gleymum þá ekki forsjá móðurinnar og umhyggju hennar. Vmis áhugamál á Þórður á öl- keldu önnur en þau, sem hér hefir verið drepið á. Má þar nefna t.d. skógrækt. Á hennar vegum brá hann sér til Noregs og naut vel fararinnar. Ungmennasam- band Islands er æskuhugsjón hans, og hefur hann verið forystu- maður hennar í heimasveit sinni og héraði. Þá á Landvernd sér hauk í horni, þar sem Þórður er. Að lokum Iit ég til baka yfir senn liðinn aldarþriðjung og þakka vini mínum Þórði á Ölkeldu samfylgdina. Við hjónin óskum honum innilega til hamingju á þessum tímamótum í ævi hans og fjölskyldu hans ánægjulegs afmælisfagnaðar. Þorgr. V. Sigurðsson fyrrv. sóknarprestur á Staðastað ATHYGLI skal vakin á þvi, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili. hans munum við öll geyma í huga okkar. Ragnar var Vestmanneyingur að ætt og fluttist hann ungur að árum til Reykjavíkur eða um tví- tugt. Fyrri kona hans var Elín Ölafs- dóttir og eignuðust þau eina dótt- ur, Halldóru Ragnars, búsetta hér í Reykjavík. Siðari kona hans var Sigríður Magnúsdóttir, ættuð frá Raufar- höfn, og eignuðust þau tvær dæt- ur, Ingigerð Ragnars, hún er gift Árna Sigurðssyni bifvélavirkja, ættuðum frá Skagaströnd og búa þau hér í Reykjavfk og eiga einn son, Arna Ragnar, þriggja ára og voru þeir nafnar miklir vinir enda þurftu þeir alltaf að heim- sækja hver annan og fara í ferð um bæinn gangandi eða i strætó. Yngri dóttir þeirra er Magnea Ragnars, heitbundin Pétri Þor- grímssyni, Klifshaga í N- Þingeyjarsýslu. Hafi Ragnar þökk frá mér fyrir allar okkar góðu samverustundir á liðnum árum. Blessun Guðs fylgi honum á þeim ókunnu leið- um er hann nú hefur lagt út á. A.S. Dáinn 27. ágúst 1976. Við, sem sendum þessi kveðju- orð, vorum nágrannar Svavars og unnum með honum að sameigin- legum verkefnum í tvo áratugi. Frá fyrsta degi þeirrar samvinnu hefir gagnkvæmt traust og vin- átta verið í fyrirrúmi, á þá vináttu sló aldrei fölva. Svavar var dreng- skaparmaður, viðmötshlýr og vin- fastur og ætíð reiðubúinn að rétta fram hjálpandi hönd og hann gerði það með góðum orðum og glöðu sinni, hann var ætíð hvetj- andi til nytsamra framkvæmda og alls þess sem var til fegurðar- auka, og hann lagði að þvi hug og hendur að lyfta undir þann hreina og heilnæma blæ sem leik- ið hefir um okkar samfélag öll þessi ár. Fyrir það framlag erum við honum af hjarta þakklát, og við munum sakna hans mest þeg- ar mest á reynir. Siðastliðin niu ár átti Svavar við þungbæran sjúkdóm að striða, sjúkdóm sem hann fann til hvern einasta dag meira og minna og sem að lokum varð þrekmenninu ofviða, hann gekk þó til vinnu sinnar i hvert sinn af af honum bráði og með sanni má segja að honum féll aldrei verk úr hendi, hann gafst ekki upp en vann og sá heimili sínu og fjölskyldu far- borða. Á því sumri sem nú er á förum, varð Svavar að taka sér hvild frá störfum vegna veikindanna, en hafði á því fullan hug að taka aftur til starfa áður en langt um liði. Að læknisráði fór hann i gönguferðir um nágrennið, hann gekk þar um sem blómskrúð er I görðum og á grasreitum og hann naut alls þess fegurðarauka, sem var honum í blóð borið. Hann var vakinn og sofinn að hlúa að sínum eigin gróðurreit og til þess varði hann mörgum góðviðrisstundum og taldi sér mikinn „yndisarð að annast blómgaðan jurtagarð“. Minning: Bjarnheiður Guðmunds- dóttir, Vestmannaeyjum Þann 10. ágúst s.l. andaðist í Vestmannaeyjum frú Bjarnheið- ur Guðmundsdóttir, ekkja Páls Þorbjörnssonar fyrrum skipstjóra og alþingismanns. Hún stýrði um árabil einu mesta myndar- og rausnarheimili i Vestmannaeyj- um. Hún var fædd á Ragnheiðar- stöðum í Gaulverjabæjarhreppi 7. september 1910, ein a níu systkin- um. Hún giftist 1930 Páli Þor- björnssyni skipstjóra og settu þau saman bú í Vestmannaeyjum, þar sem Páll tók við stjórn kaupfélags alþýðu. Umsvif Páls í Vestmannaeyjum urðu feikimikil og verða ekki rak- in hér. Þau hjón eignuðust fimm börn og komu þeim öllum til manns. Þau eru: Guðrún, gift Þresti Sigtryggssyni skipherra, Hrafn skipstjóri, ókvæntur, Guð- björg, gift Sturlu Þorgeirssyni, húsgagnasmiðameistara, Arndis, gift Georg Stanley Aðalsteinssyni framkvæmdastjóra, og Þorbjörn giftur Ester Antonsdóttur. Frú Bjarnheiður missti mann sinn 20. febrúar 1975. Afkomend- ur þeirra hjóna eru orðnir 22. Sá er þessar línur ritar kynntist frú Bjarnheiði í sambandi við lausn á erfiðu vandamáli og átti við hana nokkur samskipti. Þar kom fram, að hún var óvenju skýr og kjarkmikil kona og jafnframt bjartsýn þó á móti blési. Erfið- leikar buguðu hana ekki. Blessuð sé minning hennar. Ég votta af- komendum hennar samúð mína. J.B. t Þökkum af alhug öllum þeim, er sýndu okkur hluttekningu við andlát og útför móður minnar, KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR er andaðist að Hrafnistu 30k ágúst s I Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Hrafnistu og vinum hennar þar, fyrir að létta henni síðustu æviárin með umhyggju og vinsemd Gísli Rafn Guðmundsson og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.