Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavlk. Haraldur Sveinsson. Matthlas Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, sími 22480 Alþýðubandalagið vildi afnema kaup- hækkun með lögum Eins of fram hefur komið í Morgunblað- inu að undanförnu gerðu kommúnistar tilraun til þess á nýafstöðnu ASÍ- þingi að stimpla bæði sjálf- stæðismenn og fram- sóknarmenn i verkalýðs- hreyfingunni annars flokks aðila að verkalýðs- samtökunnum með því að halda því fram, að þeir stjórnmálaflokkar, sem þessar aðilar styðja, séu fjandsamlegir verkalýðs- hreyfingunni og bess vegna geti forystumenn verkalýðsfélagaga, sem styðja þessa stjórnmála- flokka ekki unnið af fullum heilindum í þágu umbjóð- enda sinna. Af þessu tilefni er fróðlegt að rifja upp verk Alþýðubandalags- manna í vinstri stjórninni gagnvert verkalýsðsamtök- unum og launþegum. I viðtali, sem Morgun- blaðið birti í gær við Magnús L. Sveinsson, vara- formann og framkvæmda- stjóra Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur, gerir hann að umtalsefni efna- hgasaðgerðir, sem ráð- herrar Alþýðubandalags- ins voru búnir að sam- þykkja vorið 1974, þegar vinstri stjórnin var að falla. Magnús L. Sveinsson rifjaði upp, að þetta vor höfðu ráðherrar Alþýðu- bandalagsins, þeir Magnús Kjartansson og Lúðvík Jósepsson, svo og að sjálf- sögðu þingflokkur Alþýðu- bandalagsins, lýst sig reiðubúna til þess að standa að aðgerðum í efna- hagsmálum, sem voru í þvi fólgnar, að afnema kaup- hækkanir, sem samið hafði verið um í kjarasamning- um í febrúar 1974, sem væru umfram 20% hækk- un grunnlauna. Þá voru þessir sömu aðilar reiðu- búnir til þess að taka kaup- gjaldsvísitöluna úr sam- bandi og skerða samnings- rétt launþegasamtakanna. Björn Jónsson, forseti ASÍ, sem á þessum tíma átti sæti í vinstri stjórninni gat ekki fellt sig við þetta frumvarp og leiddi það til þess að hann sagði af sér ráðherraembætti. Ráðherr- ar Alþýðubandalagsins sátu hins vagar sem fastast og nokkrum vikum seinna stóðu þeir að útgáfu bráða- birgðalaga, sem m.a. fólu í sér afnám vísitölubind- ingar launa. Hún hefur ekki verið tekin upp siðan í því formi, sem þá var. Engin ríkisstjórn, sem Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur staðið að , hefur gert sig líklega til að afnema með lögum kauphækkanir, sem verkalýsðfélögin voru búin að semja um, enda er vart hægt að ímynda sér frek- legri skerðingu á samningsrétti verkalýðs- samtakanna en einmitt þann að afnema umsamda launahækkun. Enda var það svo, að forseti ASl gat með engu móti hugsað sér að samþykkja slíkar að- gerðir. En mennirnir, sem nú hreykja sér og berja sér á brjóst og telja sig vara sérstaka málsvara verka- lýðssamtakanna voru til- búnir til þess að samþykkja hvað, sem var, til þess að halda völdum, til þess að missa ekki ráðherrastól- ana. Skammt er um liðið síðan þessir atburðir gerðust, en samt sem áður er það þarft verk að þeir hafa verið rifjaðir upp nú. Þeir sýna þá hræsni og yfirdrepsskap, sem ein- kennir alla afstöðu Alþýðu- bandalagsmanna til laun- þega og hagsmuna þeirra. Enda er það svo að fáir menn eru erfirðari viður- eignar, þegar til þess kem- ur að gera sérstakar- ráð- stafanir til að bæta kjör láglaunafólks en einmitt forystumenn kommúnista í verkalýsðhreyfingunni. Frægt er dæmið um það frá febrúarsamningunum 1974. Þegar upp var staðið og menn fóru að gera sér grein fyrir samningunum ogefni þeirra kom í ljós, að halaunamenn innan verka- lýsðsamtakanna höfðu náð miklu meiri kauphækkun en láglaunafólkið en flest þau félög innan ASÍ, sam hafa hálaunamenn innar sinna vébanda, eru einmitt undir forystu kommúnista. Þeir menn, sem eiga sér slíkan feril í málefnum launþega, ættu sannarlega ekki að hreykja sér og saka aðra um fjandskap við launþegasamtökin. Enda er það svo, þegar farið er að skoða málin ofan í kjöl- inn, að þær ríkisstjórnir, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verað í forsvari fyrir hafa öðrum ríkisstjórnum fremur lagt áherzlu á að bæta kjör láglaunafólks, en það hefur því miður alltof oft strandað á andstöðu hálaunamanna innan verkalýðssamtakanna. Vinur Eichmanns tekinn í Argentínu Buenos Aires, 10. desember. AP. SEXTUGUR Þjóðverji, Enirique Jacabo Miirk, sem er sagður fyrr- verandi samstarfsmaður Adolfs Eichmanns, hefur verið handtek- inn fyrir morð á fimm ára gömlum dreng og fékk taugaáfall þegar hann var fluttur frá lögreglustöð I nálægt dómshús I Buenos Aires i dag. Lögreglan segir að hann sé fyrr- verandi flugmaður fæddur í Bæjaralandi 1915 og hafi komið til Argentínu 1956 ásamt Eich- mann sem stjórnaði útrýmingu milljóna Gyðinga og Israelsmenn rændu 1960 og dæmdu til dauða fyrir stríðsglæpi. „Miirk var greinilega hægri hönd Eichmanns," er haft eftir heimildarmanni í lögreglunni. Stofnun sem rannsakar glæpi nasista í Ludwigsburg í Vestur- Þýzkalandi hefur hins vegar enga skrá um Enrique Jacobo Miirk og kannast ekki við mann með svipuðu nafni. Talsmaður stofn- unarinnar kvaðst gerða ráð fyrir að Miirsk hefði kynnzt Eichmann eftir stríð eða að hann hefði fals-. að nafn sitt. Miirk bjó i Tigre, um 45 km norður af Buenos Aires, og var handtekinn á miðvikudag. 1 morgun var hann fluttur frá lög- reglustöðinni þar undir strangri vernd til byggingar glæpadóm- stólsins í San Insidre, annarri út- borg Buenos Aires. Lögreglan sagði að hnifur með hakakrossi hefði fundizt á Miirk þegar hann var handtekinn. Lögreglulæknir staðfesti að hann hefði gengizt undir tvo uppskurði vegna sára sem hann fékk á höfða þegar flugvél hans hrapaði í Atlantshaf i stríðinu. Drengurinn sem Miirk er ákærður fyrir að hafa myrt sást í fylgd með miðaldra manni í síðustu viku og lík hans fannst í skógi norðan við höfuðborgina. Kanada: Sovézkum dipló- mati vísað brott Ottawa, 10. des. Reuter. Aðstoðarflugmálafulltrúi við Sovézka sendiráðið i Ottawa hef- ur fengið fyrirmæli um að hverfa frá Kanada að þvf er skýrt var frá af opinberum aðilum 1 Ottawa f dag. Maðurinn sem heitir Vladi- mir Vassiliev major hefur verið lýstur „persona non grata" f Kanada og sagt að iðja hans sam- ræmist ekki diplómatfskri stöðu hans. Er búizt við að fiugmála- fulltrúinn haldi frá Kanada nú um helgina að þvf er tekið var fram í tilkynningunni. Fyrir röskum tfu árum var tveimur sovézkum sendiráðs- starfsmönnum vísað frá Kanada fyrir njósnir. Sagði kanadíska stjórnin þá að mennirnir tveir hefðu boðið háar fjárhæðir fyrir ákveðnar upplýsingar. A sl. ári var kínverskum skip- lómat vísað frá Kanada sakir öryggisráðstafana eins eins og þá var að orði komist. Dubceksínnum sleppt úr haldi Prag, 10. desember. Reuter. FJÓRIR fyrrverandi stuðnings- menn Alexanders Dubceks f Tékkóslóvakfu voru látnir lausir til reynslu f dag þótt þeir hafi ekki afplánað að fullu dóma fyrir starfsemi f jandsamlega rfkinu. Þeir eru: Dr. Milan Hiibl, fyrr- verandi skólastjóri fiokksskóla kommúnistaflokksins og fyrrver- andi miðstjórnarfulltrúi, Jiri Muller fyrrverandi stúdentaleið- togi, Jaroslav Sabata fyrrverandi hugsjónafræðingur og Antonin Rusek fyrrverandi flokksstarfs- maður f Brno. Dr. HUbl var dæmdur f sex og hálfs árs fangelsi 1972 fyrir undirróður og dreifingu rita fjandsamlegra ríkinu. Muller var dæmdur f fimm og hálfs árs fang- elsi. Dr. Hubl er kominn heim til sfn en vill ekkatala við blaðamenn að svo stöddu. Hann hefur ekki verið náðaður en fær að ganga laus ef hann brýtur ekkert af sér. Félag- ar hans eru látnir lausir með svip- uðu skilyrði. Þar með hafa allir fyrrverandi stuðningsmenn Dubceks á „þíðu- tímanum“ 1968—69 sem voru handteknir um svipað leyti og HUbl verið látnir lausir. I réttarhöldunum 1972 var pró- fessor Sabata dæmdur í sex og Kínverjar í Rúmeníuferð Vfnarborg, 9. des. Reuter KÍNVERSK sendinefnd undir forystu Chi Peng-fei, sem er fulltrúi í miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins kom til Búkarest, höfuðborgar Rúmeníu, í gærkvöldi. Chi Peng-fei er fyrr- verandi utanríkisráðherra. Rúmenía er eina ríkið í Austur- F.vrópu sem hefur bæði tengsl við Sovétríkin og Kfna. hálfs árs fangelsi fyrir sömu sakir og dr. HUbl. Rusek var dæmdur f fimm ára fangelsi fyrir sömu sak- ir. JohnKennedy Fjárveiting til nýrrar rannsóknar Kennedy- morðsins Washington, 10. des. NTB. Reuter. FULLTRtJADEILDIN sam- þykkti 1 dag að veita 6.5 milljónir dollara til nýrrar rannsóknar á morðunum á John F. Kennedy bandarfkja- forseta og blökkumannaleið- toganum dr. Martin Luther King. Samþykktu fulltrúadeildar- menn tillöguna í einu hljóði. Verður ráðið 170 manna lið sérfræðinga til að annast rann- sóknina og mun það meðal annars kynna sér nánar full- yrðingar um að CIA og FBI hafi haldið leyndum mikilvæg- um upplýsingum frá Warren- nenfdinni, sem hafði yfri- umsjón með rannsókninni á Kennedy árið 1963. Martin Luther King var myrtur fimm árum sfðar. Martin Luther King Fiskimálaráðherra Breta um bráðabirgðasamkomulag: Tillögur EBE óaðgengilegar Hull 10. des. Reuter. JOHN SILKIN, fiskimálaráð- herra Bretlands, sagði f dag, að tillögur um bráðabirgðasamning um fiskveiðimál sem Efnahags- bandalagið væri að leggja tii, væru fullkomlega óaðgengilegar f veigamiklum atriðum. Hann sagði á fundi I Neðri málstofunni, að Bretar myndu halda áfram að þrýsta á Efnahagsbandalagið um að það viðurkenndi hagsmuni Breta þegar um væri að ræða framtfðarmótun fiskveiðistefnu bandalagsins. Fulltrúar brezka fiskiðnaðarins hafa einnig látið f ljós áhyggjur. Mike Burton, formaður Lands- sambands brezkra útvegsmanna, sagði að fréttir frá Brlissel gæfu til kynna að Efnahagsbandalagið hneigðist til aðgerða sem flokka mætti undir endanleg svik við brezkan sjávarútveg. Burton sagði að þær upplýsingar sem samtökum sfnum hefðu borizt fælu í sér að veita ætti Islending- um, Norðmönnum og Færeying- um jafnan rétt til veiða sam- kvæmt væntanlegu bráðabirgða- samkomulagi innan efnahagslög- sögu rfkja EBE, en aftur á móti fengju brezkir togarar engan að- gang að miðunum við Island. Aðrir forystumenn togaraút- gerðarinnar töldu að færi svo að slfkt bráðabirgðasamkomulag yrði gert væri út f bláinn fyrir Breta að lýsa yfir 200 mílna efna- hagslögsögu eins og ætlunin væri. Einn togaraskipstjóri sagði að það væri meiriháttar diplómatisk uppgjöf. Fréttir í Hull og Grimsby herma að EBE hafi stungið upp á þvf að tslendingar, Norðmenn og Færeyingar fái jafnan rétt til veiða innan lögsögu Efnahags- bandalagsins og ríki EBE eftir 1. janúar og myndi það hafa í för með sér að Norðmenn hédlu áfram fiskaustri sfnum við Bret- landsstrendur og tslendingar myndu halda áfram að veiða f Norðursjó. Þá myndi einnig verða gefið leyfi til veiða til handa Sovétrfkjunum, Spáni, Póllandi, Portúgal, Svfþjóð, Austur- Þýzkalandi og Finnlandi innan lögsögu EBE-rfkjanna en veiði- magnið byggt á meðalafla þessara þjóða árin 1964—1974. Brezka stjórnin vill breytingar á fiskimálastefnu EBE eins og margsinnis hefur komið fram. Krefjast Bretar þess að fá allt að 50 mílna einkalögsögu fyrir sig og sfna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.