Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.12.1976, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 1976 MORöJN KAFFINÚ GRANI göslari Hann skrapp f kaffi! llér um daginn kom eigin- maðurinn heim, eftir að hafa drukkið heldur mörg staup. Hann bað konu sfna fvrirgefn- ingar. „Ef þetta væri f fyrsta skipti, sem þú kemur drukkinn heim,“ svaraði kona hans, „mundi ég fyrirgefa þér, en það kom einnig fvrir eitt sinn í nóvember 1951.“ „Er hann góður bíistjóri?„“ „Jæja, þegar bugða er á göt- unni, þar sem hann beygir, gengur allt slysalaust.“ Maður lenti f bílslysi og lögregluþjónn spurði hann: „Eruð þér giftur?" — Nei þetta eru sú versta meðferð, sem ég hef nokkru sinni hlotið. gleraugum að halda, fröken, nema þegar ég þarf að leita f sfmaskránni. Eg er hrædd um að súpan þfn verði köld? „Mér þykir það leitt,“ sagði hóteleigandinn. „en við eigum ekkert kaffi iengur." „Það kemur mér ekki á óvart,“ svaraði gesturinn, „það hefur orðið þynnra og þ.vnnra með hverjum deginum." Græðir einhver á húsbyggingum? EINN þeirra fjölmörgu sem hafa staðið í byggingarframkvæmdum að undanförnu, kom að máli við Velvakanda og ræddi ýmislegt í sambandi við byggingar- framkvæmdir. — Það er mikið verið að ræða það að margir milliliðir séu í hús- byggingaiðnaðinum og það sé fjöldi manna, sem hagnist veru- lega á því að byggja hús og selja, hvort sem það eru smiðir og aðrir iðnaðarmenn eða einstaklingar. Skoðanaskipti hafa að undan- förnu átt sér stað miili nokkurra byggingaraðila og segjast allir byggja ódýrast og fólki er að nokkur furða hvernig ailir geta sagt að þeir seu ódýrastir. — En það er margt að skoða í þeim málum og ekki er hægt að segja að þessi eða hinn byggi ódýrara eða dýrara, án þess að taka ótal mörg atriði með í dæmið. Hvenær fékkst lóðin út- hlutuð, hvenær hófust innkaup og teikning, og 011 skipulagning framkt'æmdanna, hvenær hófust framkvæmdirnar sjálfar og svo framvegis. Hvaða verk þarf að kaupa á fullu verði og hvað hefur fengizt með afslætti — eða ætti kannski heldur að nefna það skattsvik? Tekjum er stungið undan og sumir iðnaðarmenn fást ekki til verks nema með alls kyns skilyrðum. 0 Ráðstefna um byggingar- kostnað — Ég held að það ætti að spara stórar yfirlýsingar og reyna heldur að halda einhverja ráð- stefnu um þessi mál, þar sem væru samankomnir aðilar iðnaðarmanna, borgarembættis- menn eða ráðamenn og fulltrúar almennings. Þá er kannski bara spurningin hver ætti að standa að slíkri ráðstefnu? Hér þurfti eins og fyrr segir að stefna saman mörgum aðilum og þá er það enginn einn þeirra sem getur eða vill standa fyrir þessu. Ekki má gleyma arkitektunum. Þeir þyrftu að eiga sinn fulltrúa á slíkri ráðstefnu. Og þá kemur það í hugann að þeir voru nýlega með kynningu á ýmsum málum fyrir húsbyggjendur og þar var fjallað um ýmis mál sem snerta hús- byggjendur og kannski var það að nokkru leyti sú hugmynd sem ég BRIDGE I UMSJÁ PÁLS BERGSSONAR ÞEGAR sagt er djarflega a sptlan, þarf að spila vel úr þeim. í dag reynum við smáþraut, sem von- andi er ekki alltof létt. Norður gefur, ekki máli. Norður S. D92 H. K97 T. ÁDG103 L. K6 hættur skipta Suður S. G4 H. AD3 T. 8 L. ÁDG10532 Eftir, að félagi okkar í norður opnar á 1 tigli, halda okkur engin bönd. Við éndum í 6 laufum. Austur og vestur sögðu alltaf pass. Við erum heppin með útspil vesturs, en það er lauf. Hvaða leið er vænlegust til árangurs? Það liggur beint við að nýta verður tígullit blinds til að losna við spaðana á hendinni. Á hvaða hátt eigum við að meðhöndla lit- inn? Er rétt að taka trompin og svína tiguldrottingunni? Þá för- um við tvo niður ef austur á kóng- inn. Einnig er hugsanlegt að taka á tigulás, spila drottningunni og láta spaða heima, láti austur lágt. Þannig förum við einum minna niður ef við höfum staðsett kóng- inn vitlaust. Er hægt að gera bet- ur? Já, það getum við. Tökum lauf- útspilið heima og spilum strax tígli á ásinn. Siðan tiguldrottning og láti austur lágt látum við hjartaþrist af hendinni. Ef vestur á kónginn ,og ekki spaðaás er næstum öruggt, að hann spilar hjarta. Hann býst eðlilega við að þar sé okkar veikleiki. Við tökum þá á ásinn, tökum trompin af and- stæðingunum og förum siðan inn á hjartakóng til að taka tíglana. Það er nú ekki víst, að þessi aðferð dugi gegn reyndum and- stæðingum, en við höfum þó auk- ið möguleika okkar. Glöggir lesendur hafa sjálfsagt komið auga á þann möguleika að sami spilari getur átt spaðaás og kóng ásamt tígulkóng. Hann, trú- lega austur, lendir í óþægilegri stöðu taki sagnhafi öll trompin og hjörtun. Blindur á þá tígulás, drottningu og gosa. Spilarinn á þá ekki öruggt afkast. Maigret og þrjðzka stúlkan Framhaldssaga afftir Georges Simenon Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 31 Og það er öldungis rétt. Þarna situr númer þrettán, enn litlausari í gráum slopp sem hann er I við vinnu sína. Hann hrekkur við þegar hann sér Maigret stíga inn til sin. — Hvað viljið ...? — Maigret lögregluforingi hér. ... Þér þurfið ekkert að óttast. ... Ég þarf aöeins að fá smáupplýsingar. — Ég skil ekki.... — O, jú, herra Gharles. Þér skiljið það aldeiiis prýðilega. Viljið þér gera mér þann greiða að sýna mér miðann sem þjónninn lét yður fá áðan.... — Ég sver.... — Góði verið þér ekki að sverja, þá neyðist ég til að handtaka yður á stundinni fyr- ir meðsekt á morði. Maðurinn snýtir sér með miklum hávaða og það er ekki aðeins til að vinna tíma, því að hann virðist þjást af miklu kvefi. Þar er kannski skýringin á þykka frakkanum og treflin- um. — Þér komiö mér f vanda.... — Ekki ef þér svarið mér hreinskilnislega ... ef þér neit- ið þvf gætuð þér óneitanlega lent f töluverðum vanda. Maigret talar digurbarkalega og er nú í hlutverki hins harð- svfraða lögreglumanns. Kon- unni hans er alltaf skemmtf þegar hanr. bregður sér f þetta gervi, enda þekkir hún hann öðrum betur. — Sjáið þér til lögreglufor- ingi... ég vissi ekki.... — Sýnið mér blaðið. Maðurinn dregur það ekki upp úr vasanum. Hann verður að fara upp i stiga og efst uppi f hillunum bak við bækur og blöð hefur hann falið miðann. Hann kemur niður með miðann og með skammbyssu sem hann hcidur ofur varlega á eins og maður sem er hræddur við skotvopn. — I guðanna bænum, segið ekkert. Áldrei undir neinum kringumstæðum. Kastið þessu þér vitið í Signu. HÉR ÉK UM LlF EÐA DAUÐA AD TEFLA.“ Maigret brosir þegar hann les sfðustu orðin. Sagði hún ekki svipað við I.ouvet þegar hún smeygði sér upp í bflinn hans og fór með til Parfsar. Þetta er alveg í réttum Felicie- stíl. — Þegar ég uppgötvaði ... — Þegar þér uppgötvuðuð að einhver hafði stungiö byssu í vasa yðar f strætisvagninum. — Þér vitið....? — Og þá urðuö þér hræddir. — Ég hef aldrei nálægt skot- vopnum komið. ... Ég víssi ekki hvort hún var hlaðin . .. og ég hef ekki þoraö að fikta við hana.... Maigret tekur við byssunni og hann kannar hana og sér að eitt skot vantar f hana. — Fyrsl var ég að hugsa um að fara með byssuna til lögregl- unnar. ... — En svo þekktuð þér stúlk- una f sorgarklæðunum. Númer þrettán veit ekki sitt rjúkandi ráð. — Þér eruð viðkvæm sál herra Charles. Konur hafa slerk áiirif á yður, ekki salt? Ég býst ekki við þér hafið oft á lífsleiðinni orðið þess aðnjót- andi að vera með konum. Klukka hringir. Gamli mað- urinn lítur kvfðinn á töflu sem er á veggnum f skrifstofunni. — Það er yfirmaður minn að kalla á mig.... Er eitthvað.... — Farið þér bara! ... Nú veit ég það sem ég þurfti að vita.... — En unga stúlkan? Segið mér. ... hefur hún virkilega. .? Skuggi líður yfir andlit Mai- grets. — það mun koma f Ijós, herra Charles. En flýtið yður nú.... Yfirmaður yðar verður óþol- inmóður að bfða. — Til Gastinne Kenette, vopnasalans! segir lögreglu- foringinn við leigubílstjórann þegar út kemur. í þrjá daga hefur Felicie, sém vissi að hún var undir eft- irliti og vissi að leitað yrði með logandi Ijósi f húsinu, haft á sér hyssuna! Hann sér hana íyr- ir sér í vörubflnum við hliðina á Laouvet. Kannski bflnum væri veitt eftirför. Ekki þor- andi að afhafast neitt i málinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.