Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 30.04.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1977 15 Guðjón Petersen: Hraunvam- iráíslandi Löngum hefur mannkyninu staöiö ógn af ýmsum hamförum þeirrar náttúru, sem alla jafnan fóstrar það og skapar því lífsskil- yrði á jörðinni. Er hér átt við þegar hún fer hamförum eins og í flóðum, skriðuföllum, jarðskjálft- um og eldsumbrotum. Eftir því sem tækni og verk- menntun hefur fleygt fram á undanförnum áratugum hefur varnarleysið gegn þessum ham- förum í mörgum tilfellum verið rofið, þannig að snúist er gegn vágestinum, með góðum árangri á sumum sviðum og misjöfnum eða litlum á öðrum. AUir þekkja fyrir- hleðslur, garða o.þ.h. aðgerðir gegn ágangi vatns og járnbind- ingu eða aðra styrkingu mann- virkja til að mæta jarðskjálftum. Erlendis verjast menn svo snjó- flóóum með gerð varnarvirkja og öðrum hliðstæðum ráðstöfunum, þótt hér á landi taki menn slíkum hamförum með sí endurteknu tjóni jafn á mannslífum sem eign- um. í Vestmannaeyjagosinu 1973, þegar vellandi hraunstraumur eyddi hverri byggingunni eftir aðra og milljarða verðmæti hurfu eins og dögg fyrir sólu, verðmæti jafnt í efnalegum sem tilfinninga- legum skilningi, risu menn upp og réðust gegn vágestinum. 1 fyrsta skipti i sögunni hér á landi buðu menn náttúruhamförum af þessu tagi byrginn. Reynt var að verjast á öllum vígstöðvum, hús voru styrkt, þau voru byrgð, jarð- ýtur unnu dag og nótt við að ýta upp varnarvirkjum og síðast en ekki sist, var „vatni ausið á eld- inn“ í stærri mæli en nokkurn- tíma hafði verið reynt i heiminum fyrr. Aðgerðir þessar hafa nokkuð verið umdeildar, en eitt er þó víst, að hér var stigið merkilegt spor fram á við í náttúruhamfaravörn- um, spor sem vonandi verður aldrei stigið til baka. Þegar náttúruhamfarirnar hóf- ust i Mývatnssveit, með jarðs- skjálftum, eldgosi og áframhald- andi eldgosahættu, varð það skoð- un þeirra er um varnarmál fjalla, að ekki mætti sitja með hendur í skauti og láta byggð eða önnur verðmæti eyðast varnarlaust, ef til stórtiðinda drægi. Var strax hafist handa við gerð varnaráætl- ana, þ.á m. áætlana um leiðigarða, til að beina hugsanlegum hraun- straumum í heppilegri farvegi en að byggðu bóli og atvinnufyrir- tækjum. Þrjár verkfræðistofur, ATLAS sumardekk Gæðavara á hagstæðu verði A 78—13 Kr. 10.066.- B 78—13 Kr. 10.450 - C 78—13 Kr. 10.603 - C 78—14 Kr. 11.316- D 78—14 Kr. 12.575 - E 78—14 Kr. 11.806 - F 78—14 Kr. 12.428.- G 78—14 Kr. 13.032 - H 78—13 Kr. 11.780 - H 78—14 Kr. 14.870 - C 78—15 Kr. 11.592 - E 78—15 Kr. 8.779,- F 78—15 Kr. 9.426.- G 78—15 Kr. 13.442 - H 78—15 Kr. 14.948 - J 78—15 Kr. 16.378.- L 78—15 Kr. 16.760,- ATLAS jeppadekk: H 78—15 Kr. 16.708 - L 78—15 Kr. 17.740 - 750— 16—6 Kr. 21.773 - 750— -16—8 Kr. 23.835 - & S Véladeild . > Sambandsins HJÓLBARÐAR HÖFÐATÚNI 8 SIMAR 16740 OG 38900 staðið skyldi að byggingu hans, með tilliti til staðarvals, efnis- töku, hagkvæmni í byggingu og síðast en ekki síst afleiðinga af þeirri hraunveitu sem hann á að stuðla að. Að lokinni ýtarlegri könnun, umræðum og hönnunarverk- efnum þóttu það mörg rök mæla með gerð garðsins, að ákveðið var af almannavarnanefnd og al- mannavarnaráði að mæla með gerð hans. Rök þessi eru sem hér segir: 1. Vegna legu sinnar mun varnargarður nr. 7 veita byggð- inni vernd gegn hraunrennsli er komi upp hvar sem er í sprungu- kerfinu frá Bjarnaflagi, alla leið i Leirhnjúk'og miðast lega hans því ekki við eldgos á afmörkuðum Hraunvamargarð- ur 7 í Mývatnssveit visindamenn og . staðkunnir ein- staklingar lögðu hönd á plóginn og komu fram fjórar áætlanir um byggingu slíkra leiðigarða. Voru áætlanir þessar mismunandi og gerðu ráð fyrir garðakerfi, sem myndi leiða hraun er hugsanlega kæmi upp í sprungusveiminum frá Jarðbaðshólum norðua í Leir- hnjúk, í æskilegri farvegi en ella. Eitt var þó sameiginlegt með öll- um áætlunum og álitsgerðum um byggingu hraunvarnargarða i Mývatnssveit, en það var tillaga um leiðigarð milli Bjarnarflags og Reykjahliðarhverfis, er beindi hrauni frá aðal byggðinni til suðurs, nú þekktur undir nafninu varnargarður 7. Vegna þessa var sá garður tek- inn til sérstakrar skoðunar og var rannsakað nákvæmlega hvernig bletti, heldur hvar sem er á svæðinu. 2. Vísindamenn álita, að aðstæð- ur allar svo og hrauntegundir sem upp komi í gosum á þessu svæði gefi tilefni til áhrifarikra varna með garði nr. 7. 3. Svæði það sem hugsanlegu hraunrennsli yrði veitt á með garði nr. 7 er gamalt gróðurlitið hraun, og getur tekið við miklu magni áður en mannlegum verð- mætum á öðrum svæðum yrði ógnað. 4. Kostnaður við gerð þessa varnargarðs er örltið brot af þeim verðmætum sem honum er ætlað að verja. 5. Of seint er talið að hefja byggingu garðsins eftir að gos er hafið jafnvel þótt unnið væri nótt og dag með hámarks afköstum. 6. Garðurinn mun auka öryggi mannslifa i Reykjahliðarhverfi brytist út eldgos í Bjarnaflagi undir erfiðum veðurfars- og sam- gönguskilyrðum. 7. Eldgosahætta er talin mikil og vaxandi á svæðinu. Almannavörnum i landinu er falið það verkefni af stjórnvöld- um, að skipuleggja og fram- kvæma ráðstafanir er miði að því, að almenningur verði ekki fyrir likams- og eignatjóni af völdum náttúruhamfara eða af annarri vá. Með hliðsjón af þessari skyldu sinni óskaði almannavarnanefnd Skútustaðahrepps eftir við stjórn- völd, að byggður yrði umræddur varnargarður nr. 7 og tók al- mannavarnaráð rikisins eindreg- ið undir þessa ósk nefndarinnar og framsendi erindið tildóms- málaráðuneytisins, sem fer með málefni að almannavörnum. Hef- ur síðan verið unnið að þessu máli, með þeim árangri, að nú eru hafnar framkvæmdir að byggingu garðsins. Eins og eðlilegt er var haft sam- ráð við náttúruverndarráð vegna þessa mannvirkis. I umræðum og undirbúningi að gerð varnargarðs nr. 7 i Mývatns- sveit var skýrt tekið fram og hug- að að áhrifum garðsins á byggð i Vogum, ef til eldsumbrota kæmi og í því skyni könnuðu verk- fræðingur Vegagerðar rikisns og jarðfræðinga frá Norrænu eld- fjallastöðinni staðhætti alla og komustu að þeirri niðurstöðu, að langvarandi gos og mikið hraun- rennsli yrði að vera áður en verð- mætum þar yrðu ógnað vegna til- komu garðsins, þannig að varnar- starf vegna Voga ætti að geta far- ið fram samhliða eldsumbrotum. Ein er sú vin á þvi svæði sem trúlega yrði í farvegi hrauns, er suður rynni frá Bjarnarflagi, en það er Grjótagjá. Þar sem þessi Framhald á bls. 35 SKIPAUTííeRÐ RIKISINS m/s Esja fer frá Reykjavík föstudaginn 6. mai vestur um land i hringferð. Vörumóttaka: mánudag, þriðju- dag og miðvikudag til Vest- fjarðarhafna. Norðfjarðar, Siglu- fjarðar, Ólafsfjarðar, Akureyrar, Húsavikur, Raufarhafnar og Þórshafnar. í nokkrar fólksbifreiðar, Pick Up-bifreið, jeppabifreið er verða sýndar að Grensásvegi 9, þriðjudaginn 3. maí kl. 1 2—3. Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5. Sala varnaliðseigna Nýtt símanúmer Flugleiðir — Innanlandsflug Fráog með 1. maí 1977 verður símanúmerokkar 26622 FLUGLEIÐIR Innanlandsflug Aðalumboðið Vesturveri opið í dag til kl.6 og á morgun kl. 1-6. Nokkrir lausir miðar eru til sölu. Happggrtti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.