Morgunblaðið - 07.06.1977, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 07.06.1977, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JUNÍ 1977 13 Sjómenn heiðraðir. Frá vinstri: Garðar Þorsteinsson, ritari Sjðmannadagsráðs, Einar Thoroddsen, Viktor Þórðarson, Pálina Árnadóttir, sem tók við merkinu fyrir hönd manns sfns, Jónasar Sigurðssonar, Fanney Guðmundsdóttir, sem tók við merkinu fyrir hönd Finns Bjarnasonar, eiginmanns sfns, Ásgeir Magnússon og Guðmundur Ingvarsson, bróðir Páls Ingvarssonar, sem fékk Fjaiarbikarinn 1977. ríkisstjórnarinnar talaði Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, full- trúi útgerðarmanna var Jónas Haraldsson, skrif- stofustjóri L.I.Ú., og full- trúi sjómanna var Pétur Sigurðsson. Þá heiðraði Garðar Þorsteinsson, ritari Sjómannadagsráðs, sjó- menn með heiðúrsmerkj- um dagsins, en það voru 5 sjómenn. Þeir voru Ásgeir Magnússon, fyrrverandi yfirvélstjóri, Finnur Bjarnason, matsveinn, Jónas Sigurðsson, skip- stjóri, nú skólastjóri Stýri- mannaskólans, Viktor Þórðarson, sem lengi starf- aði hjá Landhelgisgæzl- unni, en hefur nú síðari ár verið á ýmsum mótorbát- um og Einar Thoroddsen fyrrum skipstjóri og nú yfirhafnsögumaður í Reykjavík. Þá afhenti Garðar Þorsteinsson einnig svo- nefndan Fjalarbikar, en vélasölufyrirtækið Fjalar h.f. gaf hann. Er það farandbikar og hlýtur hann sá sem nær beztum árangri í vélfræði 3. stigs í Vélskóla íslands, og fær sá hinn sami jafnframt silfur- pening til eignar. Páll Ingvarsson hlaut að þessu sinni bikarinn, sem nú er veittur í 18. sinn og er þetta í 3. sinn, sem Akureyringur hlýtur hann. Það var bróðir Páls, Guðmundur Ingvarsson, sem veitti bikarnum við- töku fyrir hönd bróður síns. Síðan hófst keppni í íþróttum, siglingum, koddaslag og róðri og þyrla Landhelgisgæslunnar sveimaði yfir Nauthólsvík- inni. viðtali við Mbl. að það væri nú gleðilegt að mun færri sjómenn hefðu látizt við störf en áður og mætti þakka það góðu tíðarfari í vetur leið og einnig því að mörg skip væru betur búin og öryggisþjónusta sífellt efld. í Nauthólsvík var síðan haldið áfram hátíðahöldum og þar lék Lúðrasveit Reykjavíkur í upphafi og var síðan mynduð fána- borg með fánum stéttar- félaga sjómanna og íslenzk- um fánum. Að því loknu voru flutt ávörp. Af hálfu ijósm. Kax. Meöal skemmtiatriða sjómannadagsins I Nauthólsvik var koddasiagur. Frá kappróðrinum i Nauthólsvlk Luxembourg er friðsæll töfrandi ferðamanna- staður, mótaður af frönskum og þýskum menningaráhrifum - þar sameinast franska glaðlyndið og þýska nákvæmnin. Þar sem landið er lítið, er stutt að skjótast til ýmissa stórborga í nágrannalöndunum. Þannig er 25 mínútna akstur til borgarinnar Trier í Þýskalandi og klukkustundar akstur til Koblenz, sem stendur þar sem frægustu fljóta- héruð Evrópu sameinast, á mótum Mosel og Rínar. Luxembourg — einn fjölmargra staða í áætlunarflugi okkar. FLUCFÉLAC LOFTLEIDIfí /SLAJVOS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.