Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 28.06.1977, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JUNl 1977 39 Karl Kristinsson forstjóri-Minning skrum honum þyrnir í augum. Leiöarljós hans var heiðarleiki, iðni og hjálpsemi og þess vegna vegnaði honum vel í lífinu. Þessar gömlu dyggðir standa ennþá vel fyrir sínu. Hann vildi hafa allt í röð og reglu. Um leið og hann ætlaðist til þess að starfsmenn fyrirtækisins gerðu skyldu sína, gleymdi hann aldrei að ganga á undan með góðu fordæmi í þeim efnum. Hann var þekktur utan lands sem innan fyrir áreiðanleik í viðskiptum og mátti ekki vamm sitt vita á neinn hátt. Þrátt fyrir alvarleg veikindi um nokkurra ára skeið, reyndi hann fram á síðustu stundu að fylgjast með rekstrinum, því hann kunni ekki að vera iðjulaus. Hans var mjög dulur og fáorður um fyrirætlanir sinar, en var stundum fljótur að taka mikil- vægar ákvarðanir og framkvæmdi þær sfðan á örskömmum tíma. T.d. hóf hann fyrstur manna hér á landi verksmiðju-framleiðslu á litmyndum, árið 1969, og hefir starfsemin stóraykizt ár frá ári. Nú vinna yfir 50 manns við fyrir- tæki hans. Jafnframt því að vinna að viðgangi fyrirtækisins, hefir hann reynzt starfsfólki sínu góður húsbóndi, því honum var það ljóst að ekkert fyrirtæki getur verið sterkt, ef starfsfólkið unir eigi hlut sínum. Fyrir hönd starfs- fólksins vil ég þakka honum órofa vináttu og skilning í þess garð á umliðnum árum. Það er erfitt að sjá á eftir kunn- ingjum sfnum yfir landamærin miklu, en þetta er eðlileg leið og ég er sannfærður um að Hans Petersen bfða björt framtíðar- lönd. Að lokum sendi ég frú Helgu, dætrunum, systkinunum og öðru venzlafólki þeirra innileg- ustu samúðarkveðjur og vona að minningin um góðan dreng megni að draga úr sárustu sorginni. Adolf Karlsson. Fæddur 16. október 1907. Dáin.21. júnf 1977. Shelley hóf eitt ljóða sinna þessum óvæntu en skáldlegu orð- um: „How wonderful is Death, Death and his brother Sleep;“ Vfst eru þau gullsönn. Svefninn er þreyttum dýrlegur og eins dauðinn sjúkum. Vinir Karls Kristinssonar ættu þvf að stilla harm sinn þó sjónarsviptir sé að slfkum manni. Honum verður hvíldin kær eftir langt og hart helstríð. Kynni okkar Karls byrjuðu af tilviljun fyrir mörgum árum. Við hittumst í mannfagnaði um há- degisbil fagran vordag og urðum samferða um miðbæinn að fundi loknum. Sátum við svo á tali sam- an i skrifstofu hans, og fór þannig á með okkur að af varð kunnings- skapur. Karl hafði ungur verið á skútu með gömlum stokkseyring- um og fleiri sunnlendingum er ég kannaðist við, og rifjaði hann upp minningar frá þeim stundum. Duldist enganveginn að frá- sagnargáfa hans var rík og frjó enda maðurinn sjóðfróður og stál- minnugur. Greindi hann og iðu- lega svo frá atburðum að mér fannst ég hafa verið þar nær- staddur þó fjarri væri. Eins lýsti hann mönnum og stöðum. Var mér eftirminnilegt að hlýða á mál hans þegar Karl naut sfn best. Má ekki minna vera en ég þakki hon- um viðkynninguna að leiðarlok- um. Karl Kristinsson fæddist í Reykjavik 16. október 1907. Voru foreldrar hans Kristinn Magnús- son skipstjóri og kona hans, Kristjana Elínborg Jónsdóttir. Rek ég ekki ættir hans, en þar er margt góðra stofna. Var f ráði að Karl gengi langskólaveg að lok- inni barnafræðslu og hygði á em- bættisframa, en hann valdi annan kost, fór snemma til sjós og kvaðst sjá fyrir sér einn og óstuddur. Þó leitaði hann sér brátt frekari menntunar. Sótti hann fyrst einkatfma og kvöldskóla f Reykja- vfk en hélt þvfnæst til Englands og nam tungumál og verslunar- fræði f Oxford og Lundúnum. Heimkominn réðst Karl til starfa við Björnsbakarf 1928 og varð for- stjóri þess 1935 en rak jafnframt Hótel Vík frá 1950. Voru umsvif hans mikil í ýmiskonar félagsskap og viðskiptum og myndi sitthvað frásagnarvert af þeim störfum. Karl veiktist skyndilega í fyrra og lá dauðvona f Landakotsspftala mánuðum saman. Hann lést á sól- stöðum og verður borinn til moldar í dag frá dómkirkjunni skammt þaðan sem vegga hans stóð. Honum er því hvfla reidd í grænum og mjúkum faðmi ilm- andi jarðar á hásumarstfð. Karl var gæfumaður f einkalífi sinu. Hann kvæntist 1933 önnu, dóttur Jóns Brynjólfssonar kaup- manns í Reykjavík, og áttu þau hjón fagurt heimili að Víðimel 67. Börn þeirra eru Guðrún, kona Benedikts Blöndals hæstaréttar- lögmanns, og Kristinn háskóla- nemi og kennari, kvæntur Ragn- heiði Indriðadóttur. Leyndi sér ekki að Karl unni heitt konu sinni, börnum og barnabörnum og taldi heimili sitt kastala. Karl Kristinsson var prýðilega menntaður og einkum af sjálfs- námi. Hann las mikið og kunni skil á mörgu. Dvölin í Oxford og Lundúnum varð þessum unga og framsækna Islendingi happasæl. Karl náði mjög góðu valdi á enskri tungu og átti því að þakka viðsýni og sjálfstrausti. Hann fylgdist vel með atburðum og mál- efnum, var skemmtilega forvitinn um menn og viðhorf og gerðist víðförull heima og eriendis. Hann gat verið þéttur i lund og ein- beittur en taldist þó frjálslyndur. Vilji hans var traustur, hugsunin sjálfstæð og persónuleikinn heil- steyptur. Aðskotadýri eins og mér leið einstaklega vel i návist hans. Karl var allra manna vinfast- astur. Er mér' ógleymanlegt hversu karlmannlega hann sakn- aði fallinna vina sinna og félaga, Friðriks A. Jónssonar og Sveins Jónssonar í Sandgerði. Þeir taka áreiðanlega vel á móti honum i öðrum heimi ef líf er eftir þetta. Trúarskoðanir Karls Kristins- sonar vissi ég ekki, en hann unni lífinu og tilgagni þess. Því var hörmulegt að hann mæddist í von- lausri baráttu við dauðann. Karl hefði átt skilið að sjá margan glaðan dag langt fram á haust, en sæll er hann að njóta svefnsins og gleyma raunum sfnum úr þvf sem komið var. Hann var borinn og barnfæddur í miðbæ Reykjavíkur og starfaði þar lengi uppkominn. Nú er allt i einu eins og syrti að á miðjum degi um þær slóðir þegar hann vfkur brott. Þó væri minn- ingu hans lfkast að f hönd færi gott sumar. Sigurbjörg Benónís- dóttir-Minningarorð Fædd 8. desember 1890 Dáinl6. júnf 1977 Sigurbjörg var fædd á Sæunn- arstöðum f H:llárdal, A-Hún. For- eldrar hennar voru Benóní Ólafs- son og Sigurbjörg Andrésdóttir. Var hann ættaður úr Skagafirði (af Mallandsætt), en hún úr Eyja- firði (af Kjarnaætt). Sigurbjörg ólst upp hjá foreldr- um sinum, er bjuggu á fleiri en einum bæ á Skagaströnd og Skaga. Það kom snemma í hlut hennar að hlúa að veiku fólki, þvi hún var aðeins ellefu ára, þegar faðir hennar missti heilsuna og var sjúklingur i mörg ár, og sfðar stundaði hún móður sína, er lá lömuð hinztu æviár sfn. Um árabil sá hún um heimilisstörf og jafn- framt póst- og simavörzlu í Kálfs- hamarsvfk, en það var oft ærið starf, þvf á þessum tfma lágu margir tugir erlendra og inn- lendra fiskiskipa dögum saman í landvari á vfkinni, og þurfti þá bæði mikið að síma og senda bréf. Um 1935 flutti Sigurbjörg til Reykjavfkur og vann lengst af við aðhlynningu að gömlu og las- burða fólki, er dvaldi i heimahús- um. Árið 1960 var þrek hennar sjálfrar þrotið, og keypti hún litla íbúð í félagi við Jónfnu Snorra- dóttur. Bjuggu þær saman í sex ár og voru ætfð mjög samrýndar; reyndist Jónfna henni mjög vel. Síðustu árin var hún vistkona á elliheimilinu í Hveragerði og á Grund f Reykjavík, þar sem hún andaðist. Sigurbjörg var fremur stórskor- in en myndarleg kona, í meðallagi há, miðað við eigin kynslóð. Hún hafði sérstaklega gott minni og kunni fjölmargt að segja frá ætt- mennum sínum og bernskuum- hverfi, allt aftur í forna tíð. ögmundur Helgason. Helgi Sæmundsson. Aðfaranótt 21. þ.m. lést i Landa- kotsspítala Karl Kristinsson for- stjóri, eftir langa og stranga sjúk- dómslegu. Við Karl vorum félagar í yfir 40 ár. Það upphófst þegar hann hinn 1. nóv. 1935 tók á leigu Björns- bakari við Vallarstræti 4, hér f borg. Þá réð hann mig sem bakarameistára til þess að sjá um daglegan rekstur bakarísins því sjálfur var hann ekki lærður bak- ari. Aftur á móti hafði hann hlotið góða verslunarmenntun, meðal annars I London. Hann var prýðisvel að sér I bók- haldi og öllu er þvf við kemur, og sérstaklega reikningsglöggur. Nokkrum árum síðar keypti hann húseignina að Vallarstræti 4, og gerði það sfðan aó hluta- félagi og var ég einn meðeigandi í því. Á þessum byrjunarárum var við margskonar erfiðleika að etja f öllum atvinnurekstri, enda þá at- vinnuleysi töluvert. Þvf var reynt að fara vel og sparlega með alla hluti, gera sem hagstæðust inn- kaup, hafa sem minnst mögulegt vinnuafl, o.s. frv. Því urðum við árum saman að leggja mjög hart að okkur við vinnu, og var þá unnið myrkranna á milli, eins og sagt er, og oft vel það. En með samstilltu átaki tókst þetta blessunarlega og framleiðslan jókst ár frá ári. Því var það okkur báðum ánægjuefni þegar við nú á siðari árum ræddum saman um byrjunarörðugleikana og hvernig tókst að yfirvinna þá. Karl tók fljótlega virkan þátt í félagsstörfum bakarastéttarinnar og reyndist þar góður starfskraft- ur. Þó mun þar hæst bera bygg- ingu Rúgbrauðsgerðarhússins að Bórgartúni 6. Þar var hann í fararbroddi og tel ég persónulega að það hús hefði aldrei verið reist með slíkum myndarbrag sem raun varð á ef Karls hefði ekki notið við. Það var ekki lítið sem hann lagði á sig við þessa byggingu, að vfsu hafði hann alla bakarastétt- ina einhuga að baki sér, við að vinna við húsbygginguna. En á honum hvildu mest fjárhags- örðugleikarnir, því stofnfé var af skornum skammti, og oft hljóp hann þá persónulega undir bagga með lánsfé um stundarsakir eða greiddi á annan hátt úr aðsteðj- andi vanda, og eitt og annað er mér kunnugt um, sem hann I þvf sambandi greiddi úr eigin vasa, t.d. ferð sina til Svíþjóðar til kaupa á bökunarofnum og vélum fyrir fyrirtækið, enda var það eins og hann orðaði það sjálfur vió mig, að þessi húsbygging væri sinn óskadraumur. Því tók það hann mjög sárt þegar selja varð húsið. En vegna strangra verð- lagsákvæða gat rekstur með fram- leiðslu á rúgbrauðum eingöngu, engan veginn borið sig fjárhags- lega, og þvf fór sem fór. Ég held að mér sé óhætt fyrir hönd bakarastéttarinnar að færa honum bestu þakkir fyrir allt, sem hann vann stéttinni til heilla, meðan hans naut við. Karl var mjög ljóðelskur mað- ur, las mikið af ljóðum og lærði þau, enda var það algengt hjá honum í samræðum að hann vitn- aði bæði í Einar Benediktsson og fleiri af okkar góðskáldum. Einnig hafði hann gaman af vel- gerðum og hnyttnum vfsum, enda „húmoristi" mikill. Fyrr á árum stundaði hann mikið laxveiðar, var afbragðs veiðimaður og hafði næma tilfinningu fyrir því hvar laxinn væri að fá i hyljum og hvernig að þvf skyldi staðið að ná honum. Ættir Karls ætla ég ekki að rekja, það munu aðrir verða til þess. En kvæntur var hann Önnu Jónsdóttur, Brynjólfssonar kaup- manns. Þau eignuðust tvö börn, Guðrúnu sem gift er Benedikt Blöndal hæstaréttarlögmanni, og Kristin, sem kvæntur er Ragn- heiði Indriðadóttur. Við hjónin sendum Önnu, börn- um, tengdabörnum, barnabörnum og öðrum ættingjum innilegar samúðarkveðjur, með innilegu þakklæti fyrir margar ánægju- stundir á þeirra fallega heimili. Að lokum kveð ég Karl með þökkum fyrir okkar langa sam- starf. Hann kvaddi þetta jaró- neska lif, þá lengstur er sólar- gangur hér á landi. Ég óska hon- um fararheilla til fyrirheitna landsins, þar sem sólin aldrei sest til viðar. Far þú í firði. Stefán Ó. Thordersen. Karl Kristinsson forstjóri, löng- um kenndur við Björnsbakari, verður jarðsunginn i dag. Karl var fæddur I Reykjavík hinn 16. október 1907. Foreldrar hans voru Kristjana Elinborg, dóttir Jóns Jakobs meðhjálpara á Selvelli í Breióavfk Jóhannes- sonar og Árni Kristinn skipstjóri Magnússon, bróðir séra Ólafs f Arnarbæli og Sigurðar læknis á Patreksfirði. Vigdis, móðir þeirra bræðra, var dóttir Ölafs, síðast prests i Vfðvfk Þorvaldssonar prests i Holti undir Eyjafjöllum Böðvarssonar, en Magnús faðir þeirra var sonur Árna Sigurðs- sonar f Stokkhólma og voru þeir bræðrasynir Magnús og Kristinn Magnússon skipasmiður i Engey. Hann ól nafna sinn upp og voru þau sem systkin Engeyjarsystur og Kristinn Magnússon yngri. Einkum var vináttan náin við Háteigsfólkið, en þau Ragnhildur og Halldór tóku Pétur, son Kristins, f fóstur, eftir að móðir hans dó, og kostuðu hann til endurskoðurnarnáms i Englandi þar sem hann lézt úr heilablóð- falli rúmlega tvftugur að aldri og voru jafnsvipleg örlög systkina hans tveggja, Guðrúnar og Jakobs, en þeim bræðrum tveim, Karli og Magnúsi bakarameistara Árnasyni, voru ætlaðir lengri lif- dagar. Á uppvaxtarárum mínum á Háteigi man ég oft Kristin Magnússon og hvilikur aufúsu- gestur hann var. Gagnvart mér, barni og unglingi, var hann um- burðarlyndur og hlýr og verður ávallt í minni mfnu ógleyman- legur sem hluti af þvi heimili. Karl fór ungur til sjós og náði í endann á skútuöldinni, en hugur hans hneigðist til annarra starfa og svo var kapp hans mikið, að hann hafói námsbækurnar með á sjóinn en hafði áður þegið góð ráð Snæbjarnar Jónssonar. Hartn lagði sig einkanlega eftir erlend- um málum og þvi, sem að verzlun laut. Hann stundaði kvöldskóla- nám f Reykjavik, áður en hann hélt til náms f Ruskin College í Oxford, þar sem hann var með félaga sinum og vini Sveini Jóns- syni, síðar útgerðarmanni f Sand- gerði. Þeim þótti þessi skóli ekki koma sér að nægu gagni og fóru þess vegna á Pitman’s verzlunar- skólann i London og luku þaðan prófi 1926. Eftir aó heim kom, fór Karl aftur til sjós um skeið, en réðst svo til starfa f Björnsbakarí árið 1928 hjá Birni Björnssyni. Árið 1935 keypti hann bakariið og rak til dauðadags. Jafnframt stundaði hann ýmislegan annan rekstur og var opinn fyrir margvíslegu sam- starfi bakara. m.a. um kaup á rekstrarvörum o.fl. Má þar nefna innflutningssamband bakara, sem var ómetanlegt á haftaárum, og Alifuglabú þeirra. Þá beitti hann sér fyrir stofnun Rúg- brauðsgerðarinnar h/f og bygg- ingu stórhýsis hennar við Borgar- tún, sem var geysilegt átak á sinni tíð og bar stórhug vitni. Hins veg- ar tókst ekki sú samstaða um rekstur hennar, sem þurfti, og lagðist hann niður fyrir nokkrum árum. Er og orða sannast, að miklu olli, að öll framleiðsla Rúg- brauðsgerðarinnar vó þungt f vísi- tölunni, svo að heimildir til eðli- legra hækkana vegna aukins rekstrarkostnaðar á verðbólgutíð voru veittar seint og illa. Er þetta eitt skýrasta dæmið um það, hvernig sjúkt verðlagseftirlit er til þess að drepa niður framtak og steypa grundvellinum undan annars heilbrigðum rekstri. Árið 1950 tók Karl við rekstri Hótel Vikur og hélt honum áfram fram á sfðustu ár. Karl kvæntist hinn 16. desem- ber 1933 Önnu Jónsdóttur skó- smfðameistara og kaupmanns i Reykjavík Brynjólfsonar bónda á Hreðavatni Einarssonar og Guð- rúnar Jósefsdóttir verkamanns í Reykjavik Magnússonar. Anna er hin mætasta kona, skaprik og bjó manni sfnum gott og fallegt heimili, þar sem margir hafa not- ið góðrar gestrisni, rausnar og höfðingsskapar. Þeim hjónum varð tveggja barna auðið. Hið eldra er Guðrún, gift Benedikt Blöndal, og hið yngra Kristinn, kvæntur Ragn- heiði Indriðadóttur. Þau hjón áttu tvö fósturbörn, Pétur, sem nú er látinn, og Helga, sem fyrir allmörgdum árum varð aðstoðarmaður Karls við rekstur gamla bakarisins f Vallarstræti 4 og hefur annazt hann i veikindum Karls. Þeir Pétur og Helgi voru synir frænku og fóstursystur Framhald á bls. 37

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.