Morgunblaðið - 06.10.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 1977
41
0 Bankaveldið
Þá fer hér á eftir saga manns
er greinir frá viðskiptum sínum
við banka í Reykjavík og kemur
fram i bréfi hans að ekki er að
hans mati þægilegt að nota
ávísanir:
„Ég hef unnið hjá því opinberá
í allmörg ár. Fyrstu árin sem ég
vann þar var mér greitt kaupið
með peningum, en svo gerist það
einn góðan veðurdag að i staðinn
fyrir peninga er mér sent ávísana-
hefti ásamt launaseðlinum. Sem
sagt, búið var að opna ávisana-
reikning á mínu nafni að mér
forspurðum. Maður var ekkert að
nöldra yfir slíku, ég hélt lika að
þetta væri ákaflega þægilegt.
Fyrst i stað tók ég kaupið allt út
með einni ávísun, en svo fór ég að
færa mig upp á skaftið I ávisana-
notkuninni eins og margir aðrir,
og hætti að taka kaupið út allt í
einu en gaf út smáávisanir fyrir
hinu og þessu. Komu aldrei nein
mistök fyrir hjá meir i þessum
efnum, yfirdráttur eða þess hátt-
ar. Svo gerðist það einn dag að ég
ruglast á mánaðardögum og tók
Þessir hringdu . . .
0 Óábyrg
kröfupólitík
Herdis Hermóðsdóttir lét
eftirfarandi frá sér heyra um
óábyrga kröfupólitik, eins og hún
orðaði það I tilefni af deilu
B.S.R.B:
„Hvar er sómi íslands, sverð
þess og skjöldur i dag? Hans mun
sízt að leita hjá ríkisins starfandi
mönnum, þar syngja þeir hæst
um of slæman eigin hag, þótt alls
konar fríðinda njóti hjá vinnandi
mönnum. Þeir bera sig illa og
blása sifellt i kaun og berjast að
jötunni, hvar þeim sé ætlaður
staður og heimta enn stærri hlut
en aðrir I laun. En hver á að
borga? Hinn vinnandi erfiðis-
maður."
EF ÞAÐ ER
FRÉTTNÆMT
ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
kaupið mitt út rétt fyrir lokun, 1
eða kl. 18:30 siðasta dag mánað-
arins. En það opinbera borgar inn
á reikninginn 1. dag hvers mánað-
ar. Það var ekki að sökum að
spyrja, eftir um það bil vikutima
fæ ég bréf frá Austurbæjarútibúi
Landsbankans þar sem mér er
gefið að sök að hafa gefið út inni-
stæðulausa ávísun. Mér var gert
að greiða 725 kr. I innheimtu-
kostnað og dráttarvexti, sem voru
2.929.— af 97.644 kr. kaupi. Ég
fór í bankayfirvöldin til að fá
eitthvað af þessu fellt niður á
1 n forsendum að þetta væri i
skiptið sem þetta hefði kom-
•ir, en því var ekki haggað.
Ég ákvað þvi að segja upp
ávísanareikningnum ásamt fleiri
á okkar heimili. Nú fáum við
kaupið greitt i peningum og borg-
um allt með peningum sem við
þurfum að kaupa. Okkar reynsla
er sú að þetta er allt annað lif, nú
erum við frjáls og ekki bundin
neinum banka. Ég skora því á alla
sem eru að þvælast með ávísanir
að fleygja þeim út í hafsauga og
vera þar með frjálsir og óháðir
bönkum.
J.Þ.“
Svo mörg voru þau orð og engu
er við þau að bæta, nema kannski
þvi, að ávísanaviðskipti eru orðin
svo almenn að menn hætta ekki
við þau á einni nóttu, enda þykir
mörgum hagræði að notkun ávís-
ana meðan farið er eftir settum
reglum.
% Dagatal bankanna
„Mig langar aðeins til að
spyrjast fyrir um það hjá ein-
hverjum bankafróðum manni
hvort dagatal bankanna sé eitt-
hvert annað en okkar almúga-
fólksins. Þegar komið er i banka-
útibú i síðari afgreiðslutíma þess,
oft kl. 17—18:30, þá er allt i einu
kominn næsti dagur á'eftir á
stimpli gjaldkerans. Er þá ekki
gert upp í viðkomandi banka fyrr
en daginn eftir og þar með búið
að færa greiðslur, sem inntar eru
af hendi ákveðinn dag, aftur um
einndag?
Hér þætti mjög gaman að heyra
skýringar bankanna á þessu
atriði.
V'iðskiptavinur.“
Ekki getur Velvakandi tjáð sig i
þessu máli, en svör er velkomið aó
birta ef þau fást.
0 Melissa í
útvarpinu
Páfl:
— Ég vildi aðeins nefna i
sambandi við Melissu-þáttinn,
sem nú er verið að sýna í sjón-
varpinu, að hann hefur að ég held
ekki verið þar á dagskrá fyrr,
heldur sem framhaldsleikrit í út-
varpinu. Ég man eftir þessum
þáttum fyrir nokkrum árum, sem
framhaldsleikriti á fimmtudags-
kvöldum og á mínu heimili var
mikið hlustað og allir fylgdust
með af áhuga og i spenningi. Það
rifjast upp fyrir mér þessar per-
sónur allar og ég held að það sé
ekki rétt að þetta hafi áður verið
á dagskrá í sjónvarpi undir öðru
nafni eða með öðrum leikurum.
M. Benz280 S
Til sölu er nýinnfluttur M Benz 280 S árgerð
1974. með sjálfskiptingu, vökvastýri, stereo
kassettutæki, nýjum hjólbörðum ofl Ekinn
aðeins 54 þús. km. Til sýnis kl. 2—6. að
Síðumúla 33.
matar
Dilkakjöt á gamla verðinu
1/1 Dilkar
niðursagað 1 . flokks ................... 636 - kr kg
Uangikjötslæri .......................... 990 - kr. kg
Hangikjötsframpartar .................... 788 - kr. kg
Úrb hangilæri ......................... 1 790. - kr. kg
Úrb. hangiframpartar ................... 1390 - kr. kg
Reykt folaldakjöt ....................... 685,- kr. kg
Saltað hrossakjöt ....................... 485 — kr kg
Nýr svartfugl ........................... 200 - kr. st
Af nýslátruðu: Lambahjörtu ............... 708 - kr. kg
Af nýslátruðu: Lambanýru ................. 708 — kr. kg
Af nýslátruðu: Lambalifur ............... 1028 — kr. kg
Ærhakk aðeins ........................... 550 - kr kg
Saltkjötshakk 685 - kr. kg
Kindahakk ............................... 685 - kr kg
Svínahakk 990 - kr kg
Ódýru sviðin ............................. 380,- kr kg
ATH: 26 tegundir af áleggspylsum Sviðasulta — Svina-
sulta — Lundabaggi — Hrútspungar — Slátur — 5
slátur í kassa frá einu besta sláturhúsi landsins
(Borgarfirði) 6.600 - kassinn.
4 slátur í kassa frá Sláturhúsi Skagfirðinga Sauðár-
króki 5.280. —
Nautalifur ............................. 300.— kr. kg.
10 stk. kjúklingar ..................... 990,— kr. kg.
v.
Skráð verð Okkar verð
pr.kg. pr.kg
Nautahakk 1553,- 1090 —
Nautahakk 1 0 kg 1553,- 990. —
Nautagrillsteik 948 - 840 —
Nautabógsteik 948 - 840. —
Nautasnitchel ... 3155 - 2350. —
Nautagullach 2428 - 1990 —
Nautaróast-beef ... 2580 - 2100. —
Nautafillet-mörbráð 3398 - 2700
Nauta T-bone 1564,- 1290 —
Nautatungur saltaðar 1450 - 990.
'/2 nautaskrokkar
Tilbúið í frystikistuna, úrbeinað. pakkað og merkt. kr
847 — pr. kg. 1 . gæðaflokkur.
OPIÐ FÖSTUDAG TIL KL. 7,00
OPIÐ LAUGARDAG TIL KL. 12,00
GS=ЮTTOíaatÐ@TJ®{®DR!]
Laugaleek 2. REYKJAVIK, simi 3 5o2o