Morgunblaðið - 15.10.1977, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTOBER 1977
19
Hér er ekki um að ræða flugslys eins og virðist við
fyrstu sýn, heldur atriði, sem sett var á svið við töku
sjónvarpsþáttar, Emergeney (Ne.vðarútkall) í Los
Angeles. 100 lítrar af bensíni voru notaðir til að búa
til eldsúluna, en gerð atriðisins, sem fjallar um
flugvél er ferst í íbúðahverfi, kostaði 9 milljónir ísl.
kr.______________________________
Áköf leit að ræningj-
um litlu telpunnar
Foreldrar greiddu 420 millj. í lausnargjald
Genf, 14, október. Reuter.
MIKIL LEIT fer nú fram f Sviss ad ræningjum litlu bólivísku
teipunnar, Graziellu Ortiz, sem skilað var heilli á húfi f gær eftir að
foreldrar hennar höfðu greitt 2 milljón dollara lausnargjald fyrir
hana (420 milljónir fsl. kr.). Graziellu, sem er 5 ára, var rænt fyrir
utan heimili foreldra hennar í Genf fyrir 10 dögum. Hefur ræningj-
anna ákaft verið leitað, þrátt fyrir að foreldrar hennar vildu ekki veita
lögreglu né fjölmiðlum nokkra aðstoð af ótta við að hún yrði myrt.
Höfðu ræningjarnir gefið fyrirmæli um að lögreglu og blöðum skyldi
haldið utan við málið.
Faðir Graziellu, Jorge Ortiz,
sem er listmunasali og systurson-
ur bólivíska tinjöfursins Antenor
Pations, reiddi lausnargjaldið af
höndum í Sviss, en hann hefur
ekki viljað skýra frá hvernig
hann hélt sambandi við ræningj-
ana.
Yfirvöld í Sviss hafa fyrir-
skipað öllu lögregluliði landsins
að taka þátt í leit að ræningjun-
um, því þau óttast mjög að náist
þeir ekki muni fleiri mannræn-
ingjar leita miða i Sviss, þar sem
mikill fjöldi auðugra fjölskyldna
á heimili. Segja yfirvöld alls ekki
víst að Graziellu hafi verið haldið
í gíslingu í Sviss, og benda á að
heimili hennar sé mjög skammt
frá frönsku landamærunum svo
og staðurinn, þar sem hún fannst,
Fruit Bar mótelið við Etoy.
Skotið á 3 Banda-
ríkjamenn undan
strönd Vietnams
Bankok, 14. október. Heuter.
EKKERT hafði í kvöld spurzt til þriggja ungra Bandarfkjamanna, sem
sendu út neyðarkall frá snekkju, sem þeir voru f undan ströndum
Vietnam f tnorgun og sögðu að skotið væri á sig og skip væri f þann
mund að sigla þá niður.
Bandarfkjamennirnir 3, tveir karlmenn og kona, sem bjuggu í
Bangkok voru á 12 metra langri snekkju og fóru frá baðstaðnum
Pattaya á Thailandi á mánudag áleiðis til Brunei. Leit var hafin eftir
að neyðarkallið barst, en hefur engan árangur borið. Nokkuð er af
sjóræningjum í Thailandsflóa, en einnig hafa varðskip Thailendinga,
Kambódíumanna og Vietnama verið aðsópsmikil við fiskiskip annarra
þjóða.
Barnard grœddi Simp-
ansahjarta í mann
Höfðaborg, 14 október Reuter
S-AFRÍSKI skurðlæknirinn Christ
ian Barnard græddi i nótt hjarta úr
simpansaapa i mann og tókst upp-
skurðurinn vel að sögn talsmanns
Groote Schuur sjúkrahússins i
Höfðaborg. Flytja þurfti manninn
aftur á skurðarborð síðdegis i dag,
þar sem blæða tók úr skurðinum,
en ekki var talið að þð væri hættu-
legt.
Simpansahjartað var grætt i
manninn til að aðstoða hans eigið
hjarta, sem var að gefast upp, tgkk-
ert mannshjarta var fyrir hendi tii
flutnings Aðgerðin tók 4 klst Fyrir
nokkru reyndi Barnard að græða
baboonsapahjarta i unga konu i
neyðartilfelli, en hún lézt eftir nokkr-
ar klukkustundir, þar sem hjartað
var ekki nægilega sterkt Barnard
sagði þá að hann myndi í framtíð-
inni nota simpansahjörtu, þau væru
sterkari og minni hætta á að líkam-
inn hafnaði þeim Ekki hefur verið
skýrt frá nafni eða aldri hjartaþeg-
ans
Norðmönnum sagt
að herða sultarólina
Ösló, 14. október. Reuter.
PER KLEPPE, fjármálaráðherra Noregs, lagði í gær fram fjárlagafrumvarp ríkis-
stjórnarinnar, þar sem Norðmönnum var tjáð að þeir yrðu að herða sultarólina á
næsta ári og sætta sig við nær engar launahækkanir.! f járlögunum er gert ráð fyrir
hækkunum á ýmsum neyzluvörum, áfengi, tóbaki, símaþjónustu, fargjöldum og
bensíni og iðnfyrirtæki verða að greiða 20% hærra rafmagnsverð.
Kleppe sagði að höfuðmarkmið vinnuleysi um 1% af vinnufæru aðeins til að mæta verðhækkun-
fólki. um.
ríkisstjórnarinnar væri að koma í
veg fyrir atvinnuleysi og að berj-
ast gegn verðbólgu. Norðmenn
tókust á við efnahagskreppuna i
heiminum með því að taka lán
erlendis út á væntanlegar tekjur
af olíuvinnslu og vaf það fé notað
til fjárfestinga og til að viðhalda
atvinnu. Verðbólgan i landinu er
nú um 8% á ársgrundvelli og at-
Kleppe sagði í ræðu sínni að
fjárlögin væru bitur lyfjaskammt-
ur, en ekki þó ekki neyðar-
ástandslög. í fjárlögunum er ekki
gert ráð fyrir að aðrir fái kaup-
hækkun en bændur, eftirlauna-
og láglaunafólk. Gert er ráð fyrir
nokkurri *fkjuskattslækkun. en
Kleppe spáði því að hnignun
yrði í iðnaði á næsta ári og sam-
dráttur í fjárfestingum. Tekjum
af olíunni myndi seinka og halli
yrði á vöruskiptajöfnuði um 16
milljarðar fsl. kr. Niðurstöðutölur
fjárlaganna eru 70.8 milljarðar n.
kr., sem er 7.1% hækkun frá síð-
asta ári.
Ein milljón dollara
hvarf án ummerkja
Cicaco. 14. oktöber. Rt d.cr,
Bankastjórar l.st
National Bank í Chicago
sitja nú og velta fyrir sér
hvernig 1 milljón dollara
í reiðufé geti hafa horfið
sporlaust úr þeninga-
geymslum þeirra. Þetta
mun hafa gerst einhvern-
tíma milli lokunar á
föstudagskvöld til opnun-
ar á þriðjudagsmorgni,
en frídagur var í Banda-
ríkjunum á mánudag.
Bandaríska alríkislög-
reglan rannsakar nú mál-
ið, en enn hefur ekkert
komið í ljós, sem varpað
gæti ljósi á hvarfið.
Bankastjórarnir sögðu
fréttamönnum að pen-
ingarnir kæmust fyrir í
meðalstórri peninga-
tösku.
Innritun a
AKU REYRI
Mánudaginn 17. október og þriðjudaginn 18. október
kl. 1 — 7 báða dagana í Alþýðuhúsinu, Akureyri,
sími 23595
framhald