Morgunblaðið - 15.10.1977, Qupperneq 21
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÖBER 1977
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Björn Jóhannsson.
Ámi Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. sími 10100.
Aðalstræti 6, sími 22480.
Áskriftargjald 1500.00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 80.00 kr. eintakið.
Starfsfriður
sjúkrahúsa rofinn
Það hefur verið grundvallarregla í verkföll-
um hér á landi, aö starfsemi sjúkrahúsa hefur ekki
verið hindruð. Þvert á móti hafa verkalýðsfélögin bein-
línis lagt sig fram um að greiða fyrir starfsemi sjúkra-
húsanna, þegar þau hafa verið í verkfalli. Nú sýnast nýir
siðir teknir upp i þessum efnum með verkfalli því, sem
nú stendur yfir á vegum BSRB.
í fyrradag komu verkfallsverðir frá BSRB í heimsókn
á Landspítalann og gerðu athugasemdir við yfirmenn
deilda þar, um starfsfólk, sem ekki var á nafnalistum er
þeir höfðu undir höndum. Þessi heimsókn skapaði óróa
meðal starfsfólks. Um hana sagði Georg Lúðvíksson,
forstjóri Ríkisspítalanna, í viðtali við Morgunblaðið í
gær: „Við vonum, að við fáum ekki slíkar heimsóknir
aftur og við undrumst þær, því í mörgum verkföllum
Alþýðusambands íslands minnist ég þess ekki, að okkur
hafi nokkurn tímann verið gert ónæói. ASÍ hefur þvert á
móti viljað greiða götu spítalanna eins og þurft hefur
með og aldrei nokkurn tímann stofnað til vandræða. Það
kemur okkur því undarlaga fyrir sjónir er BSRB telur
það leið til sigurs að reyna aö hefta störf spítalanna.“
Kjaradeilunefnd, sem lögum samkvæmt hefur úr-
skurðarvald um það, hvaða starfsemi skuli halda áfram í
verkfalli opinberra starfsmanna hefur ákveðið, aö
Hjúkrunarskólinn skuli starfa áfram, vegna þess að störf
hjúkrunarnema eru talin nauðsynleg til þess að tryggja
eólilega starfsemi spítalanna. Þegar þetta var samþykkt
á fundi kjaradeilunefndar var Kristján Thorlacíus, for-
maður BSRB, viðstaddur og vitað er, að hann, ásamt
formanni Hjúkrunarfélags íslands, Svanlaugu Árnadótt-
ur, lýsti því yfir, að neyðarástand mundi skapast á
spítölum, ef hjúkrunarnemar væru ekki að störfum.
Þrátt fyrir þennan úrskurð Kjaradeilunefndar og yfir-
lýsta skoðun formanns BSRB gerðist það í fyrradag, að
verkfallsverðir BSRB loka Hjúkrunarskólanum. Um
þennan atburð sagði Ólafur Ólafsson landlæknir, að meö
þessari aðgerð hefði BSRB farið gróflega út fyrir verk-
svió sitt. Loks hefur það gerzt í málum sjúkrahúsanna í
þessu verkfalli BSRB, að nokkrir starfsmenn endurhæf-
ingardeildar Lar.dspítalans urðu að hverfa frá vinnu
vegna afskipta verkfallsvarða BSRB. Þessar truflanir af
hálfu BSRB á starfi sjúkrahúsa eru almenningi að
vonum með öllu óskiljanlegar. Það á við í þessari vinnu-
deilu, sem öðrum, að bezt fer á því að spara stóru orðin,
en ef stór orð eiga einhvern tíma viö er það vissulega,
þegar hafðir eru uppi augljósir tilburðir til þess að trufla
starfsemi sjúkrahúsa og valda óþægindum í rekstri, þótt
vinnudeilur standi utan veggja þeirra.
Með truflunum á starfsemi sjúkrahúsa hefur Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja brotið þá grundvallarreglu,
sem jafnan hefur verið í heiðri höfð á íslandi, að
sjúkrahús skuli standa utan við vinnudeilur og verkföll
skuli engin áhrif hafa á rekstur þeirra. Svo óskiljanleg er
sú afstaða BSRB, sem fram hefur komið gagnvart sjúkra-
húsunum, að sú spurning hlýtur að vakna hvort fram-
kvæmd þessa verkfalls BSRB sé stjórnlaus með öllu,
Þeirri spurningu er ekki varpað fram að ástæðulausu.
Erlendur ríkisborgari, sjúkur, hafði fengið undanþágu
til þess að hverfa úr Iandi og hafði þá undanþágu
skriflega frá BSRB. Er viðkomandi kom á flugvöllinn
voru þar fyrir verkfallsverðir frá BSRB, sem höfðu
skriflega undanþágu frá BSRB að engu og kröfðust
sérstaks læknisúrskurðar fyrir sig. Hvað er hér að
gerast?
Starfsfriður sjúkrahúsa er heilagur svo og öll umönn-
un sjúkra. Forsvarsmenn Bandalags starfsmanna ríkis
og bæja hljóta þegar í stað að sjá til þess, að öll afskipti
verkfallsvarða af starfsemi sjúkrahúsa verði stöðvuð.
„Maður á nú sitt
af hverju.... ”
Spjallað við Hrefnu Benediktsson,
dóttur Einars Benediktssonar,
skálds, um síðustu ár föður hennar
Á undanförnum mánuðum
hefur sillhvað birzt í daMblöð-
um um elliár Einars Benodikts-
sonar skálds og umdeildar ráð-
stafanir á eignum hans. Katrín
Ilrefna, dóttir Einárs, sem bú-
sett er f Los Angeles, átti upp-
haf að skrifum þessum. Er hún
nú enn stödd hér á landi vegna
málareksturs út af eignum föð-
ur hennar, en börn Einars
Benediktssonar erfðu ekkert
eftir hann. Morgunblaðið innti
Ilrefnu eftir því, hvort hún
hefði fylgzt með þessum blaða-
skrifum um föður hennar
undanfarið.
Hrefna sagðist halda, að sér
hefðu verið sendar þessar
blaðagreinar og hefði þar
margt komið fram, sem sýndi
skilning og samúð á því, sem
hún hefði vakið máls á og um
leið mikla virðingu fyrir
verkum Einars. Þetta væri hún
þakklát fyrir og vildi til dætjiis
nefna einkar smekklega grein
eftir Jóhannes Helga, sem hann
skrifaði í Morgunblaðið í ágúst
í tilefni greinar eftir Elínu
Pálmadóttur, sem var í blaðinu
nokkru áður. Hjá Elínu kom
það fram, að Einar hefði verið
ánægður þegar hann gaf Há-
skóla íslands Herdísarvík, sem
hann hefði talið að þá væri
komin í góðar hendur. Meðferð-
in á Herdísarvík og leðurhús-
gögnum, sem þar væru, og mik-
ið verið rædd siðar, hefði hins
vegar leitt Jöhannes Helga að
þeirri niðurstöðu, að grein Elín-
ar hefði vel getað heitið ,,Er
ísland skrýtla?“
Hrefna sagðist vilja árétta
það, sem hún hefði áður látið
hafa eftir sér, að þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir undanfarin
ár hefði henni ekki tekizt að fá
að sjá gjafabréfið vegna Her-
disarvikur með undirskrift
Einars. Hún sagðist hafa farið
þeirra erinda til sýslumannsins
á Selfossi árið 1971 að fá að sjá
þetta gjafabréf. í ljós hafi kom-
ið, að á sýsluskrifstofunni hafi
verið afrit af gjafabréfinu, sem
þinglesið hafi verið, en á því
hafi verið undirskriftir vott-
anna en ekki Einars sjálfs. Elin
Pálmadóttir hafi bent á, að
texti þessa gjafabréfs hafi verið
prentaður í Arbók Háskóla ís-
lands og hefur svo staðfestingu
annars vottsins, sem ýmist er
nefndur Guðni eða Gísli Gests-
son, um undirritunina. „En því
í ósköpunum fæ ég ekki að sjá
frumritið með undirskrift föð-
ur míns?“ sagði Hrefna og
bætti við: „Ég vil skora á Elínu
Pálmadóttur að hún sjái svo til,
að mér verði sýnt þetta skjal.“
Hrefna sagði það annars
býsna fróðlegt, sem Kristján
Albertsson hefði nú alveg ný-
verið upplýst um prófessorstitil
Einars í þeSsu gjafabréfi. Eftir
því sem hún vissi bezt kærði
hann sig ekki um aðra nafnbót
en skáld eða sýslumaður, ef ein-
hvers titils þurfti við. Vafalaust
væri það rétt, sem Kristján
segði, að hann hefði „látið aðra
um það handverk" að semja
gjafabréfið. En vissi hann raun-
verulega um innihaldið?
Hrefna sagði, að auðvitað
væri gott til þess að vita, að
Háskóli Islands hefði fyrirætl-
anir um að efla starf sitt um að
halda í heiðri minningu Einars
og verka hans. „Ekki held ég þó
að ásigkomulag þessara leður-
Jiúsgagna, sem hann kom víst
með frá Þýzkalandi árið 1925,
breyti miklu um það hvort verk
hans verða metin að verðleik-
um,“ sagði Hrefna. Ekki sagðist
hún hafa vitað það fyrr, að
skáldið William Heinesen væri
sá sérfræðingur um föður
hennar, að hann gæti bætt
þekkingu heimamanna á Einari
með árs fyrirlestrahaldi. Ann-
ars sagðist hún síður en svo
vilja eiga i neinum útistöðum
við Guðlaug Þorvaldsson, rekt-
or, eða aðra forráðamenn Há-
skóla íslands, sem vafalaust
væru góðir menn og gegnir.
Það var ekki í þeirra starfstíð
né fyrir þeirra tilstilli að Her-
disarvík komst i hendur Há-
skólans. En hvað sem þessu dul-
arfulla gjafabréfi liði, yrði sú
staðreynd ekki umflúin, að á
þeim tíma, sem Einar á að hafa
„gefið“ Herdísarvik, var hann
ellihrumur að þvi marki, að
Okkur ætti nú að vera farið
að lærast að vantreysta vís-
bendingum um skyndileg batn-
andi samskipti milli Washing-
ton og Moskvu, líkum þeim sem
við nú þykjumst verða vör við,
en vonum þó ávallt það bezta.
Þegar Carter forseti segir, eins
og hann sagði í ræðu á þingi
Sameinuðu þjöðanna, að
Bandaríkin og Ráðstjórnarríkin
„eygi" Salt-samkomulag, þá er
ljóst að slíkur sigur sem Henry
Kissinger keppti árangurslaust
að í tvö ár, er framundan, ef
hann hefur ekki þegar verið
unninn. Hvernig hefur þetta
tekizt?
Það eina sem þegar má
greina er, að andinn er annar
og full ástæða er til að trúa því
að verulegur árangur hafi
náðst í einkaviðræðum, sem ný-
Iega áttu sér stað á milli banda-
rískra og sovézkra embættis-
manna.
Raunar gekk hvorki né rak
fyrr en Andrei Gromyko, utan-
ríkisráðherra Sovétríkjarina
notfærði sér heimsókn sína á
þing Sameinuðu þjóðanna til að
sannfæra ríkisstjórn Banda-
ríkjanna um að Moskva væri nú
reiðubúin til að samþykkja
þann umræðugrundvöll sem
Carter hefði gert að tillögu
sinni, en Sovétmenn þvertekið
fyrir fyrr á þessu ári.
Það sem Carter vildi ræða var
ekki aðeins um takmarkanir á
framleiðslu hergagna heldur
einnig að draga stórlega úr
þeim hergagnabirgðum sem
báðir aðilar eiga þegar yfir að
ráða. Moskva vildi að Carter
viðurkenndi fyrst þau takmörk
sem Kissinger og Ford sam-
þykktu í Vladivostoek árið
1974. Viðbrögð Sovétmanna við
þeirri tillögu Cyrus Vance, sem
hann bar fram í heimsókn sinni
í Moskvu í marz s.l., að þjóðirn-
ar skæru niður vopnabúnað
sinn, væru mjög fjandsamleg
— jafn fjandsamleg og tilboð
Bandaríkjamanna var í augum
ráðamanna í Moskvu.
Pravda vísaði þessum tillög-
um á bug sem kröfum um „ein-
hliða afvopnun" Ráðstjórnar-
ríkjanna. Blaðið leit á þær sem
ruddalegt brot á Vladivostoek-
Grómýkó og Carter ræðast við
Salt-samkomulag
framundan?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. OKTÓBER 1977
21
Hrefna Benediktsson
hann var þess alls ekki umkom-
inn að gera þessa ráðstöfun, svo
mark mætti telja á. Háskólinn
er ekki vel að því kominn að
„eiga“ Herdísarvík og forsvars-
mönnum hans er ekki annað en
vorkunn að því að telja sig hafa
einhverjar siðferðilegar skyld-
ur um minningu Einars þessa
vegna. „En ég vil enduraka það,
sem ég hef áður sagt, að ég tel
það ágætt að bækur pabba
skyldu hafna í Háskólabókhlöð-
unni. Það var lán í óláni," sagði
Hrefna.
„Hvað þessar ráðstafanir
eigna Einars snertir má margt
segja og ætla ég mér þegar þar
að kemur, að koma atriðum á
framfæri, sem mér vitanlega
hafa aldrei verið rædd opinber-
lega. Ég vil þó við þetta tæki-
færi ekki láta hjá líða að minn-
ast á Brága h.f. Ég hef lika
óskað þess að fá að sjá gjörning
þann, sem Einar á að hafa
undirritað þá er hann seldi
félagi þessu útgáfuréttindin að
öllum verkum sínum árið 1938,
aðeins tveimur árum áður en
hann lézt. Reyndar fer tvenn-
um sögum af því, hvort Einar
hafi selt Braga h.f. eða gefið
félaginu útgáfuréttindin. Upp-
hæðin, sem nefnd er, ef sala
samkomulaginu og sagði að þær
hefðu verið til Carters komnar
frá þeim aðilum í Bandarikjun-
um sem hefðu hagsmuna að
gæta varðandi smíði hergagna i
landinu.
Um tíma virtist sem við vær-
um enn á barmi kalda striðsins.
Áskorun Carters á ráðamenn
í Moskvu um að virða mannrétt-
indi kom Kremlverjum til að
álíta, að hin nýja stjórn i
Bandaríkjunum leyfði sér að
rengja pólitíska stöðu stjórnar-
fyrirkomulagsins í Sovétríkjun-
um og hernaðarstyrkleika
þeirra. Á Vesturlöndum voru
margir — jafnvel þeir sem vin-
veittir eru Bandaríkjunum —
þeirrar skoðunar, að aðgerðir
Carters væru stórkostleg mis-
tök, sem framkvæmdar væru af
hefur verið, er 7000 krónur,
sem þá voru víst um 1000 doll-
arar. Að visu er það meira en
sama upphæð nú, en illa þekkti
ég pabba, ef hann hefði verð-
lagt sjálfan sig í slíkum upp-.
hæðum. Ef hann hugsaði yfir-
leitt í tölum, voru upphæðirnar
hærri en svona smásporslur.
Ég hef fyrir fullt og allt
hreinsað föður minn af orðrómi
um, að hann hafi þjáðst af sjúk-
dómi, sem ég nefni ekki framar
á nafn i sambandi við hann. En
hinu fær enginn breytt, að
krufningarskýrsla hans, sem
fyrr lá eins og mara á afkom-
endum, sýnir það að hann hafði
mikla æðakölkun. Þetta var
vafalaust skýringin á því
hversu fljótt hann eltist og and-
leg hrörnun hans varð mikil.
Það var alkunna á þessum tíma,
að á síðustu árum sínum var
faðir minn algjörlega „senil“.
Samningurinn við Braga h.f. —
og hann skora ég á félagsmenn-
ina að leyfa mér að sjá — er
vitanlega hrein markleysa og
verri, ef nokkuð er, fyrir við-
komandi en ráðstöfunin á Her-
disarvik."
Hrefna sagðist vilja ljúka
spjalli sínu með smá sögu um
Einar og eignir hans, sem henni
hefði verið sögð nýlega. Sagan
hefði ekki farið margra á milli
og væri víst áreiðanlega sönn.
Á efri árum Einars bar svo til,
að útgerðarmaður einn í
Reykjavík fékk augastað á
landrými í Laugarnesi undir
saltfiskreit. Enginn virtist þó
vita hver átti þessa landspildu.
Við eftirgrennslan kom í ljós,
að um var að ræða þinglesna
eign Einars frá fyrri árum.
Þetta vissu aðrir ekki og sjálfur
hafði hann gleymt því, en um
ævina eignaðist Einar og farg-
aði geysimiklum eignum, bæði
húsum, jörðum og hlunnindum.
En þegar gamli maðurinn nú
frétti, að hann ætti þessa land-
spildu á Laugarnesi, sem falazt
væri eftir, hýrnaði yfir honum
og hann sagði: „Þarna sjáið þið
— maður á nú sitt af hverju."
Victor
Zorza
nýrri, hrokafullri ríkisstjórn
sem hefði enn ekki vitneskju
um í hverju alþjóðlegt vald
felst, og hvöttu ráðamenn til
þess að draga sig til baka, áður
en það væri of seint.
En á sama tima og Carter
gerðist varfærnar i i orðum sin-
um um brot gegn mannréttind-
um, var hann seinn'til að gera-
nokkrar grundvallartilslakanir
á stefnu sinni.
Þess í stað voru hann og að-
stoðarmenn hans á fundum
með fréttamönnum, og reyndu
þar að útskýra það. að þeir
fylgdu vel grundaðri en ekki
aðeins ögrandi stjórnarstefnu.
Að áliti fólksins i landinu jafnt
sem Kremlverja væru Banda-
ríkin í hnignun eftir Vietnam-
striðið og Watergate-hneykslið.
Þessi nýja ríkisstjórn hefði tek-
ið upp ákveðna stefnu til að
endurvekja stolt Bandarikja-
manna og á sama tima að draga
kjark úr Kremlverjum til að
þeir notfærðu sér ekki ætlaðan
veikleika Bandaríkjanna, eins
og þeir hefðu gert í Angóla.
Það gæti tekið langan tima
fyrir Ráðstjórnarríkin að
breyta þessari skoðun sinni og
það gæti verið nokkur áhætta í
þvi fólgin að láta Bandarikin
virðast ávo árásargjörn, en
Carter var ákveðinn í að standa
fastur fyrir. Hann vildi gefa
Sovétmönnum þann tíma sem
þeir þyrftu til að venja sig við
þessar nýju aðstæður og hann
gerði sér grein fyrir þvi að
Kremlverjar gengju i gegnum
erfiða endurskipulagningu á
Framhald á bls. 27
Þórir S. Guðbergsson, félagsráðgjafi:
Er daudinn eðMegur?
Margir veigra sér við að
ræða um dauðann, þó að líf
og dauði tengist órjúfanleg-
um böndum. Margt er það í
fari okkar. sem ýtir undir þá
skoðun, að menn eigi ekki
að láta tilfinningar sínar ■
Ijósi, „ekki eigi við að vera
sorgmæddur“ og að það sé
jafnvel ósæmilegt að gráta.
Mörgum finnst erfitt að ræða
um dauðann. Fyrir marga er
orðið ,,dauði“ eða „andlát“
tengt sársauka og erfiðu tíma-
bili, oft fyllt kvíða, angist og
óöryggi á margan hátt. Sjálf-
sagt er það einnig þess vegna
m.a., sem margir eiga erfitt
með að ræða um dauðann við
börn sín. En þeir eru líka til,
sem finnst það óviðeigandi að
ræða þessi málefni við börn sín
og eiga með þvi á hættu að auka
á óöryggi þeirra og óvissu, sem
oft ríkir um dauðann og það,
sem honum fylgir.
A erfiðum tímum, við alvar-
leg slys, sjúkdóma, andlát
o.þ.u.l. heyrum við gjarna sagt
einhverjum til hróss e-ð á þessa
leið: „hún stóð sig afburða vel“
— „hann kvartaði aldrei allan
tímann“ — „hún er svo andlega
sterk, hún grætur aldrei"
o.s.frv.
En um leið og þetta er sagt,
ýtum við undir þá skoðun, að
maður eigi helst ekki að láta
tilfinningar sinar í Ijós, það sé
jafnvel ósæmilegt að gráta,
syrgja vina sína o.s.frv.
Vinamissir er oft mjög erfið-
ur og svo sársaukafullur, að það
getur tekið mörg ár að græða
þau sár, sem myndast undir
slíkum kringumstæðum.
Oft reynist auðveldara að
ræða um dauðann út frá trúar-
legum og heimspekilegum sjón-
armiðum eins og: — trúir þú á
framhaldslíf? — er líf eftir
dauðann? — hvaða skoðun hef-
ur þessi eða hinn trúflokkurinn
á lifi að loknu jarðn. lifi?
o.s.frv.
Um þetta atriði er oft fjallað i
fjölmiðlum og ætla ég því að
hlaupa yfir það atriði þótt mik-
ilvægt sé, en rita fyrst og
fremst um lifið, sem við lifum
hér-og-nú og þær mannlegu
hliðar, sem snúa beint að okk-
ur, þegar dauða ber að höndum,
sjúkdóm, slys o.þ.h. og hvernig
við bregðumst við á ýmsan hátt
og mætum þessum erfiðleikum.
Greininni verður skipt í 4 að-
alkafla, sem fjalla um: 1) sorg,
2) sorgarviðbrögð, 3) afstöðu
til dauðans og 4) börn og dauð-
ann.
I. hluti
Þórir S. Guðbergsson hefur
verið kennari um margra ára
skeið í Reykjavfk og skólasl jóri
í Vogum á Vatnsleysuströnd í
nokkur ár.
Hann hefur á undanförnum
árum stundað félagsráðgjafa-
nám í Noregi og vinnur nú hjá
Sálfræðideildum skóla i
Reykjavík.
Þórir er einnig þekktur sem
barnabókahöfundur, en hann
hefur ásamt konu sinni Rúnu
Gísladóttur, haft umsjón með
Barna- og fjölskyIdusíðu Morg-
unblaðsins.
Sorg.
Við þekkjum sennilega flest
þær kringumstæður, þegar
börn okkar hafa mætt mótlæti
eða erfiðleikum og við segjum
eitthvað á þessa leið: — Hættu
nú þessu voli, drengur. Aldrei
lét hann bróðir þinn svona! —
Vertu bara glöð og hress eins
og hún Anna. Þetta er ekki
svona voðalega erfitt! — o.s.frv.
Samt vitum við e.t.v. innst inni,
að bræðurnir eru ekki eins, og
við þurfum oft og á mismun-
andi tímum á huggun og hlýju
að halda. Og „dóttir okkar" er
sorgmædd á þessu andartaki,
sem hún kvartar og að baki
þess geta legið ýmsar ástæður
(og það skiptir hana ekki svo
miklu máli, þó að allar Önnur
og Jónar séu glöð og hress næt-
ur og daga — það er engin
huggun fyrir hana á þessari
stundu!). Og börn þurfa að fá
að vera sorgmædd „i friði" án
þess að við séum að „skipa"
þeim að hætta þvi og um leið að
ýta undir þá skoðun, að við eig-
um ekki að láta tilfinningar
okkar i ljósi og að það sé næsta
ósæmilegt að gráta.
Við vitum einnig, að fullorðið
fólk segir í fyllstu einlægni við
erfiðar kringumstæður: —
Stattu þig vel. Þetta líður fljótt
hjá. — Reyndu bara að brosa og
bera þig vel. Þú átt þó tvö heil-
brigð börn eftir — o.s.frv.
Ötrúlega margt virðist ýta
undir þá skoðun, að álíta sorg
ónauðsynlega, við eigum að
„harka af okkur“ „bera okkur
karlmannlega". En við getum
einmitt aukið álag.syrgjandans
með slíkum hugsunarhætti og
orðalagi. Hann er í fyrsta lagi
yfirkominn af sorg yfir missi
ástvinar síns, og i öðru lagi fær
hann auk þess slæma samvisku,
hann má helst ekki látá tilfinn-
ingar sínar í ljósi, sorg hans má
ekki sjást.
Ég las einu sinni grein eftir
norska konu, þar sem hún skrif-
ar um reynslu sina, eftir að
hafa misst tvö börn. Hún lýsir
tilfinningum sínum og hugsun-
um, dvöl þéirra á sjúkrahúsi,
samskiptum við lækna og
hjúkrunarlið og segir m.a., að
flestir foreldrar óski þess, að
þeim sé sagður allur sannleikur
og að þau fái að fylgjast með
gangi mála frá degi til dags.
Það sé að vísu erfitt hlutverk að
„segja sannleikann" og að það
sé alls ekki sama, hvernig það
sé gert — en flestir óski eftír
sem nánustum upplýsingum
um málin og að þau séu skýrð
fyrir þeim með einföldu og
venjulegu orðalagi, sem al-
menningur skilji, jafnvel með
skýringarmyndum, teikningum
o.þ.h.
„Læknar eru oft i erfiðri að-
stöðu,“ segir hún, ,,en við ósk-
um ekki eftir þvi, að læknar
segi, að við eigum að reyna að
taka þessu vel, vera hughraust
o.s.frv. Það er betra, að læknir-
inn segi:-„Nú liður þér illa. Og
þú hefur fullan rétt til þess. Ég
get ekki huggað þig. En ég er
hérna. „Og það er einmitt það,
sem ég legg áherslu á. Nærvera
fólks," segir hún, „ er miklu
betri og dýrmætari en róandi
lyf. Læknar eða aðrir, sem þora
að halda í hendur á fólki eða
leggja arma sina um axlir
þeirra, eiga mikið t.þ.a. gefa
fólki, sem fyllt er örvæntingu."
Móðirin leggur þvi rika
áherslu á, að allir fái að syrgja
„i friði". Það séu ofur eðlileg og
mannleg viðbrögð. „Allt líf er
verðugt," segir hún, „hvort sem
það varir i 5 mánuði eða 70 ár.
Hvort sem við eigurn 5 börn og
missum eitt eða aðeins eitt og
missum það. Við erum fyrst og
fremst sorgmædd yfir þvi, sent
við erum að missa eða höfum
þegar misst, án tillits til sorgar
annarra. Við getum heldur ekki
metið lífið eftir tímalengd
þess...
Dauðinn kom til okkar siðla
kvölds í júní. Við vorurn ein
með dóttur okkar. Iljúkrunar-
fræðingurinn kom öðru hverju
inn til okkar. Hið síðasta. sem
dóttir okkar sá. voru andlit okk-
ar, þaö síðásta, sem hún fann
fyrir voru hendur okkar og það
síöasta, sem hún heyrði voru
hvíslandi raddir okkai'. Ög þeg-
ar lif hennar slokknaði og dyrn-
ar lukust endanlega að baki
hennar, var 5 mánaða lifi lokið
— en það var samt lif."
Alll hefur sinn tima. Lika
sársauki og sorg. Við lifum i
veröld þar sem vélar. tækni,
tölvur, vinna og hraði eru að ná
undirtökum i lífi okkar, veröld,
sent óðast er að gleyma öllum
þeim mannlegu þáttum lifsins,
sem gerir það þess virði að lifa
þvi.