Morgunblaðið - 15.10.1977, Page 40
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
IVtorgiDtibfofetfe
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHorgunblabib
LAUGARDAGUR 15. OKTÖBER 1977
Samningamál sveitarfélaganna:
Samið á Sauðár-
króki og Húsavík
Eftir að ganga
frá samningum
í 7 kaupstöðum
Aformað var seinnipart dags f gær að hefja kennslu f öldungadeild Menntaskðlans f Hamrahlfð f
samræmi við ákvörðun menntamáiaráðuneytisins að kennsla yrði hafin í þeim skólastofnunum, þar
sem kennaraliðið stendur utan BSRB. Þegar nemendur komu til skólans voru hins vegar verkfalls-
verðir þar fyrir og áður en Guðmundur Arnlaugsson rektor opnaði skólann, hvöttu verkfallsverðir þá
nemendur er styddu málstað BSRB að hverfa á braut. Var það um helmingur nemenda sem varð við
þessum tilmælum, en þegar þeir sem eftir urðu komu til skólastofu, lýsti rektor þvf yfir að hann tetdi
of fáa mætta til að unnt væri að hefja kennslu. (Ljósm. Mbl. K.ól.)
GENGIÐ var frá kjarasamning-
um tveggja kaupstaða f gær, á
Húsavík og á Sauðárkróki. Samn-
ingarnir á Húsavík voru undirrit-
aðir með fyrirvara f fyrradag og á
félagsfundi f gær voru þeir sam-
þykktir af starfsmönnum Húsa-
víkurkaupstaðar með 41 atkvæði
gegn 13, en 9 seðlar voru auðir.
Samningarnir á Sauðárkróki tók-
ust í fyrrakvöld og á fundi starfs-
mannafélagsins f gærkvöldi voru
samningarnir samþykktir með 35
atkvæðum gegn einu. Verkföllum
hefur verið aflýst á báðum stöð-
unum.
Guðmundur Nielsson, bæjarrit-
ari á Húsavík, kvað samningana
þar vera mjög hliðstæða Akranes-
samningunum, en að auki féllst
bærinn á nokkur atriði umfram
þá. Frá eldri tima er inni i samn-
ingunum ákvæði um persónuupp-
bót í desember, sem er 50% álag á
desemberlaun. Hefur þetta
ákvæði verið inni í tveimur sið-
Framhald á bls. 22.
Endurhæfingardeild Landspítalans:
Tólf starfsmenn hættu störfum
eftir heimsókn verkfallsvarða
Voru öll á lista Kjaradeilunefndar segir talsmaður ríkisspítalanna
VERKFALLSVERÐIR frá BSRB
heimsóttu í gærmorgun Land-
spítalann annan daginn í röð,
fóru þar um ganga og gerðu
athugasemdir við starfsfólk. Á
endurhæfingardeild spítalans
gerðu verkfallsverðirnir athuga-
semdir við stóran hóp starfs-
manna og hættu 12 starfsmenn
deildarinnar vinnu í gærmorgun,
en aðilum ber ekki saman um,
hvort verkfallsverðir hafi skipað
þeim að hætta, eða beðið fólkið
um að bíða þar til úrskurður
Kjaradeilunefndar lægi fyrir um
hvort það ætti að starfa áfram eð:
ekki. Fóru þeir einnig á fleiri
deildir, en fleira fólk hætti ekki
Verkfallsvarzla
við telex-stöðina
og langlínumið-
stöð í ReykjaVík
VERKFALLSVARZLA var tekin
upp í gær á sjálfvirku ianglínu-
miðstöðinni og telex-stöðinni f
Reykjavík á nýjan leik. Sendi
verkfallsnefnd BSRB Kjaradeilu-
nefnd og Póst- og símamálastjórn-
inni bréf um þetta efni í gær.
Ákvað Kjaradeilunefnd í fyrra-
dag að telex-stöðin skyldi opin í
verkfallinu og hafði ríkisstjórnin
afskipti af máli þessu í fyrradag
eins og frá var greint í Morgun-
blaðinu í gær.
Starfsemi telex-tækja var með
eðlilegum hætti í gærdag og komi
ekki til bilana verða tækín í gangi
yfir helgina að sögn sérfræðinga,
en komi til bilana er ekki ljóst
hvað verður. Gengu forystumenn
BSKB á fund Geirs Hallgrimsson-
ar, forsætisráðherra og Halldórs
E. Sigurðssonar, ráðherra póst- og
símamála í gær og sögðust fyrir
sitt leyti heimila að 17 tæki ríkis-
stofnana og sendiráða yrðu opin í
verkfallinu. en tækjum 233 fyrir-
tækja og viðskiptaaðilja Pósts- og
sima yrði lokað.
vinnu vegna þessarar heimsókn-
ar. A öðrum sjúkrahúsum gekk
allt eðlilega fyrir sig í gær.
— Verkfallsverðir Starfs-
mannafélags ríkisstofnana birtust
á Landspítalanum í morgun og
höfðu uppi þær fullyrðingar að
sakir þess að ákveðin nöfn vant-
aði á lista þann, sem Kjaradeilu-
nefnd hafði notað, þá ætti þetta
starfsfólk ekki að vera í vinnu,
sagði Davíð Á Gunnarsson,
aðstoðarframkvæmdarstjóri ríkis-
spitalanna, i samtali við Morgun-
blaðið í gær. — Kjaradeilunefnd
sendi okkur siðan bréf, þar sem
stendur mjög skilmerkilega að
það fólk, sem verkfallsverðir ráku
heim, hafi átt að vera í vinnu.
— Það er ósköp einfalt mál að
við fengum mjög ákveðnar til-
kynningar um það hvað af okkar
starfsfólki ætti að fara í verkfall.
Það tilkynnti Kjaradeilunefnd
okkur á sínum tima og sama dag
og verkfallið hófst, hafði Har-
aldur Steinþórsson, fram-
kvæmdarstjóri BSRB , samband
við mig og sagði mér að þeir væru
í vandræðum með að koma boóum
til þess fólks í BSRB, sem væri í
verkfalli, fólk vissi það greiniiega
ekki.
— Ég ráðgaðist um það við Har-
ald hvernig honum fyndist skyn-
samlegast að standa að þessu og
benti honum á að það myndi taka
okkur einn til tvo daga aó koma
boðum til fólksins, ef við skrifuð-
um hverjum einstaklingi. Hann
hreinlega óskaði þá eftir því við
mig að við myndum hringja í fólk-
ið. Með þetta í huga, þá var
almannavarnakerfi Landspital-
ans sett i gang og úr því kerfi var
hringt í, ég leyfi mér að fullyrða,
95% alls starfsfólksins og því til-
kynnt munnlega hvort það væri i
Framhald á bls. 22.
Gert vid lang-
línustödina
í Breidholti
ÖNNUR aðallanglínu-
stöð Landssímans í
Reykjavík bilaði f gær
og truflaðist mjög það
símasamband við Norð-
uriand og fleiri lands-
hluta. Það var stöðin í
Breiðholti sem hilaði, en
samkvæmt úrskurði
kjaradeilunefndar var
gert við stöðina og stóðu
vonir til þess að því
verki lyki í nótt.
í báðum langlínu-
stöðvum Landssímans í
Reykjavík eru alls um
800 línur út á land. I
Breiðholtsstöðinni eru
m.a. línur til Húsavíkur,
en ein af ástæðunum
fyrir nauðsynlegri við-
gerð á langlínunni er
hættuástandið við Mý-
vatn. Breiðholtsstöðin
hefur um 400 lírrur alls,
en hin aðalstöðin um 550
línur.
Lögreglumenn:
Engar skýrslur vegna
slysalausra árekstra
— nema um „stórfellt eignatjón” sé að ræða
„ÞETTA er okkar skoðun, sem
hefur verið samþykkt f verkfalls-
nefndinni," sagði Björn Sigurðs-
son, formaður lögreglufélagsins,
en í gær fengu lögreglumenn þau
fyrirmæli frá verkfallsnefnd
BSRB, að þeir eigi ekki að sinna
skýrslugerð vegna slysalausra
árekstra, nema um stórfellt
eignatjón sé að ræða. „Það hefur
verið kallað eftir slíkum fyrir-
mælum utan af landi og með til-
liti til óbreyttrar stöðu í samn-
ingamálunum ákváðum við að
láta fyrirmæli um þetta ganga í
gildi í kvöld,“ sagði Björn. Hann
Sendiherrar í Reykjavík:
Erlendir ríkisborgar-
ar „fangar” á íslandi
sagði, að lögreglumenn myndu
áfram sinna skýrslugjöf í sam-
bandi við öll slys, stór og smá, og
einnig myndu þeir framfylgja
eftirliti með ástandi ökumanna.
„Þetta þýðir að lögreglumenn
munu ekki gefa skýrslur um alla
hnoðárekstrana," sagði Björn og
Guðni Jónsson, formaður verk-
fallsnefndar BSRB, kvað þessi
fyrirmæli bindast úrskurði kjara-
deilunefndar um aó. lögreglu-
menn „eigi að vinna öll sin störf i
lágmarki." Mbl. sneri sér til lög-
reglustjórans í Reykjavik, Sigur-
jóns Sigurðssonar, vegna þessa,
Framhald á bls. 22.
SÆNSKI sendiherrann ritaði í
gær fyrir hönd félagsskapar
sendiherra erlendra rikja hér á
landi utanríkisráðuneytinu harð-
ort bréf vegna þess að allar sam-
göngur við landið hafa lamazt í
kjölfar verkfalls BSRB og fjöldi
útlendinga hefur lokazt hér inni.
Segir Olof Kaijser sendiherra í
bréfi sínu að þetta fólk sé í raun
„fangar“ hér á landi og að hæpið
sé að íslenzk stjórnvöld geti varp-
að af sér þeirri ábyrgð að starf-
semi ríkisins hafi lamazt, sem
komi aftur í veg fyrir að útlend-
ingarnir geti yfirgefið landið.
Bréf sænska sendiherrans er
annars svohljóðandi:
„Hér með vil ég vekja athygli á
því vandamáli sem upp er risió
hjá útlendingum, sænskuná borg-
urum, svo og borgurum af öðru
þjóðerni, með því að þeim er gert
ókleift að yfirgefa landið. Þessi
hindrun hefur orsakast af.því aö
ríkisstarfsmenn hafa lagt nióur
vinnu í yfirstandandi kjaradeilu.
Meirihluti sendiráðanna hér-
lendis hefur tekiö á móti beiðnum
frá samlöndum um stuðning við
umsókn Flugleiða að veitt verói
undanþága til flugs. í þessu sam-
bandi hefur einnig vaknað spurn-
ingin um skaðabótaskyldu.
Af reynslu þess ástands, sem nú
ríkir, vaknar einnig spurning um
það hvort íslenzka ríkisstjórnin
geti varpað frá sér ábyrgðinni af
Framhald á bls. 22.
Enn enginn
sáttafundur
ENGINN séttafundur hafSi i gær
verið boSaður, er Morgunblaðið
hafði samband við Torfa Hjartar-
son, séttasemjara rikisins. Þé
höfðu heldur engar viðræður étt
sér stað milli deiluaðila. Á meðan
afstaða aðila er óbreytt. kvað
Torfi ekki éstæðu til fundar-
boðunar.