Morgunblaðið - 25.10.1977, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 25.10.1977, Qupperneq 21
20 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÖBER 1977 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTÓBER 1977 29 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjöm Guðmundsson. Fróttastjóri Bjöm Jóhannsson. Auglýsingastjóri Ámi Garðar Kristinsson. Ritstjóm og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10100. Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22480. Málalok hjá sveitarfélögum Fyrir helgina höfðu kjarasamningar verið gerðir við starfsmannafélög allra þeirra sveitar- félaga, sem verkfall hófu með heildarsamtökum opin- berra starfsmanna fyrir tveimur vikum. Samningar þess- ir við starfsmannafélög hjá hinum einstöku sveitarfélög- um hafa tekið misjafnlega langan tima, en segja má, að verulegur skriður hafi komizt á samningagerðina eftir að samningar þeir, sem Starfsmannafélag Reykjavíkur- borgar gerði höfðu verið samþykktir í allsherjaratkvæða- greiöslu meðal starfsmanna Reykjavíkurborgar. Úrslit atkvæðagreiðslunnar hjá starfsmönnum höfuðborgar- innar voru mjög afdráttarlaus. Yfirgnæfandi meirihluti borgarstarfsmanna samþykkti þá kjarasamninga, sem gerðir höfðu verið. í kjölfar þeirrar atkvæðagreiðslu fylgdu svo önnur starfsmannafélög og fyrir helgina hafði verið lokið samningagerð hjá öllum sveitarfélögunum. Þessi samningagerð hjá starfsmannafélögunum þýðir, að vinnufriður hefur verið tryggður í bæjar- og sveitar- félögum og þjónusta þeirra við borgarana er nú með eðlilegum hætti. Það kom glöggt í ljós, meðan verkfallið stóð, að stöðvun þessarar þjónustu kemur sér mjög bagalega fyrir marga og á það ekki sízt við notendur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu, þar sem vegalengd- ir eru orðnar svo miklar, að fólk á óhægt um vik að komast ferða sinna, ef engir almenningsvagnar ganga og um bílaeign er ekki að ræða. Verkfallið leiddi því í ljós mikilvægi þessara þjónustustarfsemi við borgarana. Sú meginályktun, sem hægt er að draga af samningum þeim sem gerðir hafa verið hjá sveitarfélögunum er sú, að mikill meirihluti starfsmanna þeirra hefur viljað samninga og vinnufrið. Ef sú afstaða hefði ekki verið fyrir hendi, hefðu starfsmannafélögin ekki kosið að taka upp sjálfstæðar samningaviðræður við vinnuveitendur sína og þá hefðu samningar þeir, sem gerðir hafa verið ekki veriö amþykktir eins almennt og raun ber vitni um. Ætla verður, að þessi afstaða starfsfólks hjá sveitar- félögunum segi sína sögu um afstöðu mikils meiri hluta opinberra starfsmanna yfirleitt. Auðvitað vilja opinberir starfsmenn berjast fyrir bættum kjörum og hafa gert það. Auðvitað krefjast þeir þess að sitja við sama borð og aðrir launþegar í kjörum og auðvitað eiga þeir rétt á því að mæta sanngirni, þegar um kjarabaráttu þeirra er að ræða. En jafnframt verður að ætla, þegar úrslit mála hjá starfsmönnum sveitarfélaga eru höfð í huga, að mikill meirihluti opinberra starfsmanna vilji vinnufrið, að mik- ill meirihluti opinberra starfsmanna telji ástæðulaust að halda þessari vinnudeilu áfram lengur en góðu hófi gegnir. Fólk er misjafnlega undir það búið að taka á sig langt verkfall. Sumir opinberir starfsmenn njóta fullra launa, meðan þetta verkfall stendur vegna þess að þeir mega ekki lögum samkvæmt fara í verkfall. Sumir eiga maka í fullri vinnu o.s.frv. Þá fengu menn laun greidd í byrjun þessa mánaðar og finna því ekki að ráði fyrir verkfalli fyrr en síðar, gagnstætt því sem t.d. er hjá verka- mönnum, þegar þeir heyja sína verkfallsbaráttu. En vafalaust er það svo í þessu verkfalli sem öðrum, að lægst launaða fólkið ber þyngstu byrðarnar. Það hefur af minnstu að taka og tekjuskerðing af völdum verkfalls er þungbærust fyrir það. Hafa . sjónarmið láglaunafólksins komið að fullu fram hjá BSRB? Eru fulltrúar þess í forystu hjá BSRB? Niðurstaða mála hjá starfsmannafélögum sveitarfélag- anna ætti vissulega að verða mönnum nokkurt íhugunar- efni. Hún sýnir vilja til vinnufriðar hjá stórum hópum opinberra starfsmanna og engin ástæða er til að ætla að allt aðrar skoðanir ríki hjá þorra þeirra, sem enn eru í verkfalli, a.m.k. liggur það ekki fyrir. Það er líka umhugs- unarefni fyrir þá, sem stjórna verkfallsbaráttu BSRB hver aðstaða iáglaunafólksins í þeirra röðum er, hversu mikið bolmagn það hefur til þess að standa í löngu verkfalli, eftir að mörgum sýnist grundvöllur kominn til samkomulags. Það krefst mikillar þekkingar og reynslu hjá forystu- mönnum launþegasamtaka að vita hvenær þeir eiga að hefja verkfallsbaráttu en ekki síður að gera sér ljóst, hvenær tímabært er að ganga til samninga og ljúka deilum. Mestöllum framkvæmdum við Kröflu er nú lokið, hér má sjá nokkrar aðveituæðar virkjunarinnar. ALLAR UOSMYNDIK FKIÐMÓFl'K IIKl.OASON Vésteinn Guðmundsson fram- kvæmdastjóri Klsiliðjunnar. ur á siðasta ári þá fór það alltaf styttra og styttra, þangað til gang- arnir voru orðnir fullir. Verði minniháttar eldgos i ná- grenni við Kisiliðjuna, eins og jarðvísindamenn hafa bent á að geti gerst, eiga varnargarðarnir að beina kvikunni frá verksmiðj- unni. Verði hins vegar mikið gos á svæðinu er ekki talið að varnar- garðarnir verði mikil fyrirstaða. — Húsin hér eru stálgrindar- hús og komist glóandi kvika, að stoðunum, er hætt við að járnið digni í hitanum og gefi sig, segir Vésteinn. Þannig gæti hér orðió mikið tjón á mannvirkjum án þess þó að hraunið eyði byggingar að öðru leyti, segir Vésteinn, sem er ásamt Þorsteini Ölafssyni framkvæmdastjóra fyrirtækisins. *iljá Kísiliðjunni eru 53 fastir starfmenn, en fleiri yfir sumar- tímann. Að sögn Vésteins Guðmunds- sonar flytur Kisiliðjan út um 1% af heildarútflutningi landsmanna og segir það sig sjálft hve rnikil- vægt fyrirtækið er fyrir byggðar- lagið. Reksturinn hefur verið í fullum gangi undanfariö og eru tvær af þremur þröm verksmiðj- unnar nær fullar af gúr, en unnið er að viðgeröum á þriðju þrónni. Á fyrirtækið nú hráefni i fimm mánuði og vérði hægt að halda áfram aö dæla gúr úr vatninu fram i miðjan nóvember reiknar Vésteinn Guömundsson með næg- um vetrarbirgöum fyrir Kisiliðj- una. Byggingu varnargarð- anna lýkur í vikunni Hluti af skja/asafni Kísil- idjunnar fíutt á öruggarí stad aðskilin hús og rúmur metri á milli þeirra. Fyrir veturinn er ætlunin að setja létt þak yfir ganginn til bráðabirgða. Eru skrifstofur fyrirtækisins í norð-austurhúsinu, en hinum megin teiknistofa, rannsóknar- stofa, kaffistofa og önnur minni herbergi. Hluti af skjölum Kísil- iðjunnar hefur verið fluttur niður i Reykjahlið á öruggan stað. Þykir ekki rétt að geyma hluti í Kísiliðj- unni, sem hægt er að vera án í daglegum rekstri. — Við verðum að taka mark á því, sem jarðfræðingar spá og miða við það sem áður hefur gerst, sagði Vésteinn Guómunds- son i viðtali við Morgunblaðið. Því er þó ekki að neita, að ég el með mér þá von að þegar næst dregur til tíðinda hér á svæðinu hlaupi kvikan ekki eins langt í suður eins og hún hefur gert i tvö síðustu skipti. Þá von byggi ég á þvi, að þegar kvikan hljóp i norð- 24. október. Frá fréttamanni Mbl. Ágústi Jónssyni í Mývatnssveit. MIKLAR breytingar hafa orð- ið við Kröflu, frá því fyrir um ári síðan, hið iðandi atvinnu- líf, sem þá blómstraði í hin- um ýmsu vinnustöðum við Kröflu, er nú að miklu leyti liðin tíð. Flestir verktakar hafa lokið störfum sinum og segja má að ekkert vanti nema gufuna. Holurnar, sem voru endurunnar í sumar lofa virkjunarinnar. Verktakar eru nú með um 20 manns i störf- um við Kröflu og er þar að mestu um frágangsvinnu að ræða. Orkustofnun er með 10 manna hóp rannsóknarmanna á svæðinu og hefur í langan tíma ekki verið svo fátt fólk starfandi þar. Á næstunni fjölgar nokkuð á svæðinu, en þá byrjar Stjörnu- stál að leggja aðveiturör frá holu 9. góðu og vonast er nú til að um áramót verði búið að tengja allar holurnar og þar verði framleidd 10 megawött rafmagns. Fastir starfsmenn Kröflu- nefndar á svæðinu eru nú 12 talsins og hafa verið byggð fimm íbúðarhús fyrir þá í Reykjahlíðarhverfinu og að auki fjögur bráðabirgðahús, sem áður þjónuðu sem skálar starfsmanna við byggingu Hér má sjá hina miklu gliðnun sem átt hefur sér stað. Hús Kfsiliðjunnar klofnaði I sundur og er um metri á milli hlutanna. Gliðnunin heidur áfram og hiti eykst í Grjótagjá 24. október. Frá fréttamanni Mbl. Ágústi Jónssyni i Mývatnssveit. Heldur er það óhuggulegt að aka veginn í gegnum Bjarnar- flag þessa dagana. Frá því í umbrotunum í september hefur gufuútsteymið aukist um allan helming á svæðinu og hverfur vegurinn þeim, sem leið eiga um hann, á stórum köflum. Nokkuð er það misjafnt hversu gufan er þétt, en t.d. í gær er Morgun- blaðsmenn áttu leið um stað- inn glitti ekki í Kísiliðjuna ofan úr Námaskarði. Jarðvisindamenn fylgjast ná- kvæmlega með þróuninni á svæðinu og reikna með, að til tíðinda dragi á næstu dögum. Hvað gerist þegar jarðraskið byrjar og kvikan fer af stað vita menn ekki, en jarðvísindamenn reikna almennt með gosi Hins vegar er meira deilt um hvar það verður og hversu mikið Á svæðinu frá Námaskarði að Mývátni varð um 1 metra gliðnun i siðustu umbrotum Siðan þá hefur gliðnunin enn aukist og við mælingar í gær reyndist landið hafa gliðnað um 20 sm. í viðbót. í Grjótagjá hefur hiti aukist verulega og er þar varla mögulegt að baða sig lengur. í kvennagjánni er hit- inn orðinn 46 gráður, en var áður um 40 gráður. Karlameg- in er hitinn enn meiri. Skjálftavakt er nú allan sólar- hringinn i Reynihlíð og við hann starfar stúlka frá Orsku- stofnun á móti 4 húsmæðrun úr þorpinu. Skjálftar frá þvi klukkan 7 á sunnudagsmorgun þangað til klukkan 7 i gær- morgun voru 37, en mælingar dagana þar á undan sýndu 27 og 21. Á skjálftavaktinni feng- um við þær upplýsingar að landrisið sem verið hefur jafnt og þétt undanfarið hafi aðeins hægt á sér. Þrir mælar eru notaðir við að mæla jarðskjálfta á svæðinu einn er i Gæsadal, einn við Kröflu og þriðji í Reynihlið. E. það aðeins mælirinn i Gæse dal, sem ekki verður fyrir truflunum, en þungar vinnuvél- ar trufla mjög mælana bæði við Kröflu og i Reynihlið og má segja að á þeim komi fram stöðugur vinnuvélaórói. 24. októhur. Frá fréttamanni iVlbl. Ágústi Jónssyni í Mývatnssvoit. REIKNAÐ er með, að byggingu varnargarðanna í kringum Kísil- iðjuna i Bjarnarflagi ljúki í vik- unni. Verður verksmiðjan þá girl með görðunum að austan- og sunnanverðu, en að norðanverðu eru þrær Kísiliðjunnar til varnar. Áætlaður kostnaður við varnar- garðana er 8—10 milljónir króna og að sögn Vésteins Guðmunds- sonar framkvæmdastjóra Kisil- iðjunnar greiða ríkissjóður og viðlagatrygging kostnaðinn við gerð garðanna. Byggingar Kisiliðjunnar urðu mjög illa úti í síðustu umbrotum á svæðinu og þá sértaklega skrif- stofubyggingin. Sprungu álmurn- ar tvær hvor frá annarri og voru skemmdirnar það miklar að ekki var hægt að gera við þær. Þakið yfir ganginum á milli álmanna hefur verið rifinn niður, þar sem hætta var á hruni frá því. Og það, sem áður var eitt hús, eru nú tvö Varnargarðarnir við Klsiliðjuna, verksmiðjan f baksýn. Aðeins frágangsvinna er nú eftir við Kröflu „Ætli við höldum ekki áfram þar til sá gamli æsir sig meira" Starfsemi óbreytt þrátt fyrir sívaxandi gufustreymi í og við bygginguna 24. október. Frá Ágústi Jóns- syni fréttamanni Mbl. ! Mývatnssveit. FYRIR ókunnuga, sem aka í gegnum Bjarnarflag er ekkert auðveldara en að fara þar fram hjá Léttsteypunni, án þess nokkurn tíma að sjá þetta fyrirtæki. Allt umhverf- is byggingar Léttsteypunnar eru hverir og gufuaugu og mökkurinn frá þeim hylur fyrirtækið á stundum algjör- lega. Innandyra er starfsemi þó í fullum gangi og menn láta það sig engu skipta, þó gólf séu heit og hitinn í sprungnu gólf- inu sé 98 gráður, þar sem hann er mestur. Jarðfræðingar hafa sagt að orðið sé óvinnandi í fyrirtæk- inu, en ennþá halda sexmenn- ingarnir, sem þarna starfa, áfram og tveir piltar úr skóla, sem eru i fríi vegna verkfalls hafa bæzt í starfsliðið. — Þetta er náttúrulega orð- ið óþægilegt, en ætli við höld- um ekki áfram þangað til sá gamli æsir sig meir, sagði Hall- grímur Jónasson verkstjóri og einn af eigendum fyrirtækisins í sþjalli við Morgunblaðið í siðustu umbrotum sprakk gólfið í byggingu Léttsteypunn- ar á mörgum stöðum, veggir gliðnuðu og á einum fjórum stöðum sá í gegnum rifurnar. í þessar sprungur hefur verið steypt, en heit gufa leitar þó víða upp úr gólfinu. Kaffistofu höfðu starfsmenn Léttsteyp- unnar inn af lagerhúsinu, en eftir að gufa byrjaði að koma upp úr gólfinu jókst mjög hit- inn í húsinu ög varð ólift í kaffistofunni Þar varð sem í gufubaði og borð og stóiar voru fluttir fram i lagerhúsið. Þegar ástandið var sem verst i húsinu var þar niðamyrkur i gufu- mekkinum Mesta tjónið hjá Léttsteyp- unni i siðustu umbrotum var þegar útveggur að norðan- verðu rifnaði frá langveggjum og einnig frá sökkli Orðaði Hallgrímur Jónasson það þann- ig að nú héngi gaflinn eigin- lega uppi á þakinu. Þyrfti ekki mikinn hristing eða umbrot til þess að gaflinn gæfi sig alveg Léttsteypan framleiðir út- veggjastein og milliveggjaplöt- ur og selur framleiðslu sina aðallega á Norður- og Austur- landi, en einnig til Reykjavíkur Við siðustu umbrot var engin gufa á svæðinu k/ingum fyrir- tækið, en nú er ekkert þar nema gufa Ekki sér frá fyrir- tækinu fyrir gufumekki, en Hallgrimur sagði að menn væru ósköp rólegir þrátt fyrir þessi ósköp og það að innan skamms kynni að draga til tið- inda á svæðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.