Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÖVEMBER 1977 \ Albert Guðmundsson: Hvers vegna breytti ég ákvörðun? Svar við fjölda fyrirspurna Upphafleg ákvörðun Alberts Guðmundssonar, alþingis- manns um að gefa ekki kost á sér til þingframboðs og síðan sú ákvörðum hans að gefa kost á sér á ný hefur vakið nokkrar umræður á opinberum vett- vangi. Morgunblaðið hefur ósk- að eftir því við Albert Guðmundsson, að hann gerði frekari grein fyrir afstöðu sinni og fer svar hans hér á eftir: Margir hafa spurt mig, hvers vegna ég hafi „hætt við að hætta“ (eins og það hefur verið orðað) afskiptum af stjórnmál- um, bæði á vettvangi þjóð- og borgarmála, þrátt fyrir yfir- Albert Guðmundsson alþingis- maður. lýsta ákvörðun mina í þeim málum. Svar mitt er: 1) Ég vil taka skýrt fram að fyrri ákvörðun mín var tekin með margra mánaða fyrirvara og var vinum mínum og fjöl- skyldu löngu kunn. 2) Tvisvar, með viku milli- bili, svaraði ég formanni kjör- nefndar ákveðið, að ég myndi ekki gefa kost á mér til fram- boðs í nafni flokksins, þótt að ég héldi áfram að starfa innan hans. 3) Jóhann Hafstein, fyrrum formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi siðan þessa ákvörðun mína við mig — og bað mig að huga vel að röksemdum, sem hann hafði til mála að Ieggja en verða ekki hér raktar. 4) í millitíðinni bárust mér fjölmargar áskoranir frá stuðn- ingsmönnum Sjálfstæðisflokks- ins um að ég gæfi kost á mér til framboðs. Kjörnefnd flokksins og formaður hennar settu fram itrekaðar óskir um !>að sama. 5) Ef eitthvað eitt hefur, öðru framar, haft áhrif á endur- skoðun afstöðu og nýja ákvörð- un af minni hálfu, þá var það ósk Jóhanns Hafstein, fyrrver- andi formanns flokksins, ásamt þeim rökum sem máli hans fylgdu. Þetta reið baggamun- inn, til viðbótar þeim fjölda- áskorunum sem mér bárust eft- ir ýmsum leiðum úr öllum átt- um. 6) Um leið og ég þakka öll- um, sem hvatt hafa mig til áframhaldandi stjórnmála- starfa, harma ég raddir þess efnis, að fyrri afstaða mín hafi verið „leikaraskapur“, sem jafnvel mætti flokka undir óheiðarlega kosningabaráttu eða auglýsingastarfsemi. Við þá, sem slikar raddir hafa heyrt, vil ég í einlægni segja, að svo var alls ekki, þó að atvik leiddu til breyttrar afstöðu. 7) Að lokum vil ég að höfund- um umræddra getsaka í minn garð sé ljóst, að ég veit hvaðan köldu andar til mín, þótt þeir kjósi að koma ekki framan að mér í dagsbirtu. Öll verðum við að vera reiðubúin til þess að láta hagsmuni flokksins sitja í fyrirrúmi. Nýjar Þórbergs-útgáfur NÝLEGA komu út hjá Máli og menningu þrjár nýjar bækur i safni Ritverka Þórbergs Þórðar- sonar: Rauða hættan og Ýmisleg- ar ritgerðir í tveimur bindum. Sigfús Daðason hefur búið þessar bækur til prentunar. Rauða hættan var fyrst gefin út Ennfremur er nýkomin út Ævi- saga Árn: prófasts Þórarinssonar sem Þórbergur Þórðarson færði í letur, 3. útgáfa i þremur bindum. Ævisaga séra Árna er mynd- skreytt að þessu sinni og henni fylgir rækileg nafnaskrá. Frá- sagnir hafa einnig verið gefnar út í nýrri útgáfu, en inn i þá útgáfu hefur verið felld frásögnin í Unu- húsi, sem kom út í bókarformi 1962, og Þrjú þúsund þrjú hundr- uð og sjötíu og níu dagar úr lífi mínu. Er það með lokið útgáfu Ritverka Þórbergs Þórðarsonar í þrettán bindum á vegum Máls og menningar. Öll bindin eru nú fá- anleg og verða seld með sérstök- um afslætti í tilefni fertugsaf- mælis Máls og menningar. Þessi kjör gilda ef keypt er fyrir 1. desember næstkomandi. Þá hefur Heimskringla gefið út bókina Sambandsmál á Alþingi 1918—1940. Bókin hefur að geyma brot úr þingræðum um sambandsmálin á fyrrgreindu tímabili. Haraldur Jóhannsson hefur séð um útgáfuna og ritað ítarlegan inngang. Bókin er í kiljuformi. haustið 1935, á kostnað Sovétvina- félagsins. Sú bók var ferðasaga höfundar frá för hans til Sovét- ríkjanna og er nú löngu uppseld. Jafnframt hafa verið prentaðar i þessari útgáfu aðrar ritgerðir Þórbergs sem varða Sovétríkin: Rómantík Rauðu hættunnar, Henging min, í grasgarði for- heimskunarinnar, Samherjar Hitlers, Móralskir mælikvarðar, Til austurheims vil ég halda, Guð hjálpi islendingum, Bréf til Ragn- ars Ölafssonar og Nýr heimur i sköpun. Ýmislegar ritgerðir er safn fimmtíu og tveggja ritgerða eftir Þórberg Þórðarson. Margar þess- ara ritgerða hafa ekki fyrr komið út í bókarformi. Með þessari út- gáfu er megnið af blaða- og tíma- ritagreinum Þórbergs komið út í bókum. Kindur hrakti undan veðri í sjó Reyðarfirði, 17. nóvember SLÁTRUN hófst í sláturhúsi KHB Reyðarfirði 13. september og lauk 3. nóvember. Alls var slátrað 22.145 kindum. Meðal- þungi dilka var 14,45 kg. Um 60 manns unnu við sláturhúsið. í óveðrinu sem gekk hér yfir laugardaginn 15. nóvember hrakti i sjó undan veðri kindur sem bóndinn á Kollaleiru átti, og missti hann þar tíu ungar ær. Einnig vantar bóndann 10 kindur af fjalli, 6 ær og 14 lömb. Á laugardaginn var hér norðvestanátt, 8—9 vindstig og snjókoma. — Gréta Kristján Hjaltason, Hannes Gissurarson og Skafti Harðarson. Myndin er tekin á blaðamannafundi um mánaðamótin, er þeir kynntu stofnun samtaka sinna. Árangursrík fundahöld um samvinnu vesturlanda ugir og skemmtilegir. nema hvað þeir félagar sögðust hafa orðið fyrir vonbrigðum með málflutning and- stæðinga sinna. herstöðvaandstæð inga, sem gðfust jafnan upp við málefnalegan málflutning, en töluðu þess í stað um tilfinningaleg sjónar- mið málsins Sagði Hannes Gissur- arson, að taugaveiklun herstöðva- andstæðinga vegna þessarar nýju hreyfingar speglaðist bezt í upp- spunaskrifum Þjóðviljans í því sam bandi sögðust þeir félagar aðeins vilja skora á fólk. sem sækja fund- ina, sjá og heyra, hvað þar færi fram, vildi það heyra sannleikann um málflutning þeirra í næstu viku hafa verið ráðgerðir þrír fundir, í fjölbrautaskólanum í Breiðholti, í Fjölbrautaskóla Suður- nesja og í Flensborg í Hafnarfirði Þeir félagar sögðu. að málflutn- ingi þeirra hefði verið tekið mjög vel Framhald af bls. 21 NÝLEGA stofnuðu nokkrir ungir menn samtök undir kjörorðinu „Samvinna vesturlanda, sókn til frelsis" og hafa þeir þegar gefið út blað, sem ber það heiti, en enn- fremur hafa þeir efnt til funda- halda í skólum, þar sem utanrikis- mál hafa verið til umræðu. Morgunblaðið ræddi í gær við þá Hannes Gissurarson, Kristján Hjaltason og Skafta Harðarson og spurði þá, hvernig starf þeirra á þessum vettvangi hefði gengið. Þeir félagar létu vel af viðtökun- um, sem þeir hefðu hlotið Viðtökur við blaðinu hafa verið mjög góðar að þeirra sögn, en dreifing er nú langt komin til flestallra framhalds- skólanemenda Næsta verkefni er síðan að dreifa blaðinu innan Há- skóla íslands og út um land og i kaupstöðum landsins Þegar hafa þeir félagar gengizt fyrir þemur fundum, í Mennta- samvinna vesturlanda SÓKN TIL FRELSIS Barmnierkid, sem út kemur eft- ir næstu mánaðamót. skólanum í Reykjavik. Mennta- skólanum við Hamrahlið og í Menntaskólanum á ísafirði Hafa fundir þessir verið mjög fjölsóttir og að sögn þeirra þremenninga munu fundirnir vera með fjölmennustu málfundum. sem haldnir hafa verið i skólunum Fundirnir hafa verið fjör- Sveinn Björnsson iðnaðarverkfræðingur: ísland árið Llfskjör bezt í Evrópu. Fiskstofnarnir komnir í há- marksstærð. Nýtizkulegasti fiskiskipafloti í heimi aó afköst- um í jafnvægi viö hagkvæmasta aflamagn. Útflutningur skipa hafinn í stórum stíi. Allur afli fullunninn. Iónaður (framleiðslu-, þjón- ustu- og fiskiðnaður) er aðalat- vinnuvegur landsmanna. Iðnað- arvörur helmingur útflutnings. Jarðefnaiðnaður byggður á inn- lendri orku ein þekktasta fram- leiðslugrein íslendinga. Orkubúskapurinn byggist að mestu leyti á innlendum orku- gjöfum. Orka ódýrust á öllum Vesturlöndum. Landbúnaðarframleiðslan miðast nú alfarið við innan- landsneyzlu. Bændur i landinu eru 2500. Allar niðurgreiðslur úr sögunni. Verzlun og viðskipti algjör- lega frjáls, verðlagshöft úr sög- unni. Hagstæðar verzlunarjöfn- ur. Gjaldeyrishöft úr sögunni. islenzka krónan sterkur gjald- 2000 miðill. Verðbólga komin í lág- mark. Samgöngur á landi fara að mestu leyti fram á þjóðvegum með varanlegu slitlagi. Svona mætti áfram halda. Mikill meiri hluti núlifandi ís- lendinga niunu lifa næstu alda- mót. Það eru 22 ár þangað til. Frumskilyrði þess að þessum markmiðum verði náð er, að kjördæmadreifing þingmanna yerði lýðræðislegri og i réttu hlutfalli við búsetu lands- manna og þar með atvinnu- skiptingu. Núverandi kerfi Sveinn Björnsson heldur okkur í sjálfheldu og stendur í vegi fyrir eðlilegum og æskilegum markmiðum i þjóðmálum. Eg er i engum vafa um, að Iandsmenn geta notið beztu lífs- kjara á jarðarkringlunni, ef við kunnum að notfæra okkur gæði þessa gjöfula lands og virkja í þeirri sókn okkar dugmikla og velmennt«ða unga fólk. Stundatvrfiðleikar okkar i efnahagsmöhim. sem að mestu leyti eru heimatilbúnir vegna skakkra jrá&tskra ákvarðana i f.j árf est mgWJoál u m og yfir- skipulagningar 4 öllum sviðum, eiga að verða okkur hvatning til nýrra dáða. Þetta er unnt. Þetta sýndi viðreisnarstjórnin á sinum fyrstu árum. Eina stjórnmálaaflið, sem þetta getur er Sjálfstæðisflokk- urinn. Setjum markið hátt. Ger- um tsland að fyrirmynd ann- arra þjóða um velrekna at- vinnuvegi. Þá kemur hagsæld einstaklinganna af sjálfu sér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.