Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.11.1977, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1977 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Iðnaðarstörf Starfsmaður óskast til iðnaðarstarfa. Þarf að geta stjórnað lyftara. Uppl. hjá verkstjóra í síma 31 250. Læknaritari Sjúkrahúsið á Blönduósi óskar að ráða læknaritara nú þegar. Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna. Upplýsingar gefur yfirlæknir í síma 95- 4206 eða í síma 95-4218, eftir kl. 1 7. Skrifstofustarf í Hafnarfirði Umbjóðanda okkar vantar starfskraft. Starfið er fólgið í launaútreikningum, bókhaldi, vélritun, símavörzlu og öðrum alhliða skrifstofustörfum. — Þarf að geta hafið störf fljótlega. Uppl. veittar í síma 531 55 á skrifstofutíma í dag föstudag og á mánudag. Hyggir s. f., endurskoðunarstofa, Guðmundur Óskarsson, Gylfi Gunnarsson löggiltir endurskoðendur. Laus staða Staða lögreglumanns á Húsavík er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 5 des 1977. Bæjarfógeti Húsavíkur Sýslumaður Þingeyjarsýslu. Ólafsvík Umboðsmaður óskast til að annast dreif- ingu og innheimtu í Ólafsvík. Upplýsingar á afgreiðslu Morgunblaðsins í Reykjavík, sími 1 01 00 Verkstjóri Verkstjóri óskast í nýtt frystihús á Austur- landi. Þarf að geta hafið störf um áramót. Æskilegt er að umsækjandi hafi lokið prófi frá Fiskvinnsluskólanum. Umsóknir sendist starfsmannastjóra, sem gefur nánari upplýsingar, fyrir 30. þ. mán. SA MBA ND ÍSL. SA M VINNUFÉLA GA Bifvélavirki óskast strax. Aðstoðum við útvegum húsnæðis ef með þarf. Malar- og steypistöðin h. f., Akureyri, sími 96-21895. Offset — Atvinna Prentsmiðjan Grágás h.f. Keflavík, óskar að ráða mann í filmu- og plötugerð. Uppl. í prentsmiðjunni. Verkamann Óskum að ráða strax nokkra verkamenn til afgreiðslu og verksmiðjustarfa. Upplýsingar hjá verkstjóra. Jón Loftsson HF Hringbraut 2 1. Skrifstofustarf Okkur vantar vanan starfsmann til vinnu á bókhaldsvél. Vélritunarkunnátta nauð- I synleg. Uppl. á skrifstofu okkar, en ekki í síma. Hans Petersen h. f., Skipho/ti 1 7. raöaugiýsingar — raðauglýsingar — raöauglýsingar Auglýsing um umsóknir um starfslaun rithöfunda. Hér með eru auglýst til umsóknar starfs- laun fyrir árið 1978 úr Launasjóði rit- höfunda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og reglugerð gefinni út af menntamála- ráðuneytinu 9. júní 1 976. Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar og höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiða laun úr sjóðnum fyrir þýðingar á íslensku. Starfslaun eru veitt í samræmi við byrjunarlaun menntaskóla- kennara skemmst til tveggja og lengst til níu mánaða í senn. Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfs- laun í þrjá mánuði eða lengur, skuldbind- ur sig til að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna. Slík kvöð fylgir ekki tveggja mánaða starfslaunum, enda skulu þau einvörðungu veitt vegna verka sem birst hafa næsta almanaksár á undan. Skrá um birt verk höfundar og verk, sem hann vinnur nú að, skal fylgja umsókn- inni. Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðublöðum, sem fást í menntamálaráðu- neytinu. Mikilvægt er að spurningum á eyðublaðinu sé svarað og verður farið með svörin sem trúnaðarmál. Umsóknir skulu sendar fyrir 1 . janúar 1978 til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík. Reykjavík, 15. nóvember 197 7 Stjórn Launasjóðs rithöfunda. Söluskattur Hér með úrskurðast lögtak fyrir van- greiddum söluskatti 3. ársfjórðungs 1977, svo og viðbótun söluskatts vegna fyrri tímabila, sem á hafa verið lagðar í Kópavogskaupstað. Fer lögtakið fram að | liðnum 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Jafnframt úrskurðast stöðvun atvinnu- rekstrar þeirra söluskattsgreiðenda, sem eigi hafa greitt ofangreindan söluskatt 3. ársfjórðungs 1977 eða vegna eldri tíma- bila. Verður stöðvun framkvæmd að liðnu 8 dögum frá birtingu úrskurðar þessa. Bæjarfógetinn í Kópavogi. Rafmagnsgufuketill Af sérstökum ástæðum er til sölu sjálfvirk- ur ónotaður rafmagnsgufuketill ásamt til- heyrandi fæðivatnsdælu og stýriskáp, í sem er fulltengdur katlinum. Ketillinn er 396 kw 380 v Atú 8 kg/h 535. Einnig er til sölu rafmagnsketill notaður 1 89 kw án rofabúnaðar 220/380 v. Verksm. S.Í.S. Akureyri. Upplýsingar í síma (96)21900. Tilboð óskast í smíði og uppsetningu útihurða og einingaveggja í Borgartúni 6. Útboðs- gögn fást afhent á Verkfræðistofu Guðmundar G. Þórarinssonar Skipholti 1 gegn 20.000 — króna skilatryggingu. Prjónakonur Ullarvörumóttaka alla þriðjudaga og fimmtudaga frá 9 — 1 1.30. Benco, Bolholti 4, Sími 21945 og 84077. Eftir kröfu tollstjórans í Reykjavík. Gjaldheimtunnar, skiptarétt- ar Reykjavikur, ýmissa lögmanna og stofnana fer fram opin- bert uppboð á bifreiðum, vinnuvélum o.fl., að Sólvallagötu 79, laugardag 1 9. nóvember 1 977 kl. 1 3.30. Ávisanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn i Reykjavik. Nauðungaruppboð Að kröfu Hafsteins Sigurðssonar hrl., Garðars Garðarssonar hdl., Kristins Sigurjónssonar hrl., Inga R Helgasonar hrl., Sveins H. Valdimarssonar hrl., Jóns G. Briem hdI., Tómasar Gunnarssonar hdl., Árna Guðjónssonar hrl., Jóns Kr. Sólnes hdl., Theódórs S. Georgssonar hdl., Vilhjálms Þórhallssonar hrl., Kristins Björnssonar hdl., Hauks Jónssonar hrl , Guðmundar Ólafs Guðmundssonar og innheimtumanns ríkis- sjóðs, verða eftirtaldir lausafjármunir seldir á nauðungarupp- boði föstudaginn 25. nóvembér n.k. kl. 16, að Vatnsnesvegi 33, Keflavik: Sjónvarpstæki, sófasett. frystikista. hægindastóll. þvottavél, isskápur, og bifreiðarnar R-52219, R-51103, Ö- 2165, Ö-523. Ö-1986. 0-41 72, Ö-3205 og Ö-1383. Uppboðshaldarinn í Keflavik, Njarðvik, Grindavik og Gullbringusýslu. AKiKVSINíiA- SÍMINN KK: 22480 EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.