Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 16.03.1978, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. MARZ 1978 21 Tónhvlsi eftir GUÐMUND EMILSSON gesta kvörtuðu sáran undan of háum aðgangseyri, sem var eitt þúsund krónur. Okkur finnst þetta hin mesta furða, þar sem að baki liggur margra mánaða vinna og margra ára nám. Þetta sama fólk er víst með að borga sig inn á bíó fyrir fimmhundruð krónur möglunarlaust. Það varð að sjálfsögðu(?) enginn hagnað- ur af þessari tónleikaferð; varla að við hefðum upp í flugfarið fram og til baka.“ . Og þið eruð á leið út aftur? „Já, ég lýk bráðlega námi hjá Konrad Ragossnig í Basel í Sviss, en ég hefi lært hjá honum að undanförnu. Ætli maður verði ekki að bardúsa þetta í eitt til tvö ár áður en snúið verður heim.“ XXX BLM: Camilla, hvernig leggst í þig að starfa á íslandi.? „Ég veit ekki sem stendur. Mér sýnist aðstaðan fremur bágborin í sumum tilfellum. Ég varð t.d. hissa að komast að því, að í mörgum hinna stærri tónlistarstofnana íslendinga er ekki að finna algengustu upp- sláttarrit. Mér finnst þetta einkennilegt þar eð ísleodingar virðast lifa góðu lífi, og hafa efni á ýmsum munaði: Annars veit ég ekki hvort íslendingar, og íslenskir tónfrömuðir, líta á blokkflautuna sem fullgilt hljóðfæri til listrænnar túlkun- ar, og þar með hvort nokkuð verður fyrir mig að gera ef við setjumst hér að. Mér finnst ísland fallegt land, og svo málið þið húsin ykkar svo skemmtilega...“ Camilla Söderberg er af sænskum ættum en ólst upp i Austurríki og hlaut menntun sína við tónlistarháskólann í Vínarborg. Sem stendur stundar hún framhaldsnám í hinum víðfræga Schola Cantorum. Snorri Örn- Snorrason er Reyk- víkingur, sonur hjónanna Snorra Daníels Halldórssonar og Sigurástar Sigurðardóttur. Talía. Leiklistarsvið Menntaskólans við Sund> Stundum (bannað) og stundum * ekki eftir Arnold og Bach. Þýðingi Emil Thoroddsen. Forleikuri Jón Hjartarson Leikstjóri Gísli Rúnar Jónsson. Sýningar í Breiðholtsskóla. Arnold og Bach hafa löngum stytt Islendingum stundir. Sig- urganga þeirra hér á landi hófst upp úr miðjum þriðja áratug með Spanskflugunni sem Indriði Waage leikstýrði. Leikritið eins og Karlinn í kassanum, Húrra krakki, Saklausi svallarinn og Orrustan á Hálogalandi eru mörgum kunn og þá ekki síst Stundum og stundum ekki sem Talíumenn nefna Stundum (bannað) og stundum ekki. Emil Thoroddsen þýddi og staðfærði flesta leiki þeirra Arnolds og Bachs. Brosleg saga um afskipti lögreglu.vfirvalda af Stundum og stundum ekki er rifjuð upp í Leikhópur Menntaskolans viö Sund Að hlæ ja í leikhúsi Lelkllst eftir JÓHANN HJÁLMARSSON sýningu Talíu. Leikritið þótti of klúrt á sínum tíma að mati fáeinna áhrifamikilla siðgæðis- varða, en þeir biðu lægri hlut og bann sem sett hafði verið á verkið var upphafið af lögreglu- stjóra. Leikstjórinn segir að ástæðan fyrir því að Stundum og stund- um ekki var valið til sýningar hafi verið „tilraun til að hressa upp á þennan gamla ærslaleik“ sem Guðrún Asmundsdóttir átti frumkvæði að fyrir sex árum, en Jón Hjartarson útfærði. Þetta er forleikur sem gerist í bún- ingsherberginu í Iðnó fyrir frumsýningu og lýsir því hvern- ig leikurum og leikstjóra er innanbrjósts. Að mínu viti gerir þessi forleikur ekki annað en lengja sýninguna sem er alltof löng, auk þess er hann algjör- lega laus við fyndni og heldur dapurlegur af þeim sökum. Ærslaleikur þeirra Arnolds og Bachs sem er skemmtilega. staðfærður af Emil Thoroddsen hefur einkum gildi fyrir það að hann er heimild um hvernig farið var að því að fá fólk til að hlæja í leikhúsi hér áður fyrr. Leikstjórinn talar um „maka- lausa leikni þeira í að rugla atburðarásina fram og til baka og byggja á endalausum mis- skilningi innan ramma hinnar klassísku farsaformúlu“. Spurn- ingin er sú hvort þeir Arnold og Bach hafi ekki átt sinn þátt í að móta leiklistarsmekk Islend- inga, að minnsta kosti gerðu jteir sig ekki seka um „að brjóta nein stór vandamál til mergjar né heldur að upplýsa okkur um eitthvað sem við ekki vissum áður“, svo að enn sé stuðst við orð leikstjórans. í stundum (bannað) og stund- um ekki er skopast að skinhelgi embættismanna stjórnarráðsins og léttlyndum eiginkonum þeirra. Framhjáhald og frama- girni eru vinsælt efni í ærsla- leik. Á sumarhótelinu að Vatna- laugum gista háir og lágir og allir í sama tilgangi. Þangað fara menn með ástkonur sínar og viðhöld og auðvitað verður ekki hjá því komist að þeir hittist sem síst skyldi. Hjón geta til dæmis verið stödd á hótelinu samtímis án þess að vita hvort af öðru. Um leikinn er það að segja að þótt hann sé ekki alltaf upp á marga fiska er þetta að mörgu leyti athyglisverð skólasýning. Leikararnir skemmta sjálfum sér og öðrum og er það ekki fyrir mestu þegar um áhugamanna- sýningu er að ræða. Ég ætla ekki að birta nafnarunu að þessu sinni, en þess skal getið að ég er illa svikinn ef nokkrir þeirra sem fram komu eru ekki gæddir góðum leikhæfileikum. Framsögn sumra var ábótavant eins og skiljanlegt er. / hundruð milljónum á ári — fyrstu árin. En ffestar greinar iðnaðar mundu vaxa írá þörfinni fyrir beinan stuðning á skömmum tíma — sem ólíklegt er að landbúnaður geri — enda þótt heimamarkaður- inn sé algerlega verndaður honum til handa — sem sjáifsagt er að gera. Samkeppnisstaða til útflutnings landbúnaðarvara hlýtur að verða mjög erfið á næstu árum. Iðnaður nýtur óvíða mikilla styrkja. Þess vegna er aðstaða þar öll betri til samkeppni. Okkur íslendingum ber að verja þann iðnað, sem við þegar höfum, með ráðum og dáð — og byggja upp nýjan eftir því sem heildarþarfir krefja. Það, ásamt skipulagningu fiskveiðanna — er eitt af undirstöðunum undir hag- sældarhöll framtíðarinnar, sem standa skal á traustum grunni. Hér er um að ræða langtíma skipulagsmál, sem leggja þarf alúð við. Slíkt starf verður ekki unnið sem hjáverk með öðrum krefjandi störfum. Stationgerðirnar af Citroén GS og CX flytja fólk og vörur jöfnum höndum. Og það er nóg rými. Auk þess fer vel um það scm flytja skal. Hvort sem það er brothætt gler, múrsteinar eða manneskjur. Citroén tæknin sér um það: Vökvafjöðrun, snjall tæknibúnaður, sem CITROEr byggir þó á einföldu lögmáli. Hæðar og hleðslujafnari, sem tryggir alltaf jafna hæð undir bílnum, óhúð hleðslu. Þrjár mismunandi hæðarstillingar. Straumlínulögun sem eykur á þaulhugsaðan hátt aksturseiginleikarra, einkum þegar veður versnar eða hraðinn vex. Auk þess er spameytnin rómuð. Endingin einnig, því opinberar sænskar kannanir sýna að Citroén bílar eru með þeim endingarbestu þar í landi. í Citroén bílnum fer því svo sannarlega saman þægindi og hagkvæmni. CITROEN * CX Komið og reynsluakið — það er raunhæfast Globusa SÍMI81555 CITROEN* ✓

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.