Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 09.07.1978, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ 1978 35 Áttræður á morgun: Sigurður Jóhannes- son fyrrum forstjóri Hann á afmæli á mánudaginn, 10. júlí og heitir Sigurður Jóhannesson, fyrrum forstjóri Gúmmíbarðans. Við hittumst fyrst fyrir aldar- þriðjungi á erlendri grundu, meira að segja á bannsvæði verksmiðju í Wembley. Þar mætti ég til vinnu í galla merktum verksmiðjunni, en strangir hliðarverðir í einkennis- klæðum Hans hátignar heimtuðu daglega, að ég sannaði tilverurétt minn með nafnskírteini. Sigurður var þá búinn að týna skírteini sínu. Honum gerði það ekki mikið til. Hann stikaði inn um hliðið, sviphrein kempa, en dátarnir lyppuðust niður, þegar slíkur fyrirmaður blikkaði til þeirra góðlátlegum, greindarlegum aug- um. Þannig sé ég hann ennþá fyrir mér, þótt hann hljóti að hafa látið á sjá síðan. A sameiginlegum starfsvettvangi hittumst viö reglu- lega um áratug, én leiðir hlaut að skilja. Þess vegna eru ummæli mín í þátíð eins og um minningargrein væri að ræða. Sigurður var góður þegn tveggja ríkja en varhugaverður borgari þriðja ríkisins, þótt hann virtist vera óþarflega ákafur stuðnings- maður þess á köflum, miklu kappsamari í hollustu við það en við tvö fyrstnefndu ríkin. Látum oss rökstyðja þetta nánar um leið og vér skírgreinum hugtökin. Hin tvö fyrri ríki eru guðsríki og Lýðveldið Island. í krafti embættis míns get ég staðfest hollustu hans við hið fyrrnefnda: Sigurður var drengur góður, með hjartað á réttum stað. Hann hafði lifandi áhuga á eilífðarmálum en flíkaði ekki trúmennsku sinni við málstað hins áðurnefnda ríkis. Kímnigáfa hans bar fjálgleikann oftast ofur- liði. Hann sýndi mikinn þegnskap í garð annars ríkis, í garð ættjarðarinnar. Hann hefur skráð nafn sitt í sögu íslenzks iðnaðar. Hann var farsæll forstjóri þjóð- þrifafyrirtækis, sem fyrst fór að sóla hjólbarða hér á landi. Hann var þar með í fylkingu þeirra, sem reyndu að nýta innfluttar vörur til fulls og að spara þar með hinn dýrmæta gjaldeyri. Á tímum þegar auðgunarglæpir eru algengir, og margir reyna að svíkja undan skatti, er það í frásögur færandi, að hann marg- oft og af mjög svo fúsum vilja styrkti ríkissjóðinn með gífurleg- um skatti, sem heimtur var á útsölustöðum verzlunar á vegum ríkisins númer tvö, íslenzka ríkis- ins. Þar með nálgumst vér það að nefna til sögunnar þriðja ríkið. Þriðja ríkið er miskunnarlaust einræðisríki. I grimmd og tillits- leysi gefur það sízt eftir Þriðja ríkinu nýlegrar mannkynssögu. Það er ekki kennt við Adolf heitinn heldur við konung með Gera samanburð á vöruverði hér heima og á Norðurlöndunum VERÐLAGSSKRIFSTOFAN hef- ur á síðustu árum farið inn á þá braut að gera samanburð á vöruverði eríendis og hér heima. Til þessa hefur skrifstofan að mestu leyti unnið ein að þessum athugunum en nú hefur sú breyting orðið á, að tekið hefur verið upp formlegt samstarf á milli Danmerkur, Finnlands, ís- iands, Noregs og Svíþjóðar um gerð verðkannana. Fyrsta könnunin stendur nú yfir, eri litið er á hana sem reynslukönnun, að sögn Georgs Ólafssonar verðlagsstjóra. í henni er gerður samanburður á inn- kaupsverði 40—50 vörutegunda, sem fluttar eru inn til allra fimm landanna. Með þessu er verið að gera tilraun til að sannreyna, hvort þessar fimm norrænu þjóðir sæti mismunandi kjörum við innkaup á sömu vörum, eins og 'ýmsir hafa haldið fram. Reynist svo vera er ætlunin að kanna Verkstæði okkar verður iokaö vegna sumarleyfa frá 10. júlí til 8. ágúst. síðar, hvaða ástæður liggja þar að baki. Sjálf verðupptakan fór fram samtímis í öllum löndunum á tímabilinu 20. júní — 7. júlí. Öll gögn verða send til Osló þar sem úrvinnsla fer fram, en niðurstöður munu liggja fyrir í haust. Sam- komulag varð á milli þjóðanna fimm að gera opinberlega grein fyrir heildarniðurstöðum þegar þær liggja fyrir ef tilefni gefst til en að fara með upplýsingar um einstakar vörutegundir sem trúnaðarmál. „Könnun þessi er eins og áður segir reynslukönnun og því má gera ráð fyrir nokkrum byrjunar- örðugleikum sem kunna að tak- marka eitthvað gildi niðurstaða, en ætlunin er að halda þessu samstarfi áfram og teljum við að það samstarf komi ekki hvað sízt okkur íslendingum að góðu gagni," sagði Georg Ólafsson í samtali við Mbl. í gær. latnesku nafni; það leggur ekki undir sig ríki og lönd heldur einstaklinga. Einhliða hlutleysis- yfirlýsing kemur að litlu gagni til að endurheimta frelsið. Þá þarf að skipuleggja andófið af ráðnum hug og láta ekkert tækifæri ónotað til að losna undan þrældómsokinu, enda hafði Sigurður sterkan vilja og lét ekki buga sig, þótt hann biði ósigur hvað eftir annað. Hann var oft endurreistur á stúkufundum, naut skilnings og uppörvunar hjá Ingibjörgu konu sinni, leitaði aðstoðar í andaheimi sem og í lyfjatöfrum frægs læknis, M.S. Mesta sigra- vann hann í samtök- um andófsmanna, sem kenna sig við tvöfaldan fyrsta bókstal' staf- rófsins. Þar reyndist hann hjálparhella mörgum þjáninga- bróður. I andstöðu við þriðja ríkið varð hann enn betri þegn fyrsta ríkis og annars. Á stórafmæli uppreisnarmanns- ins árna ég honum heilla og óbilandi baráttukjarks. Sigurður er að heiman. Kári Valsson, sóknarprestur í Hrísey. E Ol AF HVERJU ERU TVÆR HULSUR Á TORGRIP MÚRBOLTANUM FRÁ VIÐUÆLANDI: B.B. byggingavörur h.f. Suðurlandsbraut 4 Sími 33331 „Spyrja viðskiptavinir þínir ekki iðulega um at hverju séu tvær hulsur á TOR- GRIP múrboltanum frá 'DlXIsEflEasKS?" „Jú, en það er yfirleitt öllum Ijóst að þessar tvær hulsur gefa helmingi meiri festingu en aðrir boltar og þeir virðast hafa meiri togkraft. Og samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum sem ég sýni ávallt viðsklptavinum, þá eru boltarnir hannaðir með togþolið í huga og efnið sem notað er í framleiðsluna er gott. Nú, verkfræðingar sem hingað koma til inn- Fæst í flestum ybyggingavöruverzlunum kaupa sýna þessum boltum mikinn áhuga og sérstaklega þegar þeir lesa um niðurstöður um álagsprófanir WíEESSIíES boltanna." „Hvernig er það, koma þeir sem byrja á að kaupaHUamÉuEKS boltana yflrleitt aftur?“ ,Já, þeir koma reglulega aftur.“ JQHAN 51 Sundaborg %/fff/ wSNNNG HF. Sfml: 84000 - Reykjavfk Viö bjóöum úrval af hinum þekktu Yamaha utanborösmótorum á góðu verði og meö góðum greiðsluskilmál- um. 7 stæröir eru fáanlegar 3.5, 5, 8, 9.5, 28, 40 og 55 hestafla. Geriö góö kaup, því aö næstu sendingar hækka í verði. BÍLABORG HF. SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 81265.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.