Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.08.1978, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. ÁGÚST 1978 Jón fyrslur tíl þess að hlaupa 800 metra undir 1,50.0 mín. Frá Ágústi Ásgeirssyni, blaö^manrti Mbl. í Piteá í Svíþjóð miövikudaginn 2. ágúst: „ÉG ÁTTI alveg von á pví að setja met í pessu hlaupi. Mér varð Dað Ijóst eftir fyrri hringinn að metið myndi fjúka pví hann var hraður og góður,“ sagði Jón Diðriksson, Borgfirðingurinn hávaxni, í viðtali við Morgunblaðiö í Piteá í gærkvöldi en par setti Jón nýtt glæsilegt íslandsmet í 800 metra hlaupi, hljóp á 1,49,3 sekúndum og bætti met Þorsteins Þorsteinssonar frá 1967 um 8 sekúndubrot. Jón jafnaði pað met fyrr í sumar á móti í Þýzkalandi. Jón keppti í Piteá ásamt félög- um sínum í landsliöi íslands, sem tóku þátt í Kalottkeppninni um helgina. Mótiö í Piteá var víglsu- mót nýs glæsilegs íþróttavallar en hlaupabrautirnar eru lagöar sama efni og er á nýja frjálsíþróttavellin- um í Laugardal, sem vígöur verður í næstu viku. íslenzku keppendurnir voru mjög atkvæðamiklir á mótinu í Piteá. Jón sigraöi meö miklum yfirburðum í sinni grein en Ágúst Ásgeirsson varð númer 2 á 1,54,2 mínútum, í fjóröa sæti var Haf- steinn Óskarsson 1,54,4 mínútum. Stórbætti Hafsteinn sinn fyrri árangur en hann átti bezt áöur 1.56.9 mínútur. Árangur Hafsteins er merkilegur fyrir þá sök aö hann l hljóp erfitt hindrunarhalup í Kalott- keppninni aöeins tveimur dögum áður. Þá hljóp Þráinn Hafsteinsson í B-riöli 800 metra hlaupsins og varö fjóröi á persónulegu meti, 1.59.9 mínútum. HREINN KASTADI 20,30 METRA Hreinn Halldórsson kastaöi 20,30 metra í kúluvarpi. Hann sigraöi aö sjálfsögöu og setti nýtt vallarmet. „Eg er tiltölulega ánægður með árangur minn í kvöld. Þetta er mitt bezta kast í ár og þetta stefnir allt í rétta átt hjá mér,“ sagöi Hreinn eftir keppnina í viötali við Mbl. Óskar Jakobsson varö þriðji í kúluvapinu, kastaöi 18,38 metra, sem er hans næst bezti árangur. María Guönadóttir vippaöi sér yfir 1,71 metra í hástökki og sigraöi og setti auk þess persónulegt met. Lilja Guðmundsdóttir haföi um- talsveröa yfirburði í 800 metra hlaupi kvenna og vann á 2,11,2 mínútum. í 2.—3. sæti uröu Guörun Sveinsdóttir og Guörún Árnadóttir báöar á persónulegum metum, Guðrún Sveinsdóttir hljóp á 2,19,8 mínútum og Guörún Árnadóttir á 2.20,2 mínútum. Thelma Björnsdóttir sigraöi örugg- lega í B-riðli 800 metra hlaups kvenna á 2,23,5 mínútum, sem er nýtt persónulegt met. GUORÚN AO NÁ SÉR Á*STRIK Guðrún Ingólfsdóttir sigraöi af öryggi í kúluvarpi, kastaöi 12,31 metra, eöa metra lengra en í Kalott-keppninni. „Ég er útkeyrður eftir hlaupin tvö í Kalottkeppninni. Ég þarf nokkra daga til þess að ná mér eftir þetta allt saman og því er ég hissa á því hve góöum tíma ég náöi í 200 metra hlaupinu í kvöld,“ sagði Vilmundur Vilhjálmsson, sem varö annar í hlaupinu á 21,73 sekúndum. Einar Vilhjálmsson varö þriðji í spjótkasti, kastaöi 66,66 metra. Lára Sveinsdóttir sigraöi í 200 metra hlaupi kvenna á 25,64 sekúndum, í ööru sæti varð Sigrún systir hennar á 26,64 sekúndum og í þriöja sæti María Guðjohnsen á 26,86 sekúndum. íris Grönfeldt sigraöi í langstökki 16 ára og yngri, stökk 5 metra slétta. Elías Sveins- son tók þátt í 110 metra grinda- hlaupi og sigraði á 15,74 sekúnd- um. Guðmundur Jóhannesson og Elías tóku þátt í stangarstökki og urðu í 2.-3. sæti stukku báöir 4 metra slétta. Loks tóku þeir Guðmundur R. Guömundsson og Stefán Friöleifsson þátt í hástökki og stukku 1,90 metra. • Jón Diðriksson (l.h.) fagnar sigri (800 mslra hlaupi Kalottkeppninn- ar í Umeá. Með honum er Gunnar Páll Jóakimsson, sem varð annar í hlaupinu. Á að geta enn betur" ## — sagði Jón Diðriksson í samtali við Mbl. „JA, ég tel mig geta gert betur í 800 metrunum, og einnig í 1500 metrunum, Þar á ég vafalaust eftir að bæta mig um 3—4 sekúndur. Þjálfarinn minn Gordon Surtees hefur miðað undirbúninginn í vor við 1500 metra hlaupið fyrst og fremst," mælti hlauparinn ágæti Jón Diðriksson í viðtali við Mbl. í Piteá í gær, skömmu eftir að hann hafði sett nýtt íslandsmet í 800 metra hlaupinu, 1,49,3 mínútur. Jón er vel aö þessu nýja meti kominn. Hann jafnaöi fyrir réttum mánuöi gamla islandsmetið í greininni, sem Þorsteinn Þor- steinsson setti 1967, 1,50,1 minúta. Jón jafnaöi metið á móti í Troisdorf í Þýzkalandi. Þá var Jón seilingarfjarlægö frá íslandsmetinu í fyrra er hann hljóp á 1,50,5 mínútum í Kassel í V-Þýzkalandí og 1,50,9 mínútum í Kalottkeppn- inni í Sotkamo í Finnlandi. Loks hljóp Jón á 1,51,0 í Umeá á sunnudag. Athyglisvert er aö Jón sigraöi í öllum þessum hlaupum aö undanskildu hlaupinu í Troisdorf og má því fastlega gera ráö fyrir aö hann eigi eftir aö bæta árangur sinn. ÁTTI VON Á METI „Ég átti von á því aö setja met í kvöld. Þaö var ásetningur minn aö það fyki og eftir að fyrri hringurinn var þetta hraður og góöur var mér Ijóst aö metið yröi mitt. Aöstaðan hér var fullkomin, góö braut, logn og Vilmundur teymdi mig vel fyrstu 500 metrana (Vilmundur var „héri“ í hlaupinu og hætti eftir 500 metra). Mig vantaöi aðeins menn með mér síöustu 300 metrana og þá heföi tíminn kannski oröiö aöeins betri,“ sagöi Jón. Jón sagöi Mbl. aö hann heföi sett sér langtimatakmark á hlaupabrautinni — og stefnir hann mjðg hátt og vonast m.a. til aö geta keppt á Ólympíuleikunum í Moskvu 1980. Hann vonast og til þess aö veröa meðal þátttakenda á Evrópumeistaramótinu í Prag eftir nokkrar vikur og hlýtur árangur Jóns í sumar aö hafa gulltryggt farseðil hans á mótiö. Þar ætti Jón aö fá góða og mikla keppni og hann fær þá væntanlega tækifæri til þess aö stórbæta sig í 800 og 1500 metra hlaupum. Jón tjáöi Mbl. aö hann ætti sér þann draum aö setja met í 1500 metra hlaupi á íslenzkri grund. í 1500 metra hlaupinu á Reykjavfk- urleikunum í næstu viku fær hann góöa keppni og verður fróölegt aö sjá hvort honum tekst þá aö setja met. Æfingu og haröfylgi hefur Jón til þess að setja nýtt íslandsmet, spurningin er aöeins sú hvaö hann bætir metiö mikiö ÆTLAR AÐ BÚA í ÞÝZKALANDI „Til þess aö ná markmiöum mínum verö ég aö dvelja erlendis áriö um kring. Hugmyndin er sú aö fara frá Englandí til Vestur-Þýzka- lands, þar sem aöstaöa og keppni er betri. Maður þarf sjálfur aö bera kostnaöinn af því að dvelja erlend- is og þegar námi sleppir á sumrin bætist viö vinnutap. Maður fær engan styrk vegna þess mikla kostnaöar, sem af íþróttaiökuninni hlýzt að undanskildu því aö samband mitt, UMSB, hefur hjálp- aö mér viö aö greiöa feröakostnaö heiman og heim. Sambandið hefur hjálpað mér viö að ná þeim árangri sem ég hef náö og á ég því mikið aö þakka,“ sagði Jón. Að loknum Reykjavíkurleikunum heldur Jón til Vestur-Þýzkalands þar sem hann tekur þátt í þýzka meistaramótinu, sem fram fer í Köln 11.—13. ágúst. Keppir Jón þar í 800 metra hlaupi viö góöar aðstæður. „Ég stefni aö því að hlaupa vel þar til þess aö veröa sendur á Evrópumeistaramótið," sagöi Jón aö lokum. - égés Ragnar í E vrópuúrvalið í golf i EINS og frá hefur verið skýrt var Ragnar ólafsson valinn í úrvalslið Evrópu í unglingaflokki fyrir frammistöðu sína í EM á Spáni fyrir nokkrum dög- um. Liðið skipa ellefu menn og það lcikur gegn Bretlandi 1 Englandi í næstu'viku. Liðið er þann- ig skipaði Acutes, Italía. Bernardo, Spánn. Farry, Frakkland. Gabarda, Spánn. Gayon, Frakkland. Nilson, Svíþjóð. Perreau, Frakkland. Planchine, Frakkland. Ragnar Ólafsson, ísland. Sellberg, Svíþjóð. 2. Canessa, Ítalía 149 7. Boillate, Sviss 152 Vidaor, Spánn. 3. Bernando, Spánn 149 8. Jakobsen, Danmörk 153 Arangur í einstaklingskeppn- 4. Antevik, Svíþjóð 150 9. Vidaor, Spánn 153 ínni: Högg: 5. Durante, Ítalía 151 10. Tinning, Danmörk 153 1. Mayoral, Spánn 149 6. Ragnar Ólafss., ísl. 151 11. Fossbrand, Svíþjóð 153 • Ruben Sune, fyrirliöi Boca hamp- ar Suöur-Ameríkubikarnum. Nú er heimsbikarinn kominn í safn Boca og Þetta undirstrikar sterka stööu argentískrar knattspyrnu í dag. Boca meistari ARGENTÍSKA liðið Boca Juniors varð heimsmeistari félagsliða 1978, en árlega keppa meistaralið Evrópu og Suður-Ameríku um þessa nafnbót. Fulltrúi Evrópu var að þessu sinni þýzka liðið Borussia Mönchengladbach en Liverpool, núverandi Evrópumeistari hafði ekki áhuga á þátttöku. Liðin léku tvo leiki, jafntefli varð í Argentínu 2:2 en Boca Juniors sigraði Borussia í Þýzkalandi í fyrrakvöld 3:0.1 þýzka liðið vantaði nokkra af máttarstólpum fyrri ára, svo sem Heynckes, Wimmer og Wittkamp, sem allir eru hættir knattspyrnu- iðkun og Bonhof, sem seldur hefur verið til Valencia á Spáni. Mc Lintock til QPR? TALIÐ er líklegt að Frank McLintock taki við íramkvæmda- stjórn enska 1. deildarliðsins Queens Park Rangers, en Frank Sibley sagði starfinu lausu um helgina. Frank McLintock Iék áður með QPR og þegar hann hætti hjá félaginu tók hann við fram- kvæmdastjórn hjá Leicester. Þar gekk allt á afturfótunum og Leicester féll í vor niður í 2. deild. Hvort sem McLintock eða ein- hver annar tekur við QPR er ljóst að mikil vandamál blasa við hjá félaginu. Líkur eru á því að fyrirliðinn Gerry Francis verði seldur til Manchester City á næstunni og Stan Bowles, helzti markaskorari liðsins hefur oskað eftir því að verða settur á sölulista. Hann neitaði að fara með liðinu í keppnisferð til Hollands nú nýverið. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í frétt Mbl. frá Kalott í gær, að Ása Halldórsdótt- ir var sögð heita Ása Arnþórsdótt- ir. Hafa skal það er sannara reynist og leiðréttist þetta hér með ásamt afsökunarbeiðni til þeirra er hlut eiga að máli. iirnmiinj eNGlaND'; ENGLAND! þ>A vce^aoiel ac> £,0:1 toOom . EUölAwd -'A. MdTi JeSToe. v=c7<z!e>\/etteo-<r-A pesi't Tv* sTésrtcO i_t e> Ezv wee> vi ter. WA i_ K.- Me w m . OoBBY CHakltow, eoQ&f HOOtó, VOOŒJfcT &TÍUBS «,Cx«>VtDOKi BANK3 e.i>ovj l-t&ii-ts. JEsrue E7'->0*IL> VÍMR A#D OElKoV píie Vi-ro Mee> r=A seeurK., CKieaATH S4.HMSJ-VÚtO<*eK. OCa HtlOM - ue-Z=rA FKAMZL gCOC&U BÁOB g.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.