Morgunblaðið - 02.09.1978, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. SEPTEMBER 1978
39
Noróurlönd:
Lusaka, Salisbury, 1. september,
AP, Reuter.
LEIÐTOGAR áhrifamestu
barátturíkja svörtu Afríku
komu í dag saman í Lus-
aka, höfuðborg Sambíu, í
því skyni að hraða áform-
um allra deiluaðila um
friðarráðstefnu í Rhódesíu.
Koma háttsetts embættis-
manns frá Nígeríu til
fundarins hefur kynt undir
vangaveltum manna um að
Nígeríumenn hyggist fá
skæruliðum vopn í baráttu
þeirra gegn bráðabirgða-
stjórninni í Salisbury.
TalsmaÖur Sambíustjórnar
sagði að Henry Adefop hershöfð-
ingi og deildarstjóri í utanríkis-
ráðuneyti Nígeríu hefði boðað
komu sína á föstudagskvöld á mót
forseta Angóla, Sambíu, Tanzaníu,
Botswana og Mosambík ásamt
rhódesísku skæruliðaforingjunum
Nkomo og Mugabe. Ekki eru liðnar
nema þrjár vikur síðan Mugabe,
annar valdamesti foringi Föður-
landsfylkingarinnar, gerði sér
erindi til Nígeríu að beiðast vopna.
Þessi fundur leiðtoganna kemur
í kjölfar fregnar um að Ian Smith
forsætisráðherra Rhódesíu, hafi
fundað á laun með Nkomo í ágúst.
Fréttin hefur gefið byr undir báða
vængi efasemdum um að bráða-
birgðastjórninni í Rhódesíu verði
langra lífdaga auðið. Einnig hefur
hún varpað nýju ljósi á ráðabrugg
á alþjóðavettvangi til lausnar
deilunni, einkum eftir að tals-
mennn ríkisstjórna Breta og
Bandaríkjamanna lýstu yfir í dag
að þeir hefðu vitað fyrirfram um
fund Smiths og Nkomos með
öðrum meðalgöngumönnum. Einn
fulltrúi blökkumanna í bráða-
birgðastjórninni í Salisbury,
Camp David fundurinn:
— ■
Arangursvon
ekki mikil nú
Washington, 1. september,
Reuter
JIMMY Carter Banda-
ríkjaforseti fól háttsettum
embættismönnum í dag að
grunda tillögur sem hann
hygðist leggja fyrir fund-
inn með Menachem Begin
forsætisráðherra ísraels og
Anwar Sadat forseta
Egyptalands í Camp David
í næstu viku. Forsetinn
vonast til að tillögurnar
leysi þann hnút sem nú er
á samningaviðræðum
Egypta og ísraelsmanna,
en ráðgjafar hans álitu þó
að litlar líkur væru á
árangri af fundinum þar
sem ekki væri gert ráð
fyrir neinum meiriháttar
breytingum á þeirri stöðu
sem nú ríkir á umdeildu
svæðunum.
Síðustu fregnir frá Jerúsalem og
Kairó renna stoðum undir þann
grun manna að djúpur ágreiningur
sé enn á milli landanna. Utanríkis-
ráðuneytið í Kairó sagði í dag að
Sadat mundi á fundinum krefjast
algerrar brottfarar ísraelsmanna
af landsvæðum Araba sem tekin
voru í sjö daga stríðinu 1967. Þá
sagði Begin í Jerúsalem í gær-
kvöldi að hann hefði stuðning
tveggja þriðju hluta þings Israels
fyrir því að taka ekki til greina
kröfur um að ísraelsmenn hverfi
af því landi sem þeim áskotnaðist
í stríðinu 1967. Einnig sagðist
hann ekki mundu samþykkja að
bandarískir hermenn tækju sér
stöðu á vesturbakka Jórdan í stað
ísraelskra hermanna til að tryggja
varnir Israels.
Sovétríkin hafa einnig hafnað
þeirri hugmynd og í heild eru
ráðamenn í Kremi andvígir fund-
inum í Camp David, að því er fram
kom í tilkynningu sem Sovétríkin
og Sýrland gáfu í sameiningu út í
dag.
Mótmæla aðskilnað-
Ndabaningi Sithole, lét í það skína
í dag að stjórnin myndi leysast
upp færi einhver félagi hennar til
fundar við málsvara Föðurlands-
fylkingarinnar.
Talsmenn Rhódesíustjórnar
halda áfram að bera til baka
sögusagnir um að áðurnefndur
fundur hafi átt sér stað og svo
hefur Joshua Nkomo gert einnig.
Enn hafa engar yfirlýsingar borizt
frá ráðstefnu þeirri er nú stendur
yfir í Lusaka.
Orðrómur um að Ian Smith forsætisráðherra Rhódesíu hafi skottð" á
fundi í muddum með leiðtoga Föðurlandsfylkingarinnar, Joshua
Nkomo, hafa vakið mönnum ótta um að bráðahirgðastjórnin riði nú
til falls.
Holtz þverneitar
njósnadylgjum
Bonn, 1. september, Reuter, AP.
LÖGREGLA rannsakaði í
dag skrifstofu áhrifamikils
þingmanns í Bonn eftir að
sérstakur þingfundur í
Bonn svipti hann friðhelgi
vegna gruns um að hann
væri viðriðinn njósnir.
Þingmaðurinn, sem um
ræðir, er Uwe Holtz, 34 ára
gamall jafnaðarmaður og í
hópi þeirra sem sótzt hefur
greiðlega leiðin til frama
innan flokksins. Hann kom
fram í vestur-þýzka sjón-
varpinu í gærkvöld og
vísaði á bug öllum dylgjum
um að hann hefði gerzt
sekur um athæfi, sem
skoða mætti sem njósnir.
Ekki leið nema hálf klukkustund
frá því að neðri deild þingsins
samþykkti að veita heimild sína
þar til rannsóknin hófst. Eins og
fram hefur komið í fréttum voru
það ummæli rúmensks flótta-
manns í Bandaríkjunum, Ion
Pacepa, um njósnara í innsta
hring í Vestur-Þýzkalandi, sem
hrundu máli þessu af stað. Dr.
Holtz var ekki nefndur á nafn á
fimm mínútna löngum fundi neðri
deildarinnar, þar sem saman voru
komnir. um 300 þingmenn af 496.
Þingmaðurinn, sem er sagn-
fræðingur að mennt, skýrði frá því
að hann hefði hvergi vogað sér
nærri meðan leitin fór fram. Hann
bætti við að Pacepa væri með
sögusögnum sínum greinilega að
reyna að koma ár sinni fyrir borð
vestanhafs. „Hvað myndi gerast ef
vestur-þýzka öryggisþjónustan
beindi grun að bandarískum full-
trúardeildarþingmanni?" spurði
Holtz.
Tvö meiri háttar njósnahneyksli
hafa dunið yfir í Vestur-Þýzka-
landi á undanförnum árum. Arið
1974 neyddist Willy Brandt kanzl-
ari til að segja af sér er upp komst
að náinn samstarfsmaður hans,
Gúnter Guillaume, væri hand-
bendi Austur-Þjóðverja. I febrúar-
mánuði síðastliðnum sagði varnar-
málaráðherra landsins, Georg
Leber, af sér er aðstoðarriJ,ari í
ráðuneyti hans varð sekur fundinn
um að afhenda kommúnistum
hundruð leyniskjala er lutu að
öryggi landsins. Ekkert hefur
komið fram enn þá, sem bendir til
að mál það, sem nú er í athugun,
sé viðlíka að vöxtum og mál
Guillaumes, en hann hlaut 13 ára
fangelsisvist. Komið hefur fram að
u.þ.b. sex aðrir þingmenn jafn-
aðarmanna liggi undir grun en
enginn þeirra hefur verið til-
greindur.
Heimildir í Búkarest herma að
tólf hátt settir embættismenn í
öryggisverði rúmensku stjórnar-
innar hafi verið teknir höndum
eftir að Paeepa stakk af. Handtök-
urnar munu hafa átt sér stað að
skipun Ceausescus forseta lands-
ins. Herma áreiðanlegar heimildir
að uppnám ríki í öryggisþjóftustu
Rúmena eftir að Pacepa gekk
Bandaríkjamönnum á hönd.
Veður
víöa um heim
Akureyri 8 niskýjaó
Amsterdam 15 rigning
Apena 28 heiðskirt
Barcelona 22 alskýjað
Berlín 15 skýjað
BrUssel 17 rigning
Chicago 27 skýjað
Franklurt 16 rigning
Gen» 15 skýjað
Helsinkí 17 rigning
Jerúsalem 28 léttskýjað
Jóhannesarborg 16 léttskýjaó
Kaupmannahöfn rigning
Lissabon 29 heiðskírt
London 14 skýjað
Los Angeles 29 heiðskírt
Madrid 34 heiðskírt
Malaga 31 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Miami 30 skýjað
Moskva 18 skýjað
New York 21 skýjað
Osló 16 skýjað
París 17 skýjað
Reykjavík 12 skýjað
Rio de Janeiro 31 rigning
Rómaborg 19 heiðskírt
Stokkhólmur 14 rigning
arstefnu S- Afríku
Stokkhólmi — 1. sept.
Á SAMEIGINLEGUM
fundi utanríkisráðherra
Norðurlanda, sem lauk í
gær, var ákveðið, að S Af-
ríkubúum væri skylt að
sýna árituð vegabréf í
náinni framtíð, ef þeir
hygðust ferðast til Norður-
landanna. Fundinn sátu
fyrir hönd íslands þeir
Hörður Helgason skrif-
stofustjóri í utanríkisráðu-
neytinu, Tómas Tómasson
fastafulltrúi íslands hjá
S.Þ. og Ingvi Ingvason
sendiherra íslands í
Stokkhólmi.
Þessi ákvörðun um vegabréfs-
áritun er mótmæli við þeirri
aðskilnaðarstefnu sem viðgengst í
S-Afríku. Finnland hafði áður
riðið á vaðið fyrst Norðurlanda og
krafizt vegabréfsáritunar S-Af-
ríkubúa. Hins vegar er Norður-
landabúum skylt að hafa vega-
bréfsáritun, ef þeir ætla að ferðast
til S-Afríku. Á fundinum var
einnig rætt um að bera undir S.Þ.
aðgerðir um að draga úr öllum
íþróttasamskiptum við S-Afríku
og verður þessi hugmynd einnig
borin undir íþróttasambönd við-
komandi landa.
Vesturþýzki jafnaðarmaðurinn Uwe lloltz, er dómsyfirvöld hafa
grunaðan um njósnir, greiðir atkvæði með því að þinghelgi verði
aflétt, svo rannsaka megi skrifstofu hans í Bonn. Þingið var
sérstaklega kvatt sainan á föstudag til að fjalla um málið.
Erítreumenn hrundu
sóknum Eþíópíuhers
Khartoum, 1. september, Reuter.
TALSMAÐUR uppreisnar-
manna í Erítreu skýrði frá
því í dag að Eþíópíuher
hefði hrakizt til baka yfir
fyrri virkislínu sína eftir
þriggja daga látlausar
stórsóknir gegn
uppreisnarmönnum fyrir
norðan Asmara, höfuðborg
Erítreu. Varð her Eþíópíu
fyrir talsverðu mannfalli
að sögn talsmannsins, en
1500 hermenn hans féllu í
aðgerðunum og um 2000
særðust.
Þá náðu uppreisnarmennirnir
tveimur sovézkum skriðdrekum af
T-54 gerð á sitt vald og eyðilögðu
átta til viðbótar. Einnig féll fjöldi
annarra vopna þeim í skaut.
Talsmaðurinn sagði að Eþíópíuher
hefði sótt fram af miklum þunga
og beint skeytum sínum að útvígj-
um Alþýðufylkingarinnar til frels-
unar Eritreu (EPLF), við veginn
að borginni Keren og nálægum
fjöllum, en borgin er eitt helzta
vígi EPLF. Að því er talsmaðurinn
segir tókst uppreisnarmönnunum í
dag að hrekja herinn aftur til
þeirra stöðva sem sóknirnar hóf-
ust frá á miðvikudag.
Brádabirgðastjóm
Smiths á nástrái?