Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979 Vilja halda sig við 5% kauphækkun 1. marz Efnahagsmálatillögur Framsóknarflokksins: Viðskiptakjaravísitala, vaxtalækkun en verðtryggingu bætt við höfuðstól lána Framsóknarflokkurinn gckk 1' gær cndanlcna frá tillögum sín- um í cfnahaKsmálum. Par er m.a. rætt um að ná vcrðbólKunni niður í 30% á þcssu ári og bcnt á að til þoss að það mej?i takast megi kaupha’kkanir ekki fara yfir 5% 1. marz n.k. Þá vilja framsóknar- mcnn taka upp viðskiptakjara- vísitölu. þar scm niðurxreiðslur <>B óbeinir skattar vcrði teknir út <>k vísitölutímabilið lengt í 6 mánuði. í vaxtamálum vilja framsóknarmcnn lækka vcxti <>k taka upp verðtryBSÍnBU, Scm yrði rciknuð eftir á og bætt við höfuðstólinn áður cn vextir og afbor>;anir eru reiknuð út. cn heimildir verði til að uppfæra bæði eignir og birgðir. Efnahagsmálatillögur Fram- sóknarflokksins eru í fimm megin- flokkum; fjárfestingarmál, ríkis- fjármál, peningamál, kjaramál og verðlagsmál. Varðandi fjárfestingarmál vilja þeir rammaáætlun til fjögurra ára en að framkvæmdin verði bundin til árs í senn og fjárfestingar- áætlun og lánsfjáráætlun lagðar fram og afgreiddar með fjárlögum. Telja framsóknarmenn að fjár- munamyndunin eigi ekki að fara yfir 25% af þjóðartekjum. Þá vilja þeir allsherjarendurskoðun á starfsemi fjárfestingasjóða og útlánareglum með sameiningu og bættan rekstur í huga. Ríkisumsvifin telja framsóknar- menn ekki mega fara yfir 30% af þjóðartekjunum. Framsóknarmenn vilja endur- skoða vinnu- og launamálastefnu með það að markmiði að draga úr yfirvinnu og hækka dagvinnulaun- in. Þeir leggja áherzlu á samráð ríkisvalds og aðila vinnu- markaðarins i kjaramálum og benda á að ýmislegt megi enn gera til að láta félagslegar umbætur koma í stað beinna launahækkana. Frá tillögum Framsóknarflokks- ins í efnahagsmálum var endan- lega gengið á fundi þingflokks, framkvæmdastjórnar og efna- hagsmálanefndar flokksins í gær. Efnahagsmálatillögur Alþýðu- bandalagsins í áttatíu liðum EFNAIIAGSMÁLATILLÖGUR Alþýðubandalagsins í 80 liðum vcrða lagðar fram í ráðherra- nefnd rikisstjórnarinnar í dag, en frá þeim var gengið í gær á samciginlegum fundi þing- flokks, framkvæmdastjórnar og verkalýðsmálaráðs flokksins. Megináherzlan er lögð á at- vinnustefnuna þetta ár og næsta og að draga úr yfirbygg- ingarkostnaði þjóðfélagsins. Leggja Alþýðubandalagsmenn fram áætlanir um stefnuna í sjávarútvegsmálum og almenn- um iðnaði og um endurskoðun ríkisrekstursins og eru þar nefndar til ákveðnar stofnanir. Þá vilja Alþýðubandalagsmenn m.a. láta endurskoða olíudreif- inguna í landinu og vátrygginga- félögin og gera breytingar á innflutningsverzluninni. Þá leggja Alþýðubandalags- menn áherzlu á ítarlegt verð- lagseftirlit, þar sem m.a. er gert ráð fyrir því að almenningi verði veittar miklar upplýsingar um verðlag og vöruval. Varðandi vaxtamálin eru Al- þýðubandalagsmenn fylgjandi lækkandi vöxtum með lækkandi verðbólgu og telja að svo hafi verið um hnútana búið, að verðbólgan eigi að geta verið komin niður fyrir 30% í lok þessa árs. I tillögum Alþýðubandalags- ins er lögð áherzla á ítarlegt samráðskerfi milli ríkisins og samtaka launafólks. Meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur: Hafnar þátttöku full- trúa atvinnulífsins í atvinnumálanefnd MEIKIIILUTI Alþýðubandalags, Aiþýðuflokks og Framsóknar flokks í borgarstjórn Reykjavíkur felldi í gær á fundi borgarstjórnar tillögu sjálfstæðismanna um að fulltrúar atvinnulífsins ættu sæti í atvinnumálancfnd. Verður ncfndin því skipuð fimm mönnum, en ckki níu eins og orðið hefði ef tvcir fulltrúar vcrkalýðsfclaganna í Reykjavík og tveir fulltrúar frá Vinnuvcitcndasambandi íslands hefðu tekið sæti í nefndinni að tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Íítillögu meirihlutans, sem samþykkt var á fundinum í gær, samþykkir borgarstjórn að kjósa fimm manna atvinnu- málanefnd til að vinna að eflingu atvinnulífs í borginni og til þess að annast framkvæmd þeirra verkefna, sem borgar- stjórn, eða borgarráð í umboði hennar, ákveður, að borgin beiti sér fyrir á sviði atvinnumála og ekki eru sérstaklega falin öðrum kjörnum stjórnarnefndum. Jafnframt skulu kosnir jafn- margir varamenn. Borgarstjórn kýs síðan for- mann úr hópi kjörinna nefndar- manna og skal hann vera borgarfulltrúi eða varaborgar- fulltrúi. Borgarhagfræðingur skal vera framkvæmdastjóri at- vinnumálanefndar og sitja fundi hennar með málfrelsi og tillögu- rétti. Borgarverkfræðingur skal eiga þar seturétt með sama hætti. Tæknilegir ráðgjafar nefndarinnar skulu vera, auk borgarverkfræðings og borgar- hagfræðings, hafnarstjóri, raf- magnsstjóri og hitaveitustjóri, eða staðgenglar þeirra. Stofnuð skal sérstök atvinnu- máladeild Reykjavíkurborgar hjá embætti borgarhagfræðings til þess að vinna að verkefnum atvinnumálanefndar. Deildin skal fyrst um sinn aðallega byggja starfsemi sína á þeim starfsmönnum, sem þegar eru starfandi hjá borgarhag- fræðingi. Breytingartillaga borgar- fulltrúa Sjálfstæðisflokksins við upphaf tillögunnar um skipan atvinnumálanefndar var svo- hljóðandi: „Borgarstjórn samþykkir að setja á stofn níu manna at- vinnumálanefnd til að vinna að eflingu atvinnulífs í borginni og til þess að annast framkvæmd þeirra verkefna, sem borgar- stjórn, eða borgarráð í umboði hennar, ákveður að borgin beiti sér fyrir á sviði atvinnumála og ekki eru sérstaklega falin öðrum kjörnum stjórnarnefndum. Borgarstjórn kýs fimm nefndar- menn, tveir skuli tilnefndir af Fulltrúaráði Verkalýðsfélag- anna í Reykjavík og tveir af Vinnuveitendasambandi Is- lands. Jafnmargir varamenn skuli kjörnir á sama hátt.“ í umræðum um málið lýstu tveir borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins, þeir Birgir ís- leifur Gunnarsson og Páll Gísla- son, þeirri skoðun sinni að mjög mikilvægt væri að fulltrúar atvinnulífsins ættu sæti í at- vinnumálanefnd, enda væri þar um að ræða þá aðila er atvinnu- mál snertu mest. Kváðust þeir undrast mjög þá afstöðu meiri- hluta Alþýðubandalags, Alþýðu- flokks og Framsóknarflokks að vilja útiloka þessa aðila frá störfum nefndarinnar. Bátarnir sem saknað er MYNDIRNAR eru af rækjubátunum tvcimur frá Ilúsavik, sem saknað cr. Á efri myndinni er Guðrún ÞH 14. Báturinn er 8 tonn, eikarbátur, smíðaður á Akureyri 1957. Myndina tók Jóhannes Haraldsson. Neðri mvndin cr af Þistli ÞH 88. Báturinn er 7 tonn, eikarbátur. smíðaður á Seyðisfirði 1970. Þá mynd tók Jóhann Helgason. Loðnuveioin tæpar 50 þús. lestir á vetrarvertíðinni: Bezta sólarhrings- veiðin var í gær LOÐNUVEIÐIN s.l. sólarhring var hin mesta á þessari vertíð. Frá miðnætti í fyrrinótt til klukkan 22 í gærkvöldi tilkynntu 27 bátar afla, samtals 18.660 lestir. Loðnuna fengu bátarnir útaf Langanesi cn loðnan virðist vcra að leggja af stað suður með Austfjörðum. Bátarnir landa aflanum á höfnum frá Siglufirði að Reyðarfirði. Gott veður var á miðunum í gærkvöldi og góð veiði. Rúmlcga 50 bátar eru komnir á miðin. Heildaraflinn frá vertíðarbyrjun er orðinn tæpar 50 þúsund lestir. Lcitarskipið Árni Friðriksson er á miðunum flotanum til aðstoðar. Þessir bátar tilkynntu afla í gær: Hilmir 500, Gullberg 590, Kap II 670, Húnaröst 600, Rauðsey 500, Albert 580, Örn 560, Ársæll 470, Gísli Árni 620, Breki 720, Bergur II 510, Sigurður 1350, Jón Kjartans- son 1160, Bjarni Ólafsson 1100, Grindvíkingur 1030, Helga II 530, Skarðsvík 620, Jón Finnsson 600, Hrafn 630, Árni Sigurður 880, Súlan 780, Víkingur 1300, Náttfari 530, Faxi 370, Keflvíkingur 500, ísleifur 450 og Sæberg 530 lestir. Á mánudaginn tilkynntu 13 skip afla, samtals 4110 lestir: Pétur Jónsson 550, Magnús 530, Harpa 400, Gísli Árni 240, Skarðsvík 250, Gígja 280, Keflvíkingur 270, Hilm- ir 400, ísleifur 340, Albert 350, Gullberg 100, Faxi 100 og Börkur 300 lestir. Á miðvikudaginn tilkynntu 24 skip afla, samtals 6960 lestir: Ljósfari 350, Stapavík 550, ísleifur 420, Sæbjörg 500, Keflvíkingur 520, Gígja 550, Seley 370, Pétur Jónsson 670, Hákon 700, Börkur 900, Óskar Halldórsson 370, Hrafn 650, Ársæll 160, Örn 530, Súlan Rafmagnslaust í Hlíðunum RAFMAGNSBILUN varð í há- spennustreng við Elliðaárnar og leiddi það til þess, að mesturhluti Hlíðahverfis og angi af Fossvogi urðu algjörlega rafmagnslausir um tíma í gær. Starfsmenn Rafmagnsveitunnar tjáðu þó Mbl. á 12. tímanum í gærkvöldi, að vonast væri til að rafmagn yrði komið aftur á allt svæðið um eitt leytið í nótt. 640, Náttfari 620, Helga II 470, Magnús 530, Harpa 620, Loftur Baldvinsson 750, Guðmundur 900 og Jón Finnsson 580 lestir. Fasteignamatið: Einbýlis- og raðhús hækkuðu um 50% til 90% FASTEIGNAMAT einbýlis- og raðhúsa hækkaði nú milli ára um 50 til 90%. Þetta kom fram á blaðamannafundi hjá fasteignamati ríkisins í gær. Mcðaltalshækkunin miðað við vcrðlag var 42%, en sé tekið tillit til sérstakrar hækkunar eins og á einbýlis- og rað- húsum hækkar heildarmatið milli ára um 49,6%. Ástæður fyrir því, að fasteignamat á einbýlis- og raðhúsum hækkar svo mjög umfram aðrar fasteignir, er að í ljós hefur komið að hækkun slíkra eigna var vanmetin í fyrra og hækkuðu þá þessar fasteignir of lítið. Þá er aukning á fasteignamati einnig meiri nú, þar sem í fyrsta skipti kemur nú inn mat á húsum í byggingu. Því er aukning á nýju húsnæði í fasteignamatsskrám nú óeðlilega mikil miðað við önnur ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.