Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.01.1979, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1979. MfP MORÖJN/- KAFFINU GRANI GÖSLARI I stað Kullúrsins, sem við ætlum að gefa þér þegar þú lætur af störfum eftir 35 ár, hefur verið ákveðið að gefa þér nú þegar vekjaraklukku! Brögð í tafli Tilefni skrifa þessa er ferð sem 48 manna hópur frá Vestmanna- eyjum fór í september 1978 á vegum ferðaskrifstofunnar Sam- vinnuferða til Spánar. Oskáð var eftir tilboðum frá ferðaskrifstofum og bárust tvö með 60 þúsund króna verðmismun. Hópurinn tók dýrara tilboðinu einkum vegna slæmrar reynslu af lélegum hótelum. Hefst nú þáttur ferðaskrifstofunnar í þessu máli. Sölumaður á vegum hennar kom til Eyja til að selja ferðirnar og auðvitað á Santa Clara (hjálögð kvittun). Er út kom voru allir í góðu skapi og hlökkuðu mjög til að sjá hótelið er við áttum að vera á, en mikil urðu vonbrigði manna er það var augum litið og ekki minnkuðu þau er inn kom. Hótelið hét ekki Santa Clara heldur allt öðru nafni og var 2ja stjörnu. Það líktist heldur verbúðum í saman- burði við Santa Clara og er maður sá íbúana hélt maður sig vera á dvalarheimili fyrir aldraða Breta á Spáni. Var nú skotið á ráðstefnu og fararstjórar Samvinnuferða á Spáni spurðir hvað ylli. Sögðu þeir að við hefðum aldrei átt að vera á Santa Clara og væri búið að vera fullt þar í allt sumar og yrði fram eftir hausti. Það sem þeir gætu boðið væri hálft fæði í sárabót vegna óþæginda þeirra er við urðum fyrir og vonbrigða. Hópur- inn samþykkti þetta en þó með þeim fyrirvara að þetta kæmi ekki sem greiðsla upp í verðmismun hótelanna og samþykktu farar- stjórarnir úti það en því miður var það munnlegt en ekki skriflegt. Þarf varla að orðlengja hvaða áhrif þetta hafði á ferð þessa. Treystir þú sjálfum þér fullkomlega til að ráða við þetta? Tungl í hvirfli er ekki sjald- gæft fyrirbrigði þegar menn eru komnir á þinn aldur. BRIDGE Umsjón: Páll Bergsson Eins og oft kemur fyrir urðu sagnir andstæðinga spilaranum leiðarljós í spili dagsins. En í rauninni skiptu þær ekki megin- máli því skipting láglitanna var í öllu falli forsenda vinnings. Norður gaf, allir utan hættu. Norður S. Á10542 H. 86 T. 532 L. Á93 Vestur S. - H. 43 T. DG1098 L. DG10852 Austur S. KD3 H. DG109752 T. 76 L. K Suður S. G9876 H. ÁK T. ÁK4 L. 764 COSPER Viltu ekki bara borga honum 100-kallinn sem þú skuldar honum fyrir vínarbrauðin? Norður Austur Suður Vcstur — 1 hjarta Dobl 2 laul 3 spaðar 4 hjörtu 4 spaðar allir pass. Norður lá ekki á liði sínu þegar hann með stökksögn sinni hvatti suður til að segja gameið. En austur hefur sjálfsagt vonast eftir kraftaverki, þegar hann sagði fjögur hjörtu. Gegn spöðunum fjórum spilaði vestur út tíguldrottningu. Sagn- hafi tók slaginn og spilaði lágum spaða. Lauf frá vestri og ljóst var, að austur fengi tvo trompslagi. I upphafi höfðu gjafaslagirnir virst vera fjórir og hafði nú fjölgað um einn. Svo góð ráð virtust dýr. En eftir að hafa gluggað í hönd austurs var sagnhafi öruggur með sig. Hann hlaut að hafa átt sjö hjörtu fyrir sagnir sín^r og þrílitur í spaða þýddi, að eftir voru þrjú spil í láglitunum og sennilega var eitt þeirra lauf. Að þessu athuguðu tók sagnhafi á spaðaásinn, hjartaslagina báða, tígulás, síðan laufás og spilaði spaða. Austur var þá fastur inni og átti ekki öruggt útspil. Hann tók spaðaslagina tvo og varð síðan að spila hjarta en fékk þann slaginn sér til undrunar. En sagnhafi lét lauf af hendinni og tígul frá borðinu. Aftur varð austur að spila hjarta og suður lét síðari tapslaginn í laufinu, tromp- aði í borði og tók slagina, sem eftir voru, með víxltrompun. „Fjólur — nim ljúfa“ Framhaldssaga e'ftir Else Fischer Jóhanna Kristjónsdóttir pýddi 37 — Nú er spurningin bata sú, hvort hann hefur i í virkileik- anum ekki verið hér. Samtal mitt við lögregiuna í Árósum veitti mér nefnilega ýmsar gagnlegar upplýsingar, sem óneitanlega koma spánskt fyr- ir. Einar Einarsen var frakka- laus og kladdur í gráyrjóttan tvfdjakka. en krufningin leiðir hvorki meira né minna en það í ljós, að hann hafði verið dáinn í átta klukkutíma þegar hann fannst. Lögreglan segir hrein- lega að það sé óhugsandi að hann hafi verið þarna í átta tíma án þess að bílnum yrði vcitt athygli. Hann fannst rétt við þjóðvcginn klukkan tvö um nótt og cnginn fær mig til þess að trúa því, að hann hafi legið þarna frá klukkan sex til tvö... — Nei, þetta er ómögulegt, byrjaði Herman frændi og reis upp. Svo settist hann snögglega og blíndi inn í eldinn. — Ég held ... ég held að þér séuð á villigöyum ef þér haldið... ég á við... það bendir margt til þess að fullur maður hafi slegið fröken Sus- anne niður, byrjaði Holm lækn- ir. — Auðvitað getur vel verið að það hafi verið fullur maður sem fröken Wainberg rakst á, svaraði Bernild alvarlegur í bragði. — En ég finn mig tilneyddan til að kanna þetta mál betur. Það eru í því of margir óræðir þættir og lausir endar. Rauðamöl í hársverði, gráyrjóttur jakki... mcira að segja tíminn passar við and- látsstund Einarsen sem líkleg- ust verður talin ... — bér eigið sem sagt við að hann hafi lent í umíerðarslys- inu hér í grenndinni... og svo.. og hvað svo... bað var Martin. — Já, hvað svo? bað þætti mér ciginlega fróðlegt að vita, sagð Bernild lögregluforingi. — En nú iátum við rannsaka þennan rauða sand. — Já, en, stundi Magna frænka. — betta er alveg óhugsandi. — Ekki alveg, svaraði Bern- ild. — Á hinn bóginn er óhugsandi að hann geti hafa verið á keyrslu í grcnnd við Árósa klukkan tvö því að þá hafði hann verið látinn í marga klukkutíma og það er jafn óhugsandi að bíliinn hans hafi legið í skurðinum í marga klukkutíma án þess eftir hon- um væri tekið. 9. kafli bað huðust ekki miklir möguleikar á tveggja manna tali á Eikarmosabæ á næstu klukkutímum. JBernild lög- rcgluforingi kom sér makinda- loga fyrir með bækistöð sína i bókaherbcrginu og þaðan var hvatt á vettvang lið liigreglu- manna frá Álaborg. Sumir fengu skipanir um að fara og skoða skógarstíginn, aðrir að safna rauðum sandi og íara með hann í greiningu til Árósa og enn aðrir voru beðnir að fara um nágrennið og spyrjast kurteislega fyrir hvort einhver hefði séð dökkan Mercedes daginn áður. — Ef Susanne hefði bara ekki farið að röíla um fulla menn og árás. Gitta grýtti illskulega viðar- bút á eldinn og leit reiðilga í kringum sig. — Já, en ég sagði það strax, svo að ég fékk engu breytt um það. Ég sé heldur ckki hvaða máli það skiptir, svaraði Sus- anne. — bað skiptir heldur ekki nokkru máli, sagði Martin róandi. — Ekki nema við erum öll rekin út úr okkar eigin stofu. tautaði Herman frændi og horfði fýlulega í kringum sig. — Svona, svona Ilerman minn ... það varst þú sjálfur, sem bauðst honum að nota bókasafnið. Og það er víst nóg pláss fyrir það. — Ef þeir halda að Einar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.