Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 3 Geir Hallgrímsson um tillögu sjálfstœðismanna: Kjósendur eiga að fá tækifœri til að kveða upp sinn dóm — og skera úr ágreiningi milli stjórnarflokka og stjórnarandstöðu „VIÐ erum reiðubúnir til þess að hefja kosningabaráttu, þegar kosningar hafa verið ákveðnar. Undirbúningur að landsfundi Sjálfstæðisflokksins er í fullum gangi og m.a. er þar unnið að frágangi tillagna um stefnu- ályktanir í einstaka máiaflokk- um.“ sagði Geir Hallgrfmsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið í gær, en þá höfðu allir þingmenn flokksins lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um þingrof og nýjar kosningar. „Hitt er annað mál,“ sagði Geir Hallgrímsson ennfremur „að engu verður spáð um afdrif þess- arar þingsályktunartillögu og vera má, að enn sem fyrr verði dagsetningu skotið á frest af hálfu núverandi stjórnarþing- manna og enginn nýtileg efna- hagsstefna sjái dagsins ljós.“ „Við teljum stefnu- og stjórn- leysi núverandi ríkisstjórnar- flokka með þeim eindæmum," sagði formaður Sjálfstæðisflokks- ins, „og hafa þann voða í för með sér, að nauðsynlegt sé að gefa kjósendum kost á að greiða at- kvæði, annars vegar um vanefndir ríkisstjórnarflokkanna á kosn- ingaloforðum sínum og ennfremur að þeir kveði upp sinn dóm um aðgerðar- og stefnuleysi ríkis- stjórnar í efnahagsmálum, en þegar hún hóf störf, ætluðu flokk- arnir að marka stefnu í efnahags- málum til lengri tíma.“ Geir Hallgrímsson kvað sjálf- stæðismenn hafa viljað gefa stjórninni góðan starfsfrið. Þessir flokkar hefðu haft 2 mánuði áður en stjórnin var mynduð og 6 mánuði eftir að hún tók við völdum til þess að marka stefnu í efnahagsmálum og öðrum mála- flokkum eða samtals 8 mánuði. „En ekkert hefur séð dagsins ljós, annað en bráðabirgðaúrræði," sagði Geir Hallgrímsson, og bætti við: „Þetta hafa verið bráða- birgðaúrræði á bráðabirgðaúrræði ofan, hver dagsetningin á fætur annarri, sem miðað hefur verið við af stjúrnarflokkunum sjálfum, hefur liðið án þess að nokkuð gerðist, sem gagn væri í. Bráða- bírgðaúrræðin hafa yfirleitt aukið á vandann og stór þáttur þeirra hefur verið meiri skattheimta en dæmi eru til, aukin ríkisíhlutun og ráðagerðir eru nú uppi í frum- varpi Ólafs Jóhannessonar um að fram fari eignakönnun, en um það ákvæði eitt sýnist vera samstaða milli stjórnarflokkanna." Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði, að þegar þróun mála hefði orðið sú, sem raun bæri vitni, þá væri eðlilegt að álykta sem svo að verulegur hluti kjósenda hefði ekki ætlazt til þess, að mál þróuð- ust eins og orðið hefði. Því ætti að gefa þeim kost á að fella dóm að nýju og skera með þeim hætti úr þeim ágreiningi, sem ríkir milli ríkisstjórnarflokkanna innbyrðis annars vegar og stjórnarandstöðu hins vegar. „Ætla verður, að þeir þingmenn, sem skjóta vilja ágreiningsmálum rtkisstjórnar og Alþingis til þjóðaratkvæða- greiðslu, styðji tillögu okkar,“ sagði Geir Hallgrímsson. Það kvað hann augljóst, „ef hugur fylgdi máli, enda óánægja með stjórnar- samstarfið mjög mikil í öllum stuðningsflokkum ríkisstjórnar- innar. Því er ekki óeðlilegt, að menn láti óánægju sína í ljós með stuðningi við þingsályktunartil- löguna um þingrof og nýjar kosn- ingar.“ Morgunblaðið kvað menn hafa tekið eftir því að sjálfstæðismenn á Alþingi hefðu greitt atkvæði með afbrigði til þingskapa, er tillaga Vilmundar Gylfasonar var þar til umræðu utan dagskrár. Þýðir það að Sjálfstæðisflokkur- inn hefði stutt þjóðaratkvæði um frumvarp Ólafs Jóhannessonar? „Nei,“ sagði Geir .Hallgrímsson, „við tókum það fram, að við teldum eðlilegt að afbrigði yrðu veitt, bæði með tilvísun til þess, að þau eru almennt veitt, og að við teldum æskilegt að fram kæmi enn betur en áður stefnuleysi stjórnarflokkanna og sundrungin meðal stuðningsmanna hennar. Hins vegar tókum við fram, að við værum andvígir þjóðaratkvæða- greiðslu um frumvarp, sem væri rúmlega 60 greinar og þar sem ágreiningsatriðin væru fleiri en eitt varðandi margar þeirra. Væri þjóðaratkvæðagreiðsla ekki til þess fallin að leysa úr slíkum ágreiningi. Eðlilegja væri, ef ríkisstjórnarflokkarnir kæmu sér ekki saman, sem auðvitað hefði verið skylda þeirra, þá ætti að skjóta ágreiningnum til þjóðar- innar, rjúfa þing og efna til kosninga. Allir flokkar hafa nú lýst stefnu sinni í efnahagsmálum og verða kjósendur á grundvelli þessara stefnumótana og mál- flutnings í kosningabaráttu, orða og efnda fyrir síðustu kosningar, að fá að kveða upp sinn dóm.“ Hvenær gætu kosningar hugsanlega farið fram? Geir Haligrímsson kvað ekki getið um neina sérstaka dagsetningu í þingsályktunartillögunni, en taldi líklegt að það gæti orðið innan 2ja til 3ja mánaða ef tillagan yrði samþykkt. Gefa þyrfti flokkunum tækifæri til þess að ganga frá listum og gæta þyrfti að fram- boðsfrestum. Því gætu kosningar farið fram síðari hluta maímánaðar eða í byrjun júní. Yrðu prófkjör innan Sjálf- stæðisflokksins — eða á að breyta til og hafa einhvern annan hátt á vali frambjóðenda? „Það hefur ekki verið tekin nein afstaða' til þess,“ sagði Geir, „það er ekki skylda að hafa prófkjör og taka fulltrúar í hverju kjördæmi ákvörðun um slíkt hverju sinni, eins og nú háttar reglum flokks- ins, þær reglur hafa þó verið til athugunar." Atök milli forsprakka marxistahópa á tröppum kínverska sendiráðsins TIL ÁTAKA kom á tröppum kínverska sendiráðsins við Víði- mel um miðnætti í fyrrinótt þegar forsprakki vinstri sinnaðs mótmælahóps, myndlistarkonan Róska, reyndi að troða logandi kyndli inn um bréfalúgu sendi- ráðsins í mótmælaskyni við inn- rás Kínverja í Víetnam. Hljóp þá til Hjálmtýr Heiðdal, forsprakki Eikar (m-1), annars vinstrihóps, sem fylgir Kínverjum að málum og fagnað hefur innrásinni og vildi koma í veg fyrir áform Rósku. Urðu nokkrar stympingar milli þeirra en ekki urðu skemmdir á húsinu. I fyrrakvöld boðuðu félagar í Alþýðubandalaginu, Fylkingunni, Baráttuhreyfingu gegn heims- valdastefnu og fleiri aðilar til fundar í Félagsstofnun stúdenta til að mótmæla innrás Kmverja í Víetnam. Að fundinum loknum fór hópur fundarmanna, eitthvað um 35 manns, fylktu liði að kínverska sendiráðinu með fána og logandi kyndla. Var hópurinn með hróp og háreysti fyrir utan sendiráðið en ekki munu aðrir en Róska hafa gert tilraun til skemmdarverka, en fyrrnefndur Hjálmtýr og skoðana- bróðir hans vörnuðu því. Sendi- ráðsstarfsmenn hringdu til lög- reglunnar klukkan 23.55 og fjöl- mennti hún þá þegar á staðinn. En þegar lögreglan kom þangað voru mótmælaaðgerðirnar að mestu um garð gengnar og hópurinn að leggja af stað til Félagsstofnunar- innar. Rannsóknarlögregla ríkisins hefur fengið mál þetta til rannsóknar. Hækkun póstburðar- gjalda leggst þyngst á Morgunblaðið SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hef- ur samþykkt nýja gjaldskrá fyrir póstburðargjöld dagblaða og er hækkunin misjafnlega mikil eftir þyngd blaðanna. Þannig hækkar Stjórnarfrum- vörpin urðu ekki að lögum í gær Frumvörp ríkisstjórnarinnar um tímabundið olíugjald til fiski- skipa og um breytingar á lögum um útflutningsgjald af sjávar- afurðum voru ekki afgreidd á Alþingi í gær, eins og ætlunin hafði verið, en verða væntanlega afgreidd í dag. Miklar deilur eftir að Lúðvík Jósepsson kom fram með breyting- artillögur urðu þess valdandi að fresta varð afgreiðslu frum- varpanna. póstburðargjald fyrir blöð, sem eru undir 100 g, um 13,33%, en strax og komið er yfir 100 g er hækkunin 33,33%. Fari blöð síðan yfir 400 g er hækkunin 50% og fari þau yfir 500 g. er hækkunin 60% Á síðastliðnu ári var meðal- þyngd hvers Morgunblaðs, sem gefið var út, 142 g, svo að hækkun póstburðargjalds er oftast 33,33% gaenvart Morgunblaðinu. Er þá m tað við 46 síðna blað, en eins og lc^endur vita, getur Morgunbalðið oft og einatt verið mun fleiri síður og þess eru dæmi að það sé 144 síður. Því er ljóst að þessi hækkun gjaldskrár fyrir póstburðargjöld blaða kemur þyngst niður á Morgunblaðinu, svo að ekki sé talað um tímaritaútgáfu, sem prentuð er á þungan og dýran pappír. i jrin iiv^ivji bjóöum viö sérstak- lega gott verö á holda- og krydd- kjúklingum 10 stk. / kassa 1495kr. ka. Sleppið ekki pessu sérstaka Unghænur 10 stk. í kassa aöeins... 990 - kr. kg. Nautahakk 10 kg. í kassa.......... 1.500 - kr. kg. Folaldahakk 10 kg. í kassa.......... 900 - kr. kg. 5 kg. nautahakk................... 1.670,- kr. kg. Hálfir, reyktir folaldaframpartar . 950 - kr, kg. Hálf og heil hamborgara- reykt svínalæri .................. 2.390.- kr. kg. Ungkálfahryggir .................. 650 - kr. ka. Opið föstudaga 8—7 og laugardaga opið 7—12. Lokað öll hádegi kl. 12.30—14,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.