Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.03.1979, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. MARZ 1979 IBandarikjunum tæmdust veitingahúsin, þegar framhaldsmyndaflokkur- inn „Rætur“ birtist á sjónvarpsskjánum, leik- húsin voru mannlaus enda álitið að um 130 milljónir sjónvarpsáhorfenda hafi fylgst með þáttunum þar í landi. Ekkert sjónvarpsefni hefur hlotið jafn miklar vin- sældir. Efni þáttanna „Róta“ virðist og hafa veriö allvel til þess fallið að koma á vissum tengslum milli alls þess, sem ólíkt er í fortíð Bandaríkja- manna, svartra og hvítra, og einnig tókst sjónvarpsþáttum þessum að undirstrika þau atriði fortíðarinnar, sem eru Bandaríkjamönnum öllum sameiginleg. Segja má, að þessir feikna vinsælu sjónvarpsþættir hafi því orðið til þess að mynda eins konar menningarlegt kennileiti meðal Bandaríkja- manna. í hundruðum æðri skóla voru haldin sérstök fræðslunámskeið um efni þaö, sem „Rætur“ fjalla um, og Þjóðskjalasafninu í Wash- ington barst fjöldinn allur af fyrirspurnum frá fólki, sem leitaði upplýsinga um forfeður sína. Þjóðhetja Höfundur bókarinnar, sem myndaflokkurinn er byggður á, blökkumaðurinn Alex Ha- ley, er nú dýrkaöur sem þjóö- hetja. Bók Haleys, „Rætur“ var þegar fyrir löngu orðin Alex Haley í Þorpinu Juffure í Gambíu. Haley telur sig hafa rakiö ætt sína til porpsins svo óyggjandi sé. Haley og Le Var Burton i hlutverki Kunta Kinte / þegar þú ætlar að fljúga. /Evi þín hefur tekið stakkaskipt- um.“ Bandaríska sjónvarpsstöð- in ABC hefur nú, réttum tveimur árum eftir að „Rætur" voru sýndar þar í landi, hafið sýningar á nýjum myndaflokki í framhaldi af hinum fyrri, og ber hann nafnið „Rætur: næstu kynslóðirnar." Að- standendur sjónvarpsstöðv- arinnar vonast til, að þessi nýi myndaflokkur eigi eftir að hafa álíka mikið aðdráttarafl fyrir sjónvarpsáhorfendur og hinn fyrri. Vandaðri vinnubrögð Hvað snertir gæöi þessa nýja myndaflokks, þurfa að- standendur ABC-sjónvarps- Stjörnur nýja myndaflokksins: Harewood og Cara, Brando, Jones. Brando leikur bandaríska nasistann Lincoln Rockwell. Harewood og Cara leika foreldra Haleys, höfundar Róta, og Jones kemur fram í gerfi Haleys sjálfs. metsölubók í Bandaríkjunum, og viötökur þær, sem sam- nefndir sjónvarpsþættir hlutu, urðu þess valdandi, að hundruð þúsunda nýrra les- enda bættust í hópinn. Frægöin kom mjög skyndi- lega og heldur harkalega yfir Alex Haley. Það var hinn 31. janúar áriö 1977, morguninn eftir aö síöasti þáttur fram- haldsmyndaflokksins haföi verið sýndur. Alex Haley fór út á flugvöll í New York og ætlaði aö fljúga til Los Angeles. Vart var hann kom- inn inn í flugstööina, þegar múgur manns hópaðist að honum og ætlaði bókstaflega að tæta hann í sundur — af einskærri hrifningu. Starfs- maður flugfélagsins, sem bjargaði Haley frá aðdáend- um hans, sagöi við hann: „Upp frá þessu verður þú að vera setztur upp í flugvélina á undan öörum farþegum, Atriöi úr Rótum II: hvítir gera aösúg aö svertingja sem reyndi aö neyta atkvæðisréttar síns. Nýi flokkurinn lýsir jafnréttisbaráttu peirra blökku aó sögn framleiðandans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.