Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 5 Varðberg gengst fyrir fundi á Akureyri Varðberg, félag ungra áhuga- manna um vestræna samvinnu, gengst fyrir almennum fundi á Akureyri mánudagskvöldið 9. apríl, vegna þess að þrjátíu ár eru liðin um þessar mundir frá því að Alþingi samþykkti, að Island skyldi gerast stofnaðili að Atlants- hafsbandalaginu. Fundurinn verður haldinn í JHótel KEA og hefst kl. 20.30. Fundarefnið er „Atlantshafs- bandalagið — friður í 30 ár“. Framsögumenn verða Alfreð Þorsteinsson, formaður Varð- bergs, Árni Gunnarsson, alþingis- maður, og Davíð Oddsson, borgar- fulltrúi. Oddverjar og Snorri Sturluson Á aðalfundi Sögufélags sem hefst kl. 14 á Árnagarði við Suður- götu, laugardag 7. apríl, mun Helgi Þorláksson cand. mag. flytja erindi og fjalla um Oddaverja, Snorra Sturluson, Orkneyinga og verslun í íslenskra höfðingja á bilinu frá um 1180—1220. Einnig fara fram venjuleg aðalfundar- störf og stjórnin mun leggja fram tillögu til nýrra laga. Núverandi lög félagsins eru frá árinu 1919. Félagsmenn Sögufélags eru núna hátt á ellefta hundrað. (Fréttatilkynning). Vélhjóla- kynning í Keflavík LAUGARDAGINN 7. aprfl, kl. 13, verður í Féiagsbíói í Keflavík vélhjólakynning á vegum J.C. Suðurnes. Vélhjólaklúbburinn Ernir, sem var stofnaður í vetur, verður kynntur, sýndar verða kvikmyndir um akstur vélhjóla, svo sem keppnisakstur og akstur í umferð eða á víðavangi. Fulltrúi frá Bifreiðaeftirliti ríkisins veitir upplýsingar um öryggisbúnað og þær reglur sem gilda um vélhjól. Allir munu fá í hendur bækling sem inniheldur almenna umferðarfræðslu. Auk þess sem kynnt verður þjónusta við vélhjólaeigendur, þá munu vélhjólaumboð sýna vöru sína. Þessi vélhjólakynning er eitt af mörgum verkefnum, sem J.C. Suðurnes hefur unnið í vetur undir kjörorðínu „Eflum öryggi æskunn- ar“. Aðgangseyrir að kynningunni er enginn. Hafréttarráðstefnan: Þinga fyrir Islands hönd Hafréttarráðstefnan í Genf mun standa til 27. apríl en hún hófst 19. marz s.l. Þeir sem sækja ráðstefn- una af hálfu íslands eru Hans G. Andersen sendiherra sem er for- maður nefndarinnar, alþingis- mennirnir Eyjólfur Konráð Jóns- son, Lúðvík Jósepsson, Finnur Torfi Stefánsson og Þórarinn Þór- arinsson ritstjóri. Þá sitja einnig ráðstefnuna fyrir íslands hönd þeir Guðmundur Eiríksson deildarstjóri í utanríkisráðuneyt- inu, Jón Arnalds ráðuneytisstjóri og Guðmundur Pálmason for- stöðumaður Jarðhitadeildar Orku- stofnunar. Mikid úrval af BAMDf W sportfatnadi fyrir bæði kynin ★ Vattjakkar ★ Dömupoplínjakkar ★ Flauelsbuxur ★ Kakhíbuxur ★ Leöurlíkibuxur o.fl., o.fl. Laugavegi 20. Sími (rá skiptiborði 28155. m ★ Dömu- og herrasportjakkar ★ Herraföt ★ Stutt- og langerma herraskyrtur ★ Vesti ★ Peysur ★ Blússur ★ Mussur ★ Kjólar ★ Kápur. Einnig hin vinsælu fermirigarföt og dragtir á drengi og stúlkur. TlZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS utji) KARNABÆR ■i^^H_auaaveai 66. Sími frá skiDtiborði 28155 Laugaveg i itf / unglingadeildinni Austurstræti: ★ Blússur ★ Peysur ★ Vesti ★ Flauelsbuxur ★ Khakhíbuxur ★ Denimbuxur ★ Mikiö úrval af sportjökkum ★ Greasebolir ★ Leöur- líkijakkar. Unglingadeíld 'mKARNABÆR Austurstraeti 22. Simi trá skiptiboröi 28155 Mikið úrval af herra- og mm Nýjar sendingar af leöur- sandölum ★ Götuskór ★ Spariskór ★ Sportskór o.fl., o.fl. SKÓDEILD mKARNABÆR Austurstræti 22. Sími 28155 frá skiptiborði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.