Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.04.1979, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1979 Oddur Olafsson: Ómaklega veitzt að Suðurnesjum Framkvæmd íiskveiðitakmarkana hefur verið tíðrædd á þingi undanfarið og sætt harðri gagnrýni þingmanna Vestfjarða, Norður- og Austurlands. Þingmenn úr Reykjaneskjördæmi hafa hins vegar staðið fast með sjávarútvegsráðherra og fer hér á eftir örstuttur efnisútdráttur úr ræðu Odds ólafssonar (S) utan dagskrár í Sameinuðu þingi fyrir nokkrum dögum. Vandræðaástand á Suðurnesjum Oddur Ólafsson (S) ítrekaði fyrri ummæli sín, sem fram hefðu verið sett á undanförnum þingum, til að vekja athygli á vandræða- ástandi, sem skapast hefði á Suð- urnesjum, þegar fisklaust hefði verið langtímum saman. Reyndar hefði aflamagn dregizt verulega saman á þessu svæði sl. 6—8 ár. Nú brygði svo við, að afli glæddist, þó ekki í neitt mokfiskirí, enda væri netafiskirí Eyjafjarðarbáta í ár hlutfallslega meira (á bát) en á Suðurlandssvæðinu. Þá brytist út einhvers konar ergelsi, sem þessar umræður bæru vitni um, yfir því að „lifandi þorskur skuli hafa sloppið suður fyrir land“. Mér finnst þetta ekki af því góða og bera vott um héraðsríg fremur en málefnalega afstöðu til verndunar þorskstofnsins. Áhrifaríkar ráðstafanir nauðsynlegar O.Ól. sagðist styðja sjávarút- vegsráðherra í nauðsynlegum þorskveiðitakmörkunum til að bjarga þessum þýðingarmesta fiskstofni í veiðum og vinnslu þjóðarbúsins. En mér hefði fundizt það óeðlilegt, þegar fiskur kemur snögglega á svæði, sem búið hefur við fiskleysi árum saman, ef þá hefði samstundis verið gripið til ráðstafana til þess að stöðva veið- ar. Mér finnst heldur ekki eðlilegt ef loðnuflotinn hefði verið stöðv- aður í fleiri mánuði, eins og kröfur hafa komið fram um. Ég held t.d. að ekki sé mikill munur á meðal- Oddur ólafsson launum loðnusjómanna og t.d. sjómanna á minni skuttogurunum. Þá er þess að geta að það er ekki allt þorskur, sem kemur í net við Suður- og Suðvesturland; þar er verulegur hluti aflans ufsi. Og rétt er enn að vekja athygli á að á þessu svæði er allstórt alfriðað hrygningarsvæði. Það verður ekki sagt að á þessu svæði hafi verið staðið illa að hlutunum. Rétt kann að vera að nauðsyn- legt sé að hamla eitthvað gegn veiðum í net, en þá finnst mér ekki nema sanngjarnt, að ákveðnu heildarmagni sé náð. En á þessu svæði stendur netafiskirí tiltölu- lega stuttan tíma. Fara verður varlega O.Ól. sagði sýnt, að fara yrði með allri gát í sókn í þorskstofn- inn, svo ekki fari fyrir honum eins og Norðurlandssíldinni. En að- gerðir mega ekki fyrst og fremst bitna á landshluta, sem búið hefur við fiskleysi árum saman. Hér hefur verið fullyrt, að fiskur á Suðurnesjum væri 2. fl. fiskur, verri og lélegri vara en annars staðar. Hvarvetna, þar sem mikill fiskur berst á land, verður eitt- hvað af fiski utan æskilegustu vinnsluaðferðar. Og varla fer allur ungþorskur og þyrsklingur nyrðra í neytendapakkningar, a.m.k. ekki sá, sem malaður var í fyrra í beinamjöl. Hins vegar er vitað mál, að það er alltaf eitthvað af fiski, sem betur er komið í salt en frystingu. Eggert Haukdal: Góðar samgöngur undirstaða varanlegrar atvinnuuppbyggmgar þannig úr garði að það stæð- ist þær kröfu sem til þess væru nú gerðar. Eggert sagði, að áætlun þessi um lagningu bundins slltlags sem felld yrði að nýrri vegaáætlun, væri hugs- uð til þess að koma vegakerfi landsins af því vanrækslu- stigi sem það er nú í, upp í viðunandi ástand. Með til- lögunni sé haft í huga að allir landsmenn geti sem fyrst notið góðs af þeim árangri sem henni er ætlað að ná, og sjónarmiðin um vegasamband til allra staða og um varanlega vegagerð ættu að haldast í hendur en ekki togast á. Þetta væri gert með því að afla fjár til varanlegrar vegagerðar, en skerða í engu það fjármagn sem fara á í fáfarnari vegi. Sagði Eggert að fyrir þessu væri nákvæm grein gerð í tillögu þingmanna Sjálf- stæðisflokksins, en hér væri hreyft mjög mikilvægu máli, enda væru góðar samgöngur undirstaða varanlegrar at- vinnuuppbyggingar um land allt. VIÐ UMRÆÐUR um tillögu sjálfstæðismanna um varanlega vegagerð flutti Eggert Haukdal ræðu, þar sem hann sagði meðal annars, að Sjálfstæðisflokkur- inn hefði jafnan verið í stjórn þegar stærstu átökin hefðu verið gerð í varanlegri vegagerð hér á landi, og minnti hann sérstaklega á veginn að Selfossi og Reykjanesbraut í því sambandi. Sagði Eggert, að þrátt fyrir að fyrsti flutnings- maður hefði gert allítarlega grein fyrir málinu teldi hann rétt að lýsa sínum skoðunum á málinu, en á því hefði hann látið gera sérstakar athug- anir, sem meðal annars hefðu leitt það í ljós, að hér væri síður en svo um tálsýnir að ræða. Þrátt fyrir að margir vildu gera tillöguna tortryggilega, þá væri stað- reynd að hér væri á ferð vel viðráðanlegt fyrirtæki ef í það væri ráðist af festu og skynsemi. Sagði þingmaðurinn, að þrátt fyrir miklar umræður, verulega viðleitni og þjóðar- vilja í þá átt, þá gegndi vegakerfi landsins alls ekki hlutverki sínu sakir þess hve vegirnir væru frumstæðir, nema á um 200 kílómetra kafla næst þéttbýlustu stöð- um landsins. I framhaldi af því að flestum héruðum landsins hefði verið komið í akvegasamband, þá þyrfti nú með tilliti til aukinnar um- ferðar að gera vegakerfið Eggert Haukdal Komið hafa fram efasemdir um að aukin fjárframlög og tilkostnaður í ríkisrekstrinum skili sér í raun með betri þjónustu. Aðhaldið í einkarekstrinum er annað og kröfur eigenda þar miklu meiri um skilvirkni fjármagnsins og vinnuaflsins og annarra framleiðslu- þátta. Stofnanir eru settar á laggirnar og þeim oftast ætlað eilíft líf. Stundum er tilgangurinn ekki skýr og nánast aldrei er hann endurskoðaður eða spurt hvort ástæða sé til að breyta til. Ekki er spurt hvort markmiðinu sé þegar náð, sem að var stefnt eða getum að því leitt hvort unnt sé að leysa starfsemina af hólmi með öðrum og betri hætti vegna breyttra aðstæðna í þjóðfélaginu. — Einstaka Friðrik Sophusson: Starfsmönnum ríkisins hef ur f jölgað þrisvar sinnum hraðar en þ jóðinni ÞRÍR þingmanna Sjálfstæðis- flokksins, þeir Friðrik Sophusson, Ellert B. Schram og Lárus Jónsson, hafa flutt á Alþingi tillögu til þingsályktunar um nýja aðferð við áætlanagerð. TiIIagan er svohljóð- andi: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því, að „núllgrunnsáætlanagerð* verði tekin upp sem víðast við gerð rekstrar- og fjárhagsáætlana hjá opinberum fyrirtækjum og stofnun- um.“ Friðrik Sophusson mælti fyrir þingsályktunartillögunni og sagði meðal annars, að sífellt kæmu upp nýjar hugmybdir er vörðuðu opin- bera stjórnsýslu, og væru aðstæð- urnar margar og eðlilegar. Mætti meðal annars benda á, að starfs- mönnum íslenska ríkisins hefði fjölgað þrisvar sinnum meira á undanförnum árum en landsmönn- um í heild. sinnum er spurt hvort við gerum hlutina rétt, en aldrei hvort við séum að gera réttu hlutina. Síðar í ræðu sinni sagði Friðrik, að meðal þeirra nýju stjórnunarhug- mynda, sem kynntar hafa verið hér á landi séu markmiðabundin stjórnun, kerfisbundnar kostnaðarlækkunará- ætlanir, og í Bandaríkjunum svoköll- uð sólarlagsaðferð, til þess að snúa sönnunarbyrðinni við. Friðrik sagði, að núllgrunnsá- ætlanagerðinni væri lýst í greinar- gerð með þingsályktunartillögunni, en orðið sjálft væri hins vegar til athugunar hjá málnefnd. En áður en þingmaðurinn gerði grein fyrir í hverju þessi áætlanagerð er fólgin, sagði hann eðlilegt að fara um það nokkrum orðum hvernig fjárlaga- gerð fer nú fram á hefðbundinn hátt hér á landi. 1. Fengnar eru tillögur frá stofn- unum og ráðuneytum þar sem tekið Ólafsson: Ríkisstjómin þarf aðhald launþega í landinu Kjartan Ólafsson (Abl) veittist harðlega að Alþýðuflokki og Framsóknarflokki við fyrstu um- ræðu um efnahagsfrumvarp for- sætisráðherra í neðri deild sl. miðvikudag. Vitnaði hann til fyrstu frumvarpsdraga Alþýðu- flokks, sem gert hafi ráð fyrir lögbanni á launahækkanir um- fram 4% á 3ja mán. fresti, eða 17% á þessu ári, hvað sem liði verðlagsþróun. f frumdrögum Ólafs Jóhannessonar hafi verið gengið í svipaða átt, skemmra þó, þ.e. lögbann umfram 5% ársfjórð- ungshækkun. Hækkun umfram það mark átti að geymast í 9 mánuði og þá fyrst að koma í launaumslög. Frumvarpið f nú- verandi mynd hefur tekið breyt- ingum til hins betra, en enn séu þó í þvf allnokkur ákvæði, sem talsmenn verkalýðshreyfingar geti alls ekki sætt sig við. Nefndi hann nokkur atriði í því efni. Fyrst framkvæmd á við- skiptakjaraviðmiðun verðbóta á laun, sem út af fyrir sig sé eðlileg. Hins vegar séu viðskiptakjör 1978, ársins í heild, ekki rétt viðmiðun. Taka hefði átt 3 síðustu mánuði 1978 og 3 fyrstu 1979. Þá hefði kaupmáttarrýrnun vegna þessa ákvæðis orðið 0.3% en ekki 3%, eins og verða mundi, ef frv. yrði samþykkt í núverandi mynd. Þá sé nauðsynlegt að verja 1 xh milljarði í stað 1 milljarðs til að mæta Kjartan Ólafsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.