Morgunblaðið - 10.04.1979, Side 33

Morgunblaðið - 10.04.1979, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRIL 1979 33 r Jón Asbergsson: Aukum verðmætin sem til skiptanna koma HÉR fer á eftir frumræða Jóns Asbergssonar, varaþingmanns úr Norðurlandskjördæmi vestra, sem hann flutti í efri deild við umræðu um efnahagsfrumvarp forsætisráðherra. Efnahagsstefna sem byggir á skattpmingu Ég vona, að það teljist ekki brot á neinum óskrifuðum siðvenjum hins háttvirta Alþingis að nýliði biðji um orðið fyrsta dag sinn á þingi. Og þó að svo sé, þá hlýtur mér að fyrirgefast framhleypnin, því að eins og háttvirtur 5. þingm aður Vestfirðinga, flokksbróðir minn, Þorvaldur Garðar Kristj ánsson, benti á í sinni ræðu við 2. umræðu þessa máls í gær, þá er ekki að sjá að löng ræðuhöld þm. Alþ.flokks og Alþýðubandalags muni tefja að ná afgreiðslu þessa frumvarps hér í deildinni. Örfá orð frá nýliðanum ættu því vart að saka. Eina lífsmarkið sem í gær mátti finna hjá gömlu stjórnarandstöð- unni var örstutt en djúpt framík all frá hv. þm. Norðurl. e. Stefáni Jónssyni þess efnis, að Ólafur Jóhannesson væri góður maður. þetta var eina innleggið úr þeirri átt þann daginn um frv. til laga um stefnumörkun í efnahagsmál- um, stefnumörkun, sem hvorki minna né meira á að tryggja næga og stöðuga atvinnu, halda verð- hækkununum í skefjum, stuðla að jafnvægi í viðskiptum við önnur lönd, greiða fyrir félagslegum og efnahagslegum framförum og bættum lífskjörum alls almenn- ings. Já, mikil er trú þín kona. Þetta stutta framíkall er þá líkl ega merkilegasta framlag ASlþ.b. til íslenskrar efnahagsmálaumr æðu um langt skeið, því að það má færa nokkur rök fyrir því, að þetta framlag sé sannleikanum sam- kvæmt og af hinu góða, sem er nýlunda úr þeim herbúðum. En þótt Ólafur Jóhannesson sé góður maður, þá er frv. það til 1. sem hér er um fjallað, ekki gott, það er slæmt. Það er svo slæmt, að viðbúið er, að höfundur þess muni áður en langt um líður gefa því svipuð eftirmæli og hann, að vísu af nokkurri ósanngirni, gaf skatt alögum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Hann taldi ákv eðnar greinar í þeim lögum gera mönnum næstum ókleift að ákveða sjálfir, hvenær og hvar þeir köst- uðu af sér vatni. Ástfóstur þessa frv. við alls kyns skýrslugerð og áætlanagerð mun ekki auðvelda mönnum þær ákvarðanir. En þó er *\ýnu verra að verði frv. þetta grundvöllur efnahagsstefnu ríkis- stjórnar þá mun skattpíningarst efnu ríkisstjórnar ekki linna á næstunni. Þeir hafa þegar sýnt fádæma frumleik í vali skatt- stofna og er aldrei að vita, hvar þeir bera niður næst. Þarfir manna til baks og kviðar hafa áður verið skattlagðar af fjárs oltnum yfirvöldum og kynni svo að geta farið, að ríkisstjórnin leitaði þar fyrirmyndar. Þögn þm. Alþ.fl. og Alþ.b. við umr. hér í gær er sjálfsagt besta staðfesting þess, hversu tilgangsl aust þetta frv. er. Alþfl.-menn lofuðu kjósendum sínum á síðasta vori, að þeir skyldu kenna kerfis- og verðbólguflokkunum vondu, hvernig ætti að ráða niðurlögum verðbólgunnar. Nú ætla þeir að standa að samþykkt frv., sem lögleiðir 40 verðbólgu. Alþb.-menn lofuðu hins vegar öllum sínum kjósendum, að þeir skyldu jafna um kaupránsflokkana. Ríkisstj. frá og samningana í gildi, var kosningaslagorð þeirra. Ríkisstj. fór frá og þeirra eigin óskastjórn, vinstri stjórn, tók við. Nú eru hins vegar engir kjarasamningar í gildi. Hinn áður heilagi frjálsi samningsréttur er nú einskis met- inn og kommar skeggræða í smá- klíkum, sem þeir kalla nú forystu launþegasamtakanna, hversu mörgum prósentum þeir eiga að „ræna“ af launþegum. Hvar eru nú skyndiverkföll, útflutningsbann og útifundir? Ríkisstj.-flokkarnir hafa mjög gumað af því samráði, sem þeir hafa haft við ýmsa hagsmunaaðila og þrýstihópa í landinu við sam- ningu þessa frv. Slíkt samráð skal að vísu ekki alfarið vanvirt. En hvers virði er slíkt samráð, ef þeir hinir sömu hagsmunaaðilar hafa sýnt sig í því að láta pólitíska þjónkun sína við kommúnista ráða afstöðu sinni í allri faglegri kjar abaráttu? eða hvar eru núna skyndiverkföllin, útflutningsbann- ið og útifundirnir? Og hvers virði er slíkt samráð, ef útkoman er löggjöf svo útþynnt og vesæl, að hún nær hvergi að vinna á því meini, sem henni er ætlað að vinna á, þ.e.a.s. verðbólgunni. Ég er viss um, að allir hv. þm. þessarar deildar hafa haldið yfir kjósendum sínum magnþrungnar ræður um skaðsemi verðbólgunn- ar, um hvernig verðbólgan eyðil eggur allt verðmætaskyn manna, um það, hvernig verðbólgan leiðir til fjárfestingar, sem gefur engan arð af sér, um það, hvernig arðurinn af fjárfestingunni er í raun og veru það, sem kemur til skiptanna milli atvinnurekandans og launþegans og um það, hvernig stöðvun verðbólgunnar og áhersla á arðsemi fjárfestingar er grundv- öllur þess, að unnt sé að bæta lífskjör almennings í landinu. Þessar staðreyndir og samhengi þeirra eru öllum þingmönnum ljósar. Því þá ekki að setja löggjöf, sem miðar hiklaust að því marki að stöðva verðbólguna og bæta lífskjörin í landinu. Að því hljóta þó allir stjórnmálaflokkar að stefna. Auðvitað kemur slík löggj öf við einhvern í upphafi, en hann verður þeim mun betur settur eftir á. Læknir sem meðhöndlar keðjur eykingamann, sem sýnir merki lungnakrabba, eyðir ekki miklu púðri í að diskútera við sjúkling- inn þau óþægindi, sem hann muni hafa af því að hætta að reykja. Val sjúklingsins er milli lífs og dauða. Hið sama á við hér. Lausn þess efnahagsvanda, sem þjóðin hefur strítt við undanfarin ár, er val milli lífs og dauða, milli vaxandi eða minnkandi velmegunar, milli byggðar í landinu eða fólksfl ótta. Valið ætti því að vera auðvelt. Brottflutningur fólks úr landi Eitt mest notaða orð íslenskrar þjóðmálabaráttu er orðið byggð astefna. Er þar átt við þá stefnu, sem allflestir eru sammála um, að nauðsynlegt sé að viðhalda blóml egri byggð sem víðast um landið. En ef fram fer sem horfir í íslenskum þjóðmálum er líklegt, að þetta hugtak fái víðtækari merkingu, og þá verði megininnt ak íslenskrar byggðastefnu að halda landinu í byggð, þ.e.a.s. koma í veg fyrir fólksflutninga í ríkum mæli til annarra landa. Brottflutningur fólks af landinu undanfarin ár þrátt fyrir næga atvinnu gæti verið aðeins for- smekkurinn af því sem koma skai. Augljóst er, hvers vegna fólkið flytur. Þjóðartekjur á mann eru hærri meðal nágrannaþjóðanna en hér er og vinnudagurinn þar þó styttri og talsverður fjöldi manna atvinnulaus í þokkabót. það er með öllu ástæðulaust að ætla, að ísl- endingar sætti sig til lengdar við lakari lífskjör en gerist meðal nágrannaþjóðanna. Og ef lífskjör- in batna ekki hér heima, þá fara menn, fyrst þeir, sem hafa lært fræðigreinar eða handverk, svo hinir. Þessi fólksflótti verður ekki stöðvaður með skírskotun til ættj arðarástarinnar og fjallkonunnar, því malbikskynslóðin tengist eng- um slíkum böndum við land sitt og þjóð, að hún meti ekki meira þegar á reynir beinhjarða efnahagslega afkomu og öryggi. En ef bæta á lífskjörin verður að brjóta leið út úr vítahring verðbólgunnar, minnkandi kaupmáttar og tapr ekstrar fyrirtækjanna. Slíkt verð- ur ekki gert með neinum einföld- um ráðum eða slagorðum og það Jón Ásbergsson. tilgangslausa kukl, sem hér er lagt til, að stundað verði, mun ekki leiða okkur út af ógæfubrautinni. Aukinn þjóðar- auður til skiptanna Ég sagði hér áðan, að rkisstj. gumaði af samráði sinu við ýmis hagsmunasamtök. Þó er ekki að sjá, að henni hafi tekist að velja þau heilræði, sem þaðan hafa komið og sem best mundu duga. I byrjun marsmánaðar ályktaði t.d. aðalfundur verkalýðsfélagsins Einingar á Akureyri á þessa leið og sendi ríksistj. „Komið ykkur umsvifalaust saman um langtíma stefnumörk- un, er miði að aukinni framleiðni og auknum kaupmætti launafólks. Tryggið öllum atvinnu við arðbær störf, er skapa aukinn þjóðarauð til skipta." Þessi ályktun hittir kjarna þeirrar lausnar, sem er á efnah agsvanda þjóðarinnar. Menn verða að glöggva sig á því til hlítar, hverjar eru undirstöður efnah agslegrar velferðar á Islandi í nútíð og framtíð og hvernig rétt tök á þessum undirstöðum geta skapað þjóðinni aukinn auð til skiptanna, aukið kaupmátt og tryggt arðbær störf. Þessar und- irstöður eru sjávarútvegur og ork ufrekur iðnaður. Hvernig sem menn reyna að rangfæra og mist- úlka þessa staðreynd, þá er hún óumflýjanleg. Þessar tvær atvinn ugreinar hafa slíka sérstöðu hér á landi, að þær eiga að geta boðið upp á álíka framleiðni og þá um leið lífskjör og gerist meðal hinna iðnvæddu nágrannaríkja okkar. Allur annar íslenskur útflutningur muj verða að berjast um markaðs- aðstöðu um vörur frá vaxandi iðnveldum Asíu, svo sem Suður- Kóreu, Indónesíu, Malasyu og fleiri. Þar er vinnuaflið ódýrt og lífskjör almennings frumstæð. Neiti menn að viðurkenna sérstöðu sjávarútvegsins og orkufreks iðn- aðar til að skapa hér velferðarríki framtíðarinnar, þá eru menn að dæma þjóðinni versnandi lífskjör. Það er óþarfi að tíunda hér í d. í dag þá hættu, sem sjávarútvegur- inn er í nú vegna ofveiði helstu nytjafiska. Hins vegar er vitað, að skipulögð sóknarminnkun mun gera þessum fiskstofnum kleift að ná sér aftur á strik og tryggja um leið, að þessi mikilvæga auðlind, sjórinn, gefi af sér varanlegan afrakstur í framtíðinni. En meðan þorskur og loðna eru að nokkru hvíld, verður að hefja skipulega nýtingu orkunnar og orkufreks iðnaðar. Orkufrekur iðnaður Ég ætla ekki í dag að verða langorður um hvernig það skuli helst gert, en skjótasta, einfald- asta og besta leiðin út úr efnah agsöngþveitinni hér er að reisa á næstu 10 árum 3—4 orkufrek iðnfyrirtæki á stærð við ISAL og auka raforkuframleiðslu sem því næmi. Þessi fyrirtæki myndu veita rösklega 2000 manns vinnu og leggja grunn að störfum annarra 6000. Til að raska ekki félagslegri uppbyggingu hinna dreifðu byggða yrðu fyrirtæki þessi reist hér á þéttbýlissvæðinu á Suðvesturl andi, hugsanlega einnig á Suður- landi. Þm. þyrftu þá ekki að hlusta á umr. eins og hér rétt áðan í Sþ. um skiptingu þorskanna, þeirra fáu, sem til skipta eru. Fyrirtækin yrðu algerlega í eigu erlendra aðila oig framkvæmdafé íslenska ríkisins ekki bundið í uppbyggingu áhættusamra fyrirtækja, auk þess sem fyrirtækin yrðu látin greiða sem hæst raforkuverð með fram- leiðsluskatti eins og gert er við ÍSAL. Með þessu væri dregið úr mikilvægi sjávarútvegsins fyrir byggðina á Suður- og Suðvesturl andi og dreifbýlinu veittur forrétt- ur að nýtingu sjávarauðlindanna. Þannig yrðu varanleg lífskjör allra Islendinga tryggð umók omna tíð án röskunar á þeirri uppbyggingu landsins, sem við nú þekkjum og viljum ekki breyta. ALMNGI Skáldverk Kristmanns Guömundssonar Krtatmann Guömundason Elnn af víölesnustu höfundum landslns. Nokkrar af bókum hans hafa veriö þýddar aö mlnnsta kostl á 36 tungumál. Brúöarkyrtillinn Morgunn lífsins Arfur kynslóöanna Ármann og Vildís Ströndin blá Fjalliö helga Góugróöur Nátttrölliö glottir Gyöjan og nautiö Þokan rauöa Safn smásagna Aimenna Bókafélagiö, Auaturatrseti 18, Skemmuvegur 3«, •ími 19707 SÍmi 7305«

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.