Morgunblaðið - 10.04.1979, Side 47

Morgunblaðið - 10.04.1979, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. APRÍL 1979 47 Varað við ginsengáti Chicago,_9. aprfl, AP. LANGTÍMANEYZLA hinnar vin- sælu ginseng-jurtar getur haft háskalegar afleiðingar að því er segir í rannsóknarskýrslu frá Kaliforríuháskóla. Talið «.r að milli fimm og sex milljónir Bandaríkjamanna noti jurtina. Ronald Siegel læknir við gcðlækningadeild læknaháskól- ans í Los Angeles segir frá því í blaði bandarísku læknasamtak- anna þann 13. apríl, að jurtin hafi verið notuð um þusundir ára, einkum í Austurlöndum, þar sem hún hefur verið hressingarlyf og græðslujurt. Á okkar dögum nota Kínverjar ginscng til að örva efnaskipti líkamans og stjórna blóðþrýstingi og sykurmagni í blóði. í Bandaríkjunum mæla læknar hins vegar aðeins með jjinseng til að mykja húðina. Ahugi á jurtinni hefur þó vaxið ört á síðustu árum og má víðast kaupa hana í náttúrulækninga- og lyfjabúðum. Er gjarnan mælt með henni sem styrkjandi lyfi og kynörvandi. í grein sinni segir Siegel frá niðurstöðum rannsóknar á 133 neytendum, sem fylgst var með í tvö ár. Segist Siegel hafa fengið hug- myndina að rannsókninni er hann Engin tengsl við morðið á Airey Neave Dyflinni, 8. aprfl. AP. SEX MENN, er klófestir voru í Dyflinni á sunnudag, eru nú yfirheyrðir vegna rána í bönk- um og skartgripaverzlunum í írska lýðveldinu. Lögregla hef- ur neitað fyrri frásögum þess efnis, að handtaka sexmenning- anna sé í tengslum við morðið á Airey Neave, talsmanni brezka íhaldsflokksins í málefnum Norður-írlands. Lögregla kom mönnunum að óvörum í íbúð einni í Dyflinni og segist hafa fundið þar útbúnað til sprengjugerðar en engar sprengjur. Þykir lögreglu líklegt, að að útbúnað þennan hafi átt að nota til óhæfuverka innanlands frekar en á brezkri grund. veitti athygli vímu sjúklinga, er neyttu jurtarinnar, en henni fylgdi langvarandj svefnleysi, óstyrkar taugar ofl. Flestir ginseng-neytenda í rann- sókninni lýstu espandi áhrifum og nokkrir lýstu ýktum taugaspenn- ingi, fáti, andvöku, skinnútbrotum og morgunþunnlífi. Einnig kvört- uðu menn yfir bólgum og fjórar konur áttu í erfiðleikum með tíðir. Þeir, sem neyttu ginsengs í stórum skömmtum, þjáðust af þunglyndi, skyntruflunum og vanmetakennd. Siegel bendir jafnframt á, að ekki sé unnt að segja fyrir um áhrif ginseng með nokkurri vissu og geti óæskilegri áhrif þess ekki talizt einkennandi. Veður víða um heim Akureyri snjóél Amslerdam 13 skýjað Apena 20 sól Berlín 7 skýjaó Barcelona 16 skýjað Briissel 12 bjart Chicago 8 skýjað Frankfurt 10 bjart Genf 10 sól Helsinki 5 bjart Hong Kong 20 skýjað Jerúsalem 19 sól Jóhannesarb. 23 sól Kaupmannah. 8 sól Las Palmas 17 skýjað Lissabon 17 rigning London 10 skýjað Los Angeles 20 skýjað Madrid 15 skýjað Majorka 17 skýjað Malaga 15 rign. Miami 24 skýjað Montreal 4 sól Moskva 5 skýjað Nýja Delhi 36 bjart New York 12 rigning Ósló 7 skýjað Parls 13 mistur Reykjavík 3 léttskýjað Rómaborg 15 bjart San Francisco 14 bjart Stokkhólmur 6 skýjað Sydney 20 skýjað Teheran 30 mistur Tel Aviv 19 sól Tókýó 23 bjart Toronto 0 snjókoma Vínarborg 6 skýjað Þetta gerðist 10. apríl 1978 — Shevchenko, sovézkur aðstoðarframkvæmdastjóri SÞ, biður um hæli í Bandaríkjunum. 1974 — Golda Meir segir af sér. 1972 — Samningur Bandaríkja- manna og Rússa um bann við líffræðilegum hernaði undirrit- aður. 1963 — Bandaríski kjarnorku- kafbáturinn „Thresher" talinn af á Norður-Atiantshafi (129 fórust). 1961 — Adolf Eichmann leiddur fyrir rétt í ísrael fyrir stríðsgiæpi. 1945 — Bandarískir hermenn frelsa fangabúðirnar í Buchen- wald — Bandaríkjamenn taka Hannover. 1938 — Daladier myndar stjórn í Frakklandi með stuðningi Blums. 1936 — Zamora Spánarforseti settur af. 1864 — Maximilian gerður keis- ari Mexíkó. 1841 — „New York (Herald) Tribune" hefur göngu sína. 1832 - Fjölskyldur Karls X og Napoleons útskúfaðar í Frakk- landi — Tyrkir segja Mohammed Ali, khedív Egypta, stríð á hendur. 1814 — Orrustan um Toulouse. 1741 — Friðrik II sigrar Aust- urríkismenn við Mollwitz og leggur undir sig Slesíu. 1606 — Habsborgar-hertogarar gera uppreisn gegn Rudoif II ksÍSEFE 1552 — Hinrik II Frakkakon- ungur tekur Metz og gerir bandalag við þýzka mótmælend- ur. Afmæli: Jakob V af Skotlandi (1512—15i2) — WiUiamHazlitt, brezkur rithöfundur (1778—1830) — George Russel (A-E.“), brezkt skdld (1867—1935) — Clara Booth Luce, fv. bandarískur sendi- herra (1903— —) — Joseph Pulitzer, bandariskur blaöamaö- ur (181*7-1911) - William Booth, enskur stofnandi Hjdlp- rœðishersins (1829—1912). Andlát: Gregor páfi XIII 1585 — Auguste Lumiere, kvikmynda- brautryðjandi, 1954 — Evelyn Waugh, rithöfundur, 1966. Innlent: Alþingi samþykkir að ríkisstjórnin fari með konungs- vald 1940 — Magnús Stephensen skipaður landshöfðingi 1886 — Nýi stíll 1700 - Friðrik IX kemur í heimsókn 1956 — d. Þórður Sturluson 1237 — f. Einar Ásmundsson hrl. 1912 — Sölvi Helgason hýddur á Akur- eyri 1852. Orð dagsins: Mannkynssagan verður stöðugt meira kapphlaup milli menntunar og hörmunga — H.G. Wells, enskur rithöf- undur (1866-1946). H.G. „Hoot“ Gibson, flugstjóri lýsir fyrir blaðamönnum því er vél sú sem hann stýrði hrapaði skyndilega mörg þúsund fet á fáeinum sekúndum. Það þykir með meiri afrekum að Gibson skyldi takast að ná stjórn á vélinni á ný. „Mér finnst ég 400 ára gamall” Gibson flugmaður sem bjargaði Boeing-flugvél úr bráðri hættu Las Vegas, 9. aprfl. AP. „ÞEIR SEGJA, að aðeins tveir af hverju hundraði Bandaríkja- manna hafi gaman af starfi sínu. Ég er í þeim hópi,“ sagði TWA-flugmaðurinn H.G. Gibson sem bjargaði Bocing 727 og lífi 87 farþega og áhafnar þegar flugvélin snerist í hringi og féll næstum til jarðar áður en hann náði valdi á henni. Flugvélin féll átta kílómetra vegalengd á 'hraða hljóðsins áður en Gibson náði valdi á henni í 3.000 metra hæð, örfáum sekúndum áður en hún hefði hrapað til jarðar. Örfáum mín- útum síðar lenti Gibson vélinni í Detroit með bilaðan væng og lendingarbúnað. Slysið varð ná- lægt Flint í Michigan og flugvél- in, sem er 14 ára gömul var á leið til New York til Minneapolis. - Gibson telur að atburðurinn hafi aðeins varað í 20 sekúndur en hann sagði á heimili sinu í Las Vegas: „Mér finnst ég vera 400 ára gamall. Ég get ekki sofið. Ég er ennþá eins og á nálum." Gibson hefur að baki rúmlega 23.000 flugtíma og hefur flogið í 31 ár. „Fólk segir að flugmenn fái of há laun,“ sagði Gibson. „Ástæð- an til þess að við fáum góð laun er sú að við verðum að vera viðbúnir þessum örfáu hættu- legu sekúndum á fjögurra til fimm ára fresti. Þetta er ekki hægt að verðleggja." Um hvað hugsaði hann þegar flugvélin æddi til jarðar á 1.040 kílómetra hraða á klukkustund. „Ég hafði ekki tíma til að hugsa neitt, en við hefðum getað haft sameiginlega bænastund í lokin," sagði hann. Gibson heldur því fram að einnig eigi heiður skilið aðstoð- arflugmaður háns, Scott Kenn- edy, Gary Banks vélamaður og aðrir af áhöfninni. „Þeir stóðu sig frábærlega vel.“ Efasemdir um réttlæti írönsku byltingarinnar Teheran, 9. aprfl. AP — Reuter. MARGIR ÍRANIR hafa lýst sig samþykka hinum skyndilegu réttarhöldum gegn Amir Abbas Hoveida fyrrum forsætisráðherra og skyndiaftöku hans, en aðrir í höfuðborginni hafa látið í ljós efasemdir um réttlæti byltingarinnar í landinu. Sumir fundu að því að Hoveida hefði ekki verið leyft að hafa verjanda. Margir sem talað var við lýstu yfir stuðningi við nýja byltingardómskerfið. Aðrir óttuð- ust að hefndir gegn fyrrverandi embættismönnum og stuðnings- mönnum fráfarandi stjórnar keyrðu um þverbak. Böðullinn sem líflét Hoveida sagði áður en hann skaut hann með vélbyssu: „Þú hr. Amir Abbas Hoveyda ert skítseiði jarðarinnar og hefur samkvæmt úrskurði þessa dómstóls verið dæmur til dauða...“ Mynd sem blað birti af Hoveida sýndi að hann var klæddur dökkri skyrtu undir þykkri hvítri ullar- peysu. Hann sat á hvítum tréstól í litlu herbergi þar sem um 50 menn voru samankomnir. Margir báru dökk gleraugu. Ayatollah Gafari, sem varð frægur á síðustu dögum febrúar- byltingarinnar fyrir að skjóta niður herþyrlu, brosti þegar Hoveyda bað um grið og rétti upp aðra höndina. Margir íranir hafa reiðzt frétt- inni um aftökuna en láta ekki mikið bera á reiði sinni. En aðrir minnast dauða þúsunda and- stæðinga keisarans og telja slíkar aftökur nauðsynlegar til að hreinsa Iran af gömlu leiðtogunum. Tveir hershöfðingjar og fjórir aðrir hermenn voru einnig leiddir fyrir aftökusveit og skotnir í Iran um helgina, þannig að alls hafa 59 fyrrverandi embættismenn keisar- ans verið líflátnir svo vitað sé. Ákærandi byltingarinnar bar til baka frétt um að hálfsystir keisar- ans, Fatemeh prinsessa, hefði verið handtekin.. Aðstoðarforsætisráðherrann, Abbas Amir-Entezam, vísaði á bug erlendri gagnrýni og sagði að Hoveida væri „þjóðfélagslega óæskilegur, spilltur inn að beini, og hefði átt að sæta refsingu." Amir Entezam sagði að þær ríkisstjórnir sem gagnrýndu aftöku Hoveida og réttarhöldin gegn honum hefðu hagnazt mest á starfi Hoveida í embætti forsætis- ráðherra. Bandaríska utanríkisráðuneytið „harmaði" aftökuna, franski for- sætisráðherrann Raymond Barre lýsti „djúpri hneykslun" og brezka utanríkisráðuneytið sagði i vand- lega orðaðri yfirlýsingu að aftakan væri „mjög hörmuleg". Kurt Waldheim, framkvæmdastjóri SÞ, lýsti „djúpum harmi“. Amir-Entezam sagði: „Hann var sekur. Hvað búizt þið við að dómstóllinn geri í því?“ Hann sagði að byltingardómstólarnir mundu halda áfram störfum „eins lengi og þörf krefur. Það geta orðið sex mánuðir og það geta orðið tvö ár.“ „Hvað sem Ayatollah Khomeini vill gera á að gera,“ sagði maður sem seldi bandaríska vindlinga á svörtum markaði í miðborg Teheran. „Hann veit hvað öllum er fyrir beztu." „Hoveida var sekur um grimmdarverk í 13 ár og það átti að drepa hann. Ég held að byltingardómstólarnir séu góðir, sérstaklega ef imaminn (Khomeini) vill þá.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.