Morgunblaðið - 26.05.1979, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 26.05.1979, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1979 39 Dagskipuninn er sóknarknattspyrna íþróttaviðburður helgarinnar er landsleikur íslands við Vest- ur-Þýskaland í dag kl. 14.00 á Laugardalsvellinum. Til að grennslast fyrir um þýska liðið og leikaðferð þess í dag spjallaði blaðamaður Mbl. við þjálfara liðsins, Jupp Derwali. — Eg hef sagt mínum mönnum frá góðum árangri íslenska liðsins. sigri á móti Austur-bjóðverjum, aðeins eins mark tapi á móti Hollandi; þetta segir sfna sögu, og leiknum er ekki lokið fyrr en 90 mfnútur eru liðnar. Við berum virðingu fyrir öllum liðum og vanmetum enga andstæðinga. Við munum gera okkar besta og reyna að skora eins mörg mörk og hægt er, það er lfka tilgangurinn, sagði hinn viðmótsþýði Dewall og brosti. Þeir sem munu hefja leikinn í dag fyrir okkur eru Maier í markinu, í öftustu vörn verða þeir Konopka, Cullmann, Karl Heinz Foerster, og Bernd Foerster, á miðjunni leika Groh, Zimmer- mann, og Memmering, í framlín- unni verða Kelsch, Hoeness og Hansi Muller. — Svo mun ég skipta inn á eftir því hvernig leikurinn gengur fyrir sig. Þeir sem verða á varamannabekknum eru Kaitz, Hartwig, Schumacher og Schuster. Rummenigge er meiddur og getur ekki leikið með. Við erum með ungt lið, meðal- aldurinn er 22,6 ár. Þar sem ég er að byggja upp nýtt lið hef ég gefið mikið af ungum mönnum tækifæri á að leika. Við töpuðum of mörg- um reyndum leikmönnum úr landsliði okkar á skömmum tíma, og nú tekur það nokkur ár að byggja upp gott lið aftur, en það á Þróttur sótti ÍBV skoraði 0—2 Þróttur — ÍBV FURÐULEGUR var leikur Þrótt- ar og ÍBV f 1. deild á Mclavellin- um í fyrradag. ÍBV vann 2—0 og skoraði iiðið bæði mörkin meðan Þróttur var mun sterkari á vell- inum. Að sfðara markinu skor- uðu, frekar snemma f sfðari hálfleik, lak allt loft úr Þrótti, ÍBV náði öllum völdum á vellin- um, en þá bar svo við, að fleiri mörk voru ekki skoruð. Staðan f háifleik var 1—0, en sfðara markið var afar slysalegt af hálfu markvarðar Þróttar og gerði út um leikinn. Segja má þvf, að ÍBV hafi hafið keppnis- tfmabilið betur en marga grun- aði, þó að ljóst sé að liðið verði að ieika betur ef bæta á einhverju við af stigum að ráði. Allir hafa fyrir löngu fengið sig fuilsadda af malarleikjunum í vor og því miður var leikur ÍBV og Þróttar alger malarleikur. Þeir hafa þó margir verið verri og Þróttur lék framan af leik með því besta sem sést hefur til liðsins í vor, sæmilegar leikfléttur annað slagið. Eyjamenn voru að sama skapi slakir framan af og virtist allt stefna í góða byrjun Þróttar í íslandsmótinu. Þorvaldur í. Þor- valdsson skoraði á 14. mínútu með góðu skoti, en dómarinn, Arnþór Oskarsson, dæmdi það af vegna rangstöðu. Voru skiptar skoðanir um það. Þar fyrir utan sköpuðu Þróttarar sér fá færi þrátt fyrir betri ieik og það kom mjög á óvart þegar Sveinn Sveinsson skoraði fyrsta löglega mark leiksins. Undirritaður er ekki alveg viss um hvort hér hafi verið um glæsimark að ræða, eða hundaheppni að nokkru leyti með markvörð Þrótt- ar stórsökóttan, en Sveinn skaut bogaskoti af nokkuð löngu færi, sem datt inn í netið í horninu fjær, 1—0. eftir að koma, það er mikið af efnilegum leikmönnum í þýskri knattspyrnu í dag. — Knattspyrnan í heiminum hefur aldrei verð betri en í dag. Líkamsæfing leikmanna er meiri en nokkru sinni fyrr. Leikskipulag er allt betra og hraðinn meiri. I Evrópu er ekkert eitt land sem sker sig úr, knattspyrnan er orðin mjög jöfn að gæðum. Því hefur verið haldið fram að of mikil áhersla sé lögð á varnar- leik í knattspyrnu í dag, það er ekki rétt. Og dagskipun mín í dag verður sóknarknattspyrna. Hans Muiler, einn yngsti leik- maður liðsins, sagðist lítið vita um íslenska knattspyrnu. Þó hefði Hansi Miiller. hann heyrt getið um íslendingana í atvinnuliðunum í Belgíu og Holllandi. Hann sagði að sér litist vel á völlinn og vonaðist til að leikurinn yrði skemmtilegur og að góð knattspyrna yrði leikin. —þr. Fyrri hálfleikur var nokkuð fjörugur til að byrja með, Tómas Pálsson skallaði naumlega fram hjá marki Þróttar eftir horn- spyrnu og á hinum enda vallarins varði Ársæll af snilld þrumuskot Ágústs Haukssonar. En það voru Þróttarar sem fyrr, sem höfðu betri tök á leiknum og það kom því enn á óvart þegar það voru Eyja- menn sem þættu marki við. Og annað eins slysamark á varla eftir að sjást í langan tíma. Markið kom á 16. mínútu síðari hálfleiks, Gústaf Baldvinsson skaut þá máttlausu og með öllu hættulausu skoti að marki, Ólafi markverði tókst á einhvern undarlegan hátt að þvæla knettinum úr höndum sér og beint á tærnar á Ómari Jóhannssyni, sem hafði lítið fyrir því að renna knettinum í opið netið, 2—0. Nú brá svo við, að lið Þróttar varð hvorki fugl né fiskur og það mætti næstum segja, að Eyja- menn hafi slegið tjöldum í vítateig Þróttar og nokkrum sinnum þrumuðu varnarmenn Reykjavík- urliðsins knettinum sem lengst í burtu á síðustu stundu. En fleiri urðu mörkin ekki, því tvö dýrmæt stig til Eyja. Sem fyrr segir, var knattspyrn- an yfirleitt ekki burðug að þessu sinni, en sem betur fer virðist vorið vera að ríða í hlað og hugsanlega stutt í grasið. Leik- menn eins og Baldur Hannesson, Páll Ólafsson og Þorvaldur Þor- valdsson áttu allir góða spretti, einkum í fyrri hálfleik fyrir Þrótt, Tómas Pálsson og Sveinn Sveins- son voru góðir svo og markvörður- inn Ársæll Sveinsson. í STIITTU MÁLI: ÍNland»mótlA 1. delld. Melavbllur: Þróttur — ÍBV: 0—2 (0—1). Mörk ÍBV: Svelnn SveinsNon og ómar JóhannHHon. ÁminninKar: Enicin. Dómari: Arnþór ónkarHHon. gg • Jupp Derwall, þjáifari vestur-þýska landsliðsins í knattspyrnu. Islandsmet hjá Guðrúnu Þróttur: Ólafur Guömundsson 1, Rúnar Sverrisson 2, Úlfar Hróarsson 2, Sverrir Einarsson 2, Egill Steindórsson 1, Þorvaldur Þórvaldsson 2, Baldur Hannesson 2, Ágúst Hauksson 2, Páll Ólafsson 2, Ársæll Kristjánsson 1, Halldór Arason 1, Sverrir Brynjólfsson (vm) 1. ÍBV: Ársæll Sveinsson 3, Snorri Rútsson 2, Viöar Elíasson 2, Þórður Hallgrímsson 2, Friöfinnur Finnbogason 2, Sveinn Sveinsson 2, Örn Óskarsson 2, Óskar Valtýsson 2, Ómar Jóhannsson 2, Tómas Pálsson 3, Gústaf Baldvinsson 2. GUÐRÚN Ingólfsdóttir setti í fyrradag nýtt íslandsmet í kringlukasti kvenna á frjáls- íþróttamóti á Selfossi. Kastaði Guðrún 46,60 metra. Gamla metið átti hún sjálf en það var 42,84 metrar. Guðrún virðist vera í mjög góðri æfingu um þessar mundir. öll köst hennar voru vel yíir gamla metinu. Með meti þessu skipar Guðrún sér á bekk með bestu kringlukösturum kvenna á Norðurlöndum. — ÞR. 2 leikir í 2. deild RÓLEGT verður yfir ís- landsmótinu í knattspyrnu um helgina, aðeins tveir leikir í 2. deild, báðir á laugardaginn. Reynir mætir Þrótti frá Norðfirði á Sand- gerðisvelli klukkan 18.00 og Selfoss mætir Austra á Sel- fossi klukkan 18.30. Fimleika- sýning í tilefni 70 ára afmælis Aftureldingar efnir félagið til mikillar fimleikasýning- ar að Varmá f Mosfellssveit í dag kl. 15.00. Mun fimleika- fólk úr Gerplu, Ármanni og Björk sýna listir sýnar. Miðaverð er kr. 1000. Úrslitakeppni FRÍ í prípraut ÚRSLITAKEPPNI í þríþraut FRÍ og Æskunnar fer fram sunnudaginn 27. maf og hefst hún kl. 14.00. Keppnin íer fram á Laugar- dalsvelli f Reykjavík um ieið og keppnin f 1. hluta Meistaramóts íslands. Meistaramót í tugþraut MEISTARAMÓT íslands í tugþraut fer fram á Laugar- dalsvellinum á súnnudag og hefst kl. 14.00, einnig verður keppt f 3000 metra hlaupi kvenna og 4x800 metra boð- hlaupi. Keppninni verður svo fram haldið á mánudag kl. 18.00 og verður þá fimmtarþraut á dagskrá og 10.000 metra hlaup. Landsliðs- treflar FÉLAG einstæðra foreldra mun vera með sölu á landsliðstreflum á Laugardalsvellinum í dag. Verð treflanna er aðeins kr. 2000 og ætti fólk ekki láta sér muna um að styrkja gott málefni og kaupa trefil um leið og það ætti að tryggja að viðkomandi fengi ckki kvef á vellinum í þeirri kulda- nepju sem nú er. Þór vann ÞÓR Akureyri sigraði Fýlki í 2. deildinni fknattspyrnu f gær- kvöldi 3—2 í hörkuleik. Leikur- inn fór fram á Akureyri í frekar óhagstæðu veðri. Staðan í hálf- leik var 2—1 Þór í hag. Þórsarar tóku forystuna f leiknum strax á 9. mfnútu með marki Guðmundar Skarphéðinssonar. en hann skor- aði öll þrjú mörk Þórsara í leiknum. Fylkismenn jafna sfðan metin með marki Hilmars Sig- hvatssonar beint úr aukaspyrnu. Guðmundi tókst að bæta einu marki við fyrir lok hálfleiksins. Fylkismenn urðu fyrir því að missa mann útaf. Hilmari Sig- hvatssyni var vísað útaf fyrir að sparka f liggjandi leikmann. og léku Fylkismenn því einum færri það scm eftir var af leiknum. Einar Ilafsteinsson skoraði sfð- ara mark Fylkis en Guðmundur náði að skora þrennu og innsigla sigur Þórs. SB/þr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.