Morgunblaðið - 25.08.1979, Síða 21
21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. ÁGÚST 1979
Indland:
Stj ómarandstaða herð-
ir róðurinn gegn Singh
Nýju Delhi, 24. ágúst. Reuter.
Stjórnarandstöðuflokkarnir í
Indlandi reyndu í kvöld að herða
enn á þrýstingi sínum á hendur
Reddy forseta landsins að láta
Charan Sin»{h forsætisráðherra
víkja í stað þess að láta hann
gegna starfi þar til kosningarnar
hafa farið fram í landinu í
nóvember eða desember.
Janataflokkurinn hvatti til
verkfalla í Delhi í dag til að sýna
samstöðu með þessari kröfu, en
Hætti við flugrán
Larnaca. hýpur. 24. á(fúst. AP.
LIBYSKUR námsmaður. rúmlega tvítugur rændi í dag farþegaflugvél
frá Libyu, en gafst síðan upp og gaf sig á vald lögreglu eftir að vélin
hafði lent á Larnaca á Kýpur. Með vélinni voru 60 farþegar og níu
manna áhöfn.
Flugvallarstarfsmenn í Larnaca
sögðu að vélinni hefði verið rænt
yfir Benghazi í Libyu og í fyrstu
var henni neitað um leyfi til að
lenda á Kýpur er hún kom inn í
gríska lofthelgi. Vélin hélt þá
áfram í áttina til Líbanon og flaug
svo yfir Sýrland. Vélin sneri þá
aftur og Kýpurmenn ákváðu að
leyfa henni að lenda, enda var þá
eldsneyti orðið af skornum
skammti. Þegar vélin var lent
gafst ræninginn mótþróalaust upp
og tóku öryggisverðir hann í sína
vörzlu. Sjónarvottar segja að mað-
urinn hafi verið óvopnaður þegar
hann gekk frá borði, en hann hafði
skotvopn í pússi sínu og hafði
ógnað áhöfninni.
fékk tiltölulega fáa til að taka þátt
í því. Aftur á móti létu æstir
andstæðingar Reddys reiði sína í
ljós með því að brenna bústaö
Reddys í Hyderbad. Congress-
flokkur Indiru Gandhi hefur nú
tekið undir kröfurnar um að Singh
segi af sér. Tveir forystumenn
flokksins, Stephen, talsmaður
hans á þingi, og K. Tripathi, gengu
á fund Reddys í dag og óskuðu
eftir því að hann frestaði réttar-
höldum yfir Indiru og sagði
Stephen að forsetinn hefði viður-
kennt að hann þyrfti sérstaklega
að hafa auga með Singh og bráða-
birgðastjórn hans fram að kosn-
ingum. Stjórnarandstaðan segir
að Singh muni nota aðstöðu sína
sér og sínum til framdráttar í
kosningunum.
ERLENT
Iranir leita á náðir
Bandaríkjamanna
Wa.shington. 24. áKÚst. AP.
ÍRANIR hafa nú tekið upp við-
ræður við Bandaríkjamenn um
vopnasölusamning að upphæð
4—5 milljarðar dollar, sem und-
irritaður var í tíð fyrri valdhafa í
íran að sögn ónafngreinds em-
bættismanns í varnarmálaráðu-
neytinu bandaríska. þrátt fyrir
óvináttu ríkjanna.
Embættismaðurinn sagði enn-
fremur að þegar hefði verið búið
að afgreiða nokkurn hluta vopn-
anna, en það sem eftir væri, væru
aðallega varahlutir og minni vopn.
Stjórn Khomeinis í íran hafði
fyrr á þessu ári afturkallað pönt-
ún á vopnum sem fyrri valdhafar
höfðu gert að upphæð um 7
milljarðar dollar. I þeirri pöntun
voru stór herskip og orrustuflug-
vélar.
Embættismaðurinn sagði ennfr-
emur að þeir varahlutir sem írani
vantaði tilfinnanlega væru í
Boeing 747 flutningaflugvélar og
F-4 herþotur.
Richard Nixon og kona hans veifa til nærstaddra er þau ganga
út úr íbúð sem þau hafa fest kaup á við Fimmtu götu í New
York. Vonast þau til að geta flutzt þangað um áramót. Kveðst
Nixon munu sinna þar skriftum, lestri bóka og dreymi þau hjón
um að lifa þar kyrrlátu lífi og friðsælu.
Mondale
áleid
tilKína
Washington, 24. Ag. Reuter.
VALTER Mondale, varaforseti
Bandaríkjanna, hélt frá Banda-
rikjunum í dag áleiðis til Kína
og er honum ætlað að bæta
samskipti Bandarfkjanna og
Kína og hraða því að samkomu-
lag náist milli landanna
tveggja. Sambtíð landanna
hefur ekki verið jafn þekkileg
og æskilegt hefur verið talið
síðan rfkin viðurkenndu loks
formlega hvort annað í janúar-
mánuði síðast liðnum.
Eitt þeirra mála sem Mondale
hefur hug á að ræða er flótta-
mannavandamálið í Suðaustur-
asíu og hvernig veita skuli hjálp
stríðshrjáðri Kambódíu, en
hungursneyð og hvers kyns
óáran vofir þar nú yfir. Mondale
mun einnigræða fyrirkomulag
og framkvæmd samninga um
samvinnu á sviði efnahagsmála,
vísinda og menningar, en drög
að þeim hafa verið gerð. Öruggt
má telja að vikið verði einnig að
SALT II samningnum en Kín-
varjar hafa gagnrýnt hann harð-
lega og segja hann stórvelda-
blekkingu. Mondale mun hitta
alla æðstu ráðamenn Kína að
máli. Hann Verður í Kína fram
til 1. september og fer þá til
Hong Kong og á heimleiðinni
mun hann tilla niður tá í Japan
til stuttra viðræðna við Ohira
forsætisráðherra Japans.
Þrír tékkóslóvak-
ískir andófsmenn
teknir í Póllandi
Varsjá 24. ágúst AP.
PÓLSKA lögreglan hefur hand-
tekið þrjá Tekkóslóvaka sem
hugðust fara í hungurverkfall
ásamt pólskum andófsmönnum
til þess að láta f ljós stuðning við
þá hina mörgu í Tékkóslóvakíu
sem sitja í fangelsum og bíða
féttarhalda vegna Charter 77.
Talsmenn pólsku andófsmanna-
samtakanna KOR sögðu að Tékk-
óslóvakarnir þrír hefðu verið
handteknir á leið frá Krakow í
suðurhluta landsins til ótiltekins
ákvörðunarstaðar þar sem hung-
urverkfallið skyldi hefjast. Tveir
Tékkóslóvakanna voru nafn-
greindir. Ekki er ljóst hvort þeir
verða reknir úr landi eða dregnir
þar fyrir rétt.
Tíu leiðtogar Charter 77 munu
verða dregnir fyrir rétt þar á
næstu vikum og hefur framkoma
tékkóslóvakískra stjórnvalda vak-
ið hina megnustu andúð vítt um
lönd.
Borges hylltur á
áttrœðisafmœti igœr
Buenos Aires, 24. ág. AP.
„EG er enn furðu lifandi, en
sjúkur samt,“ sagði Jose Luis
Borges, hið heimsþekkta argen-
tfnska skáld í viðtali við
AP-fréttastofuna í tilefni áttræð-
isafmælis sfns f dag, föstudag.
Blöð víðs vegar hylltu Borges og
framlag hans til bókmennta og
víða var látin í Ijós undrun á því
hversu Nóbelsnefndin í Stokk-
hólmi hefur margsinnis gengið
framhjá honum við úthlutun
Nóbelsvcrðlauna. Borges hefur
ritað Ijóð, smásögur og ritgerðir
er þýddar hafa verið á flest
menningartungumál.
„Síðan ég var ungur drengur hef
ég litið á Borges með ósvikinni
aðdáun og hún hefur vaxið með
hverju því sem hann hefur sent frá
sér,“ sagði Ernesto Sabato, argen-
tínskur höfundur, í grein sem hann
skrifaði um Borges. „í augum
kynslóðar minnar er hann meistari
stíls og máls. Á þessu afmælisári
hans ættu Nóbelsverðlaunin að
falla honum í skaut þótt seint sé.“
Borges sagði nýlega í viðtali að
hann væri farinn að hallast að því
að það væri skandinavisk hefð að
láta sjg ekki fá Nóbelsverðlaunin.
Borges var einkar hógvær og bætti
við: „Hvernig væri hægt að láta
mig fá þau verðlaun sem Kipling
fékk, Bernhard Shaw og Russel?"
Borges hóf rithöfundarferil sinn
níu ára gamall þegar hann þýddi á
spönsku „The Happy Prince"
Oscars Wilde. Síðan hefur hann
ritáð fjölmargar smásögur og rit-
gerðir eins og áður segir og hlotið
alheimslof fyrir.
Byrja
hórdóm
aðeins
12ára
Gení. Sviss. 24. áfcúst. AP.
UM það bil 50 þúsund
unglingsstúlkur hafa á
undangengnum árum
verið neyddar til þess að
starfa í vændishúsum í
nokkrum bæjum og borg-
um norð-austurhluta
Brasilíu að því er haft
eftir talsmanni ILO. Al-
þjóðlegu verkalýðsmála-
stofnunarinnar. Enn-
fremur var haft eftir tals-
manninum að stúlkurnar
væru margar hverjar að-
eins tólf ára gamlar.
Stúlkurnar hefja yfir-
leitt störf tólf ára gamlar
og eru að fram til tvítugs,
en þá eru þær taldar vera
'orðnar of gamlar. Stúlk-
unum er gert að kaupa sér
verndara fyrir 2,22 doll-
ara á dag en fá sjálfar
aðeins 37 cent fyrir hvern
„viðskiptavin", að sögn
talsmannsins.
Veður
víða um heim
Akureyri 11 skýjaó
Amsterdam 19 skýjað
Apena 33 bjart
Barcelona vantar
Berlín 20 skýjað
Brussel 24 bjart
Chicago 27 bjart
Denpasar vantar
Feneyjar 20 rigning
Frankfurt 19 rigning
Genf 18 akýjað
Helainkí 18 skýjað
Hong Kong 31 akýjað
Ibiza 26 skýjað
Jerúsalem 31 bjart
Jóhannesarb. 18 akýjað
Kaupmannahöfn 19 skýjað
Lissabon 26 bjart
Laa Palmaa 24 skýjað
London 17 skýjað
Loa Angeles 31 bjart
Madrid 33 bjart
Majorka vantar
Malaga vantar
Miami 30 bjart
Montreal 27 bjart
Moakva 23 bjart
Nýja Delhi 35 skýjað
New York 28 skýjað
Osló 16 skýjað
Paría 20 bjart
Rio de Janeiro 27 skýjað
Rómaborg 25 bjart
San Franciaco 20 bjart
Reykjavík 11 alskýjað
Stokkhólmur 19 bjart
Teheran 34 bjart
Tel Aviv 30 bjart
Tókíó 31 skýjað
Toronto 24 rigning
Vancouver 22 bjart
Vínarborg 23 skýjað
Bretum
fækkar
London. 24. ágúst. AP.
FJÖLDI íbúa í Bretlandi og á
Norður-írlandi á miðju ári 1978
var 55.836.000 samkvæmt nýbirt-
um mannfjöldaskýrslum stjórn-
valda. Hafði Bretum þá fækkað
um 17.000 frá árinu áður.
Tvær ástæður eru tilgreindar,
fækkun fæðinga og aukinn land-
flótti.