Morgunblaðið - 06.02.1980, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 1980
11
„La T raviata"
í Háskólabíói
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT íslands stendur íyrir uppfærslu
á óperunni „La Traviata“ í Háskólabiói 12. og 14. febrúar
n.k. Flytjendur ásamt hljómsveitinni eru Söngsveitin
Fílharmónia, kórstjóri er Marteinn H. Friðriksson, undir-
leikari Agnes Löve og einsöngvararnir Ólöf K. Harðardótt-
ir (Violetta), Garðar Cortes (Alfredo), Guðmundur Jónsson
(Germont), Anna Júlíanna Sveinsdóttir (Flora), Elísabet
Erlingsdóttir (Annina), Már Magnússon (Gaston), Halldór
Vilhelmsson (Baron Duphol), Hjálmar Kjartansson (Mach-
ese), Kristinn Halisson (dr. Grenvil) og Kristinn Sig-
mundsson sem fer með 4 lítil hlutverk. Hljómsveitarstjóri
er Bandaríkjamaðurinn Gilbert Levine og aðstoðarmaður
hans er Sue Marie Peters en hún er fastráðin við óperuna í
San Fransisco. Flytjendur eru alls um 180.
„Sambærilegt
við sýningar
stærstu óperuhúsa“
Flutningur „La Traviata" í
Háskólabíói verður í formi tón-
leika, þ.e. leikur, búningar og
leiktjöld verða ekki með í upp-
færslunni. Á blaðamannfundi
sem haldinn var í tilefni óperu-
flutningsins sagði Sue Marie
Peters, að vegna þessa þyrftu
söngvararnir að tjá sig algjör-
lega í söng sínum.
Stjórnandinn, Levine, sagði að
hann væri mjög undrandi og
ánægður með frammistöðu alira
þeirra sem þátt tækju í upp-
færslunni. „Mér finnst mjög
ánægjulegt að starfa með svo
færu fólki sem einnig er viljugt
að vinna,“ sagði hann og Peters
tók undir þau orð. Voru þau bæði
„La Traviata" er ópera í þrem-
ur þáttum. Tónlistin er eftir
Guiseppe Verdi en textinn sem
er á ítölsku eftir Victor Hugo og
Francesco Maria Piave. Óperan
var frumflutt í Feneyjum 1853
en var í fyrsta skipti flutt á
íslandi í Þjóðleikhúsinu árið
1951. Meðal þeirra sem þá tóku
þátt í flutningi óperunnar var
Guðmundur Jónsson sem nú er
einnig meðal söngvara. Stjórn-
andinn, Levine, fer til Berlínar
strax að lokinni síðari sýning-
unni og stjórnar þar tónleikum
Fílharmóníuhlj ómsveitar
Berlínar. Þeir möguleikar eru
fyrir hendi að Levine komi
hingað aftur að þeim tónleikum
loknum og stjórni 2—3 sýning-
um í viðbót á „La Traviata" ef
aðsóknin verður mikil á hinar
tvær sýningarnar.
Sigurður Björnsson framkvæmdastjóri Sinfóniuhljómsveitar íslands ásamt hljómsveitarstjóranum
Gilbert Levine og aðstoðarmanninum Sue Marie Peters. Ljósm. rax.
sammála um að flutningur
íslendinganna á „La Traviata"
yrði sambærilegur við uppfærsl-
ur stærstu óperuhúsa.
íslensku söngvararnir voru
einnig mættir á blaðamanna-
fundinum og sögðu það vera
mjög ánægjulegt að taka þátt í
flutningi óperunnar og fá tæki-
færi til að vinna undir stjórn
Levine og Peters. „Við höfum
góðan stjórnanda og undirleik-
ara hér en þá vantar reynslu til
að færa upp óperur," sögðu þeir.
Garðar Cortes sagði að þessi
óperuflutningur sannaði það að
möguleiki væri fyrir hendi til að
starfrækja óperu hér á landi.
Sigurður Björnsson fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar tók undir þau um-
mæli og sagði að þetta væri í
fyrsta skipti sem Sinfóníu-
hljómsveitin stæði fyrir óperu-
flutningi en ekki í það síðasta ef
hann fengi einhverju um ráðið.
SNÖGGUR
TÖCGUR HF.
SAAB. Hinn sérstæói bíll frá Svíþjóð UMBODIÐ
BILDSHÖFÐA 16 SIMI 81530