Morgunblaðið - 13.02.1980, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. FEBRÚAR 1980
17
stöðvaðar
þessar tölur segja sína sögu um
vægi þeirra ákvörðunar að stöðva
nú loðnuveiðarnar.
Almennt um stöðvunina, sem
hann telur ótímabæra og byggða á
hæpnum forsendum, sagði Kristján
Ragnarsson:
— Ég tel að þessar mælingar, sem
beitt er við rannsóknirnar séu ekki
fiskifræði í venjulegum skilningi,
heldur er hér aðeins um að ræða, að
mæla magnið í sjónum og við teljum
að þær aðferðir hafi ekki sannað
gildi sitt. Kemur það vel í ljós ef litið
er á það, að í þremur leiðöngrurn á
síðasta ári var niðurstaðan mjög
misjöfn, allt frá engu og upp í 800
þúsund tonn. Þessum aðferðum við
Kristján Ragnarsson formaður LÍÚ:
Ótímabær og byggð
á hæpnum forsendum
KRISTJÁN Ragnarsson formaður
LÍÚ sagði í samtali við Mbl. í gær,
að hver dagur síðan loðnuvertíðin
hófst 8. janúar siðastliðinn, hefði
gefið skipum og áhöfn að meðaltali
í tckjur 160—170 þúsund krónur.
Útflutningstekjur frá upphafi
vertíðar miðað við veiðar hvern
einstakan dag hefðu verið 350
miiljónir króna, og sagði hann
loðnurannsóknir hefur ekki verið
beitt áður.
— Skipstjórarnir eru með 51 mæli
í skipum sínum og þeir hafa verið á
þessum slóðum í allan vetur. Þeir
telja einróma, og meðal þeirra eru
hinir varfærnustu menn, að magnið
í sjónum sé sízt minna, en verið hafi
og með öllu óhætt að halda áfram,
sagði Kristján Ragnarsson.
Þorsteinn Sigurðsson í Vestmannaeyjum:
„Trúum ekki að þetta
séu lok vertíðarinnar“
— VIÐ trúum því nú ekki að þessi
stöðvun þýði lok vertíðarinnar og
vonum svo sannarlega að hér sé
aðeins um tímabundna stöðvun að
ræða, sagði Þorsteinn Sigurðsson
framkvæmdastjóri Fiskimjölsverk-
smiðjunnar í Vestmannaeyjum í
gær. Tvær fiskimjölsverksmiðjur
eru í Vestmannaeyjum og í fyrra
var þar tekið á móti um 80 þúsund
tonnum af loðnu í bræðslu. Útflutn-
ingsverðmæti loðnuaíurða frá Eyj-
um námu um 4 milljörðum króna.
Nú eru komin um 3400 tonn af
loðnu til Vestamanneyja á vertíð-
inni.
— Það er margt, sem grípur inn í
á þessari vertíð og það eru ekki aliar
syndir guði að kenna, sagði Þor-
steinn þegar blaðamaður spurði
hann álits á þeim aðgerðum sjávar-
útvegsráðherra að stöðva nú loðnu-
veiðarnar. — Fiskurinn hefur hegð-
að sér mjög einkennilega í vetur, en
það er ljóst að það er gífurlegt áfall
fyrir byggðina hér ef það verður
enginn fiskur á ferðinni hér í vetur.
— Annars vil ég segja það, að í
þennan veiðiskap vantar alla dreif-
ingu og hefur vantað allan tímann.
Maður hélt, að þegar loðnulöndun-
arlögin voru sett og Loðnunefnd
fæddist, að það myndi hafa dreif-
ingu á aflanum í för með sér. Meðan
flutningasjóður starfaði var um
nokkra dreifingu að ræða, en nú
starfar hann ekki lengur og það er
happa- og glappa-aðferð, sem ræður
ferðinni.
— Það er sett í botn hjá öllum
flotanum, þessum 50 skipum, þegar
vertíðin hefst og það eru allir að
eltast við síðasta farminn allan
tímann. Hvort þetta er nú hag-
kvæmni í rekstri er ég ekki dómbær
á, en heldur finnst mér þetta of
mikill gusugangur og lítil skipulagn-
ing, sagði Þorsteinn Sigurðsson.
Óskar Vigfússon formaður Sjómannasambandsins:
„Tekjumöguleikum sjómanna
er stef nt í hreinan voða44
Á LOÐNUFLOTANUM eru um 750
skipverjar og flestir þeirra í Sjó-
mannasambandi íslands. í viðtali
við óskar Vigfússon, formann sam-
bandsins, í gær kom fram, að
forystumenn þess og Farmanna- og
fiskimannasambands íslands voru
ckki kallaðir til fundar hjá nýskip-
uðum sjávarútvegsráðherra áður
en ákvörðun um stöðvun loðnuveið-
anna var tekin i gær.
„Ég tel að hinn nýi sjávarútvegs-
ráðherra hafi ekki gætt þeirrar
skyldu sinnar, sem ég tel vera að
hafa fullt samráð við hagsmunaaðila
í sjávarútvegi varðandi ákvarðanir
ráðuneytisins á hverjum tíma,“
sagði Óskar. „Eftir því sem ég kemst
næst var haft samráð við fiskifræð-
inga og formann LÍÚ, en við hins
vegar látnir alveg afskiptalausir um
þessa stöðvun loðnuveiða með tæp-
lega sólarhringsfyrirvara.
Stöðvunin sem slík er að sjálf-
sögðu afar illa séð af hálfu sjó-
manna. Hér er um að ræða mikla
hagsmunaskerðingu og tekjumögu-
leikum sjómanna stefnt í hreinan
voða að því er ég tel. Mat fiskifræð-
inganna á stofnstærðinni ætla ég
ekki að fara náið út í, en ef það er
einhver fótur fyrir því, að þessi
ákvörðun hafi verið tekin með
hliðsjón af væntanlegum viðræðum
um landhelgi við Jan Mayen og
ráðherrann sé þar með að skapa sér
góðvilja hjá Norðmönnum, þá tel ég
það vægast sagt afar varasama
aðferð," sagði Óskar Vigfússon með-
al annars í samtali við Mbl.
Sagði hann ennfremur mjög þungt
hljóð vera í sjómönnum eftir miklar
kjaraskerðingar og öryggisleysi í
atvinnu sinni á undanförnum mán-
uðum.
Sigurður Sigurðsson á Gísia Árna:
Sjáum ekki að nein
hætta sé á f erðum
yERIÐ var að landa loðnu úr Gísla
Árna RE síðdegis í gær er Morgun-
blaðið náði tali af Sigurði Sigurðs-
syni skipstjóra. Hann sagði það
sína skoðun, að 4—500 þúsund
tonna vciði hefði verið nær lagi og
það væru ekki aðeins sjómennirnir,
sem misstu atvinnuna með þessum
aðgerðum, heldur hefðu útgerð og
verksmiðjur þurft á þeirri veiði að
halda til að endar næðu saman.
— Ég held að við getum allir orðið
sammála um að hætta ef einhver
hætta er á ferðum, en sjáum ails
ekki fram á neitt slíkt, sagði Sigurð-
ur. — Þegar við sjáum og vitum af
svona miklu magni, þá viljum við fá
að halda áfram. Við erum á þessum
slóðum daglega og fylgjumst með
þessu í okkar tækjum, auk þess að
við hljótum að vita eitthvað í okkar
haus. Það er ekki hægt að kveða upp
dauðadóm yfir öllum þessum flota,
við þurfum að fá eitthvað að fiska og
það eru fáir okkar, sem geta farið á
aðrar veiðar, sagði Sigurður á Gísla
Árna.
Aðalsteinn Jónsson á Eskifirði:
„Útlitið vægast
sagt miög slæmt“
Á ESKIFIRÐI voru í fyrravetur
brædd um 58 þúsund lestir af
loðnu, en að sögn Aðalsteins
Jónssonar á Eskifirði, er útlit
fyrir að þangað berist á yfir-
standandi vertíð aðeins um 10
þúsund tonn. Sagði hann það
ljóst, að þessi ákvörðun sjávar-
útvegsráðherra væri gífurlegt
áfall fyrir Eskifjörð og þá um
leið fyrir aðra staði sunnar á
Austfjörðum.
— Menn eru búnir að fjárfesta
gífurlega í loðnuverksmiðjunum
og bíða eftir því með öndina í
hálsinum í allan vetur að fá
einhver verkefni, sagði Aðal-
steinn. — Ef veiðarnar hefðu verið
stöðvaðar nú með t.d. viku fyrir-
vara hefði það breytt miklu fyrir
okkur á þessum stöðum. Nú er
skyndilega klippt á og útlitið er
vægast sagt mjög slæmt. Menn
héldu að með skipan nýs sjávar-
útvegsráðherra væri prinsinn
kominn, sem myndi leysa okkur úr
álögum, en hann hefur riðið hjá
garði í þetta sinn.
— Svo þykjast þeir vera að
geyma eitthvað til hrognatöku,
hélt Aðalsteinn áfram. — En það
er alveg ósamið um verð á hrogn-
unum, en í því sambandi þó verið
rætt um að kannski fáist þriðj-
ungur af því verði, sem fékkst
fyrir hrognin í fyrra. Þar að auki
liggja víða í frystihúsum um
landið hrogn frá vertíðinni í fyrra.