Morgunblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 01.03.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. MARZ 1980 Stykkishólmur: Landkrabbar — nýtt íslenzkt leikrit frumsýnt Stykkishólmi. 28. febrúar. LEIKFELAGIÐ Grímnir í Stykkishólmi frumsýnir um næstu helgi nýtt ís- lenzkt leikrit eftir Hilmar Hauksson sjávarlíffræðing, og nefnist leikritið Land- krabbar. Þetta er í fyrsta skipti sem verkið er sett á svið. Leik- urinn gerist í frystihúsi úti á landi. Sextán leikarar flytja hlutverkin átján, auk hljóðfæraleikara, en marg- ir söngvar eru í sýningunni. Leikstjóri er Þórunn Pálsdóttir leikari. Fyrsta sýning verður í Félagsheimilinu í Stykk- ishólmi sunnudaginn 2. marz n.k. kl. 20. Önnur sýning er ákveðin þriðjudaginn 4. marz á sama stað. Fréttaritari HAfundurinn . Ililmar Ilauks- son og leikstjórinn, Þórunn Pálsdóttir. Frá lögreglunni: Vitni vantar að ákeyrslum SLYSARANNSÓKNADEILD lögreglunnar í Reykjavík hefur beðið Morgunblaðið að auglýsa eftir vitnum að cftirtöldum ákeyrslum í borginni. Þeir, sem geta veitt upplýsinKar um þessi mál eru bcðnir að hafa samband við deildina sem alira fyrst. Mánudaginn 18. febr. sl. var ekið á bifreiðina R-48, sem er Peugeot fólksbifr., græn að lit á bifreiðastæði við Fossberg á Skúlagötu 63. Átti sér stað frá kl. 9.00 til 12.00. Bifreiðin er skemmd á hægra framaurbretti og er grár litur í skemmdinni. Miðvikudaginn 20. febr. sl. var ekið á bifr. R-187, sem er Fiat fólksbifreið rauð að lit. Átti sér stað iim kl. 21.00 við biðskýli S.V.R. við Háaleitisbraut, að norð- an verðu við biðskýlið. Tjónvaldur er brún og hvít bifreið og var kona ökumaður á bifreiðinni. Er öku- maður þessi vinsamlega beðin að hafa samband við lögregluna. Skemmd á R-187 er á vinstra afturhorni. Föstúdaginn 22.2 sl. var ekið á bifreiðina R-29441 sem er Sun- beam fólksbifreið brún að lit. Átti sér stað er bifreiðinni R-29441 var ekið á hægri akrein á Skúlagötu er Skoda bifreið var ekið framúr á vinstri akrein og árekstur varð. Var á milli Barónsstígs og Vita- stígs á vesturleið. Skemmd á R-29441 er á vinstra framaur- bretti svo og framhöggvari skemmt. Er Ijósblá eða hvít máln- ing í skemmdinni. Föstudaginn 22.2. sl. var ekið á bifreiðina G-11339 sem er Austin Mini fólksbifreið, vínrauður á móts við Stjörnuskóbúðina við Stjörnubíó. Átti sér stað frá kl. 9.30 til kl.10.00. Skemmd á G- 11339, er á hægra framaurbretti. Laugardaginn 23.2. sl. var ekið á bifreiðina G-7900, sem er Volvo, fólksbifreið gul að lit. Átti sér stað eftir kl. 20.00 og á bifreiðastæði við Kirkjutorg 6. Skemmd á bif- reiðinni er á vinstri framhurð og er svart í skemmdinni eins og eftir gúmmí. Sunnudaginn 24. febr. var til- kynnt að ekið hefði verið á bifreið- ina R-57669, sem er Volkswagen Passat gulur að lit á bifreiðastæði við Eskihlíð 22. Skemmd á bifr. er á hægra framaurbretti. Fimmtudaginn 28. febr. var tilkynnt að ekið hefði verið á bifreiðina G-2388, sem er Ford Fíesta rauð að lit. Átti sér stað á Amtmannsstíg við 4. eða 5. stöðumæli neðanfrá talið frá Lækjargötu milli kl. 11.00 til 13.00. Skemmd á bifreiðinni er á vinstri hurð og er skemmdin í höggvara- hæð. Veður Akureyri 4 alskýjað Amsterdam 8 C0 f o> Aþena 8 skýjaó Barcelona 14 mistur Berlín 4 skýjaó BrUssel 10 skýjaó Chicago -2 skýjaö Feneyjar 8 þokumóöa Frankfurt 3 skýjaö Gent 4 skýjaó Helsinki 2 skýjaö Jerúsalem 10 skýjaó Kaupmannahöfn 0 heióskírt Las Palmas 18 léttskýjaó Líssabon 16 heiöskírt London 11 heióskírt Los Angeles 22 skýjaö Madríd 10 heíóskirt Malaga 16 léttskýjaö Mallorca 14 léttskýjaó Miami 24 heiöskírt Moskva -2 heióskírt New York 0 heiðskírt Osló 2 heióskírt París 7 skýjaó Reykjavík 2 haglól Rio de JaneirO 38 skýjaó Róm 13 heióskírt Stokkhólmur 2 skýjað Tel Aviv 16 skýjaó Tókýó 33 heióskírt Vancouver 13 skýjaó Vínarborg 0 skýjaó Stórsekta kraf izt af landhelgisbrjót Frá fréttaritara-Morgunblaðsins. Góðvon. Grænlandi. í gær. LANDSRÉTTURINN á Græn- landi tók til dóms í dag mál vestur-þýzka verksmiðjutogar- ans „Heidelberg“ sem var tekinn að meintum ólöglegum veiðum íslandsmegin miðlínunnar milli íslands og Grænlands aðfaranótt 19. febrúar. Skipstjórinn neitaði því í rétt- arhöldum í dag að hann hefði flúið undan eftirlitsskipinu „Ingólfi" og hélt því fram að þar sem hann hefði fengið mótsagnakenndar fyrirskipanir hefði hann ákveðið að sigla til Suðureyja þar sem hann hefði heyrt um góða veiði. Ákæruvaldið segir að flóttinn muni þyngja refsinguna sem skip- stjórinn eigi að fá fyrir ólöglega veiði. Þess er krafizt að afli og veiðarfæri verði gerð upptæk og að skipstjórinn qg útgerðin verði dæmd í 1,2 milljón danskra króna refsingu eða kr. 600.000 hvor aðili. Talið er að dómur verði kveðinn upp á mánudag. Allon látinn Tel Aviv, 29. febrúar. AP. YIGAL Allon, fyrrverandi utan- ríkisráðherra ísraels, sem með friðaráætlun sinni á vesturbakka Jórdan mótaði israelska utan- rikisstefnu um níu ára skeið, lézt i dag, 61 árs að aldri. Banamein hans var hjartaslag. Utför Allons verður gerð á sunnudag í Ginossar á vegum ísraelska hersins sem hann átti þátt í að stofna. Menachem Begin forsætisráðherra kallaði hann „hetju, einn af frábærustu yfir- mönnunum í sjálfstæðisstríðinu." Allon var varaforsætisráðherra Goldu Meir og utanríkisráðherra Yitzhak Rabin og átti sæti í fyrstu ísraelsku nefndunum sem sömdu við Araba um bráðabirgðafyrir- komulag er leiddi til friðarsamn- ings Israelsmanna og Egypta. Fréttir hermdu að Allon hefði átt leynifundi með Arabaleiðtogum og Rússum til að koma á friði, en tilraunir hans mistókust. Stjórn Begins hafnaði friðsam- legri áætlun Allons um samkomu- lag við Araba, en Allon-áætlunin hefur haft varanleg áhrif á hug- myndir um lausn mála á vestur- bakkanum og er undirstaða stefnu Verkamannaflokksins. Kriangsak boðar afsögn Bangkok, 29. marz. AP. KRIANGSAK Chomanan. forsæt- isráðherra Thailands. sagði af sér i dag vegna vaxandi þrýst- ings í kjölfar óvinsællar olíu- verðshækkunar. Talið er að annað hvort myndi hann nýja stjórn eða að Prem Tinsulanonda landvarnarráðherra verði falin stjórnarmyndun. Stjórnarskiptin munu ekki hafa áhrif á stuðning Thailendinga við Bandaríkjamenn í utanríkismál- um eða hlutleysi þeirra í deilu Víetnama og Kínverja. Kriangsak hefur verið forsætisráðherra síðan bylting var gerð í nóvember 1977. Þetta gerðist 1974 — Sjö embættismenn ákærðir vegna Watergate-máls- ins. 1970 — Rhódesía rýfur síðasta sambandið við Breta. 1966 — Sovézk geimflaug lendir á reikistjörnunni Venusi. 1961 — John F. Kennedy forseti stofnar Friðarsveitirnar. 1959 — Makarios erkibiskup snýr aftur til Kýpur úr útlegð. 1954 — Fyrsta ráðstefna Sam- taka Ameríkuríkja (OAS) í Caracas = Fimm þingmenn sær- ast í skotárás í bandaríska þinginu. 1952 — Fyrstu þingkosningarn- ar haldnar á Indlandi. 1950 — Klaus Fuchs fundinn sekur um að afhenda Rússum kj arnorkuleyndarmál. 1935 — Saar skilað Þjóðverjum. 1932 — Syni Charles Lind- berghs flugkappa rænt. 1918 — Þjóðverjar taka Kiev. 1905 — Orrusta Rússa og Jap- ana við Mukden hefst. 1896 — Italir bíða ósigur fyrir Eþíópíumönnum við Adowa. 1870 — Stfið Paraguay við Brazilíu, Argentíu og Uruguay hefst. 1815 — Napoleon gengur á land í Frakklandi og Loðvík XVIII flýr. 1811 — Fjöldamorð Mehmet Ali á Manelúkum í Egyptalandi. 1767 — Karl konungur II rekur Jesúíta frá Spáni. 1562 — Fjöldamorðin á Húgen- l.marz ottum í Vassy og fyrsta trúarstríðið í Frakklandi hefst. 1553 — Heidelberg-bandalagið stofnað. 1498 — Floti Vasco da Gama finnur Mósambík. Afmæli — Theophile Declassé, franskur stjórnmálaleiðtogi (1852—1923) = Oskar Kokoschka, austurrískur listmálari (1886— 1980) = Leo páfi XIII (1810- 1903). Andlát — 1643 Girolamo Frescobaldi, tónskáld = 1883 Gorchakov fursti, stjórnmála- leiðtogi = 1938 Gabriele d’Ann- unzio, rithöfundur. Innlent - 1970 Aðild að EFTA hefst = 1964 d. Davíð Stefánsson skáld = 1721 d. Lauritz Gottrup lögmaður = 1301 d. herra Oddur Þorvarðarson = 1639 d. síra Ólafur Egilsson = 1834 Boðsbréf til íslendinga um útgáfu „Fjöln- is“ = 1850 „Prótest" síra Svein- björns Hallgrímssonar við banni við útkomu „Þjóðólfs" = 1924 Landsbankahúsið nýja tekið í notkun = 1940 Vb. „Kristján" kemur að landi eftir 12 daga hrakninga = 1950 Vantraust á ríkisstjórn Ólafs Thors sam- þykkt = 1968 Flóð á Selfossi = 1978 Mótmælaverkfall = 1913 f. Ólafur Jóhannesson. Orð dagsins — Friður, í alþjóða- málum: tími til að hafa rangt við milli stríða — Ambrose Bierce, bandarískur rithöfundur (1842-1914?). Fimleikar Fimleikar Meistaramót 17—20 ára veröur haldiö ííþróttahúsi Kennaraháskóla íslands viö Stakkahlíö sunnudaginn 2. marz 1980 kl. 14.30. Komið og sjáiö spennandi keppni. __________________ Fimleikasamband íslands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.