Morgunblaðið - 13.03.1980, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.03.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MARZ 1980 3 7 Sigurður Magnússon:________Strætisvagnakaup SVR: Ikarusvagnarnir nú- tímalegir og ódýrir Vanstillingar- skrif Sigríðar Ásgeirsdóttur lengur áfram á sömu braut og nú hefur verið troðin um sinn. Það er dýrt spaug, að eyðileggja og skakkkeyra samfleytt marga ald- ursflokka barna og ungmenna.Hér dugir ekkert kukl. Hvað ber að gera — Lokaorð Fyrst og fremst þarf að gera sér raunhæfa grein fyrir, hvert halda skal og því næst að hitta ráð, sem leitt geta að takmarkinu. Losa verður skólana undan hinni um- komulausu og ömurlegu ráðstjórn og þar með endurheimta mögu- leika til stjórnunar þeirra. Þær kröfur verður að gera bæði til nemenda og kennara að starfa með fullri virðingu fyrir og alúð við viðfangsefni. Til þess að svo megi verða þarf að endurvekja heilbrigðan aga. Stórlega verður að draga úr hinu fá- eða einskisnýta leikspili, sem hefur þann árangur einan, að grunnfesta hjá nemendum alvöru- leysi. Nám er vinna, og því fyrr, sem nemendum skilst það, því betra. Lestur, skrift og reikning þarf að stórauka og bæta í upphafi skóla- göngu, en hætta að glundra með erlend mál unz nemendur eru orðnir að minnsta kosti bænabók- arfærir á eigin tungumáli. Leggja á niður tafarlaust hinn fáránlega feluleik, sem nú er tíðkaður með einkunnir nemenda og námsmat. Það á beinlínis að vera skýlaus réttur nemenda, að vita sem gerst um getu sína og kunnáttu á hverju stigi í stað þess að ganga þess duldir fram eftir öllum aldri. Verður það að fara eftir beztu manna yfirsýn. Skóiaskyldu á að stytta og miða t.d. við fermingaraldur. Hins veg- ar ber að leggja áherzlu á fræð- sluskyldu ríkisins og sé mönnum opin leið skólagöngu hvenær, sem þeir þess óska og eru búnir til. Valgreina fásinnuna á að tak- marka yfirleitt við 16—18 ára aldur, enda litlar líkur til að fólk hafi „fundið sjálft sig“ fyrr. Þar til þeim aldri er náð, ber að leggja áherzlu á almenna uppfræðslu, sem ætla má að fólk geti þá unnið út frá sómasamlega eftir getu og geðslagi, þegar upp er tekinn þráður að nýju. Draga má stórlega úr svoköll- uðu ráðgjafarstarfi, sem nú er harkað á að setja í hendur óviðk- omandi fólki skólum landsins. Vitað mál er, að eftir því sem meira hefur verið — illu heilli — dregið úr námskröfum druslast fleiri gegnum nám, ef nám skyldi kalla. Þetta fer einkennilega vel saman við síaukinn fjölda allskon- ar fræðinga, sem nú sækja út í ráðgjafarstörf, þótt svo þyrfti auðvitað ekki að vera og sé ekki í öllum tilfellum samhengi í þessu. En eitt er víst, að þeir, sem aldrei þekktu ráð fyrir sjálfa sig, bjarga ekki öðrum. Er nú hér drepið á meginhluta þess, sem vinda þarf bráðastan bug að í fræðslumálum okkar. Njóti svo hver, sem nemur. Síðastliðinn þriðjudag var í Morgunblaðinu grein eftir Sig- ríði Ásgeirsdóttur lögfræðing, annan af tveimur fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í stjórn SVR. Þar sem greinin er full af rangtúlkunum er nauðsynlegt að svara henni nokkrum orðum. Greinin ber það með sér að hún er skrifuð í mikilli geðshrær- ingu enda full af dómgreind- arskorti hjá hinum annars velmenntaða höfundi, og er engu líkara en einhver undir- heimaöfl stýri penna hennar. Þannig byrjar hún á því að ausa úr sér rógi um að tilboð Samafls í 20 strætisvagna fyrir SVR lykti af pólitík, Sigríður kemst að þessari niðurstöðu vegna þess að ég sem er varaþing- maður Alþýðubandalagsins í Reykjavík er tengdur tilboðinu, sem stjórnarformaður í Samafl umoðsaðila Ikarusvagnanna. Ekki trúi ég að flokksbræður Sigríðar sem fjölmargir fást við viðskipti, séu sammála henni um að stjórnmálaskoðanir þeirra og störf, geri viðskipti þeirra pólitísk og vafasöm, eins og látið er að liggja varðandi þátt minn að tilboði Samafls. En það er fleira sem gerir málið pólitískt, haldið er fram í greininni að Ingi R. Helgason lögmaður, sé stjórnarmaður í Samafl og gefi það glöggt til kynna þá pólitísku lykt sem sé af meðferð málsins. Því miður verð ég að valda Sigríði von- brigðum með því að greina frá því sanna í þéssu efni. Ingi R. Helgason á enga aðild að fyrir- tækinu Samafl, og hefur aldrei átt. Fyrirtækið er eign Fram- Ieiðslusamvinnufélags Iðnað- armanna, sem er félag u.þ.b. 200 iðnaðar- og tæknimanna, og samkvæmt lögum félagsins á lögmaðurinn Ingi R. Helgason ekki rétt á inngöngu í félagið, fullyrðingar um að hann sé þar stjórnarmaður eru því svo fjarri sanni sem verið getur. Það er hinsvegar ljóst að lög- fræðingurinn Sigríður Ásgeirs- dóttir hefur engann áhuga á að rita sannleikann, henni er ann- að hugstæðara eins og öll grein- in ber merki um. Um það atriði hverjir eigi sæti í stjórn Samafls hefði verið hægt að leita upplýsinga á skrifstofu Borgarfógetans í Reykjavík, þar sem fyrirtækið er skráð, og getið i firmaskrán- ingu stjórnarmanna, eins og lög gera ráð fyrir. Ég á auðvelt með Sigurður Magnússon að skilja að tæknileg mál eins og útboð og kaup á strætisvögn- um geti vafist fyrir Sigríði Ásgeirsdóttur en grundvallar- atriði firmaskráningar hélt ég að væri lögfræðingnum ekki ofviða. Það er hins vegar annað og alveg óskylt mál að Ingi R. Helgason hefur um langt árabil verið lögmaður Framleiðslu- samvinnufélags Iðnaðarmanna, og hefur veitt félaginu þjónustu sem slíkur þegar óskað hefur verið eftir. En greinarhöfundur lætur sér ekki nægja í umræddri blaða- grein að róta upp póljtísku moldviðri um tilboð Samafls í strætisvagnana, heldur er vaðið fram með sleggjudómum og vanþekkingu um ýmis tæknileg atriði vagnanna. Óhjákvæmi- legt er að víkja aðeins að helstu atriðunum í grein hennar er snerta þetta atriði. Þannig segir á einum stað að Ikarusvagnarnir séu byggðir með mjög úreltum framleiðshl- aðferðum og sé það ástæðan fyrir hinu lága boði. Benda má Sigríði á að úreltar framleiðslu- aðferðir leiða oftast til mikils framleiðslukostnaðar, en það er nú annað mál. Staðreyndin er sú að Ikarusvagnarnir eru mjög nútímalegir í allri tækni og uppbyggingu, sérstaklega á þetta við um vagnramman, yfir- bygginguna og innréttingar, enda hafa vagnarnir fengið al- þjóðleg verðlaun fyrir nútíma- lega hönnun og tækniútfærslu. Framleiðsluaðferðin við smíði vagnanna er svonefnd sjálfber- andi bygging, sem er viður- kennd aðferð hjá öllum stærstu vagnasmiðjum í heiminum, m.a. Mercedes Benz. Varðandi vélar- hluta bílsins svo sem gírkassa, drif, stýri og rafkerfi og m.fl. þá er það vestur-þýsk framleiðsla, vélin er hinsvegar ungversk framleiðsla, en eftir vestur- þýskri hönnun frá MAN verk- smiðjunum. Fullyrðingar um úreltar framleiðsluaðferðir eru staðleysa, byggð á vanþekkingu greinarhöfundar. í greininni er því haldið fram að vagnarnir séu óhentugir fyrir aldraða og öryrkja vegna þess hve erfitt sé að komast inn í þá og úr þeim. Þetta er rangt, hið rétta er að það er sama hæð upp í neðsta þrep vagnsins bæði við fram- og afturdyr og beðið er um í útboðslýsingu og aðrir framleiðendur bjóða, auk þess sem dyr eru breiðari og gólfið allt jafnslétt, en ekki flórbyggt (með upphækkun þar sem sæt- um er fyrirkomið) eins og sumir framleiðendur bjóða, m.a. Volvo. Sigríður heldur því einnig fram að verulega minni verð- munur sé á tilboði Ikarus og t.d. Volvo en tilboðstölur segja, eða sem nemi tveimur vögnum. Þetta finnur hún út með því að slá metramáli á vagnana og verðleggja þá í samræmi við lengd, slíkar reikningskúnstir eru vitaskuld ekki sæmandi neinum sem vill láta taka mark á málflutningi sínum, og eru lögfræðingnum ekki til álits- auka. Læt ég þá lokið að sinni athugasemdum við sleggjudóma Sigríðar, en vil þó víkja aðeins að yfirskrift greinar hennar, þar sem segir að íslenskur iðnaður sé útilokaður með til- boði Samafls. Hér er reynt í fyrirsögn að halda því fram að tilboðinu sé ætlað að vega að íslenskum iðnaði, ég veit að allir sem til þekkja trúa því ekki að Framleiðslusamvinnu- félag Iðnaðarmanna vilji með hagstæðu tilboði sínu í strætis- vagna fyrir SVR vega að iðnað- inum hér heima, hann verður hinsvegar í þessu tilfelli eins og svo víða annars staðar að lúta því að hann er í harðri sam- keppni, það er jafn ljóst að það er keppikefli okkar allra að efla hann og styrkja, jafnvel með sérstökum stuðningsaðgerðum, þar sem möguleikar hans og þróun getur notið sín til fulls með eðlilegum hætti. Að lokum vil ég segja það að ég er sammála Sigríði Ásgeirs- dóttur um það atriði, að það sé sjálfsagt og eðlilegt að stjórn SVR fjalli fyrst og fremst um þetta mál og hafi áhrif á framvindu þess, allt annað er óeðlilegt. Við hjá Samafl teljum hagsmunum okkar varðandi til- boðið best borgið með því að sem flestir fjalli um málið, af skynsemi og yfirvegun. Nú er tækifæri til þess þegar skýrsla skoðunarmanna hefur verið fram lögð. Sjálfur er ég trúaður á að eftir slíka umfjöllun, þar sem kostir og gallar allra til- boðanna verða vegnir og metn- ir, muni allir ábyrgir aðilar verða sammála um að taka hinu hagkvæma tilboði frá Samafl, sem er hundruðum milljóna lægra en næsta tilboð og býður betri greiðslukjör. Með slíkri ákvörðun væri verið að skapa fjárhagslegt svigrúm til að bæta og efla þá mikilvægu almenningsþjónustu sem rekin er á vegum SVR. Sigurður Magnússon, stjórnarformaður Samafl. \ k Stjórnandi: Ragnar Bjarnason Glæsilegt RISABINGO verður haldiö í Sigtúni fimmtu- daginn 13. mars kl. 20.30. Fjöldi stórglæsilegra vinninga aö heildarverömæti hátt í 2 milljónir króna. Meöal vinninga, utanlandsferð fyrir tvo meö Eimskip, ferð meö Útsýn, húegagnavinningar aö upphæö kr. 300.000, reiöhjól, málverk og fjöldi annarra glæsilegra vinninga. Enginn aögangseyrir, hús opnaö kl. 19.30. Fjáröflunarnefnd Áskirkju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.