Morgunblaðið - 15.03.1980, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 15.03.1980, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MARZ 1980 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson. Björn Jóhannsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakið. Viðvörun sem vekur athygli Fulltrúar launþejía og vinnuveitenda í Verðlagsráði hafa einhuga hafnað reglugerð, sem ríkisstjórnin sendi ráðinu til umsagnar, varðandi breyttar viðmiðunarreglur við verðákvarðanir og svokallaða „niðurtalningarleið.“ Þessi afstaða og samstaða vekur athygli í ljósi yfirlýsinga stjórnarinnar um samráð við aðila vinnumarkaðarins í efnahagsmálum. I samþykkt Verðlagsráðs segir, „að verðbólgan verði ekki kveðin niður með því einu að setja reglur um hámarksverð- hækkanir.“ Þar segir og að reglugerðin, ef staðfest verði, setji Verðlagsráði „þröngar skorður,“ auk þess sem ekki sé á færi ráðsins að meta hverju sinni breytingar á helztu þáttum efnahagsmála. Ovissuþættir um lagastoðir efnisatriða í reglugerðinni vega og þungt. Lög um kjaramál frá 1978 fela í sér að verðákvörðun þurfi staðfestingu ríkisstjórnar, en hins vegar eru þar ekki heimildir til að telja niður verðlagið. Verðlagslög fela heldur ekki í sér heimildir til að breyta lögboðnum verðviðmiðunarreglum ráðsins. Verðlagsráð vekur athygli ríkisstjórnarinnar á ágreiningi um, hvort nægilega skýrar og ákveðnar lagaheimildir um þessi efni séu fyrir hendi, og telur, að slík lagaleg óvissa gæti leitt til vefengingar verðákvarðana. Það varar því einróma við setningu reglugerðar á grundvelli þeirra efnispunkta, sem ríkisstjórnin sendi því til umsagnar. Verðlagsráð er skipað fulltrúum Alþýðusambands Islands, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Verzlunar- ráðs, Vinnuveitendasambands og Sambands ísl. samvinnu- félaga, auk fulltrúa skipaðra af hæstarétti. Fulltrúar þess spanna því flest hagsmunarsvið þjóðlífsins. Einróma viðvörun þessara fulltrúa til ríkisstjórnarínnar vekur því alþjóðarathygli. Þolinmæðin þrot- in — tafarlaus lausn Yeigamikill þáttur mannréttinda er kosningarétturinn. Hörður Ólafsson hrl. hefur nú kært til Evrópuráðs þá mismunun, sem er á kosningarétti Islendinga eftir búsetu, og sent Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna afrit af kærunni. Þá hefur verið stofnuð í Reykjavík Lýðræðis- nefnd, sem hyggst beita sér fyrir jöfnun kosningaréttar í landinu. Nefndin hefur vakið athygli á því að Island er eina landið í heiminum, ef S-Afríka er undanskilin, sem hefur lögfestan ójafnan kosningarétt. Ef „manngildi" íslendinga er mælt í atkvæðisrétti, lítur dæmið þannig út í samanburði nefndarinnar: hver Vestfirðingur hefur 4.80 atkvæði, hver kjósandi í Norðurlandi vestra 4.36, hver Austfirðingur 4.00, hver Sunnlendingur 3.00, hver kjósandi í Norðurlandi eystra 2.29, hver Reykvíkingur 1.26 — miðað við 1 atkvæði hvers Reyknesings. Þessar tölur eru grundvallaðar á kjósendafjölda að baki hverjum þingmanni í síðustu Alþingiskosningum. „Eigum við að láta hið sama gilda um forsetakosningar?" spyr Hörður Ólafsson, talsmaður nefndarinnar. Ibúar landsins búa við margs konar aðstöðumun, sem á ýmsa grein er strjálbýlisfólki óhagstæður. Þann aðstöðu- mun verður að jafna eftir öðrum leiðum en þeim, sem liggja um mismunun í mannréttindum eins og kosningarétti. Persónubundin mannréttindi eiga að vera óháð búsetu og sem jöfnust. í þessu efni er langlundargeð fólks, sem er ranglæti beitt, þrotið. Aðgerðaleysi stjórnmálamanna í umbúðum faguryrða dugar ekki lengur. Þess vegna eru samtök á almannavettvangi að rísa upp til að mótmæla vinnubrögðum, sem felast í fyrirheitum, er gefendur hafa saltað niður í vanefndir. I óvissu íslenzkra stjórnmála veit enginn, hvenær gengið verður til þingkosninga næst. Þar af leiðir að engin lausn er viðunandi í þessu máli nema tafarlaus lausn. Peter Woodrow/OBSERVER EFTIRLEIKURINN — Vannærð og veikluö Kampútseuhnáta í flóttamannabúöum í Thailandi. Með morðtólum gegn menningu Fyrir norð-austan höfuðborg Kampútseu, meðfram þjóðvegi nr. 7, liggja fatatætlur og bús- áhöld á víð og dreif. Við okkur var sagt: „Það var þarna, sem fólk var neytt til að afklæðast og fleygja frá sér eigum sínum.“ Þegar við komum lengra, rák- umst við á opna gryfju, nokk- urra metra langa. í henni voru skinin bein, hauskúpur og fata- ræflar. Okkur var bent á sífellt fleiri grafir. Sumar voru nýopn- ar og óþefurinn var hræðilegur. Fylgdarmenn okkar voru kæruleysislegir. „Jú, þetta gerð- ist um alla Kampútseu. Nei, þetta voru ekki eingöngu menntamenn, borgaralegir kapítalistar, heldur leiguliðar, bændur, fiskimenn." Hve marg- ir? „Við teljum að hér séu grafnir um það bil 10.000, en það eru margir fleiri svona staðir hinum megin við ána.“ Það sem gerðist í Kampútseu, var að ríkisstjórn Pol Pots var ákveðin í að mynda þjóð, sem ekki bæri nein merki vestrænnar menningar, en til hennar töldust vélar, lyf, skólar og allt þeim viðkomandi. Þetta var grimmd- arleg tilraun til algers endur- skipulags þjóðfélags, sem nærri tókst. Nú er stjorn Heng Samrins, sem er háð Víetnömum, er ráku Pol Pot frá völdum, að hefja endurreisn þjóðfélags Khmera. Fáir stjórnlærðir eftir Alþjóðastofnanir telja, að um fimm og hálf milljón manna búi á yfirráðasvæði stjornar Heng Samrins, tíu sinnum fleiri en búa á svæðum nálægt landa- mærum Thailands, þar sem leif- ar hers Pol Pots og hermenn Heng Samrins berjast. Stjórn Heng Samrins hefur tekist að ná saman þjálfuðu fólki með mismunandi stjornmála- skoðanir, án tillits til fyrri sambanda þeirra. Embættis- menn, sem við áttum skipti við, í ráðuneytum heilbrigðismála, landbúnaðar og menntamála, höfðu gegnt ábyrgðarstöðum á vegum stjórna Sihanouks, Lon Nols eða Rauðu Khmeranna við upphaf stjórnár þeirra. En menn með þjálfun í stjórnarstörfum eru fáir, svo margir hafa verið drepnir eða hafa flúið til Thai- lands. Stjórnin segist sjálf vera „til bráðabirgða", meðan beðið sé nýrrar stjórnarskrár og full- trúasamkomu, sem ákveða muni stefnuna í þjóðmálum. Slíkar ákvarðanir eru nú teknar af byltingarráðinu, sem er hópur stuðningsmanna Heng Samrins, er tóku þátt í baráttunni gegn Pol Pot. Án tillits til stjórnmálaskoð- ana sinna láta Kampútseumenn í ljós furðu á því, hve fáar ríkisstjórnir hafa viðurkennt stjórn Heng Samrins, eða að minnsta kosti afneitað stjórn Pol Pots. Það er mikið talað um, að Víetnamar, sem eru óvinir Kampútseumanna frá fornu fari, skuli vera áfram í landinu. Ekki ber mikið á hermönnum þeirra í höfuðborginni. Flestir eru þeir vestantil í landinu, þar sem enn er barist. Líkt og fyrrum En áhrif Víetnama eru mikil í ráðuneytum. Það minnti mig á daga bandarísku „ráðgjafanna“ fyrir 1975, þegar ég vann í Suður-Víetnam. Kampútseumenn segja gjarn- an, að þeir séu að byrja „fyrir neðan núllpunktinn". Þeir hika ekki við að kvarta undan ráðríku Víetnömunum, sem þeir vinna með. En þeir staðhæfa jafn ákveðið, að innrás Víetnama hafi verið eina leiðin til að losa landið við „Pol Potistana" hræðilegu. Það verða daglegar framfarir í Kampútseu. Verksmiðjur eru opnaðar að nýju, rafmagn fæst aftur, vatnsveitur eru starfrækt- ar á ný, nýjar stjórnardeildir hefja störf hægt og bítandi og skólar eru opnaðir. Alþjóðlegt hjálparstarf undir forystu Barnahjálpar Sameinuðu þjóð- anna, Rauða krossins og Oxfam er að verða virkara og starfs- menn hjálparstofnana segja að þeir beri traust til ríkisstjórnar- innar og Víetnam við dreifingu hjálpargagna. Tafir og stöðvanir hafa orðið vegna erfiðleika á flutningum og skorts á hæfum stjórnendum í þjónustu ríkisins. Starfsmenn hjálparstofnana hafa enga ástæðu til að ætla að hjálpar- gögn hafi verið send til hersins eða til Víetnams.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.