Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 24
4.19 24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1980 Þetta geröist 30. júní 197G — Myndir bandarísks geim- fars sýna að vatn hefur verið á Mars. 1973 — Tunglmyrkvi í Afríku, einn hinn lengsti á síðari tímum. 1971 — Þrír sovézkir geimfarar finnast látnir við lendingu eftir þriggja vikna geimferð. 1965 — Indverjar og Pakistanar semja um vopnahlé. 1964 — Aðgerðum SÞ í Kongó iýkur. 1963 — Páll VI krýndur 262. páfi. 1960 — Kongó fær sjálfstæði — Lög um heimastjórn Bantumanna í Suður-Afríku taka gildi. 1936 — Franski fasistaflokkurinn bældur niður — Haile Selassie keisari biöur um hjálp gegn Itölum á fundi Þjóðabandalagsins í Genf. 1934 — Hreinsanir nazista hefjast í þýzkalandi með „nótt hinna löngu hnífa". 1930 — Bretar viðurkenna sjálf- stæði íraks. 1924 — J.B.M. Hertzog myndar stjórn þjóðérnissinna í Suður- Afríku. 1913 — Síöara Balkanstríðið hefst með árásum Búlgara á Serba og Grikki. 1876 — Serbar segja Tyrkjum stríð á hendur. 1859 — Emile Blondin gengur á línu yfir Niagarafossa. 1852 — Nýja Sjáland fær sjálf- stæði. 1845 — Ensk-franskur leiðangur sendur til Madagaskar. 1708 — Orrustan um Oudenarde. 1652 — Englendingar segja Hol- lendingum stríð á hendur. 1574 — Vilhjálmur af Óraníu fær Hollendinga til að opna dýki til að hindra umsátur Spánverja um Leyden. Afmæli — Paul Francois Nicolas Barras, franskur stjórnmálaleið- togi (1755—1829) — George Du- hamel, franskur rithöfundur (1884-1966) - Harold Laski, brezkur stjórnvísindamaður (1893—1950) — Susan Hayward, bandarísk leikkona (1919—1975). Andlát — 1861 Elizabeth Barrett, skáld. Innlent — 1564 Stóridómur — 1545 Skipadómur — 1960 d. Jón bp. Vigfússon — 1809 Isleifur Arnason háyfirdómari handtekinn — 1802 Steinunn Árnadóttir dæmd til líf- láts fyrir að bera út barn sitt — 1856 Jerome Napoleon kemur til tslands — 1862 Eldgos í Dyngju- fjöllum — 1875 d. Jón Guðmunds- son ritstj. — 1875 d. Jósep Skapta- son læknir — 1899 f. Jón Helgason biskup — 1946 Stjórnarsigur í Alþingiskosningum — 1958 Út- færsla í 12 mílur undirrituð — 1968 Kristján Eldjárn kosinn forseti — 1974 Sigur Sjálfstæðisflokks í Al- þingiskosningum — 1911 Sigur- björn Einarsson biskup. Orð dagsins — Ég trúi á þagnar- aga og get talað um hann klukku- stundum saman — G.B. Shaw (1856-1950). Al'GLÝSINOASIMINN ER: j 22410 2n«r0unb!abib © Gífurlegt eftirlit á Moskvuleikum Moskvu. 25. júni. AP. LÖGREGLA í Moskvu hefur þeg- ar hafið framkvæmd gifurlegra öryggisráðstafana vegna ól- ympíuleikanna þar í borg í næsta mánuði. Götulögregla hefur verið aukin til muna, sérstakir varð- hundar hafa verið þjálfaðir og hundrað sjálfboðaliða hafa boðið liðveizlu sína. Óbreyttir borgarar hafa jafn- framt skýrt frá vaxandi erfiðleik- um á að komast til Moskvu frá öðrum borgum. Hafa þeir sagt að í sumum tilvikum séu farmiðar með járnbrautarlestum til höfuðborg- arinnar aðeins seldir þeim sem sannað geti að þeir búi þar eða eigi brýnt erindi þangað. Einnig fer sögum af því að járnbrautar- ferðum til Moskvu hafi verið fækkað og sé það liður í tilraunum stjórnvalda til að hamla gegn aðstreymi sovézkra borgara sem ekki eru á vegum skipulagðra ferðahópa. Yfirvöld hafa í mörg horn að líta meðan á ólympíuleikunum stendur. Auk hugsanlegra hemd- arverkamanna þarf að líta eftir hundruðum þúsunda sovézkra og erlendra ferðamanna, sem hellast munu yfir átta milljón manna borg í einu vetfangi. Er óttast að í hópi útlendinga kunni að leynast njósnarar og undirróðursmenn, og kunni enn aðrir að hafa svartan markað að féþúfu. Fari fram sem horfir og hörguls á eftirsóttum varningi verður vart í Moskvu meðan leikarnir standa yfir, getur einnig svo farið að yfirvöld neyðist til að skipuleggja skömmtun meðal íbúanna sjálfra. Nokkur lokaorð Stuðningsmenn Vigdísar Finnbogadóttur til forsetakjörs 1980 þakka keppinautum sínum drengilega kosningabaráttu. Sömuleiðis þökkum við samher jum okkar ötult og fórnfúst starf. Við lögðum vonglöð upp í kosningabaráttuna. Nú höfum við komist að raun um, að framboð Vigdísar hefur snert þann streng í brjósti þjóðarinnar sem íslenskastur er. Þúsundum saman hafa landsmenn komið til liðs við Vigdísi í kosningabaráttunni. Nú hillir undir að björtustu vonir okkar rætist. Kjör Vigdísar Finnbogadóttur í for- setaembætti er sögulegur stórviðburður, - stærri en svo að hann verði metinn til fulls nú. Þannig gefst okkur nú tækifæri til þess að móta söguna. Það gerum við hvert og eitt, - og öll saman í kjörklefanum sunnudaginn 29. júní. STUDNINGSMENN VIGDÍSAR FINNBOGADÓTTUR VITRETEX plastmálning myndar óvenju sterka húö Hún hefur því framúrskarandi veðrunarþol. I Slippfélagið íReykjavíkhf Málningarverksmiðjan Dugguvogi Símar 33433og33414

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.