Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 29.06.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ1980 25 Hollenska stjórnin hélt velli Haaif, 27. júní. AP. HOLLENSKA ríkisstjórnin fór i dag fram á það við rikisstjórnir nágrannalandanna, að þær settu sameiginlega olíubann á S-Afriku. Gerðist það aðeins nokkrum klukkustundum eftir að felld hafði verið i hollenska þinginu vantrauststillaga vegna sama máls. Vantraustið á stjórnina var flutt vegna þess, að hún hafnaði því að Hollendingar settu einhliða olíubann á S-Afríku vegna stefnu S-Afríkustjórnar í kynþáttamál- um. Ríkisstjórnin hét því hins vegar að fara fram á það við Benelux- löndin, Luxemburg og Belgíu, og Norðurlöndin að þau stæðu saman í víðtækara banni á S-Afríku. Þetta gerðist 29. júní 1979 — Helztu iðnaðarríki sam- þykkja að ákveða hámark á inn- flutningi olíu. 1974 — Rúmlega 250 fórust í skriðuföllum í Kólombíu. 1973 — Uppreisn skriðdrekaher- deildar gegn Salvador Allende í Chile bæld niður. 1967 — ísraelsmenn sameina Jer- úsalemborg. 1966 — Fyrstu loftárásir Banda- ríkjamanna á Hanoi og Haiphong. 1965 — Fyrstu sóknaraðgerðir bandarískra fallhlífahermanna í Víetnam. 1954 — Potomac-yfirlýsing Eisen- howers og Churchills. 1949 — Apartheid-stefnan hefur innreið sína í Suður-Afríku — Brottflutningi Bandarfkjamanna frá Suður-Kóreu lýkur. 1946 — Óeirðir milli Júgóslava og ítala í Tríest — Bretar handtaka um 2.700 Gyðinga í Paiestínu. 1943 — Landganga Bandaríkja- manna á Nýju Guineu. 1939 — Fyrsta áætlunarflugvélin, „Dixie Clipper", flýgur frá Banda- ríkjunum til Evrópu og lendir í Lissabon. — 1917 — Grikkir slíta sambandi við Miðveldin. 1896 — Marchand majór leggur upp í leiðangurinn til Fashoda til að helga Frökkum Súdan. 1880 — Frakkar taka við stjórn Tahiti. 1848 — Jóhannes erkihertogi af Austurríki kosinn ríkisstjóri þýzks sambandsríkis. 1734 — Orrustan um Parma. 1672 — Loðvík XIV hafnar frið- arskilmálum Hollendinga. Afmæli. Peter Paul Rubens, flæmskur listmálari (1577—1649) — Giacomo Leopardi, ítalskur rit- höfundur (1798-1837) - G.W. Goethals, bandarískur verkfræð- ingur & hermaður (1858—1928). Andlát. 1895 T.H. Huxley, vísinda- maður — 1941 Ignace Paderewski, píanóleikari & stjórnmálaleiðtogi. Innlent. 1802 Fyrsti dómur í Landsyfirrétti — 1809 Skrifari Trampe greifa arresteraður — 1886 Landsbankinn tekur til starfa — 1907 Bláhvíti fáninn löghelgaður á Þingvallafundi — 1908 Embætti borgarstjóra stofnað — 1928 ís- lendingar á OL — 1929 Búnaðar- bankinn stofnaður — 1932 Siglu- fjarðardeila hefst — 1941 Þýzkur kafbátur sökkvir „Heklu“ — 1952 Ásgeir Ásgeirsson kosinn forseti — 1953 Alþingiskosningar — 1967 — Gústaf VI Adolf í heimsókn — 1960 Eiðaskóli brennur — 1957 — Sanddæluskipið „Grjótey" hætt komið — 1973 Viðræður við V-Þjóðverja í Reykjavík — 1929 f. Guðm. Kjærnested. Orð dagsins. Frægð er sönnun þess að fólk er auðtrúa — Ralph Waldo Emerson (1803—1882). GLÆSILEGT veggalamanak Kassagerðar Reykjavikur fvrir árið 1980—81 er nýkomið út, en „almanaksár Kassagerðarinnar" hefur löngum verið frá júlí til júni og svo er enn. — Að vanda er skemmtilegt úrval mótiva og litmynda á almanakinu — tvær myndir i mánuði hverjum — allstór mynd og önnur minni — án þess þó að nokkurt samband sé milli myndanna. — Ljósmyndarar. sem myndir eiga á almanakinu að þessu sinni eru: Þorsteinn Asgeirsson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Gunar S. Guðmundsson, Björn Rúriksson, Ingibjörg Ólafsdóttir, Páll Ævar Pálsson, Kjartan B. Guðmundsson og Hákon Oddgeir Hákonarson. Er myndaúrvalið ágætt og að vanda er prentun og útlit Kassagerðar-almanaksins listrænt og smekklegt. Að þssu sinni hefur ráðið öllu um útlit og gerð Sigrid Valtingojer. Myndin hér er frá Flatey á Breiðafirði, en að sjálfsögðu verður hún aðeins svipur hjá sjón þvi eðlilega eru allar myndirnar i lit. PéturTheodór Jónsson - Mim Fæddur 24. mars 1960. Dáinn 22. júní 1980. Nú hefur það gerst sem engum datt í hug að myndi gerast svona fljótt, Pétur er dáinn. Við sem höfum verið svo lánsamir að njóta lífsgleði og vináttu hans erum harmi slegnir. Stórt skarð er rofið í líf okkar, skarð sem aldrei verður bætt. Minningar um Pétur munu þó alltaf lifa. Við munum minnast allra þeirra skemmtilegu stunda sem við áttum saman. Minnast þess þegar einhver okkar var niðurdreginn og þungur á brún hvernig Pétri tókst með lífsgleði sinni og geislandi fjöri að beina huganum frá leiðanum og varpa ljósi á tilveruna á ný. Við munum heldur ekki gleyma allri þeirri hjálp sem Pétur veitti okkur á sinni stuttu ævi. Hann var alltaf boðinn og búinn til að rétta okkur hjálparhönd ef við þurftum á aðstoð að halda og létta undir bagga með okkur er erfiðlega gekk. Pétur var vinur vina sinna og ræktaði vinaböndin, alltaf til- búinn til að fyrirgefa allar mis- gjörðir og sætta vini sína ef skarst í odda á milli þeirra. Svo ungur maður sem Pétur var lætur ekki eftir sig langa afreka- skrá heldur miklu fremur áhrif og mótun á sálu og huga okkar sem eftir lifa. Hann hefur átt stóran og góðan þátt í lífi okkar og minning hans mun lifa í hugum okkar allra. Við vottum fjölskyldu og vinum Péturs okkar dýpstu samúð og hluttekningu. Einar, Þórarinn, Kristján og Geir. iyrsta ntíbniö Alþýðubankinn opnar útibú á Suður- landsbraut 30 Reykjavík, þriðjudaginn 1. júlí nœstkomandi. Um leið stígur Alþýðubankinn stórt skref til aukinnar þjónustu og bættrar aðstöðu fyrir viðskiptavini, bæði gamla og nýja. Opið daglega kl 9.15-16.00 og á fimmtu- dögum einnig kl. 17.00-18.00. Síminn er 82911. Aukum bankavald Alþýðubankans Alþýðubankinn hf bankinn okkar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.