Morgunblaðið - 26.07.1980, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1980
Er tígulgosi í spilinu?
Eins o(í á undanförnum árum
hefur knattspyrnan i sumar veitt
fjölda landsmanna ómælda
ánæKju. það er ekki aöeins eftir-
væntin^in ok spennan, sem fylgir
þvi aó vera viðstaddur ok sjá
hvernií? úrslitin verða, sem dreg-
ur menn á völlinn, heldur er sá
kunninKsskapur ok það samband
sem þar myndast manna á miili
oft undanfari KÓðrar vináttu sem
endist laiura ævi.
Bikarkeppni K.S.Í. stendur nú
sem hæst, og þegar 4 lið eru eftir
er engin leið að sjá fyrir hver
sigrar að lokum. Á miðvikudags-
kvöldið fórum við Kalli að sjá leik
Fram og Víkings á Laugardals-
velli. Enginn sem þangað lagði
leið sína varð fyrir vonbrigðum,
því leikur beggja liðanna var með
því besta sem þau hafa sýnt í
sumar: Hraði og upphlaup á báða
bóga, ekkert miðjuþóf eða ráða-
leysi, en frá fyrstu mínútu til
leiksloka var hörku barátta. Og
áhorfendur skemmtu sér konung-
lega. Þannig er bikarinn oft
frábrugðinn deildarleikjum, því
þar er allt að vinna, og liðið sem
tapar er úr leik.
Þegar spjallað er um atburði
líðandi stundar eru menn oft of
fljótir á sér að spá um hver
framvindan verður. Við lok 7.
umferðar íslandsmótsins þótti
flestum sýnt að baráttan um
meistaratitilinn stæði milli Fram,
Vals og Akraness, en Vestmanna-
eyingar fylgdu fast eftir. Nú að
loknum tíu umferðum er aftur á
móti ljóst að málin hafa tekið aðra
stefnu því Breiðablik, Víkingur og
KR hafa bætt stöðu sína verulega
og eru til alls líkleg.
Það var eitt sinn í hálfleik nú
fyrir skömmu, þegar við nokkrir
kunningjar tókum tal saman, að
rætt var um hvaða lið yrði ís-
landsmeistari, og sýndist sitt
hverjum. Kalli, vinur minn, var
þögull, aldrei þessu vant, og lagði
ekki til málanna fyrr en Gísli,
einn í hópnum, sagði allt í einu.
„Ertu búinn að missa trúna á þitt
félag, Kalli minn, viltu ekki spá
einhverju." Kalli hikaði aðeins við
en sagði svo:
„Ég ætla ekki að setja höfuðið í
snöruna með því að spá neinu um
Magnús Sigurjónsson
hver sigrar í sumar, maður veit
aldrei nema Maggi segi frá því í
Mogganum. En víst er um það að
hart verður barist því aldrei hefur
Islandsmótið verið jafnara en nú.“
Á leiðinni heim eftir leikinn
vorum við vinirnir sammála um
að leikur margra 1. deildar lið-
anna hafi batnað mjög eftir þvi
sem á sumarið hefur liðið, og sé
þetta greinilegast hjá Blikunum,
Víkingi og FH, en einnig má segja
að Akurnesingar sem fóru hægt af
stað séu nú komnir á fulla ferð og
leiki ef til vill bestu knattspyrn-
una um þessar mundir.
óstöðugleikinn
Eitt er það vandamál, sem flest
félögin eiga við að stríða, en það
eru hinar miklu sveiflur í leik
þeirra. Orsakir þessa óstöðugleika
eru án efa fleiri en ein, en oft er
baráttuviljinn og leikgleðin víðs
fjarri hjá sumum liðunum, og
meðan svo er verður aldrei um
öruggan árangur að ræða. En
svona er knattspyrnan, þar er
aldrei hægt að ganga að neinu
vísu.
Nú þegar 11. umferð íslands-
mótsins er að hefjast eru liðin svo
jöfn að ekki má á milli sjá. Menn
bíða með óþreyju eftir hverjum
leik, því allir vita að í þeim
umferðum sem eftir eru fáum við
að sjá vel spilaða baráttuleiki og
mörg óvænt úrslit.
Útvarpsmálið fram
i dagsljósið
Við Kalli höfum áður rætt um
skyldur Ríkisútvarpsins við lands-
menn, hvað varðar lýsingar á
knattspyrnukappleikjum. Það var
aldrei ætlun okkar að fara frekar
ofaní saumana á því máli því við,
eins og allir aðrir, töldum að lausn
væri á næsta leyti. Nú hefur aftur
á móti brugðið svo við að fjöl-
margir áhugamenn um þessa
íþrótt hafa haft samband við
okkur og hvatt til þess að við
létum ekki þetta mál niður falla.
Þetta brennur á mönnum m.a.
vegna þess að nú hefur íslenska
landsliðið leikið tvo leiki erlendis,
við Noreg og Svíþjóð, og staðið sig
svo afbragðs vel að það hefði verið
hreinn viðburður að fá að hlusta á
lýsingar á þeim leikjum.
En hvað getum við gert? Við,
eins og allir aðrir, erum gersam-
lega áhrifalausir um gerðir þeirra
aðila sem þarna deila, þeirra er
valdið og þeir beita því að eigin
geðþótta. Áuðvitað ber deiluaðil-
um að skýra þetta mál allt frá
byrjun, eigendur Ríkisútvarpsins,
almenningur í landinu, hljóta að
krefjast þess.
Grunsemdir Kalla
Enginn trúir því að deila um
fjármál sé hin raunverulega
ástæða fyrir tregðu Ríkisútvarps-
ins, það hlýtur að vera fyrirslátt-
ur. Það er enginn svo illa gefinn af
þeim sem um þetta fjalla að hann
fái ekki séð að sú ástæða stenst
ekki. Þess vegna hafa ýmsar
grunsemdir vaknað.
Kalli, vinur minn, er einn þeirra
sem hafa sínar ákveðnu skoðanir á
þessu: „Nei,“ sagði hann. „Raun-
veruleikinn er annar. Það er
einhver tígulgosi með í spilinu
sem felur sig bak við tjöldin, og
hann er sá sem spillir þessu máli.“
Sé það rétt að einhver íþrótta-
fjandsamlegur aðili hjá Ríkisút-
varpinu beiti áhrifum sínum gegn
þeim sem hann á að vinna fyrir,
þá verður að fá hann fram í
dagsljósið, svo tækifæri gefist til
að ræða við hann persónulega um
þessi mál. Ef Kalli, vinur minn,
aftur á móti er þarna á rangri leið,
þá er nú kjörið tækifæri til að
upplýsa málið því slæmt er að
liggja undir slíkum grun.
MaKnús j SÍKurj(>ns| son ' Á EFTIR BOLTANUM
Ógerlegt er að spá
um úrslit í
leikjum helgarinnar
UM HELGINA fer fram 11. umferð i íslandsmótinu í knattspyrnu, 1
deiid. Fimm leikir eru á dagskrá og eins og sjá má á stöðunni i 1. deild
er hvert stig, sem liðin ná sér i, mjög dýrmætt. Deildin er opin í báða
enda og úrslit i siðustu leikjum hafa sannað það að allt getur gerst og
aldeilis ógerlegt er að ætla sér að spá um úrslit i einhverjum ieikjum.
Allt getur gerst og engin úrslit koma lengur á óvart. Sem dæmi má
nefna að i siðustu umferð tapaði Valur, efsta liðið, fyrir FH-ingum
sem eru i neðsta sæti. Hér á eftir fara svo leikir helgarinnar sem
leiknir verða i öllum flokkum og deildum. Jafnframt staðan i 1. deild,
2. deild, og staðan i riðlunum i 3. deild.
Laugardagur 26. júli
1. drild LauxardalNvóllur kl. 11.00 Þróttur — IJBK
1. drild VcNtmannacyjavöllur kl. lfi.Ofl ÍBV — Fram
2. drild Kaplakrikavollur kl. 11.00 llaukar - ÍBÍ
2. drild llúsavikurvóllur kl. 11.00 Volsunxar — Ármann
2. drild Norðfjarðarvöllur kl. 15.00 Þróttur — KA
3. drild A SandxerðÍNVöllur kl. Ifi.OO Reynir — Katla
3. drild Mrlavöllur kl. lfi.00 Óóinn — Hekla
3. drild B Njarðvíkurvöllur ki. ifi.no Njarðvik - Viðir
3. drild Varmárvöllur ki. ifi.on Afturelding — Ilveragerði
3. drild Grindavikurvollur ki. ifi.no Grindavik — Stjarnan
3. drild C BorxarnoNvöllur ki. ifi.no Skallagrimur - Vikinxur
3. drild BúðardalNvöllur kl. lfi.00 Ólafur Pá - Snæfell
3. drild llrlli.NandNNandsvollur kl. lfi.00 Reynir — Bolungarvik
3. drild D Grrnivíkurvollur kl. lfi.00 Magni — Hofðstrendinxur
3. drild Alftaháruvollur ki. ifi.no IISÞ b — KS
3. drild LauxalandNvöllur kl. lfi.00 Árroðinn — Leiftur
3. drild E Blonduosvollur ki. ifi.no USAII — Daxsbrún
3. drild Lauxavöllur ki. ifi.no Eflinx — Tindastoll
3. (I. D KAvölIur kl. lfi.Ofl KA - KS
3. fl. Þorsvollur kl. lfi.00 Þór — Tindastóll
1. fl. C Vikurvöllur ki. ifi.no Katla — Skallaxrímur
f. fl. D KA-völlur kl. 15.00 KA - KS
f. fl. Þorsvollur kl. 15.00 Þór — Tindastoll
5. H. C Grindavikurvöllur kl. 15.00 dGrindavik — Skallagr.
5. fl. D KA-völlur ki. n.no KA - KS
5. fl. ÞórNvöllur kl. 11.00 Þór — Tindastóll
Sunnudagur 27. júli.
1. drild Lauxardalsvöllur kl. 20.00 Valur - KR
f. fl. C Varmárvöllur kl. 11.00 Aftureldinx — Skallaxr.
Mánudagur 28. júli.
l.drild Lauxardalsvollur kl. 20.00 Vikinxur - lA
l.drild Keflavikurvöllur kl. 20.00 IBK - FII
„Var að koma
frá því að
kaupa MoggamT
sagöi Sveinn Björnsson fararstjóri
— „Ég er mjög ánægður með allan aðbúnað hér i Ólympiuþorp-
inu, matur er bæði mikill og góður og úr mörgum réttum að
velja. Ails eru 306 réttir á boðstólnum og ekki færri en 100
tegundir daglega,“ sagði Sveinn Björnsson aðalfararstjóri
islenska hópsins á leikunum, er Mbl. ræddi við hann i gærdag.
— „Þá erum við mjög ánægðir með annan aðbúnað hér i
þorpinu. Við búum í stórri íhúðablokk og höfum þar þrjár
ibúðir útaf fyrir okkur og skrifstofu. Hér er allt með mjög
svipuðu fyrirkomulagi og var i Montreal i Kanada. Allt eftirlit
er strangt en þó eru engir vopnaðir verðir hér i þorpinu eins og
var i Kanada.
— Göturnar kringum þorpið eru lokaðar allri umferð, og
sérstakt leyfi þarf til þess að komast inn í þorpið. Skipulagið á
leikunum er mun betra en ég átti von á,“ sagði Sveinn. „Veðrið
hefur verið gott og núna er um 20 stiga hiti, en sólarlaust. Enn
sem komið er höfum við ekki farið mikið út úr þorpinu, við höfum
fylgst með keppni í ýmsum greinum í sjónvarpinu, og jafnframt
farið í fimleikahöllina fylgst með keppni þar og séð sundkeppn-
ina. Árangur í öllum greinum hér er frábær, og fjöldi heimsmeta
hefur fallið.“ Sveinn sagði að það kæmi berlega í ljós að ekki væri
eins mikið um að vera í olympíuþorpinu eins og í Montreal, en
þess bæri að gæta að þorpið væri byggt fyrir 14 þúsund manns en
aðeins sjö þúsund keppendur væru í þorpinu, þar sem 60 þjóðir
eru fjarverandi. íslenski flokkurinn hefur enn ekkert farið inn í
sjálfa miðborg Moskvu en Sveinn sagði að sér fyndist vera góð
stemmning í kring um leikanna og fólkið væri glaðlegt. Að lokum
sagðist Sveinn vera nýbúinn að kaupa sér Morgunbiaðið í
Ólympíuþorpinu, en þar væri það til sölu ásamt fjölda annarra
blaða. „Nú bíð ég bara eftir að geta lesið skammirnar í blaðinu
yfir því að íslenskt íþróttafólk skuli taka þátt í leikunum hér,“
sagði Sveinn og bað fyrir bestu kveðjur heim.
— ÞR.
„Það var gott að fá
að kynnastþessu“
sagöi Oddur Sigurðsson
„ÞETTA var nú meira grin en
alvara.“ sagði Oddur Sigurðsson
spretthlaupari, er Mbl. ræddi við
hann i gær um keppni hans i 100
metra hlaupinu. „Ég fór i 100
metra hlaupið til þess að kynnast
undirbúningnum fyrir keppnina
á leikvanginum, 400 metra hlaup-
ið er min aðaigrein og i þvi
vonast ég eindregið til að ná
góðum árangri. — Mér fannst
brautin vera mjög góð, en þegar
ég var nýkominn út úr start-
blokkunum hélt ég að það hefði
verið þjófstartað og þvi hægði ég
verulega á mér. En það hjálpar
að hafa tekið þátt i þessu og fá að
kynnast þvi hvernig þetta geng-
ur fyrir sig.
Það kom mér til dæmis verulega
á óvart, hversu langan tíma það
tók að komast á aðalleikvanginn,
það tók okkur um 40 mínútur og á
þeim tíma þurftum við að fara í
gegn um fjögur hlið, þar sem
skilríki okkar voru skoðuð gaum-
gæfilega. Þannig að 40 mínútur
fyrir sjálft hlaupið fengum við
ekkert að hreyfa okkur. Og svo
fengum við aðeins eitt æfingastart
úr blokkunum.
Ég er mjög ánægður með allan
aðbúnað hér, og það er ýmislegt
um að vera í Ólympíuþorpinu,
íþróttafólkinu til skemmtunar. Þá
fylgjumst við náið með allri
keppni hér, bæði í sjónvarpi og
eins á leikvanginum," sagði
Oddur.
- þr.
Svíar unnu í
fimmtarþraut
SVÍAR urðu sigurvegarar i
nútima fimmtarþraut á
Olympiuleikunum i Moskvu,
hlaut sænska sveitin 3640
stig, en Bretland sem hafn-
aði í öðru sæti, fékk 3584
stig. Pólverjar höfnuðu í
þriðja sætinu með 3576 og
Rússar höfnuðu i fjórða sæti
með 3552 stig.
STAÐAN í 1. deild að loknum 10 umferðum
er nú þessi:
Valur
Akranes
Fram
Víkingur
Breiðablik
ÍBV
KR
Keflavík
Þróttur
FH
10 6 1 3
10 5 3 2
10 5 2 3
10 3 5 2
10 5 0 5
10 4 2 4
10 4 2 4
10 2 4 4
10 2 3 5
10 2 2 6
22-10 13
17-10 13
11-13 12
11-10 11
18-14 10
17-18 10
10-11 10
9-14 8
7-10 7
14-27 6