Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 26.08.1980, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1980 Norðmennirnir, Jan Johansson og Finn Ryhl-Andersen, fagna sigri uppi á þaki bifreiðar sinnar á sunnudagskvöld og sprauta kampavíni yfir nærstadda. „Svona svakaleg- um vegum höfðum við ekki búist við“ „ÉG IIEF aldrei áður séð slíka vegi, — það var búið að segja okkur að vegirnir hér væru vondir en svona svakalegum vegum höfðum við ekki búist við,“ sagði Jan Joh- ansson, annar sigurveg- arana í Ljómarall ’80, er blaðamaður Morgun- blaðsins spjallaði við hann um keppnina. Norð- mcnnirnir Finn Ryhl- Andersen og Jan Joh- ansson óku á Datsun 160 J og fengu eina klukkust- und og tuttugu mínútur í refsistig. í öðru sæti lentu Hafsteinn Aðal- steinsson og ólafur Guð- mundsson á Subaru GFT og fengu þeir eina klukk- ustund, fjörutíu og níu mínútur í refsistig. I þriðja sæti, Bragi Guð- mundsson og Matthías Sverrisson á Lancer með tvær klukkustundir og átján mínútur t refsistig. Sautján bílar hófu keppnina en einugis sjö komust á leiðarenda og höfðu þá lagt að baki 2.696 km leið á fimm dögum. „Okkur stóð fyrst nokk- ur stuggur af ánum, því við höfðum heyrt ljótar sögur af því hvernig farið hefði fyrir ökumönnum í viðureigninni við þær,“ sagði Johanson, „en eftir - segir Johansson, annar Norðmann- anna sem sigruðu í Ljómaralli ’80 að hafa farið yfir þá fyrstu höfðum við minni áhyggjur af þeim. Þó var mjótt á mununum að við kæmumst yfir þær sumar, tvisvar fengum við vatn í kveikjuna og yfir eina þeirra fórum við á einum sílindra — við rétt mörð- um það yfir og það heyrð- ist í bílnum eins og í gömlum trillubát." Áttuð þið von á að vinna þessa keppni? „Nei, okkur kom það ekki til hugar. Við höfðum heyrt að vegirnir hér væru slæmir og vonuð- umst aðeins til að komast alla leið. Á öðrum degi, þegar Eggert og Tryggvi féllu út úr keppninni, fór- um við að gera okkur vonir um flokkaverðlaun, — bílunum er skipt í flokka eftir breytingum, vélarstærðum o.fl. og veitt verðlaun þeim sem fyrstur er í hverjum flokki. Það var ekki fyrr en við lok keppninnar að við gerðum okkur ljóst að við hefðum möguleika á að vinna. Það hefur áreið- anlega komið okkur sjálf- um mest á óvart." Ef þessi keppni yrði endurtekin að ári, mynd- uð þið þá taka þátt í henni? „Það var mjög gaman að þessari keppni og við ættum sjálfsagt erfitt með að standast freisting- una — þó að við gerum okkur auðvitað ljóst að við myndum varla vinna aftur. Þið hafið alveg sér- staklega góða rallvegi hér en það þarf góða og trausta bíla til að stand- ast álagið — við sigruðum fyrst og fremst vegna þess hvað við höfðum góðan bíl. — Hér á íslandi væri upplagt að koma á alþjóð- legri rallkeppni, — til þess þarf ekkert nema viljann. Hér hagar mjög vel til fyrir slíka keppni, en flestar aðrar þjóðir eru komnar með svo þróað vegakerfi að þar verður að aka á sérstökum rall- brautum sem ekki eru fyrir venjulega umferð." Að lokum sagði Joh- ansson: „Þessi keppni var sérstaklega vel skipulögð og mjög vel staðið að öllum undirbúningi. Okkur er efst í huga þakklæti til þeirra hér á Islandi sem greiddu götu okkar og gerðu okkur fært að taka þátt í þessari keppni." Sæmundur Arelíusson Þormóði ramma, Siglufirði: „Rekstrargrund- völlur er óbreyttur“ — VIÐ höfum fregnað, að menn hafi orðið varir við síld hér út af Norðurlandi og ég býst við, að reynt verði að salta sild á Siglufirði, ef einhverjir fara á reknet, sagði Sæmundur Áreliusson hjá Þormóði ramma á Siglufirði. — Hér hefur ekki verið söltuð síld síðan 1976, en það ætti þó að verða vandalítið að bjarga því við, ef af yrði. — Annars er það að segja, að staðan í frystihúsarekstrinum hefur ekkert breyst, það eru sömu laun og 1. júní, sama fiskverð, og þótt gengissigið hafi eitthvað lappað uppá, hafa hinir geysiháu vextir þau áhrif að við erum nákvæmlega í sömu sporum og fyrr. Næsta holskefla kemur síðan 1. september þegar launahækkun og nýtt fiskverð koma til fram- kvæmda. — Það ætti öllum að vera ljóst, að þegar fiskverð t.d. á ferskfiski á Bretlandi hefur lækkað í pundum um 25%, við sívaxandi tilkostnað, verður ekkert fyrirtæki rekið. Annars eru það þessir himinháu vextir sem reynast okkur erfiðast- ir og ég get ekkert séð framundan sem bendir tii bjartari tíma. — Við höfðum vonað, að við yrðum látnir í friði með þorsk- veiðarnar fram í desember, en nú er það ljóst að svo er ekki, við missum út 27 daga næstu þrjá mánuði, þannig að útlitið er dökkt. — Frystihúsið hefur opnað aft- ur án þess að grundvöllurinn hafi nokkuð breyst, fólkið fór aðeins í sumarfrí eins og um var talað og kom aftur úr sumarfríi, en staðan er óbreytt, sagði Sæmundur að- spurður að lokum. Eyjólfur Martinsson Isfclagi Vestmannaeyja: „Lausafjárstaðan er enn gífurlega slæmw — VANDI frystihúsanna er í raun sá sami um allt land, og þegar við hættum rekstri í sumar var staðan orðin þannig, að við fengum ekki peninga hjá bankanum til að borga vinnulaun og hráefni, sagði Eyjólfur Martins- son hjá ísfélaginu í Vestmannaeyjum. — Gífurlegar birgðir höfðu safnast hjá okkur og vorum við t.d. einir með um 50 þúsund kassa. Undanfarið hefur grynnkað talsvert á birgðunum, en lausafjárstaðan er enn gífurlega slæm. — Við hér í Eyjum söltuðum þó mjög mikið siðasta vetur og það bjargaði miklu, en hins vegar höfum við ekki getað hengt neitt upp. Það hefur ekki verið hægt síðan eftir gos vegna öskuryks, en við vonumst til að fá aðstöðu á nýja landinu fljótlega og það bætir hag okkar ef skreiðin verður áfram eins verðmikil og hún er núna. — Peningalega hafa fyrirtækin aðeins rétt úr kútnum undanfarið, en þó alls ekki nægjanlega. Margir þurfa lán til að bjarga sér og sú fyrirgreiðsla, sem Seðlabankinn ætlar að veita Útvegsbankanum, til að hann geti hjálpað, kemur eflaust í góðar þarfir. — Menn ern að tala sig saman þessa dagana um að hefja rekstur á næstunni, en í því er þó ekkert ákveðið og í raun ekki fýsilegt að fara af stað aftur. Síldveiðarnar byrja í næstu viku og það er trúlegt að þær reki einhverja af stað, en það er þó ekki víst því fyrsta síldin kom ekki fyrr en 4. september í fyrra. Hvenær við byrjum að taka á móti fiski er ekki vitað, en ætli það verði ekki í síðasta lagi viku af september, sagði Eyjólfur Mart- insson. Utanríkisráðherra Austur- Þýzkalands í heimsókn hér OSKAR FISCHER, utan- ríkisráðherra Austur- Þýzkalands, kom hingað til lands í opinbera heim- sókn í gærmorgun. Ilann heldur aftur utan síðar í daK- . . , I gær hitti hann Olaf Jóhannesson utanríkisráð- herra og ýmsa starfsmenn utanríkisráðuneytisins. Þá fór ráðherrann í heimsókn í frystihúsið ís- björninn og skoðaði Árna- safn. í gærkvöldi hélt Ólaf- ur Jóhannesson utanríkis- o INNLENT k A ráðherra svo hinum aust- ur-þýzka starfsbróður sín- um kvöldverð að Hótel Sögu. í dag hittir utanríkisráð- herrann austur-þýzki m.a. Gunnar Thoroddsen for- sætisráðherra, Vigdísi Finnbogadóttur, forseta ís- lands og Sigurjón Péturs- son, forseta borgarstjórnar Reykjavíkur. Maðurinn ófundinn MAÐÚRINN, sem sveik 2,6 millj- ónir króna út úr veðdeild Lands- bankans Laugavegi 77 sl. föstu- dag hcfur ekki náðst ennþá. Rannsóknarlögregla rikisins vinnur kappsamlega að þvi að uppiýsa málið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.