Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna Skrifstofa Norrænu Ráðherranefndarinnar óskar eftir ráðunaut Skrifstofa Norrænu Ráðherranefndarinnar óskar eftir að ráða ráöunaut sem aðallega á aö sjá um neytendamál, en hlutaöeigandi verður einnig að geta tekið að sér verkefni á öðrum fagsviðum. Norræna Ráðherranefndin er samstarfs- vettvangur norrænu ríkisstjórnanna og var sett á stofn 1971. Samstarfið tekur til flestra sviða þjóðfélagsins, m.a. lagasetninga, iön- aöar, orkumála, náttúruverndar, vinnumark- aöar, vinnuumhverfis, félagsmálastefnu, byggöastefnu, neytendamála, flutningamála og norrænnar aðstoðar við þróunarlöndin. Skrifstofa ráðherranefndarinnar, sem er í Osló, sér um daglega framkvæmdastjórn samstarfs sem fellur undir starfsvettvang Ráðherranefndarinnar og annast skýrslu- gerð, undirbúning og framkvæmd ákvarðana Ráðherranefndarinnar og stofnana þeirra sem undir hana heyra. Starf ráöunautarins er m.a. fólgiö í því aö annast ritarastörf fyrir Norrænu embættis- mannanefndina sem fjallar um neytendamál (NEK) og svo hafa samband viö ýmiss konar stofnanir, fylgjast með áætlunum og starfs- hópum á sviöi neytendamálefna. Umsækjendur eiga að hafa reynslu af opinberri stjórnsýslu. Hlutaðeigandi þarf einnig að hafa góða stjórnunar- og sam- starfshæfileika og verður að geta unnið sjálfstætt. Æskilegt er að umsækjandi þekki til norrænnar samvinnu. Krafist er mjög góöra hæfileika til aö tjá sig greinilega í ræðu og riti á einu starfsmáli skrifstofunnar, dönsku, norsku eða sænsku. Starfið hefur í för meö sér nokkur ferðalög á Norðurlöndum. Ráðningartími er 3—4 ár með hugsanlegum möguleikum á framlengingu. Ríkisstarfsmenn eiga rétt á allt að 4 ára leyfi frá störfum. Góð laun og starfsskilyrði eru í boði. Umsóknarfrestur er til 1. desember 1980. Staðan er laus frá 1. janúar 1981. Nánari upplýsingar gefur avdelingssjef Osmo Kaipainen/ konsulent Henrik Wichmann eða administrasjonssjef Per M. Lien, sími (02) 11 10 52. Skriflegar umsóknir sendist: Nordisk Ministerráds generalsekretær, Postboks 6753, St. Olavs plass, Oslo 1. 36 ára bifvélavirki meö meirapróf óskar eftir vel launaöri atvinnu (ekki á verkstæði). Akstur við útkeyrslu eða vörubílaakstur. Margt annað kemur til greina, t.d. lagerstarf. Tilboð óskast send augld. Mbl. merkt: „Góður starfskraftur — 3300.“ Vertíðarbátar Fiskvinnslufyrirtæki á Suðurnesjum óskar eftir netabátum í viðskipti á komandi vetrar- vertíö. Tilboö merkt: „Fyrirgreiösla — 3408,“ sendist Mbl. Frá Heilsugæslustöð Kópavogs Hjúkrunarfræðingur óskast í heimahjúkrun frá 1. janúar til 1. júní 1981. Upplýsingar hjá hjúkrunarforstjóra, sími 40400. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar tilkynningar Akraneskaupstaður Lóðarúthlutanir Þeir sem hyggjast hefja byggingarfram- kvæmdir á árinu 1981 og ekki hafa fengið úthlutað lóð er hér með gefinn kostur á að sækja um lóðir. Úthlutun er fyrirhuguð á eftirtöldum svæðum: Einbýlis- og raðhús á Jörundarholti, iðnað- arhús á Smiöjuvöllum og við Höfðasei, fiskverkunar- og fiskvinnsluhús á Breið, verslanir, þjónustustofnanir og íbúöir á svæði milli Kalmannsbrautar og Dalbrautar, og hesthús á Æðarodda. Nánari uppl. um lóðirnar eru veittar á skrifstofu byggingarfulltrúa Kirkjubraut 2, Akranesi. Lóðarumsóknum skal skila á skrifstofu byggingarfulltrúa á sérstökum eyðublöðum sem þar fást fyrir 25. nóvember 1980. Nauðsynlegt er að þeir sem áöur hafa sótt um lóöir á þessum slóðum endurnýi um- sóknir sínar. Byggingarfulltrúi Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir októbermánuð 1980, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 25. þ.m. Viöurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 20%, en síðan eru viðurlögin 4,75% til viðbótar fyrir hvern byrjaöan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaðar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið, 17. nóvebmer 1980. VANTAR ÞIG VINNU VANTAR ÞIG FÓLK Þl AIT.LVSIR L'M ALLT LAND ÞEGAR ÞL ALG- LYSIR I MORGIABLADIM O Til sölu Byggingarfélag Alþýðu hefur til sölu 3ja herb. íbúð í 2. flokki. Félagsmenn sendi umsóknir fyrir 30. þ.m. á skrifstofu félagsins Bræðra- borgarstíg 47. Stjórnin Akureyringar Kvöldverðarfundur með Halldórl Blöndal verður í lltla salnum i Sjálfstæðlshúslnu fimmtudaginn 20. nóv. kl. 7. Genglö Inn aöaldyramegin. Fjölmennið. Allir velkomnir. Vöröur F.U.S. Aðalfundur Sjálfstæðis- félagsins Óðins veröur haldinn sunnudaginn 23. nóv. kl. 4 aö Tryggvagötu 8, Selfossi. Stjórnin Aðalfundur Félag ungra sjálfstæöismanna í Mýrarsýslu veröur haldinn á Hótel Borgarnesi mánudaginn 24. nóvember kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Kosning fulltrúa á landsfund. 3. Önnur mál. Stjórnln Barnavinafélagið Sumargjöf heldur aðalfund þriðjudaginn 25. nóv. n.k. í Tjarnarborg, Tjarnargötu 33, kl. 17. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Aðalfundur F.U.S. Árnessýslu veröur haldinn laugardaginn 22. nóv. 1980 kl. 14 í Sjálfstæöishúsinu, Tryggva- götu 8, Selfossi. Oagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. önnur mál,- Gestur fundarlns veröur Jón Ormur Halldórsson 1. varaformaöur Sambands ungra sjálfstæöismanna. Stjórnin. Flokksráös- og formannaráðstefna Sjálfstæðisflokksins 29—30. nóvember 1980 Hér meö er boöaö til: Flokksriös og formannaráöstefnu Sjálfstæöisflokksins aö Hótel Esju, 29.—30. nóvember 1980. Dagskrá fundarins er á þessa leið: Laugardagur 29. nóvember: Kl. 10.00—12.00 Flokksráös- og formannaráðstefnan sett. Rasöa Geirs Hallgrímssonar formanns Sjálfstæöisflokksins. Kosning stjórnmálanefndar. Kl. 13.30—18.00 Ræöur Matthíasar Bjarnasonar alþm. og Matthíasar Á. Mathiesen alþm. um kjördæmaskipan og kosningalög. Ræða Kjartans Gunnarssonar framkvæmdastjóra um val frambjóöendaprófkjör. Greinargerö starfshóps um álitsgerölna (sland til aldamóta. Dr. Gunnar G. Schram. Almennar umræöur. Sunnudagur 30. nóvember: Kl. 10.00—12.00 Starfshópar starfa um: a. stjórnmálaályktun. b. kosningalög — kjördæmaskipan — val frambjóöenda. c. álitsgerö starfshóps um fsland til aldamóta Kl. 13.30 Almennar umræöur. Afgreiösla nefndarálita. Afgreiösla stjórnmálayfirlýSingar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.