Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 19.11.1980, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 1980 25 fclk í fréttum Á Álandseyjum + ÞESSI mynd er tekin aí Ashkenasy-fjölskyldunni, er Vladimir hélt tónleika í höfuðborx Álandseyja, Mariehamn fyrir nokkru. Milli hans og Þórunnar konu hans standa þau Anna Guðjónsdóttir, sem heldur á 19 mánaða dóttur þeirra, Sasha. Sigrún er hjá þeim hjónum um þessar mundir. Maðurinn heitir Börje Láng, ok er formaður TónlistarfélaKsins á Álandseyjum. Þórunn og Vladimir eru nú búsett í Svisslandi. Gömul stríðshetja + ÞESSI fréttamynd var tek- in 11. nóvember síðastliðinn, á „Vopnahlésdaginn*4 við Sig- urbogann i Paris. Þar var að venju efnt til minngarathafn- ar og meðal þeirra, sem þar mættu, var þessi gamli franski hermaður, Pierre Recobre, sem hélt á herdeiid- arfána sinum, en hann barð- ist í fyrri heimsstyrjöldinni. Hlaut Pierre þá margar med- alíur fyrir framgöngu sína. Við athöfn þessa lagði Frakklandsforseti, Giscard d'Estaing, blómsveig við gröf Óþekkta hermannsins. Minnst var og þeirra frönsku hermanna er féllu i siðari heimsstyrjöldinni, í Indó Kína-styrjöldinni og i hernað- arátökum i Álsir. Lögmaður Færeyja + SPURNINGIN er hvort þessi maður muni verða næsti lög- maður í Færeyjum og taka við af Atla Dam. Þetta er lögþingsmað- urinn Pauli Ellefsen, sem er formaður Sam- bandsflokksins, sem er stærsti flokkurinn á færeyska lögþinginu. Mun hann fyrstur stjórnmálaforingja í Færeyjum reyna að mynda meirihluta- stjórn í Færeyjum. Pauli Ellefsen er mað- ur 44 ára. Hann hefur setið á þingi í Færeyj- um frá árinu 1974. Á því sama ári varð hann formaður þing- flokks Sambands- flokksins á lögþinginu og formaður flokksins varð Pauli fyrir tveim árum. Þessar stöllur, Anna Maria Garðarsdóttir og Eva Lisa Svansdóttir. söfnuðu nær 12.000 krónum til Afríkuhjáipar Rauða krossins. Þessar skólatelpur hafa hjálpað til við að safna peningum til Afrikusöfnunar Rauða krossins. Þær efndu til hlutaveltu og söfnuðu þar 30.000 krónum. Telpurnar heita Kolbrún Jónsdóttir, Unnur Jóna Bryde, Eiin Hilmarsdóttir og Auður Gunnarsdóttir. Þessir ungu menn, sem eiga heima i Hliðahverfinu í Reykjavik. héldu hlutaveltu að Drápuhlíð 22, til ágóða fyrir Afrikuhjálp Rauða krossins. Þeir söfnuðu rúmlega 11.000 krónum. Þeir heita Jóhann D. Snorrason. Sverrir E. Eiriksson og Ragnar Valsson. Þessir strákar efndu til hlutaveltu til ágóða fyrir Afrikusöfnun Rauða krossins, að Fögrubrekku 37 i Kópavogi. Þeir söfnuðu 7000 krónum Strákarnir heita Arnar Grétarsson, ólafur ólafsson og Jón II. Steingrimsson. Þessar stöilur, sem eiga heima i Breiðholtshverfi. efndu til hlutaveltu að Flúðaseli 70, til ágóða fyrir Afrikusöfnun Rauða krossins. Þær söfnuðu rúmlega 16.700 krónum. Þær heita Guðriður Eiriksdóttir, Bryndis Árnadóttir og Ásthildur Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.