Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 30.11.1980, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 30. NÓVEMBER 1980 7 Umsjónarmaöur Gísli Jónsson_____________ 76. þáttur Reykvíkingur, sem vill ekki láta birta nafnið sitt, sendi mér bréf fyrir nokkru og segir að sig langi til að nefna fáein „hversdagsleg“ atriði, mest í formi spurn- inga. Spurningar Reykvík- ings eru margar erfiðar svara, og er sýnt að hann hefur næman smekk og góða þekkingu á íslensku máli. Fyrsta spurning er sú, hvort orðasambandið að varpa fyrir róða, sem hann heyrði „íslenskumann" segja í útvarpinu nýlega, sé ekki samruni úr að láta fyrir róða og varpa fyrir borð. Vel má vera að svo sé, og verður nú fjölyrt nokkuð um þetta. Mér skilst að algengast sé að nota sagnirnar láta og leggja með karlkynsnafnorð- inu róði og þá í þeirri merkingu að láta eitthvað sigla sinn sjó, leggja eitthvað niður, kasta einhverju á glæ. Þetta er fornt mál. Mjög greinir menn á um hvað róði merki í þessu sambandi. Það mun geta verið sækonungs- heiti eða tákn fyrir annað- hvort vind eða sjó. Enn hefur komið fram sú skýring, að róði sé sama og róðukross (Sigurður Skúlason). Sú skýring er sennilega komin til vegna vísu eftir Hallfreð Óttarsson vandræðaskáld: Sás með Sygna ræsi siðr, at biót eru kviðjuð; verðum flest að forðask fornhaldin sköp norna; láta allir ýtar óðins blót fyrir róða; verðk ok neyddr frá Njarðar niðjum Krist at biðja. (isl. fornr. VIII, 159) í þessari vísu segir Hall- freður frá því, að með Ólafi Tryggvasyni megi ekki rækja heiðnar venjur, og kemst hann meðal annars svo að orði, að allir menn láti Óðins blót fyrir róða, þ.e.a.s. leggi það niður eða gefi það upp á bátinn. Aðrir skýrendur hafa fremur hallast að því, að róði merkti vindur eða sær. Eig- inleg merking orðasam- bandsins væri þá að láta eitthvað fjúka út í veður og vind eða fleygja því í sjóinn. Hér er svo eitt dæmi enn um forna notkun orðasambands; ins að láta fyrir róða. í Vöðu-Brandsþætti segir: „Mun ek þó við þér taka, því at ek man eigi, at ek hafa heimamann minn fyrir róða látit.“ Er þetta hér í merkingunni að sleppa hend- inni af einhverjum, gæta hans ekki. Það sem hér hefur verið sagt um orðtakið að láta (leggja) fyrir róða (óðal), er að mestu fengið úr doktors- ritgerð Halldórs Halldórs- sonar prófessors. Sýnist spurning hins ónefnda Reykvíkings hafa átt fullan rétt á sér. Ég er sammála Reykvík- ingi í því, að betra mál sé að víkja að eða minnast á heldur en koma inn á eitt- hvað, einnig að smekklegra sé að segjast ekki sjá handa skil heldur en að sjá ekki út úr augunum, og þykir mér þetta síðara þó ekki miklu skipta. Sögnina að burt- skýra hef ég aldrei heyrt eða séð og veit því ekki hvað merkir, en orðasambandið burtséð frá þykir mér ekki eftirsóknarvert. Reykvíkingur nefnir með réttu dæmi ýmissa atviks- orða, sem enda á -lega og eru nú ofnotuð eða öllu heldur höfð að óþörfu, svo sem rekstrarlega, íþróttalega, aldurslega. Fyrirtæki er illa statt rekstrarlega, leikurinn var íþróttalega bágborinn, drengirnir voru á líku reki aldurslega. I þessum dæmum er atviksorðið óþörf eða þarf- lítil viðbót, hortittur, eða eins og Reykvíkingur orðar það: „ólystug upptugga". Þá minnist Reykvíkingur á þá gerð sagnfælni, sem fólg- in er í því að láta alla skapaða hluti fara fram. Dæmi: Kennsla fer fram uppi á lofti. Menn nota nafnorð og merkingarlitla sögn í stað einnar merk- ingarríkrar sagnar: Kennt er uppi á lofti. Enn nefnir hann hina leiðu enskuslettu að nota sí og æ lýsingarhátt nútíðar af sögnum, svo sem: Talandi um verðbólguna, má geta þess o.s.frv. Vandalítið ætti að vera að komast hjá málspjöllum af þessu tagi. Reykvíkingur tekur enn dæmi af slöppum stíl, þar sem hver tilvísunarsetningin rekur aðra: „Það er skáksam- bandið, sem stendur fyrir þessu móti, sem ætlað er að efla skákáhuga ...“ Auðvelt er að reisa stílinn við og segja: Skáksambandið stend- ur fyrir þessu móti, sem ætlað er o.s.frv. Mér þykir það ekki mál- leysa, þó sagt sé að grípa andann á lofti í merkingunni að taka andköf, en ég hef sama smekk og Reykvíkingur að því leyti, að mér þykir mun fallegra mál að efna loforð heldur en uppfylla það. Ég segi að missa sjónar á einhverju, ekki af ein- hverju, og mér þykir eins og Reykvíkingi fallegra mál að úlfar séu ekki til á íslandi heldur en að úlfar finnist ekki. Endalaust má deila um u- eða o-framburð í þágufalli fleirtölu. Þeir sigldu skipun- um eða þeir sigldu skiponum. Framburðurinn með 0 er seigur þrátt fyrir lestrar- kennslu og skólagöngu. Sveinn Víkingur bjó til vísnagátur. Um fang kvað hann þessa braghendu: Ýmsa langar upp i það á ungum konum Svo er það bæði barn í vonum og búið til i heyflekkjonum. Hafnarfjörður Til sölu m.a. Kaldakinn 3ja—4ra herb. íbúö í þríbýlis- húsi. Sér inngangur. Geymsla og þvottahús í kjallara. Bíl- skúrsréttur. Laus fljótlega. Fagrakinn Ca. 150 ferm. einbýlishús á tveimur haeðum með bílskúr. Móabarö 5 herb. 90 ferm. íbúð meö bílskúr. ibúö í mjög góöu standi. Stór lóö. Hraunbær 3ja—4ra herb. 96 ferm. íbúö í fjölbýlishúsi. Höfum kaupendur aö 2ja, 3ja og 4ra herb. íbúöum í Hafnarfiröi eða nágrenni. Guðjón St*ingrfm««on hrl. Linnatstfg 3, Hafnarfirði, afmi 53033. 1 1 Al’UI.VSINUASIMINN KR: 22480 Vesturbær — Melar 120 ferm. efri hæð ásamt risi saman, sér eining. Sérlega vönduð eign ásamt bílskúr og ræktaðri lóð. Stórageröi 4ra herb. á 3. hæö. 2 svefnherb. 2 samliggjandi stofur. Herb. í kjallara, geymsla og bílskúrsréttur. Laugarnesvegur 4ra—5 herb. á 4. hæö, 3 svefnherb., góö sameign. Vantar 3ja herb. íbúö í Fossvogi, góöir kaupendur. Höfum góöan kaupanda aö raöhúsi viö Álfaskeiö í Hafnarfiröi. Vantar allar eignir á söluskrá — góöir kaupendur. Húsamiðlun fasteignasala, Templarasundi 3, símar 11614 og 11616. Þorvaldur Lúðvíksson hrl., heimasími 16844. Falleg 3ja herb. íbúö í Noröurbænum í Hafnarfiröi til sölu. Endaíbúö um 100 fm. á 2. hæö í fjölbýlishúsi á rólegum staö. Sér þvottahús. Suöur svalir. íbúöin er í 1. flokks ástandi. Verö kr. 37—38 millj. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, Hafnarfiröi, sími 50764. FASTEIGNA HÖLLIN FASTEIGNAVIÐSKIPTI MIÐBÆR-HÁALEITISBRAUT 58-60 SÍMAR-35300& 35301 í smíöum Viö Bauganes Vorum aö fá í sölu glæsilegt 2ja hæöa tvíbýlishús að grunnfleti ca. 150 ferm. Hæöirnar seljast frágengnar aö utan meö gleri, en í fokheldu ástandl að innan. Falleg teiknlng. Viö Fjaröarás Elnbýlishús á einni hæö, aö grunnfleti 170 ferm. meö innbyggöum bílskúr. Selst fokhelt. Til afhendingar strax. Fokheld raöhús Við Melbæ, Brekkubæ, Flúðasel og víðar. Teikningar á skrifstofunni. ■ tmm mm mm mm mm mm mmm mmm m /£*JJvHÍJSVANGUK ÁA fasteignasala LAUGAVEG24 SÍMI21919 — 22940. Opiö í dag frá kl. 1—3 Seljahverfi — Raöhús Ca. 220 ferm. fallegt endaraöhús er skiptlst í kjallara og 2 hæöir. Bílskýli. Svalir í suöaustur. Verö 80 millj., útb. 57 mlllj. Einbýlishús — Mosfellssveit Ca. 115 ferm. fokhelt einbýlishús meö bílskúr. Hornlóö ca. 900 ferm. Verö 46 mlllj. Heiöargeröi — einbýli 2x56 ferm. einbýlishús á tveimur hæöum. Möguleiki á tveimur íbúðum. Góður bílskúr. Verö 75 millj., útb. 55 millj. Raöhús — fokhelt — Seltjarnarnesi Ca. 260 ferm. fokhelt raöhús á tveimur hæöum meö innb. bílskúr. Ris yfir efri haaö. Verö 55 mlllj. Drápuhlíö — Sérhæö Ca. 127 ferm. íbúö á 1. haBð íb. skiptist í 2 rúmgóö herb. og samliggjandi stofur, stórt eldhús og baö. Sklpti á timbur-einbýllshúsi í gamla bænum æskileg. Verö 55—60 millj., útb. 40—45 millj. Kleppsvegur — 4ra herb. Ca. 105 ferm. falleg íbúö á 4. hæö í fjölbýlishúsi. Svalir í suöur Verö 40 milij., útb. 30 mlllj. Dvergabakki — 4ra herb. Ca. 110 ferm. falleg íbúö á 1. hæö í fjölbýlishúsi. Vestursvalir. Þvottaherb. innaf eldhúsi. Verö 40 millj., útb. 30. Njálsgata — 4ra herb. Ca. 117 fm. góö íbúö á 2. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi. Verö 43 millj., útb. 34 mllij. Krummahólar — 4ra herb. laus Ca. 100 ferm. íbúö á 3. hæö í fjölbýllshúsi. Miklö útsýni. Suöursvallr. Verð 40 millj., útb. 30 mlllj. Kóngsbakki — 4ra herb. Ca. 105 ferm. íbúö á 3ju hæö í fjölbýlishúsi. Þvottaherb. inn at eldhúsi. Svalir (suöur. Verö 40 mlllj., útb. 29—30 mlllj. Bjargarstígur — 4ra herb. Ca. 65—70 ferm. fbúö á mlöhæö. Sér hlti. Verö 25 millj. Laugavegur — 3ja herb. Ca. 70 ferm. íbúð á 3ju haað í steinhúsi. Verö 27 millj. Fannborg — 3ja herb. Ca. 96 ferm. íbúö á 3. hæð í fjölbýlishúsi. Búr innaf eldhúsi. Stórar suöursvaiir. Verö 40 millj. Kársnesbraut — 3ja herb. — Kópavogi Ca. 100 term. íbúö á jaröhaaö í fjórbýllshúsi. Sór Inngangur. Sér hiti. Þvottaherb. í (búðinni. Verð 34 millj., útb. 25 millj. Hraunbær — 2ja herb. laus Ca. 65 ferm. glæsileg íbúö é 1. hæð í fjölbýlishúsl. Svallr. Verö 30 millj., útb. 25—26 mlllj. Langholtsvegur — 2ja herb. Ca. 50 term ósamþykkt kjallaraíbúö. Verö 17 mlllj., útb. 12 millj. Laugarnesvegur — 2ja herb. laus strax Ca. 60 ferm. kjallaraíbúö. Sér hlti. Sér inng. Verö 23 millj. Hrísateigur — 2ja herb. Ca. 55 ferm. kjallarafbúö í þríbýlishúsi. Jörö í Skagafiröi með miklum hlunnindum til sölu. Verð tilboð. Skipti á 3ja—4ra herb. íbúö á Reykjavíkursvæöi æskileg. Kvöld- og helgarsímar: Guömundur Tómasson sölustjóri, heimasími 20941 — Viðar Böðvarsson viösk.fræöingur, heimasími 29818.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.